Morgunblaðið - 10.10.1986, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
ILEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJA
Fjölmiðlar
óábyrgir
í bókunum
- segir forstjóri Ferða-
skrifstofu ríkisins
mHMBB
Æfing á Höfða
v 'mmMm
uauaariKjamenn og Kussar ærou 1 gær
„viðræðufund í Höfða“. Það er bandarísl
bifreiðin, sem er komin að húsinu» þegar Jí
tók bessa mvnd. en hin er rétt á eftir.
EMBÆTTISMENN stórveldanna
hafa enn ekki tilkynnt formlega
hversu margir eru væntanlegir til
landsins á þeirra vegum vegna
leiðtogafundarins. Að sögn Kjart-
ans Lárussonar forstjóra Ferða-
skrifstofu ríkisins er búist við allt
að 700 manns frá Bandaríkjunum,
þar með taldir blaðamenn Hvita
hússins, og um 350 manns frá
Sovétríkjunum. Þá er reiknað með
að hingað komi milli 12 til 14
hundruð fréttamenn frá sjón-
varps- og útvarpsstöð vum víða um
heim auk anuarra sem eru á eigin
vegum.
„Okkar stærsta vandamál hefur
verið hvað mikill losarabragur hefur
verið á bókunum og hvað margar
fréttastofur og dagblöð hafa verið
óábyrg í sínum bókunum," sagði
Kjartan. Hann sagði að Flugleiðir
og Amarflug hefðu orðið fyrir því,
að þeir sem bókað hefðu sæti Iétu
%rsig vanta jafnvel þótt búið væri að
staðfesta pantanir. Sem dæmi nefndi
Póstur og sími:
Undirbúningi að ijúka
Leyfi þegar veitt fyrir sjö jarðstöðvum til gervihnattasendinga
PÓST- og símamaálastjórn hefur veitt leyfi fyrir sjö jarðstöðvum
til gervihnattafjarskipta á sjónvarpsrásum vegna komu þjóðarleið-
toganna til landsins. Að auki er verið að semja við Evrópsku
sjónvarpsstöðina EBU fyrir tvær jarðstöðvar. Rúmlega sjö hundruð
símar hafa verið afgreiddir til fréttamanna sem hingað eru komnir
og skorar Póst- og símamálastjómin á landsmenn að nota sima sína
sem minnst laugardag og sunnudag, svo að hægt verði að veita sem
besta þjónustu.
hann að fullbókað var í vél frá
Bandaríkjunum, en þegar lent var í
Keflavík vantaði 100 farþega í þær
þijár langferðabifreiðar, sem flytja
áttu farþegana til Reykjavíkur.
„Við höfum verið með fólk í vinnu
dag eftir dag til að fínna þeim sama-
stað sem búist var við og búið var
að bóka,“ sagði Kjartan. „Eitt símtal
þar sem tilkynnt er að ekki verði af
komunni áður en skellt er á og allt
^er unnið fyrir gíg.“
Kjartan sagði að starfsfólk allt,
sem væri gott fagfólk á sínu sviði
hafi staðið sig með ágætum og leyst
vekefni sín vel af hendi, jafnvel betur
en búist var við með tilliti til þess
hvað fyrirvarinn var stuttur. Hann
sagðist ekki geta gert sér grein fyrir
hvort eða hversu miklum tekjum
mætti búast við vegna fundarins. „Ef
okkur tekst vel til á öllum sviðum
eins og ég geri mér góðar vonir um,
allt gengur upp og gestir kveðja
ánægðir, þá verð ég ánægður," sagði
Kjartan. „Við stöndum uppi reynsl-
unni ríkari og ég yrði ánægður ef
við slyppum á sléttu og ef allir sem
hingað koma verði jákvæðir í okkar
garð.“
„Þá höfum við breytt jarðstöðinni
Skyggni þannig að í stað einnar sjón-
varpsrásar eru komar þijár sem
senda út samtímis," sagði Þorvarður
Jónsson yfírverkfræðingur pósts og
síma. Hann sagði að þessar rásir
væru þegar bókaðar, ein fyrir send-
ingar til Sovétríkjanna, önnur fyrir
evrópsku sjónvarpsstöðina EBU og
sú þriðja til „Bright Staar“, sem er
flutningafyrirtæki. Reiknað er með
að tíu sjónvarpsrásir sendi stöðugt’
út allan tímann eða í 500 klukku-
stundir samtals.
í gegn um Skyggni hafa einnig
verið bókaðar hljóðvarpssendingar
um allan heiin auk þess sem banda-
ríska fjarskiptastöðin CBS hefur
sett upp jarðstöð fyrir átta slíkar
dagskrárlínur í samvinnu við aðrar
útvarpsstöðvar.
Talrásum hefur verið flölgað til
útlanda úr 220 rásum í 300 og eru
40 línur leigðar beint til fjölmiðla á
meðan á fundinum stendur. Bætt
hefur verið við rásum til Banda-
ríkjanna og sjálfvirka stöðin auk
þess verið tengd 35 línum þangað í
gegn um London. Línur hafa verið
lagðar víða um borgina til þeirra
staða sem erlendu frétta- og sjón-
varpsstöðvamar hafa komið sér
fyrir. Sérstakar línur hafa verið
lagðar að Höfða, Hótel Loftleiðum,
Hótel Sögu, Hagaskóla, Melaskóla
og við gamla Verslunarskólann í
Þingholtunum fyrir sendiráð og hót-
el í hverfínu.
í Hagaskóla rekur Póstur og sími
þjónustumiðstöð fyrir fréttamenn.
Þar eru símar, ritsími, telex, telefax
og póstafgreiðsla. Þar hafa verið
settir upp svokallaðir kortasímar, en
það eru símar sem sérstök kort þarf
til að hringja úr. Hvert kort hefur
eitthundrað skref og er hægt að
tala án truflunar svo lengi sem þau
endast. í Melaskóla hefur íslenska
sjónvarpið komið sér fyrir og aðrar
stöðvar sem senda á vegum þess.
„Við höfum yfírleitt mætt mjög
mikilti ánægju hjá þeim sem við
höfum unnið fyrir,“ sagði Þorvarð-
ur. „Okkar starfsmenn, sem skipta
hundruðum hafa unnið myrkranna
á milli síðan ákvörðunin um fundar-
stað lá fyrir." Þorvarður treysti sér
ekki til að segja hver kostnaður
væri að þessum framkvæmdum, en
taldi að hann skipti milljónum. „Við
stefnum að því að tekjumar verði
ekki minni. Hér eiga fyrirtæki í hlut,
sem hægt er að treysta og við teljum
að þau loforð sem við höfum fengið
fyrir greiðslum standist," sagði
hann.
Morgunblaðið/Júlíus
Bílalest Reagans Bandaríkjaforseta og fylgdarliðs hans var löng.
Á þessari mynd, sem tekin er af brúnni á Bústaðavegi yfir
Kringlumýrarbraut, sést að lestin nær frá brúnni og allt inn f
Kópavog, við öndvegissúlurnar sem eru við borgarmörkin.
Morgunblaðið/Júllus
Fjöldi fólks hafði safnast saman þar sem bflalestin fór um og hér sjást forvitnir áhorfendur teygja
sig til að sjá betur bifreið Bandaríkjaforseta er hún beygir inn á brúna yfir Kringlumýrarbraut.
Ekið á löglegnm hraða til Reykjavíkur
„Móttaka Reagans fór nákvæmlega eftir áætlun og
ekkert óvænt kom upp á“, sagði Böðvar Bragason,
lögreglustjóri f Reykjavík í gær.
Böðvar sagði það ekki vera rétt að ekið hefði verið á
'miklum hraða til Reykjavíkur, en í gærkveldi var talað
um 120 kílómetra hraða bflalestarinnar frá Keflavík. „Ég
fylgdist sjálfur með hraðanum og það var oftast ekið á
60 kflómetra hraða, en tvisvar sinnum var farið upp í
75 kflómetra á klukkustund", sagði Böðvar. „Þetta var
að sjálfsögðu afar stórt verkefni, en lögreglan stóð sig
mjög vel. Lögreglumenn frá Keflavík, Hafnarfirði, Kópa-
vogi og Reykjavík störfuðu þama saman, en ekki hef ég
tölu á þeim fjölda. Ég er afar ánægður með það hvemig
allt gekk snurðulaust fyrir sig og lögreglan er reynslunni
ríkari fyrir komu Gorbachevs í dag.“
Er Böðvar var inntur eftir því hvaða viðbúnaður yrði
við dvalarstað Reagans á Laufásvegi sagði hann að við-
búnaður yrði að sjálfsögðu mikill, en kvaðst ekki geta
gefíð upp hversu margir lögreglumenn yrðu þar að störf-
um. „Aðgerðir okkar missa nokkuð marks ef of mikið
er gefíð upp um þær“, sagði lögreglustjórinn.
/