Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
Þykkvabæjarkartöflur hf. í Garðabæ:
„Undarleg umræða
um kartöfluverð“
Þ YKKV ABÆJ ARKARTÖFLUR
hf. í Garðabæ, sem er dreifing-
ar- og heildsölufyrirtæki í
einkaeigu, hefur sent blaðinu
athugasemdir og upplýsingar
vegna „endurstekinna blaða-
skrifa og umfjöllunar fjölmiðla
um kartöflur, kartöfluverð og
sölufyrirtæki sem selja kartöfl-
ur“.
í frétt fyrirtækisins kemur eftir-
farandi meðal annars fram:
„Þykkvabæjarkartöflur hf.
dreifðu íslenskum kartöflum frá
Pökkunarstöð Þykkvabæjar í eitt
og hálft ár. Frá því í júlí hefur fyrir-
tækið hins vegar sjálft séð um
pökkun og kaupir kartöflur beint
frá tólf kartöflubændum í
Þykkvabæ, samkvæmt sérstökum
samningi þar um. Bændum sem
ÁHUGAMENN um kynningu og
útbreiðslu íslenska hestsins hafa
nú, í samráði við utanríkisráðu-
neytið, ákveðið að halda sýningu
í dag á nokkrum gæðingum.
Meðal þeirra hesta sem þarna
koma fram má nefna Hrímni frá
Hrafnagili, sem af mörgum er tal-
inn fegurstur íslenskra gæðinga.
Af öðrum nafnkunnum hestum má
nefiia Sókron frá Sunnuhvoli og
Börk frá Kvíabekk.
Eins og geta má nærri er boðið
upp á þessa sýningu í tilefni komu
leiðtoga stórveldanna og einnig
vegna hins fjölmenna hóps frétta-
manna sem hér er staddur. Áætlað
er að sýning þessi hefyst kl. 10
með þeim samningi klufu sig út úr
því hefðbundna sölufyrirkomulagi
sem verið hefur í gangi á íslandi
um áratugaskeið. Verð til framleið-
enda var í júlí og fram í október
ákveðið af Landssambandi kart-
öflubænda. Eftir þann tíma var
verðákvörðun vísað til sexmanna-
nefndar, eins og fram hefur komið
í ijölmiðlum. Þykkvabæjarkartöflur
hf. hafa allan þennan tíma greitt
framleiðendum það verð sem ákveð-
ið hefur verið af umræddum aðilum.
Verðbreytingar á þessum tíma til
framleiðenda hafa verið frá 55
krónum hvert kíló í júlí og niður í
24,64 kr. á kíló nú í október. En
slíkar verðsveiflur á kartöflum og
reyndar grænmeti líka, eru árviss
viðburður á íslandi og hefur svo
verið mörg undanfarin ár. í Ijósi
fyrir hádegi í dag, föstudag, á homi
Birkimels og Hringbrautar, með því
að fjórum hvítum hestum verður
riðið í átt að Hagatorgi. Mun knap-
inn á fyrsta hesti, sem væntanlega
verður Hrímnir, bera íslenska fán-
ann en þeir tveir næstu munu bera
fána Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna og lestina rekur knapi með
fána Sameinuðu Þjóðanna.
Verður riðið sem leið liggur Dun-
haga og Fomhaga og endað á
Hagatorgi þar sem hestunum verð-
ur stillt upp á miðju torgsins. Einnig
verða sýndir tveir svartir skeið-
hestar og töltarar í kjölfarið á hvítu
hestunum. Með þessum hætti ætla
íslenskir hestamenn að bjóða er-
lenda gesti velkomna til landsins.
þessa hlýtur umræða forsvars-
manna Neytendasamtakanna um
óeðlilega hátt verð á kartöflum að
teljast undarleg, og tímasetningar
á verðsamanburði umdeilanlegar.
Þykkvabæjarkartöflur hf. hafa
sett sér það markmið að dreifa
fyrsta flokks ferskum kartöflum
undir öflugu gæðaeftirliti. Til þess
að ná þessu markmiði hefur verið
lögð áhersla á tvö atriði. Annars
vegar að koma ferskum kartöflum
í neytendaumbúðum í verslanir, ein-
um til tveim sólarhringum eftir að
þær eru teknar úr kartöflugeymsl-
unum í Þykkvabæ. Hins vegar hefur
verið komið á tvöföldu gæðaeftir-
liti. Hið hefðbundna gæðaeftirlit er
að sjálfsögðu til staðar og auk þess
er mjög strangt gæðaeftirlit við
gökkunarvélina í fyrirtækinu sjálfu.
Ávinningur þessa dreifingarkerfís
er augljós þegar hugsað er til þess
fyrirkomulags sem var við dreifingu
kartafina fyrir rúmum tveimur
árum.“
í fréttatilkynningu fyrirtækisins
segir einnig að fyrirtækið hafi flutt
inn kartöflur frá Ítalíu í júlí þegar
skortur var á íslenskum kartöflum.
Heildsöluverð þeirra hafí verið að
hámarki 66 krónur, sem skiuptist
þannig að innkaupsverðið erlendis
var 30,8%, vátrygging 0,8%, flutn-
ingsgjald 11%, ýmis kostnaður
0,8%, jöfnunargjald 20,8%, tollur
1,7%, fj ármagnskostnaður 4,5%,
rýmun 10,5% og loks álagning
heildsala 19,4%.
Jón Magnússon er aðaleigandi
Þykkvabæjarkartaflna, á 60%
hlutaijár, Gunnar Sigurðsson á 30%
og Kartöfluverksmiðjan í Þykkva-
bæ á 10%. í fréttatilkynningunni
kemur fram að fyrirtækið hefur
sérhæft sig í dreifíngu á kartöflum,
bæði ferskum og unnum. Auk þess
dreifir það sjávarréttabökum og
rækjurúllum frá Marska hf. á
Skagaströnd, rækjum frá Rækju-
vinnslunni á Skagaströnd og
fjölmörgum öðrum innlendum
fitimleiðsluvörum. Þykkvabæjar-
kartöflur eru til húsa að Gilsbúð 5
f Garðabæ.
Hestamenn bjóða erlenda gesti
velkomna:
Gæðingasýning
á Hagatorgi
Sambandshúsið málað
SKRIFSTOFUR Sambandsins við sprungur fylltar og húsið málað
Sölvhólsgötu fengu andlitslyft- í hvítum lit. Að sögn Sævaldar
ingu á dögunum. Iðnaðarmenn Siguijónssonar, húsvarðar, var
reistu þessa vinnupalla við austur- húsið illa farið og þurfti m.a. að
gafl hússins og notuðu stórvirk skipta um alla glugga á þessari
tæki til þess að fjarlægja málning- hlið.
una af múmum. Sfðan voru
Prestkosningar í
Hrunaprestakalli
Sydra-LangboltL
PRESTKOSNINGAR verða i Reynisson cand. theol., forsetarit-
Hrunaprestakalli í Hruna- ari; séra Haraldur M. Kristjánsson
mannahreppi næstkomandi aðstoðarprestur í Garðabæ; Jón
sunnudag. Fjórir umsækjendur ísleifsson cand. theol. Reykjavík
eru um brauðið og prédikað í 0g séra Önundur Bjömsson
sóknarkirkjunum í Hruna og í Reykjavík. Á kjörskrá era 380.
Hrepphólum að undanförnu. Séra Sveinbjöm Sveinbjömsson
Hafa þessar kynningarguðs- prófastur í Hrana, sem verið hefur
þjónustur verið vel sóttar. sóknarprestur hér í 42 ár, mun
Umsækjendumir eru Halldór láta af prestembætti fyrir aldurs
------------------ sakir þann 1. nóvember næstkom-
Horft yfir einn sýningarbásinn þar sem sjá má tölvur, prentara og
önnur tæki í röðum. Alls taka um 40 fyrirtæki þátt í þessari sýningu.
Umferðar-
óhapp á
Hesthálsi
Grund
Umferðaróhapp varð á Hesthálsi
miðvikudaginn 8. október s.l. er
vegavinnubíll valt á hliðina.
Bflnum hafði verið ekið full utarlega
á vegarkanti sem var íaus og gaf
sig með fyrrgreindum afleiðingum.
Engin slys urðu á fólki og er
bflinn lítið skemmdur að sjá.
D.P.
Eitt tölvutækið skoðað f krók og kring, og einnig að innan.
Tölvur og þjóðlíf
Einhver stærsta tölvusýning
sem hér hefur verið haldin
TÖLVUSÝNINGIN „Tölvur og
þjóðlíf“ sem nú stendur yfir i
Borgarleikhúsinu á vegum tölv-
unarf ræðinema við Háskóla
íslands er einhver stærsta tölvu-
sýning sem haldin hefur verið
hér á landi. Alls sýna 40 fyrir-
tæki allt það nýjasta og full-
komnasta sem tölvuiðnaðurinn á
ákveðnu sviði hefur upp á að
bjóða.
Sýningin var opnuð á miðviku-
daginn og mun hún standa fram á
sunnudag. Á sýningunni kennir
margra grasa á þessu sviði og segja
kunnugir að þama geti jafnt leik-
maðurinn sem og atvinnumaðurinn
fundið sitthvað við sitt hæfi. Nefna
má sem dæmi að nýtt forritunar-
mál, Fjölnir, verður kynnt, en það
var samið við Háskóla íslands og í
því era einungis íslensk orð og hef-
ur það verið notað við kennslu í
Háskólanum. Einnig era til kynn-
ingar bflatölvur, Unix tölvubókhald,
geisladiskur, sem notfærir sér Las-
er-geisla við skrift og lestur gagna
og kynntur verður blindraleturs-
prentari sem er í eigu Blindrabóka-
safns íslands.
Þá verða fluttir fyrirlestrar um
notkun tölva alla dagana. Meðal
annars verður flutt erindi um tölvu-
notkun í þágu blindra, fjallað verður
um áhrif tölva á heimilishald, og
einnig verður fjallað lítillega um
svonefnt „fjórðukynslóðarmál".
Bamafólk ætti áhyggjulaust að
geta sótt sýninguna því sérstök
aðstaða er fyrir böm þar sem þau
geta leikið sér, meðal annars að
tölvuleikjum, á meðan þeir sem eldri
era skoða sýninguna.
Sýningin verður opin frá klukkan
10.00 til 22.00 í dag og um helg-
ina, en henni lýkur á sunnudgas-
kvöldið.
Prófkjör vestra:
Leiðrétting
í frétt Morgunblaðsins af
próflqóri Sjálfstæðisflokksins í
Vestfjarðakjördækmi, sem fram
fer nú um helgina, var misritun,
hvað varðar rétt til prófkjörs-
þátttöku. Rétt til þáttöku í
prófkjörinu hafa allir flokks-
bundnir sjálfstæðismenn, sem
búsettir eru í kjördæminu, svo
og þeir, sem undirritað hafa
stuðningsyfirlýsingu, samhliða
prófkjörinu, og orðnir eru 18 ára
að aldri prófkjörsdagana.