Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 41

Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 Afmæliskveðja: Pálína Jónas- dóttir Akureyri Kynslóðabilið er í hugum margra ófrávíkjanleg staðreynd. Það að ólíkir aldurshópar nái ekki saman, fínnst ýmsum svo sjálfsagður hlutur að um það tjói ekki að hirða frek- ar. Örstutt heimsókn til Pálínu Jónasdóttur, sem nú er 95 ára í dag nægir þó fyllilega til þess að breyta þessari skoðun. Láfsgleði hennar og jákvætt viðmót heillar alla þá er henni kynnast. Og einstakt lag hennar að umgangast ungt fólk sýnir það og sannar að enga nauð- syn ber til þess að láta aldursmis- mun koma í veg fyrir góð og einlæg kynni. Frænka mín, Pálína Jónasdóttir er fædd 10. október 1891 í Heiðar- húsum á Laugalandsheiði í Eyja- fírði. Það var þá lítið býli, en er nú í eyði. Foreldrar hennar voru Jónas Ólafsson bóndi og sjómaður og kona hans Guðrún Ámadóttir. Þama í Heiðarhúsum dvaldist hún til eins og hálfs árs aldurs, en flutti þá með foreldrum sínum og systkinum að Steinkoti í Eyjafírði og þar bjó hún fram a sextugs aldur. Steinkot var ekki stór jörð, jafn- vel ekki á þeirra tíma mælikvaða. En nægjusemi ríkti á heimilinu og því leið öllum vel þó hópurinn teldi fímm böm. Þau voru í aldursröð: Ámi, Jófríður, Helga, Pálína og Sigurbjörg. Sigurbjörg lést á öðru Sautján ára japönsk stúlka með áhuga á íþróttum og tónlist: Mitsuyo Matsukage, 13-7 Minari 3-chome, Fukui-shi, Fukui, 910 Japan. Hollenzkur piltur, líklega rétt undir tvitugu, með mikinn knatt- spymuáhuga: Peter Petit, Steenlaan 76, NL-2282 BE Rijswijk, Holland. Ensk hjón á fímmtugsaldri, sem eiga tvær dætur á táningsaldri, vilja komast í samband við íslenzk hjón sem hefðu áhuga á að þiggja hjá þéim fæði og húsnæði í sumar- leyfí í Bretlandi gegn samskonar er þau heimsæktu ísland síðar: Coral Rampley, Cherry Tree Cottage, Fressingfield, Diss, Norfolk, IP21 5TB England. Sextán ára japönsk stúlka með áhuga á skíðum, tónlist o.fl.: Motoyo Kawamura, 802 Ueda 3 White Castle 12-1, Gotanda Ueda Tenpaku-cho, Teenpaku-ku, Nagoya 468, Japan. Fimmtán ára vestur-þýzk stúlka með áhuga 'hestum: Tanja Bruggemann, Poggenkuhle 10, D-2847 Bamstoft, W-Germany. aldursári en hin systkinin náðu öll háum aldri og er Pála nú ein þeirra á lífí. Samheldni ríkti í Steikoti alla tíð. Eins og tíðkaðist á þessum ámm hjálpuðu bömin eftir föngum við að afla heimilinu vista. Mest mun- aði auðvitað þó um að Jónas heimilisfaðirinn var duglegur sjó- maður, sem réri eftir því sem færi gafst. Á vetmm var hann á hákarla- vertíðum en á síldveiðum eða á öðrum fískveiðum þess á milli. Eins og nærri má um geta var sjómennska þeirra tíma kalsasöm og erfíð. Bátamir opnir, hjálpartæki engin og ekki nokkur lífsins leið að láta af sér vita, ef eitthvað fór úrskeiðis. Það var emmitt í slíkri vetrarferð á hákarlaskipi, að báts- ins sem faðir Pálínu var á, var saknað. Þetta var árið 1882, sem var annálað ísaár. Allir hákarlabát- amir höfðu komið fram nema þessi eini og fljótlega þótti einsýnt að hann hefði farist. Það má nærri geta að sorg hefur ríkt hjá fjöl- skyldunni ungu. En þá gerðist kraftaverkið. Tólf vikum eftir að báturinn fór af stað í hákarlaleg- una, kom hann fram. Allir vom heilir á húfi. í tólf heilar vikur — þijá mánuði — um hávetur hafði báturinn setið fastur í ís. Mennimir höfðu með sér nesti sem duga átti í venjulega legu, en ekkert umfram það. Skipveijamir héldu í sér lífinu með þvf að veiða sér til matar og drýgja það með skrínukostinum sem þeir höfðu haft með sér að heiman. Þessi rúmlega hundrað ára reynslusaga af föður Pálínu er af- skaplega lærdómsrík. Hún kennir okkur nútímafólkinu margt og auð- veldar okkur að skilja betur lífsvið- horf þeirra sem eldri em. Á sextugs aldri fer Pálína frá Steinkoti. Þaðan fluttist hún inn í Glerárþorp að Árgerði. Gerðist hún þar ráðskona hjá tveimur bræðmm, þeim Hallgrími og Guðmundi. Móð- ir þeirra bræðra, Steinunn, varjiar einnig til húsa. Seinna flutti Ámi bróðir hennar til þeirra og var hjá beim þar til hann lést árið 1969, þá níræður að aldri. Frá Árgerði fluttust þau síðan að Svalbarða í Glerárhverfí og þaðan í Lyngholt þar sem þau bjuggu í 11 ár. Pálína lét af ráðskonustörfum þegar hún var 84 ára, er þeir bræður Halli og Mundi fóm á Dvalarheimilið í Skjaldarvík. Þá fluttist Pálína til Hrefnu Svanlaugsdóttur og leigði hjá henni í tvö ár uns hún 87 ára að aldri flutti á Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Árin í Svalbarða og í Lyngholti em mér sérstaklega minnisstæð. Við systkinin hlökkuðum alltaf til að koma til Akureyrar og heim- sækja Pálu frænku og Áma afa (eins og við kölluðum hann ætíð). Og ekki má gleyma þeim bræðmm, Halla og Munda, sem alla tíð reynd- ust okkur sem bestu frændur. Samheldni þeirra fjögurra var ein- stök. Á heimilinu ríkti hlýja og umhyggjusemi í garð hvers annars. Það er mjög athyglisvert að ræða við Pálu frænku. Hún talar af æðm- leysi um lífið og tilvemna. Hún rifjar það líka upp að þó ekki hafí verið mikið á milli handa fólksins í Steinkoti, fylgdi heimilisfólkið þeirri kristilegu reglu, að sælla sé að gefa en þiggja. Lltil saga er til frá þeim árum. Fátæk nágranna- kona kom í heimsókn og kvaðst ekkert eiga til að seðja svanga munna bama sinna, nema mjólk. Móðir Pálu fór þá í sínar fátæklegu hirslur og sótti eitthvað matarkyns og færði nágrannakonunni. Pála sagðist hafa þá sagt við móður sína, hvort þau mættu við þessu. En móðir mín svaraði, sagði hún: „Þú skalt gefa af þinni fátækt, það margfaldast aftur hjá þér.“ Það dylst engum sem þekkir Pálu, að hún hefur numið vel þessa lífsskoðun móður sinnar. Henni finnst sælla að gefa en þiggja. Þetta fínnum við frændfólk hennar. Ekki síst skynja þau vel gæsku hennar, litlu bömin, sem vita fátt betra en að vera návistum við þessa góðu konu. Iðjusemi og ástundun er Pálu í blóð borin. Hún lét ekki nægja að annast um heimili. Hún var eftir- sótt til að aðstoða konur að loknum bamsburði, lærði fatasaum og stundaði það eftir föngum á meðan heilsan leyfði. Framan af áram var Pála heilsu- veil. Kirtlaveik var hún og berklar sóttu hana heim. Sem betur fer sigr- aðist hún á þeim bölvaldi. Læknir sem stundaði hana á þeim áram sagði eitt sinn við hanæ „Þú þarft ekkj að óttast þennan sjúkdóm frek- ar. Það er búið að drepa bakteríuna og hún mun því ekki heimsækja þig aftur." í dag myndi engan grana að Pála hefði átt við vanheilsu að stríða. Hún hleypur um létt á fæti. Stígur jafnvel dansspor ef þannig ber undir. Heiðrudu leikhús- og óperugestir Okkur er það einstök ánægja að geta boðið ykk- ur að lengja leikhús- eða óperuferðina Opnum kl. 5.30. Maturfyrirog eftirsýningu Matseðill: Léttreyktur áll Villigæs með blóðbergssósu Bláberjasorbet ARNARHÓLL Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu. Borðapantanir í síma 18833. Síðustu árin hefur hún dvalið á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri. Hún unir sér vel þar í skjóli góðs starfsfólks, vina og frændfólks sem sækir hana heim. En hún settist þó ekki í helgan stein eftir að hún flutti á dvalarheimilið. Þá fór hún að sauma út og nú prýða veggi herbergis hennar og heimili frænd- fólks og vina fallegar útsaumaður myndir, sem hin lífsglaða og síunga kona hefur gert. Það er öllum hollt að sækja Pálínu Jónasdóttur heim. Hún er jákvæð og full af orku og bjart- sýni. Það dytti engum í hug að þama færi kona sem ætti að baki 95 ár. Hjá henni fær maður uppörv- un og trú á lífíð. Hún miðlar af þeim sannindum sem henni vora kennd í bemsku, að maður skuli gefa af sinni fátækt af því að það margfaldist aftur hjá manni sjálf- um. Þetta era holl heilræði sem gott er að kunna. Því miður komumst við ekki til að vera hjá Pálu á afmælisdaginn. Við notum hins vegar daginn til að rifja upp ánægjulega heimsókn _í sumar og fyrri heimsóknir. Héðan úr Bolungarvík sendum við hug- heilar afmælisóskir og hlökkum til næstu endurfunda. Sigrún frænka VERSL UNA RHÚSNÆÐ! TIL LEIGU Viljum leigja neðri hæð (götuhæð) hússins Grandagarði 1B. Stærð 100 fermetrar. Góðir sýningargluggar og breyta má skrif- stofu- og lagarplássi eftir hentugleikum Góð bifreiðastæði. S. Stefánsson & co., hf., Grandagarði 1B, Reykjavik, I sími 27544 og 41244 eftir kl. 17. FRAM Sölustjórinn Leiðbeinandi: Björn Viggósson, markaðs- og söluráðgjafi. Staður: Tölvuskólinn Framsýn, Síðumúla 26, simar 91-39566 og 91-687434. Tími: 1. námskeið 16. október kl. 9.00—16.00. 2. námskeið 30. október kl. 9.00-16.00. Námskeið í markaðs- og sölumálum með aðstoð nýjustu upplýsinga- og tölvutækni. Námskeiðið er ætlað öllum framsæknum fyrirtækjum sem þurfa að fylgjast með og tileinka sér nýjustu aðferðir á sviði mark- aðs- og sölumála. Efni: • Val á markhópum og hvernig á að afla upplýsinga. • Gerð markaðs- og söluáætlana með sölustjóranum. • Markaðsathuganir og kynningar. • Söluaðferðir: Síminn — bréf — heim- sóknir — auglýsingar. • Röðun verkefna eftir mikilvægi. • Gagnasafnskerfið í sölustjóranum. • Dagbók, söluyfirlit og vinnuskýrslur sölumanna. • Útprentun s.s. límmiða og nafnalista eftir vali. Sölustjórinn er nýr íslenskur hugbúnaður fyrir einkatölvur og það þarf litla sem enga tölvukunnáttu til að nota hann. SÖLUSTJÓRINN er hannaður af Birni Viggóssyni og Kerfisþróun og settur upp i íslenska gagnasafnskerfinu K-GRUNNI sem Kristján Gunnarsson hjá Kerfisþróun hannaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.