Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 45

Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 45 Kveðjuorð: Sigmar Jóns- son - fulltrúi Fæddur 18. janúar 1943 Dáinn 18. september 1986 Hann Sigmar mágur minn er dáinn. Mér fínnst það alveg óskilj- anlegt. Þessi fallegi maður, sem geislaði af hreysti og lífsgleði, veikt- ist fyrir tveimur mánuðum og er nú allur. Drottinn gaf og drottinn tók. Við verðum að sætta okkur við það hversu erfítt sem það nú er. Sigmar fæddist hér á Blönduósi 18. janúar 1943, sonur hjónanna Sigurlaugar Valdimarsdóttur og Jóns Sumarliðasonar, elstur fímm bama þeirra. Sigmar var hár og dökkur yfirlit- um og einkenndi hann rólegt fas og glæsileiki. Hann var heiðarlegur og samviskusamur í störfum sínum ög samskiptum við fólk. Við kynntumst fyrir tæpum 9 árum og kom það mér þægilega á óvart hvað hann hafði líflega og skemmtilega kímnigáfu, undir ró- legu fasinu. Hann var vinsæll og vinmargur og óhætt held ég sé að fullyrða að óvin hafí hann engan átt. í júlí 1968 giftist hann konu sinni, Sigrúnu Kristófersdóttur frá Skagaströnd. Þau voru eins og sköpuð hvort fyrir annað, samhent og glæsileg hjón. Þau eignuðust tvö böm, Önnu Kristrúnu, f. 1968 og Jón Kristófer, f. 1972, sem bæði em gædd góðum kostum foreldr- anna. Síðustu 5 árin var aðeins eitt hús á milli heimila okkar og hittumst við því oft. Minningamar em marg- ar og góðar. Ogleymanleg em gamlárskvöldin heima hjá þeim, þar var öll Qölskyldan saman komin og ungir sem aldnir heilsuðu nýju ári saman. Hjá þeim var gott að vera og oft fannst mér ég vera betri manneskja eftir heimsóknir til þeirra. Sigmar mætti veikindum sínum af æðmleysi, það var ekki hans deild að kvarta, enda var hann mjög trúaður maður. Við hlið hans stóð Sigrún nótt sem dag og gerði allt sem í hennar valdi stóð, tii að létta honum lífíð þar til yfír lauk. Hún á alla mína aðdáun fyrir kjark sinn og dugnað. Það er basði sárt og erfítt fyrir Sigrúnu og bömin að sætta sig við orðinn hlut og það tekur tíma að græða þau sár. En minningin um fallegan og ljúfan eiginmann og föður verður notaleg þegar frá líður. Dóttir mín sagði að það hefði dottið stjama af himninum þegar hann dó. Það er nokkuð til í því. Stjaman okkar er fallin. En minningin um hana er björt og fög- ur. Sigrúnu og bömum, foreldmm, tengdaforeldrum og systkinum votta ég mína dýpstu samúð og bið algóðan guð að styrkja þau í sorg- inni. Mági mínum þakka ég ljúf- mennskuna í alltof stuttri en ánægjulegri samfylgd. Guð blessi ykkur öll. Agatha S. Sigurðardóttir Kynning á WOLTZ snyrtivörum ídagkl. 12.00-18.00 Miðbær Vestmannaeyjum Förðunarmeistari farðar viðskiptavinina KASKO tryggir þér lyklavöl að eigin sparifé! U€RZIUNARBANKINN -vúutur oteð (

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.