Morgunblaðið - 10.10.1986, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.10.1986, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK Líf mitt er að fjara út „Mín eina von er, að systur minni verði leyft að fara frá Sovétríkjunum“ -segir gyðingurinn Mikhail Shirman sem kominn er til landsins Tel Aviv, AP. CHAIM Herzog, forseti ísraels, sendi i gær Vigdisi Finnboga- dóttur, forseta Islands, bréf þar sem hann biður hana um að ieyfa gyðingum frá ísrael að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í Reykjavík meðan á leiðtoga- fundinum stendur. í gærmorgun fóru 12 ísraelar áleiðis til íslands, m.a. Mikhail Shir- man, sovéskur útflytjandi, en hans bíður það eitt að deyja úr blóð- krabbameini nema systur hans verði leyft fara frá Sovétríkjunum til að hún geti gefið honum bein- merg. „Líf mitt er að fjara út. Mín eina von er, að systur minni verði leyft að fara frá Sovétríkjunum," sagði Shirman við fréttamenn á Ben Guri- on-flugvelli þegar hann lagði af stað til íslands. Systir Shirmans, Inessa Flerov, og Viktor, maður hennar, efndu til mótmæla á miðvikudag fyrir fram- an aðalstöðvar kommúnistaflokks- ins í Moskvu en voru strax handtekin og höfð í haldi í tvo tíma. Viktor hefur sótt um að fá að flytj- ast frá Sovétríkjunum en verið neitað um brottfararleyfi. íslensk yfirvöld hafa hvatt gyð- inga til að koma ekki til landsins til að mótmæla og trufla með því leiðtogafundinn en samkomulag hefur þó tekist um, að 10 banda- rískir gyðingar komi á föstudag. Þeim verður þó ekki leyft að efna til mótmæla. í bréfinu til Vigdísar Finnbogad- óttur, forseta, biður Herzog hana um að „leyfa fulltrúum sovéskra gyðinga að koma málstað sínum á framfæri við umheiminn" meðan á fundinum stendur. Richard Perle í föru- neyti Reagans forseta Washington, AP. RICHARD N. Perle, einn helzti harðlínumaðurinn í bandaríska varnarmálaráðuneytinu, er full- trúi þessa ráðuneytis í sendi- nefndinni, sem kom með Reagan forseta til íslands til viðræðna við Gorbachev Sovétleiðtoga. Þetta er í annað sinn sem Perle, sem er aðstoðarvamarmalaráð- herra með alþjóðaöryggismál sem sitt sérsvið, fer með Reagan forseta til viðræðna við Gorbchev en ekki yfirmaður hans, Weinberger vam- armálaráðherra. Svo virðist þó sem þetta kunni að verða síðasta verkefni Perles á þessu sviði. í gær var það haft eft- ir áreiðanlegum heimildum í vamarmálaráðuneytinu, að Perle hygðist segja af sér, sennilega fyrir árslok. Er Reagan hitti Gorbachev í fyrsta sinn að máli í fyrra, hélt Weinberger kyrru fyrir heima hjá sér eftir að hafa háð mikla baráttu fyrir því á bak við tjöldin, að forset- inn tæki ekki neinu boði Sovét- manna, sem gætu gert SALT II samninginn varanlegan til lang- frama. Ekkert slíkt samkomulag var gert og Reagan tilkynnti í sumar, að Bandaríkin myndu falla frá tak- mörkunum SALT II samningsins í lok þessa árs, án þess að nýr samn- ingur um takmörkun vígúnaðar yrði gerður. Að þessu sinni er Weinberger staddur á miðju löngu ferðalagi, þar sem hann mun m. a. ræða við þjóð- arieiðtoga í Kína, Indlandi, Pakist- an, Egyptalandi og Ítalíu. Enda þótt Perle hafi ekki sömu persónulegu áhrifin á Reagan og Weinberger, þár er sagt, að harðlínusjónarmið hans endurspegli afstöðu Weinbergers, ef þau ganga þá ekki enn lengra. Perle, sem er 45 ára að aldri, er álitinn frábær embættismaður jafnt af vinum hans sem andstæðingum. Hann er fylgjandi þeirri hugmynd, að samið verði um fækkun meðal- drægra eldflauga, sem settar hafa verið upp í Evrópu. Hann heldur Itichard Perle hins vegar fast við það, að tillögur Sovétmanna um fækkuh lang- drægra kjamorkueldflauga, séu óaðgengilegar, að Sovétmenn hafi •bortið alla slíka samninga, sem nokkru sinni hafi verið gerðir og að forsetinn megi aldrei faila frá „stjömustríðs“-áætlun sinni í því skyni að ná samkomulagi. Áskorun Evrópu- þingsins: • • Oryggismál í Evrópu rædd Strasbourg, AP. EVRÓPUÞINGIÐ skoraði í gær á leiðtoga Bandarikjanna og Sov- étrikjanna að ræða öryggismál Evrópu á fyrirhuguðum fundi þeirra i Reykjavík. Lýsti þingið því yfír, að vonast væri eftir því, að viðræður leið- toganna leiddu til þess, að meðal- drægar eldflaugar yrðu fluttar burt frá Evrópu og að komið yrði á banni við tilráunum með kjamorkuvopn og komið i veg fyrir vígbúnað í geimnum. Reagan forseti kveður eiginkonu sína, Nancy, við brottförina frá Washington i gær. Nancy Reagan: Hugulsöm eiginkona Washington, AP.^ FORSETAFRÚ Bandaríkjanna, Nancy Reagan, sá til þess að maður hennar tæki með sér nóg af hlýjum fatnaði i ferðina til íslands og stakk einnig „ástar- bréfi“ ofan i eina töskuna, að því er talsmaður hennar, Elaine Crispen, sagði fréttamönnum í Washington. Hún sagði að forsetafrúin hefði m.a. annars látið Reagan taka með sér hanska og trefil, en búist væri við því að hitastigið verði nálægt frostmarki í Reykjavík um helgina þegar fundurinn verður haldinn og vitað væri að þar skip- ist skjótt veður í lofti. í november í fyrra þegar leiðtogamir hittust í Genf var kalt í veðri, en þeir létu það ekki aftra sér frá því að fara í smá gönguferðir. Eiginkonur leiðtoganna tveggja komu með þeim til Genfar í fyrra og hittust þá oftar en einu sinni, en tilkynnt var í Washington um síðustu helgi að Nancy Reagan færi ekki til Reykjavíkur og var þeirri ákvörðun ekki breytt þegar fréttist að von_ væri á Raiáu Gorbachev til Islands. Crispen sagði að Reagan hjónin myndu að vanda hringja hvort í annað, á meðan á ferðalagi forsetans stæði. Ósk vestur-þýzku stjórnarinnar: Skammdræg- ar flaugar gleymist ekki Bonn, AP. VESTUR-ÞÝZKALAND hefur samþykkt verulega fækkun á meðaldrægnm eldflaugum í Evr- ópu en beðið Reagan Bandaríkja- forseta um að gleyma ekki skammdrægari eldflaugum Sov- étmanna á fundi risaveldanna nú. Var frá þessu skýrt af opinberri hálfu í Bonn í gær. Kohl kanslari hefur óskað þess, að Reagan fari þess á leit við Sovét- menn, að verði gert samkomulag við þá um um meðaldrægar eldflaugar, þá verði því fylgt eftir með samn- ingaviðræðum um nýju skamm- drægu eldflaugamar. Kom þetta fram í bréfí, sem Kohl sendi Reagan á þriðjudag. Haft var eftir embættismönnum í Bonn í gær, að engar eldflaugar samsvarandi þessum skammdrægu eldflaugum væri til á Vesturlöndum og þær væru vandamál, sem yrði að taka tillit til. Þessar eldflaugar hefðu verið settar upp í Austur- Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu og fælu í sér mikla hættu fyrir Vestur- Þýzkaland. Kohl krafðist þess hins vegar ekki af Reagan, að gerður yrði einn samningur, sem næði bæði til meðal- drægra eldflaugam og skamdrægra, eins og ýmsir í hægra armi Kristi- lega demókrataflokksins, flokki Kohls, höfðu hvatt hann til að gera. Bréf Kohls var svar við ósk Reag- ans um tillögur fyrir fund hans og Gorbachevs Sovétleiðtoga í Reykjavík um helgina. Manfred Wömer, vamarmálaráð- herra Vestur-Þýzkalands telur, að Sovétmenn hafi komið fyrir 600 eld- flaugum í Austur:Þýzkalandi og Tékkóslóvakíu, sem dragi 150 til 600 km. Þessar eldflaugar em hins veg- ar ekki teknar með í þeim tillögum, sem búizt er við að ræddar verða á íslandi, það er að meðaldrægum eld- flaugum risvaveldanna í Evrópu verði fækkað í 100. Fréttamannafundur talsmanna Sovétríkjanna: Mildari tónn í garð Bandaríkj amanna Herstöðin í Keflavík skiptir þá litlu máli Tónninn í talsmönnum Sovétríkjanna í garð Bandaríkjanna er mun mildari hér á íslandi en hann hefur verið á undan- förnum árum. Fréttamenn sem 9taðsettir eru í Moskvu veittu þessu sérstaka athygli á fréttamannafundi í gær þar sem Nikolas Sislin, ritari miðstjórnar sovéska Kommúnista- flokksins, Jevgenij Primalcov, starfsmaður Þjóðhagsstofn- Sovétríkjanna, og Alexand Bovin, fréttamaður unar Izvestia, sátu fyrir svörum. Sislin sagði að fréttamenn þyrftu að fá einkaviðtöl við talsmenn Sovétríkjanna ef þeir vildu heyra harða gagnrýni á hendur Bandaríkjunum. Hann sagði að mikið væri í húfí að leiðtogafundurinn á ís- landi gengi vel. „Stund sann- leikans er runnin upp. Það þarf að ryðja brautina hér svo að hægt verði að halda annan árangursríkan leiðtogafund." Hann sagði að ísland hefði verið valið sem fundarstaður vegna landfræðilegrar legu landsins og bandaríska her- stöðin hér skipti Sovétmenn engu máli. „Við viljum að öllum herstöðvum verði lokað, en her- stöðin í Keflavík er ekki efst á blaði hjá okkur. Fyrst þarf að ná samkomulagi um meðal- og langdrægar eldflaugar og kjamorkuvopnatilraunir." Sovétmenn héldu frétta- mannafundinn til að ræða svæðisvandamál í heiminum. Sislin hélt að leiðtogunum myndi ekki gefast tími til að ræða þau hér á Islandi en benti á að þau voru rædd sérstaklega í Genf. Hann nefndi Nicaragua, Miðausturlönd og Áfganistan sem svæði sem deilur standa um. Svæðin voru nefnd í þess- ari röð en Sislin sagði að ekki mætti ráða af henni hvar Sov- étmenn litu vandann alvarleg- ustum augum. Hann sagði að sovéski heraflinn í Afganistan yrði kallaður heim. „Það veltur á ýmsu hvenær það verður en það gæti orðið fyrr en margir halda," sagði Sislin. Sovétmenn halda frétta- mannafund um innanríkismál í Sovétríkjunum í dag. Það verð- ur þriðji fundur þeirra með fréttamönnum í þessari viku. Bandaríkjamenn hafa ekkert haft sig í frammi til þessa en Rozanne L. Ridgway, aðstoðar- utanríkisráðherra Banda- rflqanna sem fer með málefni Evrópu og Kanada, mun halda fund í eftirmiðdag í dag.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.