Morgunblaðið - 10.10.1986, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.10.1986, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 Frumhlaup spretthlauparans eftirdr. Gunnlaug t Þórðarson Eftir lestur greinar einnar í Morg- I unblaðinu 30. f.m., sem Hilmar *' Þorbjömsson lögregiuvarðstjóri kallar * svar til mín, er mér óhjákvæmilegt að leiðrétta nokkrar missagnir og misskilning í þeim „ígrunduðu" skrif- * um lögregiuvarðstjórans. Sú skoðun hefur lengi búið með mér að löggæslustörf geti haft sið- I bætandi áhrif á þá, sem þeim gegna ■s og þyldr mér það Ld. hafa komið fram, \ er lögregiumenn og tollveiðir sýndu í þá þjóðhoUustu að afsala sér hinum 5 vafasama og vandmeðfama verkfaUs- * rétti. Það hefur ekki heldur duUst mér að lögregia okkar ber af í starfí ' í samanburði við starfsbræður ann- * arra þjóða og hef þó aU víða farið, , einkum sakir hjálpsemi og velvilja, ; þó aUtaf leynist örfáir gikkir innan | um eins og gengur. Hina stundina hefur mér þótt sem lögregiumönnum '? okkar hætti tíl of mildUar afekiptasemi | og stundum setja sig á háan hest af í Utíu tilefrii. í framhaldi af skrifum mínum 23. » f.m. skal sérstaklega tekið fram að samskipti mín við Rannsóknarlög- regiu ríkisins og lögregiu hafa jafiian f verið hnökralaus. Mér er fuUkomlega jjiós sá mUdi vandi og sú ábyrgð, sem störfum þessum fylgir. Samt er það svo að þótt þorri þeirra virði þagnar- skyldu sína, er því ekki að neita að ! svo virðist sem leyniþraaðir hafí legið < mUU RLR og fjölmiðla. Þannig fann L m.a. mætur þingmaður sig knúinn tíl ; þess að kreQast rannsóknar á þessu atriði. Auðvitað voru það vonlaus til- ■ mæU, því fréttamenn eru bundnir ■ þagnarskyldu um heimUdir sínar og sú dómvenja hefur myndast að virða ber þessa skyldu. Jafnvel þótt sjálf í RLR óskaði eftir slíkri rannsókn | myndi það ekki duga. Það er ótvír- ætt að sannindi hins gamla spakmæl- < is: „Þjóð veit þá þrír vita“ mun i halda gUdi sínu. í grein lögregiuvarðstjórans segir i -------------------------------- | SPRON-Sel- : tjarnarnesi styrkir meist- aralið Gróttu ■i - SPRON-Seltjamamesi hefur ' tekið þá ákvörðun að styrkja meistaralið Gróttu í handbolta karla á því keppnistimabili sem nú er að hefjast. 30. september sl. voru 3 ár síðan Sparisjóður Reykjavíkur og ná- grennis opnaði fyrsta útibú sitt að I Austurströnd 3, Seltjamamesi. Þessi þijú ár hefur SPRON-Selt- ] jamamesi stutt æsku bæjarins með ' ýmsu móti eins og smágjöfum eða , styrkjum til íþróttaiðkana o.fi. en * vildi nú gera enn betur í tilefni af- ■ mælisins. Meistaraflokkur Gróttu í handbolta spilar nú í nýjum búning- œm sem merktir eru SPRON-Selt- jamamesi og vom þeir formlega f teknir í notkun á afmælisdegi úti- búsins. að RLR hafi i Hafsldpsmálinu far- ið í skjóli sprenglærðra lögmanna og starfsfélaga minna og ég leild mér að gera rannsóknarmenn tor- tryggilega í augum fólks og kallar það„Þvílíka smekkleysu“ hjá mér. Því er að svara að þannig hafa störf þeirra sumra hverra birst í ijölmiðlum. Hins vegar ætti lögregiuvaiðstjóri að vita að rannsóknarlögregiumenn eru ekld starfefélagar lögmanna, þótt þeir séu lögfræðingar. Það má vera ljóst að í rannsóknum sínum glíma þœsir menn við æði misjafnlega harðsvírað vandræðafólk, en þess á milli við flekklausa þegna, sem hafðir hafa verið fyrir rangri sök og að í þessum málum er jafnan ástæða til að gæta fyllstu alvöru. Eftir sem áður er það álit mitt að RLR hefur hætt til að fara offari og vera haldin gæsluvarð- haldsgieði. Gæsluvarðhald getur verið afdrifarík aðgerð og jafnan full ástæða til að fara með gát Gæslu- varðhald er sjaldan réttlætanlegt nema í ofbeldismálum og eiturlyfja-. í þeim málum, þó sérstaklega í of- beldis- og þá kynferðisgiæpamálum þykir mér aftur á móti á stundum gæta full mildllar linku hjá dómsmála- kerfinu. Kaffibaunamálið talar sínu máli um fánýti gæsluvarðhalds, því enda þótt ekki hafí þótt ástæða til að hneppa höfuðpaura Sambandsins í gæslu- varðhald og þeir óhindrað getað borið saman bækur sínar, þá hafa þeir ekld komist hjá því að lenda í mótsögn hver við annan og verða margsaga fyrir rétti einfaldlega vegna þess að gögn málsins töluðu um hvemig mjö- lið var í pokanum. Mikið hefði málið verið einfaldara ef þeir menn hefðu gengið hreint til verks. Mér er minnis- stætt atvik er átti sér stað fyrir þó nokkru. Seint á sunnudagskvöldi einu var ég kvaddur til ungrar konu í Síðumúlafangelsi, í sambandi við mis- ferii einhvers starfemanns sem átt hafði sér stað í lánastofiiun einni hér í borginni. Málið hafði RLR haft til rannsóknar í 2—3 mánuði og um- ræddan dag hafði verið látið til skarar skríða. Stúlkan hafði verið til stöðugr- ar yfírheyrslu í nærri 5 klukkustundir og hafði maigsinnis verið látin skrifa hin ýmsu mannanöfn, en málið sner- ist um falsaðar undirskriftir. Þegar ég kom á staðinn sögðu RLR-menn- imir að þeir vissu að stúlkan væri sek, en þeir vildu gefa henni kost á að tala við léttaigæslumann áður en henni yiði stungið í varðhald nætur- langt Það tók mig 5 mínútur að átta mig á því að konan væri höfð fyrir rangri sök og eftir að ég hafði gert grein fyrir skoðun minni, sem þeim þótti fráleit, var fallist á að stúlkan fengi að fara heim til eiginmanns síns gegn því að vera tiltæk næsta dag og mæta ekki í vinnu. Áður en ég hvarf af vettvangi ásamt hinni niður- brotnu ungu konu, varð mér á að óska eftir því að fá að sjá nöfii og nafnritanir fólks þess sem starfaði í umræddri stofnun og hlyti að vera til staðar. Það var strax orðið við til- mælum mínum og það atvikaðist svo að mér flaug í hug eitt nafii á listan- um á manneskju, sem ég þekkti þó ekki til og mér varð að orði að nafii- ritunarinnar vegna myndi ég yfírheyra þessa konu, sem þá var ógerL Næsta moigun skrapp ég á heimili ungu hjónanna og meðan ég var að ræða við þau um atvik næturinnar, var hringt frá RLR og með miklum afeök- unarorðum var frúnni tilkynnt að stúlkan, sem ég hafði bent á hefði viðurkennt sinn hörmulega verknað eftir 10 minútna yfirheyrslu. Konan sem varð fyrir þessari óhugnanlegu reynslu hefúr ekki enn náð sér eftir þá lífereynslu sem því fylgir að verða hótað innilokun og enginn virtist trúa á sakleysi hennar. Það sorgiega er þó að íÍLR-menn hafa ekki verið ein- ir um að fara offari í sakamálum, heldur hefur þetta hent suma yfir- menn dómsmála okkar, en það er önnur og Iengri sorgarsaga. Þá skal vikið að umflöllun lögreglu- varðstjórans um þær aðdróttanir, sem fólust í beiðni Landssambands lög- regiumanna í garð Jóns Helgasonar dómsmálaráðherra út af því að hafa Gunnlaugur Þórðarson veitt Boga Nilssyni sýslumanni stöðu rannsóknariögreglustjóra ríkisins, sem hann afgreiðir með orðunum: „Þvílíkt bull.“ Staðreynd þessa máls er að stjóm Landss. lögreglumanna leitaði umsagnar LMFÍ um lögmæti umræddrar embætdsveitingar. Svar Lögmannafélagsins var svohlj.: „Stjóm LMFÍ þakkar Landssam- bandi lögreglumanna það traust að biðja hana umsagnar um það álitamál, er nánar greinir í bréfí Landssambandsins frá 4. sepL sL Stjóm LMFÍ verður hins vegar að hafna umræddri málaleitan nLa. af eftirgreindum ástæðum: Hvorki í lögum um málflytjendur né í sam- þykktum fyrir LMFÍ er gert ráð fyrir slíku umsagnarfalutverki stjómar félagsins. Telur stjómin það því hvorki vera hlutverk sht né heppilegt út frá almennum sjón- armiðum að verða við tilmælum um lögfræðilega álhsgerð, er lýtur að því hvort tiltekinn umsækjandi uppfylli lagaskilyrði til sldpunar i opinbera stöðu, þ.m.L i stöðu rann- sóknaHögreghistjóra ríkisins.“ Það dylst engum að í þeirri um- rjfe W't, Meistaraflokkur Gróttu í handbolta ásamt þjálfara liðsins, Guðmundi Magnússyni, Margréti Kristjáns- dóttur, formanni handknattsleiksdeildar Gróttu og Esther Guðmundsdóttur, markaðsstjóra SPRON. sagnarbeiðni fólust aðdróttanir sem engin dæmi eru tíl um embættísveit- ingu á síðari tímum af hálfu ábvrgra aðila. Varðstjóranum mun ekki takast að telja öðrum trú um að eitthvað annað hafí áttí að felast í þessari aðför og getsökum í garð dómsmála- ráðherra og þeim er embættíð hlauL Svo vogar lögregíuvarðstjórinn sér að segja í grein sinni að stjóm LMFI „hafi ekki treyst sér að gefa um- beðna umsögn“. Það er illt tál afepumar, þegar lögregiuvarðstjóri verður jafii ber að því að geta ekki skilið mælt mál og leggja allt aðra meridngu í það en aðrir eða hvaðan kemur honum sú viska úr skrifum mínum, að „ég öfundi dómsmála- ráðherra af að þurfa að velja". Ofund og metingur em eiginleikar sem ég hef mestu óbeit á I grein minni sagði að umrædd embættís- veiting dómsmálaráðherrans væri hafín yfír gagnrýni og það mun vera einróma álit málsmetandi lögmanna. Það er algjöriega úr lausu loftd gripið hjá lögregiuvarðstjóranum að „ég teiji ráðherra hafna yfír gagn- rýni“ eða að þeir eigi að vera ein- hveijir „liálfguðir“. Það þarf dálítið sérstakan vilja til þess að fá svo undir- gefiia hugsun úr skrifum mínum. í grein minni er hvergi að finna orð í þá átt, en hins vegar lýst ánægju yfír að hópur manna glíkir lögreglu- varðstjóranum skuli ekki eiga neinn umsagnarrétt í krafti starfe sins um slíkar stöðuveitingar. í lok greinar sinnar gefur lögregiu- varðstjórinn i skyn að ég hafi brotið siðaregiur lögmanna í skrifum mínum . Af máli hans má ráða að hann að vonum viti lrtið um siðaregiur iög- manna og fullyiði því um of. í 5. gr. þeirra segir „Lögmaður skal ekki í fréttamiðlum eða á öðr- um opinberum vettvangi ræða eða rita um mál sem hann hefur eða hefur haft til meðferðar." í loka- málsgrein sömu greinar segir að málefnaleg tunræða og ritun um mál sem er lokið... skal ogheimiL í þessum ákvæðum felst m.ö.o. að lögmanni er ekki heimilt að reeða eða rita í fjölmiðla um eigin mál og mun þetta ákvæði í mínum skilningi vera sett til þess að lögmaður reyni ekld að hafa áhrif á dómara og almenning meðan það er á dómstígL Það væri hrópleg hefting á mál- frelsi Iögmanna ef siðareglur þeirra væru í þeim anda sem varðstjórann dreymir um og þá væri lögregluríkið ískyggilega nærri. Varðstjórinn er svo vinsamlegur að vilja kenna mér að skrifa, en þar mun ég ekki síður með ritstörfiim mínum valda honum vonbrigðum. Á því sviði mun honum vafalaust takast jafri Ola og að ætla sér að kenna gömlum hundi ættuðum úr Húnaþingi að virða forskrúfaðar umferðarreglur. í Ijósi þess að vaiðstjórinn er göm- ul íþiéttakempa þykir mér það undariegt að hann skuli halda að sundfeiðir mínar, sem ég hef stundað nærri daglega í tæpan áratug, séu tíl þess geiðar að hlusta eftir gróusögum í heitu pottunum. Hins vegar þyldr mér ágætt að hinn gamli spretthlaup- ari skuli hafa fengið mikla útrás með þessu frumhlaupi sínu á ritvellinum. Auðvitað þarf vaiðstjórinn ekki að óttast að skrif hans fæli mig frá því að lfta inn á kaffístofu lögregiunnar við Hverfísgötu 113. Hann er líka velkominn á lögmannsstofúna á Suð- uriandsbraut 20 og má þar eiga von á ljúfinannlegum viðtökum eins og hann hefúr áður mætt þar. Höfitndur er Kgmaður í Rcykjavík. ap grt PHILIPS FARSÍMINN s atn bandi? © HeimilístæKi hf SÆTÚNI 8. SÍMI 27500 - HAFNARSTRÆTI 3 SIMI 20455
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.