Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986 61 Yosef Mendelevich talar við fréttamenn við komuna til ís- lands. Mopgunblaðið/Þorkell Mikhail Shirman: Hjðrð blaðamanna tók á móti Mikhail Shirman er hann kom til Keflavíkur í gær. Ferðin til íslands er mitt síðasta hálmstrá „Bregðumst við með mannúðlegu hugar- fari,“ segja Sovétmenn um málefni gyðinga HÓPUR gyðinga kom í gær hingað til lands frá ísrael í því skyni að vekja athygli á málstað gyðinga í Sovétríkjun- um. Meðal þeirra þrettán, sem lentu á Keflavíkurflugvelli, voru Mikhail Shirman, sem haldinn er hvítblæði og þarfn- ast beinmergs frá systur sinni í Sovétríkjunum, og Yosef Mendeievich, er sat í fangelsi í ellefu ár í Sovétríkjunum áður en hann fékk brottfararleyfi. Shirman, sem á síðustu stundu fékk leyfí frá læknum sínum til að fara til íslands, sagði að hann væri að beijast fyrir lífí sínu við komuna í Keflavík. Hann þarf á beinmergsaðgerð að halda og er systir hans, Inessa Flerov, sú eina, sem geturgefíð honum beinmerg. „Eg þarfnast aðgerðarinnar inn- an mánaðar, ef ég á að eiga lífs auðið," sagði Shirman á flugvellin- um. „Þess vegna kem ég hingað til lands. Lífdagar mínir eru að renna út og þetta er mitt síðasta hálmstrá." Lögreglan í Moskvu setti Inessu Flerov í gæsluvarðhald í tvær klukkustundir í gær fyrir mótmæli við höfuðstöðvar sovéska Kom- múnistaflokksins. Henni hafði verið neitað um brottfararleyfí. Fram kom á blaðamannafundi með bandarískum stuðningssam- tökum við gyðinga í Sovétríkjunum í gær að Viktor Fleurov, maður Inessu, væri nú í hungurverkfalli vegna þess hversu treglega gengi fyrir hana að fá leyfí til að fara frá Sovétríkjunum. Sovétmenn hafa reyndar veitt Inessu brott- flutningsleyfí, en fari hún fær hún ekki að koma aftur og neyðist til að skilja mann sinn og tvö böm eftir í Moskvu. A fréttamannafundi Sovét- manna á Hótel Sögu í gærmorgun var spurt um mál Shirmans og hvers vegna systir hans fengi ekki leyfi til að fara frá Sovétríkjunum. Um leið var kraflst svara um það hvers vegna 400.000 gyðingar, sem sótt hefðu um leyfí til að flytj- ast brott frá Sovétríkjunum, fengju ekki að fara. Nikolas Sislin, sem situr í mið- stjóm sovéska Kommúnistaflokks- ins, sagði að spumingin væri byggð á röngum upplýsingum. Að hans sögn verður afstaða gyðing- anna, sem komu í gær, tekin til íhugunar „Eg get aðeins sagt að sovésk stjómvöld afgreiða clíkar beiðnir með mannúðlegu hugar- fari. Yfirvöld bregðast við á jákvæðan hátt þegar læknisaðstoð- ar eða meðferðar er þörf. Hvað Shirman viðvíkur er afstaðan slík.“ Þegar spumingin um það hvers vegna Inessa fengi ekki að fara var ítrekuð sagði Sislin: „Ég get svarað þessu með annarri spum- ingu: Hvemig veistu að hún fær ekki að fara?“ Reis þá á fætur sovéskur frétta- maður og sagði: „Systir Shirmans getur farið frá Sovétríkjunum þeg- ar henni sýnist. Ástæður þess að hún er ekki enn farin eru þær að ágreiningur er á milli manns henn- ar og föður hans, sem sovésk stjómvöld vilja ekki blanda sér í.“ Yosef Mendelevich var einnig með í för. Mendelevich sat í fang- elsi ellefu ár áður en honum var leyft að fara frá Sovétríkjunum og hann var mjög haðorður í garð Mikhails Gorbachev er hann kom til landsins í gær. „Ofsóknir á hendur gyðingum í Sovétríkjunum hafa aukist mikið síðan Gorbachev komst til valda," sagði Mendelevich. „Gorbachev er annar Stalín.“ „Við hyggjumst halda bæna- stund á laugardag fyrir bræður okkar í Sovétríkjunum," kvað Mendelevich, sem dæmdur var til 13 ára fangavistar eftir að hann reyndi að flýja af landi brott árið 1970 ásamt hópi vina 3Ínna. Hon- um var lileypt úr landi 1981. Rússar staðfesta að Raisa Gorbachev kemur til Islands Gorbachev mun sjálfur velja dvalarstað sinn nann kæmi til íslands. í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Valentin Falin, yfírmanni Nov- osti, að hann byggist ekki við að frú Gorbachev kæmi til íslands. í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær kvað hann um lítinn misskiln- ing hafa verið að ræða milli sín og blaðamannsins. Rétt er að geta þess, að í frétt Morgunblaðsins í gær var það hins vegar haft eftir öðrum heimildum, að frú Gorbachev kæmi til íslands og hefði óskað eftir að sjá Þingvelli og íslenskan bóndabæ, og var þess sérstaklega getið í fyrirsögn fréttarinnar. TALSMENN Sovétstjórnarinnar staðfestu í fyrsta sinn á blaða- mannafundi í Reykjavík um sexleytið í gær, að Raisa Gorbac- hev kæmi með eiginmanni sínum til íslands í dag. Þeir kváðust ekki geta skýrt frá nákvæmum komutima að svo stöddu. Talsmennimir gátu heldur ekki upplýst, hvar í Reykjavík Gorbac- hev-hjónin myndu búa. Þeir sögðu að þrír staðir kæmu til greina, Hótel Saga, bústaður sovéska sendiherrans og sovésku skipin í Reykjavíkurhöfn, og myndi Gorbac- hev sjálfur velja staðinn, þegar Dagskrá heimsóknar frú Raisu Gorbachev í fylgdarliði frú Raisu Gorbachev, í heimsókn hennar hér á íslandi, verða þau Sigrún Þ. Mathiesen, frú Kosareva, Kristín Claessen, Hólmfriður Jónsdóttir, Þórður Einarsson, prótókoll- stjóri, Helga Jónsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, HUdur Hafstað, túlkur, og tveir leiðsögumenn, sem enn er ckki vitað hveijir verða. Dagskrá heimsóknarinnar verður á þessa leið: Laugardagur 11. október. Skoðunarferð um Reykjavikurborg. Miðborgin, hafnar- svæðið, sundlaugamar í Laugardal og Breiðholtið skoðað. Heimsókn i Stofnun Áma Magnússonar. Heimsókn i Þjóðmiigasafnið. Hlé Hádegisverður i Ráðherrabústaðnum við Tjamargötu. Alþingi íslendinga heimsótt. Heimsókn i Æfingaskóla Kennaraháskóla Islands. Fundur með nemendum, sem senda áskorun tilþjóðar- íeiðtoga So vétríkjanna og Bandaríkjanna. Heimsókn i Hnitbjörg - listasafn Einars Jonssonar. Heimsókn i vinnustofu Leifs Breiðfjörð gierlistamanns. Hlé Kvöldverður i boði forsætísráðherraþjóna f Mávanesi 19, Garðabæ. 10.00-11.00 11.00-11.20 11.20-11.45 11.45-12.30 12.30-13.56 14.00-14.30 14.40-15.00 15.10-15.40 15.50-16.30 16.30-19.00 19.00 Sunnudagur 12. október 10.00-12.00 Ekið tíl Þingvalla. Þjóðgarðsvörður sr. Heimir Steins- 3on tekur á mótí gestum og veitir leiðsögn um staðinn ogsöguhans. Hádegisverður i Ráðherrabústaðnum á ÞingvöUum. Ekið frá Þingvöllum að bóndabænum BúrfeUi I Grímsnesi. Hjónin Böðvar Pálsson og Lisa Thomsen taka á mótí gestum. Siðdegiskaffi f Hotel Örk. íslenskur vamingur sýndur gestum. Heimferð. 12.00-13.00 13.00-14.30 14.45-15.45 15.45-16.20 Fráleitt að afgreiða hvert mál fyrir sig - segir Pamela Cohen, formaður baráttu- samtaka fyrir gyðinga í Sovétríkjunum Morgunblaðid/Ámi Steberg Pamela Cohen, formaður bandariksra baráttusamtaka fyrir gyðinga i Sovétríkjunum, svarar spumingum á fréttamannafundi í gær. ÞRJÁTÍU manns, sem berjast fyrir réttindum gyðinga í Sov- étríkjunum, ætla að grípa til aðgerða í Reykjavík á laugar- dag. Bandarísk samtök, sem nefnast „Union of Councils for Soviet Jewry“, héldu i gær blaðamannafund og sagði formaður samtakanna, Pam- ela Cohen, að ætlunin væri að gefa út yfirlýsingu á al- mennum vettvangi og hafa í frammi einhver-s konar að- gerðir á morgun. Pamela sagði í ávarpi á fundin- um að vandamál gyðinga í Sov- étíkjunum væru það umfangsmikil að ekki væri hægt að leysa þau með því að afgreiða hvert mál fyr- ir sig: „Tæplega hálf milljón gyðinga hefur óskað eftir brott- flutningsleyfí frá Sovétríkjunum. Flestum þessara manna myndi ekki endast líf til að bíða eftir vega- bréfsáritun eins og málum er nú komið.“ Hún lýsti yfír því að Sovétmenn högnuðust á því að afgreiða hvert mál fyrir sig og á þann hátt tæk- ist þeim að hylma yfír ofbeldi og mannréttindabrot, sem nú við- gengjust í auknum mæli eystra. Cohen kvaðst vilja skora á Ron- ald Reagan Bandaríkjaforseta að krefjast þess af Mikhail Gorba- chev, leiðtoga Sovétríkjanna, að fínna alhliða lausn á málum gyð- inga í Sovétríkjunum og leggja fram áætlun í fjórum liðum. Sagði hún að brýnast væri að Sovétmenn slepptu þegar öllum samviskuföngum af gyðingakyni úr haldi og veittu öllum þeim, sem flytja vilji úr landi með fjölskyldum sínum, vegabréfsáritun. Cohen sagði að ekki hefði enn fengist leyfí til að vera með mót- mælaaðgerðir á laugardag. Samtökin hygðust ræða við yfír- völd í dag. Hún kvaðst bjartsýn um að yfírvöld sýndu hjálpsemi enda væru samtökin í góðri að- stöðu. Forstöðukona samtakanna útskýrði ekki nánar í hveiju þessi góða aðstaða væri fólgin. Gyðingar frá ísrael, Hollandi, Bretlandi, Belgíu og fleiri löndum koma hing- að til að vekja athygli á málstað sfnum meðan á Reykjavíkur fund- inum stendur. Samtökin, sem Cohen gegnir formennsku í, eru eins konar yfír- samtök og eiga mörg smærri félög í ýmsum fylkjum Bandarikjanna aðild að þeim. Viðbúnaður svipaður og er um áramótin -segir Rúnar Bjamason slökkviliðsstj óri „Viil verðum í stórum dráttum með svipaðan viðbúnað hér hjá slökkviliðinu og vepjulega er fy»’- ir áramót", sagði Rúnar Bjarna- son, slökkviliðsstjóri, í samtali við Morgunblaðið aðspurður um undirbúning vegna leiðtogafund- arins.. „Það verður aukamannskapur á vaktinni svo að ef við þurfum að fara í útkall verður lið eftir á stöð- inni ef fara þarf í annað útkall. Annars búumst við ekki við neinu stórútkalli og það virðist líka vera skoðun ráðamann því þeir hafa ekki haft samband við okkur og beðið um, að við værum reiðubúnir fyrir slíkt. En það verður mikill viðbúnaður í sambandi við sjúkraflutninga. Við verðum með tvo mannaðá bfla og sá þriðji er í fylgdarliði Reagans, bandaríkjaforseta. Það ætti því að vera vel séð fyrir þeim hlutum".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.