Morgunblaðið - 10.10.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
49
Miðasala og borðapantanir í Broadway frá kl. 11—19 virka
daga og 14—17 á laugardag. Sími 77500.
Hvernig draga má úr
umferðarslysum
Á árunum 1981—84 virtist held-
ur draga úr dauðsföllum vegna
umferðarslysa en nú virðist allt
sælq'a í sama farið á ný ef dæma
má af slysafregnum.
Hvað er til ráða?
Oft hefur okkur tekist vel upp í
aðgerðum gegn slysum en því mið-
ur er oftast um skammtíma árangur
að ræða.
Aðgerðir gegn umferðarslysum
haustið 1985 tókust vel því
stórfækkun varð á slysatilfellum á
slysadeild Borgarspítalans en síðan
ekki meir.
Með hliðsjón af góðum
skammtíma árangri leggjum við til
að næsta haust verði aftur hafist
handa um aðgerðir í svipuðum
mæli og haustið 1985 en með öðrum
áherslum.
I hveijum grunnskóla verði t.d.
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Vonin er draumur hugsandi manns.
Meðan líf er — er von.
- fom og ný lífssannindi -
Lífsspeki þessi er mjög áleitin
nú er Ieiðtogar stórvelda koma
til funda hér á okkar grund, til
að þinga um framtið mannkyns.
Til að árangur verði sem best-
ur, setjum við fram okkar sterk-
asta friðarkyndil sem er okkar
„ómengaði fiskm-“.
Fiskur er sagður hið besta
heilafóður, hann er kjamafæði
og mjög góður fyrir hjartað. Við
bjóðum því erlendum gestum okk-
ar fisk. Megi þeir vel njóta.
Hér er afbragðs fiskréttur við
„alþjóðasmekk".
Smálúða bökuð
með kartöf lum
1 kg smálúðuflök eða ýsa,
1 sítróna
700 gr kartöflur,
100 gr smjörlíki eða smjör,
1 stk. laukur stór,
1 hvítlauksrif pressað,
2 greinar steinselja saxaðar
eða 1 matsk. parsley,
*/2 bolli lqúklingakraftur,
V2 bolli brauðmylsna,
salt og malaður pipar eftir smekk.
1. Smálúðuflökin eru roðflett og
skorin í sundur eftir endilöngu. Þau
eru sett á fat og er safinn úr sítrón-
unni settur yfir þau. (Það má einnig
nota ýsu eða þorsk í þennan rétt.)
2. Kartöflumar eru þvegnar og
afhýddar hráar og skomar niður í
mjög þunnar sneiðar.
3. Laukurinn er skorinn niður
fremur smátt og settur í skál ásamt
pressuðum eða fínskomum hvítlauk,
steinselju eða parsley og lítt eitt af
salti og pipar. Þessu er síðan bland-
að vel saman við niðursneiddar
kartöflumar.
4. Hitið ofninn að 225 gráðum.
5. Helmingur smjörlíkis eða
smjörs eða 50 gr er brætt og sett í
eldfastan aflangan disk. Salti og
pipar er stráð yfir fískflökin, þau
eru lögð saman og síðan raðað eftir
miðju disksins. Kartöflunum með
lauk og kryddi er raðað meðfram
fískinum.
6. Kjúklingakraftinum (eða
hvítvíni) er hellt yfir fisk og kartöfl-
ur og síðan því sem eftir er af
smjörlíkinu. Bræðið það fyrst. Að
síðustu er brauðmylsnu stráð yfir.
7. Fiskrétturinn er bakaður í ofni
í 40 mín. eða þar til kartöflumar
em hæfilega bakaðar.
Réttur þessi er fullkomin máltíð,
en gott hrásalat er ágætt sem með-
læti.
Verð á hráefni
1 kg smálúða
(flökin) kr. 255,00
1 stk. sítróna kr. 10,00
100 gr smjörlíki kr. 17,00
700 gr kartöflur kr. 39,00
kr. 321,00
Blaöburöarfólk
óskast!
AUSTURBÆR
Barónsstígur
Bergstaðastræti
12—15 ára nemendur sendir út á
götur í nágrenni viðkomandi skóla
einn daginn eða dagstund í hveijum
mánuði eða annan hvem mánuð.
Nemendur fylgist með umferðinni
og því hvort umferðarreglum sé
fylgt, en flest slys verða vegna þess
að of hratt eða ógætilega er ekið.
Líklegt er að þessi aðgerð verði til
þess að bifreiðastjórar auki aðgæslu
og þá má búast við árangri. Kostur
er að álag eykst sáralítið á kennslu-
skrá þar eð nemendur verða ekki í
skólanum meðan á tilraúninni
stendur. Vel mætti líta á þessa
aðgerð sem umferðarkennslu og
mætti gjaman gefa nemendum ein-
kunn fyrir.
Sjúkrahús og heilsugæslustöðvar
(í Reykjavík slysadeild Borgarspít-
alans) geta síðan fylgst með því
hvort slysatilvikum fækkar þá daga
sem athugun fer fram. Hér væri
því um að ræða tilraun af hálfu
æskufólks til þess að draga úr
hættu á umferðarslysum á heima-
slóðum. Vel má vera að þeim takist
það sem mörgum opinberum nefnd-
um hefur ekki tekist.
Þess ber að geta að þessi stefna
er mjög í anda stefnumörkunar
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
sem telur að árangursríkasta að-
ferðin til þess að draga úr heilsuvá
sé að virkja fólícið til aðgerða.
Ólafur Ólafsson,
landlæknir.
Böðvar Bragason,
lögreglustjóri.
F
ler inn á lang
flest
heimili landsins!
Þú svalar lestrarþörf ríagsins
ásíðum Moggans! x
'
síðasta sinn á morgun, laugardag
Reagan og Gorbachev eru að
sjálfsögðu velkomnir á friðar-
skemmtun Sumargleðinnar á
Broadway. Við viljum frið og fjör.
Nú beinast augu heimsins að
Broadway
Splunkuný og sprellfjörug slær
gegn á Broadway. Það er mál manna
að þetta sé langbesta Sumargleðin í
16 ár og er þá alveg ofboðslega mikið
sagt.
Stórstjarnan Diddú, Raggi, Bessi,
Maggi, Hemmi, íslandsmeistarar í
frjálsum dansi, Svörtu ekkjurnar, nú
Götustelpur og hljómsveitin hressa
fara á kostum i dúndrandi stuði á
morgun, laugardagskvöld.
nu
Matseðill:
Humarsúpa
Sinnepssteiktur grísahryggur
Is Belle Hélene
Kabarett-stemmning,
kátína, söngur, dans,
grfn og gleði
Öðruvísi og betri
Sumargleði!
Aðeins
það besta
á Broadway
Sumargieðin
svíkur
engan