Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 31 Redman tekur við af Kalb Washington, AP. BLAÐAFULLTRÚI Shultz, Beraard Kalb, sem sagði af sér í gaer, hefur lýst því yfir, að af- sögn sin fæli ekki í sér neina andstöðu við utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hrósaði hann Shultz sem einstökum manni með tilliti tií „heiðarleika, trúverðug- leika, kjarks og styrks." Aðstoðarmaður Kalbs, Charles E. Redman, tekur við starfí Kalbs, en sá síðamefndi hefur verið blaðafull- trúi bandaríska utanríkisráðuneyt- isins í nær tvö ár. í yfirlýsingu frá Shultz, sem Redman las upp i gær, sagði m. a.: „Mér þykir það leitt, að sjá Bemie Kalb fara. Ég dáist að honum sem snjöllum blaða- manni, virði hann sem samstarfs- mannog ráðgjafa og met hann sem vin. Ég þakka Bemie fyrir störf hans og bið honum heilla." Einvíginu lokið: „Var alltaf sannfærður um að ég myndi sigra“ sagði Garn Kasparov heims- meistari í skák Moskvu, AP. GARRY Kasparov og Anatoly Karpov sömdu um jafntefli í 24. og síðustu skákinni í einvígi þeirra um heimsmeistaratitil- inn i skák í Leningrad í gær. Kasparov endurheimti heims- meistaratitilinn og hafði tryggt sér hann eftir 23 skákir. Úrslit einvígisins urðu þau að Kasp- arov hlaut 12,5 vinninga og Karpov 11,5. Með einvíginu er lokið 96 skáka rimmu Kasparovs og Karpovs. Hófst það í september 1984 með 48 skák einvígi, sem stöðvað var í febrúar er staðan var 5-3 fyrir Karpov. í fyrrahaust settust þeir að tafli á ný og voru þá tefldar 24 skákir. Kasparov hlaut 13 vinninga gegn 11 vinningum Karpovs og varð þar með heims- meistari. Samkvæmt reglum Alþjóðaskáksambandsins átti Karpov rétt á því að skora á heimsmeistarann að nýju. Anatoli Karpov Gary Kasparov í ferbrúar á næsta ári mun Anatoly Karpov heyja einvígi við landa sinn Andrei Sokolov. Sigur- vegarinn í því einvígi mun mæta Kasparov í septembermánuði. Flestir skáksérfræðingar telja Karpov sterkari skákmann en Sokolov og má því búast við að hann mæti Garri Kasparov enn á ný. í viðtali við Tass fréttastofuna sovésku sagðist Kasparov aldrei hafa tapað sjálfstraustinu. Að- spurður kvaðst hann hafa fyllst oftrausti á eigin getu og því tapað niður þriggja vinninga forskoti sínu. „Eg fylltist ekki örvæntingu þegar ég tapaði þremur skákum í röð og glataði þar með öruggu forskoti. Eg var alltaf sannfærður um að ég myndi standa upp sem sigurvegari", sagði Kasparov. Heimsmeistarinn gagnrýndi þá ákvörðun Alþjóðaskáksambands- ins að láta einvígið fara fram í London og Leningrad og lýsti einnig yfir óánægju með nýjar reglur sambandsins, sem kveða á um að heimsmeistarinn skuli veija titil sinn á tveggja ára fresti. OPEC-rikin: Sömu kvótar til áramóta? Genf, AP. SVO virtist í dag sem olíu- málaráðherrar Opec-ríkj- anna væru að nálgast samkomulag um að fram- lengja núverandi olíu- vinnslukvóta. Ef þeim tekst það eru líkur á að olíuverð hækki eitthvað en embættis- menn segja, að enn séu ýmis ljón í veginum. „Enn eru eftir nokkrir hnútar, sem þarf að höggva á, en við ættum að geta náð samkomulagi eftir fáa daga,“ sagði Arturo Hemandez Grisanti, olíumálaráð- herra Venezúela, í Genf í gær. Kuwaitstjóm virðist einna helst standa í vegi fyrir samkomulagi og hefur hún hafnað tillögu um að framlengja til áramóta núver- andi samkomuiag um framleiðslu- stjómun. Finnst Kuwaitbúum hlutur sinn vera of lítill. Haft er þó eftir heimildum, að líklega muni þeir fallast á samkomulagið gegn því að fá aukinn kvóta eftir áramót. „Þetta verður mjögauðvelt... Þegar þú kemur þangað skaltu láta Reagan fá þetta umslag - við grípum hann, sökum um njósnir og skiptum á honum og Vestur-Evrópu..." Stórkostleg sýning - írœðandi og skemmtileg Tölvusýning í Borgarleikhúsinu 8.-12. október. STÆRSTA OG GLÆSILEGASTA TÖLVUSÝNING SEM HALDIN HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI opln daglega frá M. 10.00 - 22.00 [ fyrsta skipti á íslandi eru öll stærstu tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækin saman komin á einum stað. Meira en 40 aðilar sýna, á u.þ.b. 1700 m2 sýningar- svæði, allt það nýjasta sem tölvutækn- in býður. Sýningargestir fá tækifæri til að kynn- ast tölvum og hugbúnaði af eigin raun í „Skjáverinu". Þar gefst einnig tæki- færi til að reyna hæfileika sína í æsispennandi og skemmtilegum leik sem nefnist „dulrænir hæfileikar". Verðlaunin eru LASER PC tölva frá Gunnari Ásgeirssyni og aukavinn- ingar. Pétur Hjaltested tónlistarmaður heldur tónleika á u.þ.b. klukkustundar fresti og leikur eingöngu á tölvur. Sérfræðingar halda fyrirlestra um mál- efni sem tengjast tölvum í íslensku þjóðlífi. Aðgöngumiðinn er jafnframt happ- drættismiði. Verðlaunin eru glæsileg: VISO PC tölva, helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur með Flugleiðum, tölvunámskeið hjá Stjórnunarfélaginu og Framsýn o.fl. Missið ekki af einstæðri sýníngu!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.