Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 50

Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 50
» 50 I73H01 aia/wravmoROM MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 félk í fréttum Lífði á gulrótum og appelsínusafa Rætt við signrvegarana í Ljómarallinu Sigurvegararnir í Ljómarallinu, Gunnlaugur Rögnvaldsson og Þór- hallur Krisjánsson. Hver segir að smá rall sé eitthvað mál? SIGURVEGARANIR í Ljómarall- inu 1986 voru, eins og kunnugt er, þeir Þórhallur Kristjánsson og Gunnlaugur Rögnvaldsson, sem var aðstoðarökumaður. Það var reyndar Gunnlaugur sem átti hugmyndina að þvi að blaða- maður yrði með í förinni fyrstu sérleiðina og að hans sögn, tók Þórhallur í fyrstu dræmt í að hafa farþega með. „Þetta var nú allt í lagi," sagði 4| Þórhallur eftir að sigur var í höfn og ljóst var að nærvera blaða- mannsins hafði ekki haft neikvæð áhrif á úrslit keppninnar. „Ég hafði miklar áhyggjur af því fyrir rallið að hafa farþega með, en þetta gekk ágætlega." Alls eru fimm röll á ári hérlendis og gefa þau öll stig til baráttunnar um íslandsmeistaratitilinn. Þannig gefur sigur í ralli 20 stig, annað sæti 15 stig, þriðja sæti 10 stig og þar fram eftir götunum. Þórhallur varð íslandsmeistari í fyrra, en er í öðru sæti núna, þegar eitt rail er eftir, svokallað Norðdekk rall, í lok mánaðarins. Jón Ragnars- son er efstur að stigum, en þijú stig skilja þá Þórhall að. Þórhallur er búinn að skipta nokkuð ört um aðstoðarökumenn á árinu; fyrst keppti Sigurður Jensson með hon- um, þá Ulfar Eysteinsson og loks Gunnlaugur Rögnvaldsson, sem mun væntanlega einnig keppa með honum í síðasta rallinu. Og svo var að sjálfsögðu blaðamaðurinn að- stoðarökumaður í mjög skamman tíma. „Ég er ekki í neinum vafa um það að Þórhallur er besti ökumaður 4 lf landsins," segir Gunnlaugur um ralikappann, en sjálfur er Þórhallur mjög hógvær og vill helst ekkert tala um árangur sinn í rallkeppnum. Gunnlaugur hefur sjálfur margoft keppt í röllum, en segist þó enga löngun hafa til að taka í stýrið þeg- ar Þórhallur situr við stjómvölinn. Skiljanlega var nokkur taugatitr- ingur í þeim félögum áður en rallið hófst og ekki skánaði ástandið eftir að keppnin var komin í fullan gang. „Ég gat engu komið niður fimmtudaginn sem rallið hófst og borðaði ekkki mikið á meðan á því stóð,“ segir Þórhallur, en Gunn- laugur hvíslar því að blaðamannin- um að Islandsmeistarinn hafi verið að narta í gulrætur öðru hvoru alla keppnina og skolað þeim niður með appelsínusafa. „Þetta var nokkuð strembið rall, en samt eru stuttu rallin mikið erf- iðari, því þá keyrir maður með allt í botni," segir Þórhallur. Aðspurður segist _ Þórhallur munu reyna að vinna íslandsmeistartitilinn, en dul- býr svarið með því að segjast bara stefna að því að sigra Jón Ragnars- son. „Það var nú samt alltaf draumurinn að vinna Ljómarallið," segir hann og brosir. Þórhallur vill alls ekki gangast við því að hafa verið bílatöffari eða mótorhjólagæi í æsku, en segist hafa fengið bílabakteríuna með bflprófinu. „Mér fannst alltaf svo gaman að keyra; ég var meira að segja farinn að fara á skíði upp í Bláfjöll bara til að geta keyrt þangað og til • baka,“ segir hann. í rallinu sem var á undan Ljómar- allinu, fór bíll Þórhalls útaf og skemmdist mikið. „Ég er búinn að vera að gera við bflinn í rúman mánuð fyrir Ljómarallið, en hann fór nokkuð illa í Húsavíkurrallinu. Ég hef sjald- an dottið út úr ralli, nema þá vegna vélarbilunar. Það eru helst tækni- legar bilanir, sem setja strik í reikninginn fyrir rallökumenn. Það kom nú fyrir Jon í þessari keppni." Gunnlaugur og Þórhallur sögðu báðir að mikill keppnisandi ríkti á meðal rallökumanna almennt, en sögðu jafnframt að bjátaði eitthvað á, væru allir tilbúnir til að hjálpa. Sem dæmi má nefna að Þórhallur og Gunnlaugur voru búnir að fá marga viðgerðarmenn til liðs við sig, og áttu þeir að vera til taks til að laga bílinn, ef eitthvað kæmi fyrir, en kvöldið fyrir keppnina, kom í ljós að fæstir þeirra gátu tekið þátt í rallinu, þar sem þeir komust ekki frá vinnu sinni. A öðrum degi rallsins, lenti svo bfll Þórhalls í gijóti í sandhlíð, þannig að stýri- búnaðurinn skekktist og þurfti Þórhallur að nota bensíngjöfina til að stjórna bflnum í beygjum. Það reyndist þó ekki nóg í einni beygj- unni og rann bíllinn i gijótinu tæpa 100 metra. Þórhallur og Gunnlaug- ur héldur að nú væri öllu lokið og allt færi undan bflnum vinstra meg- in. Þeir luku þó við sérleiðina og í næsta viðgerðarhléi, tóku viðgerð- armenn Jóns Ragnarssonar til hendinni og hjálpuðu þeim félögum að laga bflinn. Jón var þá dottinn út úr keppninni og voru því viðgerð- armennirnir þá boðnir og búnir til að hjálpa Þórhalli. Rallið var í heild um 1500 km, en þar af voru 600 km á sérleiðum. Á milli þess sem rallararnir aka sérleiðirnar, keyra þeir svokallaðar feijuleiðir, sem er í almennri um- ferð og keyra þá allir á löglegum hraða, enda varðar það við brottvís- un úr ralli að aka hraðar en leyfilegt er á ferjuleiðum. Sérleiðimar eru allar merktar og lokaðar á meðan bflamir aka þær á miklum hraða. Staða rallökumanna í keppni ákvarðast af refsitíma, sem er sá tími sem það tekur þá að komast frá rásmarki hverrar leiðar, að endamarki. Refsitími Þórhalls og Gunnlaugs var 7 klst. 16 mín. og 23 sek. Starf aðstoðarökumanns er mjög mikilvægt í ralli, þar sem hann leið- beinir ökumanninum, og sér að mestu um allt, sem varðar rallið, nema sjálfan aksturinn. Auk þess er mikilvægt fyrir ökumanninn að aðstoðarmaðurinn tali hann til, hvetji hann eða fái hann til að draga úr hraða, eftir því sem við á og veiti honum andlegan stuðning. Gunnlaugur vildi meina að sigurinn í rallinu væri að nokkru leyti því að þakka, að þeir félagamir óku sérleiðimar áður en rallið hófst og skráðu allar beygjur í stflabók. Þeg- ar Þórhallur ók svo leiðimar í rallinu sjálfu, gat Gunnlaugur sagt honum nákvæmlega til með hvers væri að vænta handan beygjunnar, eða blindhæðarinnar, þannig að hann gat ekið mun hraðar og af meira öryggi. Þegar rallið hófst í Kópavogs- gryfjunum vom 22 þátttakendur, en ekki luku nema níu keppninni. Þrátt fyrir að Þórhallur og Gunn- laugur hafi komist að mestu klakklaust í mark, gekk þó á ýmsu á leiðinni. Á öðrum degi losnaði háspennuþráður og tók bfllinn að hökta mikið. Þeir félagar héldu að vélin væri að gefa sig, en svo reynd- ist ekki vera og einungis þurfti að festa þráðinn. Síðar sama dag drap bfllinn á sér og höfðu þeir ekki hugmynd um hvað var á seyði. Tvær bensíndælur eru í Peugeot Talbot bílnum hans Þórhalls og skiptu þeir þá yfir á varadæluna og var þá loks hægt að ræsa bílinn. Á einni sérleiðinni tóku kappamir báðir eftir því að bfllinn var orðinn nokkuð bensínlítill, en hvorugur þorði að nefna það á nafn, svo hinn yrði ekki taugaóstyrkur. Gunnlaug- ur var þá farinn að svipast um eftir bensíndælum á þeim sveitabæjum sem þeir óku framhjá, en þá hittu þeir óvænt á aðstoðarbfl við veginn, sem hafði aukabensín. Þórhallur og Gunnlaugur fara nú að undirbúa Norðdekk rallið af fullum krafti og yfirfara bflinn á ný. Þórhallur segist óviss um fram- haldið á rallakstri eftir síðasta rallið í ár, enda sé ákaflega erfitt að sam- ræma vinnu og rallakstur af einhverri alvöru. Þá er að sjá hvort honum takist að veija íslandsmeist- aratitilinn, áður en hann kveður tómstundagamanið - ef hann lætur þá verða nf bví að hætta. „ÞAÐ ER vissara að þú takir þetta með þér,“ sagði einn sam- starfsmaður minn og rétti mér augnaleppa, eins og flughræddir nota gjarnan til þess að festa svefn um borð í flugvélum, áður en ég lagði i hættuförina miklu. Ég hló hæðnislega og þóttist hvergi smeyk við „smá rall,“ en laumaði samt leppunum ofan í vasa. „Smá rallið" var hvorki meira né minna en Ljómarallið sjálft, sem á meðal rallkappa er talin ein mikilvægasta keppnin í raUakstri hér á landi. Í Ljómarallinu nýafstöðnu, var bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða farþegum að sitja við hlið ökumanna fyrsta spölinn og þótti við hæfi að forstjóri Smjörlíkis hf., sem framleiðir Ljóma, sæti í fyrsta bflnum, þar sem sat við stjómvöl- inn, Jón Ragnarsson, landskunnur rallkappi. Annar bfllinn, sem var ræstur, var bfll Þórhalls Kristjáns- sonar, íslandsmeistarans frá því í fyrra. Honum til trausts og halds var enginn annar en undirritaður blaðamaður, sem aldrei hefur ná- lægt ralli komið áður. „Þú ert ekkert bflhrædd, er það?“ var ég spurð. „Ekki neita ég því, ég þori helst ekki í strætó." Þórhallur hefði eflaust hugsað sig þrisvar um, ef hann hefði vitað af bflhræðslu minni og sjálfsagt þvertekið fyrir þennan rúnt með mig innanborðs. En það varð ekki aftur snúið. Þama var ég komin, innan um 200 bflatöffara og með hjálminn í hendi. Beltin spennt og búið að festa undirritaða á filmu hjá breskum kvikmyndagerðar- mönnum, sem fylgdust með fyrsta spottanum í Ljómarallinu. Af al- kunnu örlæti, bauðst ég til að lána Davíð Scheving augnaleppana, en hann hugði sjálfur á óbrigðult ráð; að taka bara niður gleraugun. Fyrsti spottinn í rallinu var svo sem engin ósköp, rúmir tveir kfló- metrar í gryfjunum í Kópavogi. Rásmarkið var við endann á Fífu- hvammsvegi og átti að „tæta“ þessa fáu kflómetra á miklum hraða, en þó ekki svo að lífi bæði áhorfenda og farþega væri stofnað I hættu. Ég hafði laumast til að skoða leið- ina kvöldið áður í eigin bfl og keyrði moldarveginn á svona 45 km hraða á sjö mínútum. Þórhallur keyrði leiðina á einni mínútu sléttri. Rallbflamir 22 röðuðu sér hvor á eftir öðrum eftir Fífuhvammsveg- inum og klukkan 18 var fyrsti bíllinn ræstur. Þar fór Jón Ragnars- son með hinn dýrmæta farm af stað og þá fór mér ekki að lítast á blik- una. „Er maðurinn með stífkrampa í fætinum? Mikið ósköp fer hann hratt,“ hugsaði ég með mér. Mér varð litið á þykku Morgun- blaðsúlpuna, sem ég hafði fengið að láni og fannst ég sjá hreyfingu koma innanfrá. „Getur það verið að hjartað sé á leiðinni út úr jakkan- um?“ Einni mínútu síðar var okkur gefíð merki um að halda af stað. Þá greip ég traustataki um ein- hveija stöng meðfram hurðinni og hélt mér fast. í fyrsta skipti á ævinni óskaði ég þess að ég hefði ekki fullkomna sjón; ég hefði alveg verið til í að taka niður gleraugun, eins og Davíð. En mér til mikillar undrunar, leið mér ekkert illa. Þórhallur keyrði að sjálfsögðu eins og bijálaður maður, en ég varð aldrei hrædd - allar 60 sekúndumar. Ég bara fylgdist með áhorfendunum, sem höfðu raðað sér meðfram veginum og sumir kannski fullnálægt öku- leiðinni. Að vísu verð ég að viður- kenna að í einni beygjunni lokaði ég augunum og átti alveg eins von á því að sitja í moldarbarði í næstu andrá. En ekkert gerðist og Þór- hallur hélt ótrauður áfram að keyra eins og óður maður. Allt í einu sá ég fjöldann allan af fólki, fjöldann allan af bílum og Ijöldann allan af myndatökumönn- um á miðjum veginum og var að því komin að rúlla niður bflrúðunni og kalla til þeirra vamaðarorðum. Það var þá endastöðin og leið 2, Kópavogsgryfjur, var komin á leið- arenda. Ég rúllaði niður og afhenti verðinum tímakort, sem mér hafði einhvem vegin tekist að titra nafn- ið mitt á og setti upp kæruleysis- svip. Þórhallur kom bílnum fyrir og við stigum út. Mikið varð ég hissa að ég héldi jafnvæginu; fætumir titmðu svo mikið að ég hélt að hjálmurinn myndi loks koma í góð- ar þarfir, til að skýla höfðinu þegar ég dytti í yfírliði á götuna. Allt gekk þó eins og í sögu og fyrr en varði var einhver að óska mér til hamingju með fyrsta rallið mitt. Ég þakkaði pent og tók þá eftir því að ég var komin í hóp rallkappa og reyndi þá af fremsta megni að taka þátt í umræðunum: Ég jánkaði eða hristi höfuðið eft- ir því sem mér fannst viðeigandi, þegar ég var spurð um háspennu- þræði, yfirliggjandi knastás, tvöfalt pústkerfi, tveggja hólfa blöndunga og beina innspýtingu. Ég vonaði að engann gmnaði að ég vissi ekki einu sinni hvar á að setja vatn á rúðupissið á bflinn hennar mömmu. „Þetta er náttúmlega bilun," var það fyrsta sem kom upp úr barkan- um, þegar ég var spurð hvemig mér hafi fundist að sitja í rallbif- reið. „Og þó; þetta var nú svolítið gaman, ég varð að minnsta kosti ekkert ótrúlega hrædd.“ Svo fékk ég far sömu leið til baka með „undanfaranum,“ öku- tækinu sem fer á undan keppnis- bflunum og tilkynnir að rallið sé að hefjast og áhorfendum sé viss- ara að forða sér af veginum. Ballið - eða rallið - var búið dg Þórhallur sjálfsagt feginn að losna við hinn bílhrædda aðstoðarrökumann. Hinn rétti aðstoðarrökumaður, Gunn- laugur Rögnvaldsson, var sestur við hlið hans og tekinn við. Þá hófst Ljómarallið fyrir alvöru og bflamir bmnuðu út úr bænum. Texti/Helga Guðrún Johnson Sigurvegarinn i Ljómarallinu, ÞórhaUur Kristjánsson, brosmildur í upphafi rallsins, enda ókunnugt um bílhræðslu fyrsta aðstoðaröku- mannsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.