Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 32

Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 + Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakiö. Mikhail Gorbachev í Reykjavík Mikhail Gorbachev, aðalritari sovéska kommúnistaflokks- ins, er fyrsti leiðtogi Sovétríkj- anna, sem kemur til íslands. í tilefni af því, að hann gerði tillögu um það til Ronalds Reagan, Bandaríkjaforseta, að þeir hittust á íslandi, hefur það verið rifjað upp, að árið 1942 stakk Jósef Stalín, forveri hans, upp á því við þá stríðsbræður sína, Winston Churchill, forsætisráðherra Breta, og Franklin D. Roosevelt, forseta Bandaríkjanna, að þeir hittust á fundi á Islandi. Þær ráðagerðir runnu út í sandinn. Mikhail Gorbachev er fimmti leiðtogi Sovétríkjanna frá því að Stalín hvarf af sjónarsviðinu 1953. Hann er raunar hinn fyrsti þessara fímm, sem hafði ekki hafíst til vegs í kommúnista- flokknum á Stalínstimanum. í mörgu tilliti er hann fulltrúi nýrr- ar kynslóðar Kremlveija. Margt er því til staðfestingar og meðal annars það, að enginn fer í graf- götur um hver er eiginkona hans, Raisa. Komi hún með manni sínum til íslands verður dvöl henn- ar hér á landi tii að veita leið- togafundinum sérstakan glæsi- leik. Þegar Gorbachev tók við völd- um, sagðist hann mundu beita sér fyrir ýmsum breytingum. Meðal þess sem mesta athygli hefur vak- ið út á við er barátta hans gegn áfengisvandamálinu en drykkju- sýki er sannkallað þjóðfélagsböl í Sovétríkjunum. Þá lýsti hann yfir því, að sovésk stjómvöld myndu leggja sig fram um að skýra fyrr og ítarlegar en áður frá atburðum heima fyrir. Sovétmenn voru sein- ir að taka við sér í þessu efni, þegar kjamorkuslysið varð í Chemobyl, en síðan hefur þótt koma í ljós, að þeir fara ekki jafn leynt með hluti og áður. Regluleg- ir blaðamannafundir þeirra hér á landi í tilefni leiðtogafundarins og geðþekk ummæli þeirra um land og þjóð eru til marks um þetta sama. Mikhail Gorbachev þarf ekki að hafa áhyggjur af almennings- áliti heima fyrir. Hann er valinn til síns háa embættis úr hópi manna, sem hefur öll völd í hinu víðáttumikla ríki í hendi sér. En til að treysta stöðu sína innan þess hóps og auka virðingu sína meðal þjóðarinnar er leiðtoga- fundur með Bandaríkjaforseta einstakt tækifæri. Kremlveijum er ekkert kærara en að sjást í einkaviðræðum við forseta Banda- rílq'anna með öllu því umstangi, sem því fylgir og við íslendingar höfum fengið að kynnast síðan Reagan valdi Reykjavík eftir til- lögu Gorbachevs. Aðalritari sovéska kommúnistaflokksins á andstæðinga heima fyrir eins og aðrir valdamiklir menn. Sumir telja raunar, að Gorbachev hafí óskað eftir leiðtogafundi í Reykjavík fyrir umsamda för sína til Washington til að átta sig á, hvort hann tæki of mikla hættu með Bandaríkjaferðinni vegna skorts á samningsvilja hjé Reag- an. Þótt Sovétmenn segi í öðru orö inu, að þeir hafi gert tillögu um Reykjavík sem fundarstað vegna þess, að þeir hafí vænst þess að þar yrði erfítt fyrir fjölmiðla að gera alltof mikið veður út af fund- inum, hafa þeir í hinu orðinu lagt sig fram um að auka á eftirvænt- inguna um niðurstöðu fundarins og draga að honum athygli með því að boða komu Raisu Gorba- chev. Þessi útrás gagnvart fjöl- miðlum á sama tíma og gefíð er til kynna, að kannski komi Raisa ekki og enginn fær staðfesta vitn- eskju um dvalarstað Gorbachevs, sýnir ef til vill í hnotskum þá tækni, sem Gorbachev á eftir að beita gagnvart Reagan í viðræð- um þeirra. Með þessum aðferðum er ekki unnt að komast að sam- komulagi um jafti viðkvæm mál og leiðtogamir ræða í Reykjavík — en Gorbachev hefur sýnt á þeim missemm, sem hann hefur stjóm- að í Kreml, að hann hikar ekki við að breyta um stefnu í þeim málafiokkum, sem ber hæst, þeg- ar rætt er um takmörkun vígbún- aðar. Gorbachev er sem sé maður ýmissa mikilvægra breytinga. Hann vill þó ekki og getur varla hróflað við því valdakerfí, sem hefur hafíð hann sjálfan til æðstu metorða. Þótt einn og einn andófs- maður fái að hverfa frá Sovétríkj- unum, eru völd KGB hin sömu og áður. Þótt nokkrar herdeildir séu kallaðar heim frá Afganistan, berst sovéski herinn áfram fyrir fullum yfírráðum yfír landinu. Með því að gera tillögu um ís- land sem fundarstað þeirra leið- toganna hefur Mikhaii Gorbachev beint ftölmiðlaljósum alls heimsins að landi okkar. Hann hefur líka fært okkur heim sanninn um, að ráðamenn í Moskvu hugsa til okk- ar, þegar mikið liggur við. Samskipti Sovétríkjanna og ís- lands hafa einkennst af því, að hvort ríki veit um afstöðu hins og fer ekki í launkofa með hana, þegar nauðsyn krefst. Viðskipta- tengsl þjóðanna hafa verið mikil í rúma þijá áratugi og Sovétmenn reka Qölmennasta sendiráðið í Reykjavík. Löngum hefur verið ljóst, að Sovétmenn vildu ísler.d- inga úr NATO en á hinn bóginn óttast þeir jafn mikið ævintýra- mennsku í öryggismálum í við- kvæmum heimshlutum og aðir. Morgunblaðið fagnar komu Mikhails Gorbachev til íslands, og vonar, að honum takist á fundin- um irieð Reagan að færa allar þjóðir heims nær hver annarri með því að draga úr tortryggni. Mikhail S. Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna: Boðberi breytir í so vésku samf( MIKHAIL Sergeyevich Gorbachev, leiðtogi Sov- étríkjanna, sem í dag kemur til Reykjavíkur til fundar við Ronald Reágan, Bandaríkja- forseta, er 55 ára gamall, yngsti ráðamaðurinn í Kreml í rúmlega 60 ár. Það er þó ekki aðeins aldursins vegna, að hann hefur nokkra sérstöðu meðal sov- éskra forystumanna. Við hann eru bundnar meiri von- ir en nokkum fyrirrennara hans, vonir um, að hann geti hrist doðann og drang- ann af sovésku þjóðlífi og ef nahagslífi og opnað dálítið það lokaða þjóðfélag, sem Sovétríkin era. Gorbachev tók við leiðtogaemb- ættinu þegar Konstantin Chem- enko lést árið 1985 og það fór ekki framhjá sovéskum almenn- ingi, sem var orðinn vanur slapp- leikanum, sem einkenndi Brezhnev-tímann og stutt valda- skeið tveggja eftirmanna hans, að nýr tími var að renna upp. Gorba- chev réðst þó ekki til atlögu við kerfíð sjálft, hinn miðstýrða áætl- unarbúskap, heldur boðaði hann strax umbætur á þvi og beitti sér fyrir víðtækum mannabreytingum. Skipt var um helming 80 ráðherra og yfirmanna ríkisnefnda og á flokksþinginu í febrúar sl. tóku 137 nýir menn sæti í miðstjóminni, einni helstu valdastofnun komm- únistaflokksins. Á efnahagsmálun- um vill hann reyna að ráða nokkra bót með því að hvetja til aukinnar iðjusemi, aga og vandaðri vinnu- bragða og hann hefur einnig skorið upp herör gegn því böli, sem áfeng- isneyslan er í Sovétríkjunum og gegn spillingunni, sem tröllríður þjóðfélaginu. Hafa margir valda- miklir menn, sem gerst hafa sekir um að skara eld að sinni köku, verið látnir víkja af þessum sökum, t.d. Viktor Grishin, fyrrum formað- ur kommúnistaflokksins í Moskvu. Á sovéskan mælikvarða er Gorbachev opinskár og einlægur og hann er fyrsti Kremlarherrann, sem notað hefur sjónvarpið til að höfða til almennings í landinu og skorað á fólk að styðja þær tak- mörkuðu umbætur, sem hann vill beita sér fyrir. Mikhail S. Gorbachev fæddist 2. mars árið 1931 í þorpinu Pri- volnoye skammt frá Stavropol, fijósömu akuryrkjuhéraði norður af Kákasus-fjöllum. Samkvæmt opinberum ævisögudrögum vann hann sem landbúnaðarverkamaður jafnframt skólanámi en árið 1950, þegar hann var 19 ára, settist hann í lagadeild háskólans í Moskvu. Gorbachev stundaði nám á mjög forvitnilegum en erfíðum tíma. Stalín lést árið 1953 og nið- urbæld ónægja þjóðarinnar lýsti sér best í ræðunni um Stalín, sem Krúsjeff, eftirmaður hans, hélt á flokksþinginu árið 1956. Rússar, sem þekktu til Gorbachevs á þess- um árum, segja, að hann hafí gert sér grein fyrir og gagnrýnt glæpi Stalíns áður en Krúsjeff flutti ræð- una frægu en samt sem áður var hann framarlega í flokki í Komso- mol, æskulýðssamtökum komm- únistaflokksins, sem hann gekk í árið áður en Stalín lést. Gorbachev sneri sér ekki að lög- fræðistörfum að námi loknu, heldur fór til starfa fyrir flokkinn í Stavropol og var orðinn formaður hans aðeins 39 ára gamall. Þar vakti hann á sér athygli fyrir sæmi- legt ástand í landbúnaðarmálun- um, þessu eilífa vandamáli allra rússneskra ráðamanna, og vegna góðrar frammistöðu sinnar í þeim efnum var hann árið 1978 kallaður til Moskvu og gerður að ritara miðstjómarinnar í landbúnaðar- málum. Margir hafa furðað sig á skjót- um frama Gorbachevs, hann varð fljótlega fullgildur félagi í stjóm- málaráðinu, en læiklegt er, að hann eigi hann tveimur mönnum að þakka, Mikhail Suslov, hugmynda- fræðingi flokksins um þriggja áratuga skeið, og Yuri Andropov, sem tók við leiðtogastöðunni að Brezhnev látnum. Þeir vildu fínna Raisa Gorbasjev Glæsileg ásýndum, sögð vera fróð og vís ÞAÐ er kunnara en frá þurfi að segja að einhverra hluta vegna hafa sovézkir valda- menn lengi verið þeirrar skoðunar, að eiginkonur leið- toga og annarra áhrifamanna ættu að láta sem minnst á sér kræla. Nína Krúsjef var á sínum tima undantekning og vakti athygli, þótt ekki væri það beinlínis fyrir glæsileik eða áberandi klæðaburð. En Nína þótti vinaleg og var bros- mild eins og maður hennar. Grunur lék á þvi, að Leonid Brezhnev hefði verið kvænt- ur, að minnsta kosti komst upp um, að hann ætti dóttur. Aftur á móti hvíldi þvilik leynd yfir hjúskaparstöðu Yuri Andro- povs, að menn höfðu ekki hugmynd um að hann ætti konu, fyrr en ekkjan birtist við útförina. Eiginkona Tjera- enkos sást að því er bezt er vitað einu sinni opinberlega og síðan við jarðarför eigin- mannsins. En með Raisu Gorbasjev hefur skipt um. Raisa hefur komið fram á sjónarsviðið og safnað að sér eftir- telrt, forvitni og aðdáun hvert sem hún fer. í fyrstu vegna þess að hún er ólík þeim hugmjmdum sem menn á Vesturlöndum hafa gert sér, og með réttu um eiginkonur sovézkra leiðtoga. Þær hafa einatt verið kauðalega klæddar og lítt mann- blendnar og hafa þá aðeins sézt á almannafæri að þær væru nánast tilneyddar. Raisa hefur augsýnilega gaman af því að vera innan um fólk og nýtur þeirrar athygli sem hún vek- ur. Hún er vei klædd, glaðleg í fasi en þó virðuleg. Hún fór með manni sínum í umtalaða ferð til Bretlands, áður en hann tók við leiðtogaemb- ætti. Blaðamenn og ýmsir þeir aðrir sem fylgdust með heimsókninni áttu ekki nógu sterk orð til að lýsa hversu viðfelldin og skemmtileg hún væri. Sögðu að hún væri hámenntuð og gáfuð, en laus við allan hroka. Hún væri afar fróð og víðlesin. Var þetta meðal annars haft eftir brezk- um aðstoðarmanni Thatchers, forsætisráðherra, sem fór með henni í skoðunarferð meðan þau Mikhail, maður hennar, og Marga- ret Thather ræddu alþjóðamál. Þetta bendir til ákveðinnar hug- arfarsbreytingar há Gorbasjev og öðrum leiðtogum. Blöð í Sovétríkj- unum birtu framan af sjaldan myndir af henni, en gera það oftar nú, enda er hún oftast í för með manni sínum. Fyrir leiðtogafundinn í Genf bolialögðu blaðamenn hvort

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.