Morgunblaðið - 10.10.1986, Blaðsíða 64
SEGÐU
[RNARHÓLL
PEGAR
W EERÐ ÚTAÐ BORÐA
----SÍMI18833--
STERKTKORT
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Shultz og Kjarval
Morgunblaðið/ÓI.K.Mag.
MIKIÐ mun mæða á bandariska utanríkisráð-
herranum George Shultz næstu daga. Hann kom
með Reagan forseta í gærkvðldi og mun búa á
Hótel Holti á meðan dvölinni hér stendur.
Shultz og aðrir nánustu samstarfsmenn forset-
ans funda i bandaríska sendiráðinu fyrri hluta
dagsins en siðdegis heimsækir Reagan Vigdisi
Finnbogadóttur á Bessastöðum. Shultz er hér
í anddyri Hótel Holts og á veggnum er eitt
Iistaverka Kjarvals.
Tilraunasending*
á lambakjöti til
Bandaríkj anna
TILRAUNASENDING á lamba-
kjöti fer til Bandaríkjanna á
næstunni. Búið er að taka frá 7
tonn af kjöti i sendinguna og
næstu daga verður það unnið
eftir óskum kaupenda. Áður hafa
farið sýnishorn sem líkað hafa
vel og ef tilraunasendingin fær
svipaðar viðtökur má búast við
að hægt verði að selja verulegt
magn af kjöti til þessa kaupanda.
Jóhann Steinsson deildarstjóri í
búvörudeild SÍS sagði í samtali við
Morgunblaðið að verið væri að und-
irbúa tilraunasendinguna og færi
hún innan tveggja vikna. Valið
væri úrvalslqot í þessa sendingu,
en verðið væri heldur lágt, eða 30%
af heildsöluverði hér innanlands.
Auk þess ber söluaðili kostnað af
birgðahaldi ytra. Ef af meiri út-
flutningi til þessa aðila verður má
búast við að söluaðili verði að hafa
birgðahaldið með höndum, en það
er þó ekki endanlega afráðið, að
sögn Jóhanns.
Kjötið fer til verslanakeðju í New
York. Fulltrúar Landssamtaka
sauðfjárbænda komust í samband
við þennan kaupandi í fyrra eftir
að þeir slitu samstarfí við sinn fyrri
samstarfsaðila. Búvörudeildin tók
að sér að sjá um hugsanleg við-
skipti við þennan kaupanda en það
er gert í samráði við fulltrúa sauð-
Qárbænda.
í nótt var enn óvíst um
komutíma Gorbachevs
Koma hans gæti rekist á setningu Alþingis
^ÞEGAR Morgunblaðið fór í
prentun í nótt var ekki orð-
ið Ijóst hvenær flugvélin,
sem flytur Mikhael S.
Gorbachev leiðtoga Sov-
étríkjanna, Raisu konu
hans, og föruneyti, til ís-
lands lendir á Keflavíkur-
flugvelli. Að sögn
Kornelíusar Sigmundsson-
ar sendifulltrúa í utanrikis-
ráðuneytinu höfðu tveir
möguleikar verið nefndir,
annars vegar að vélin kæmi
um hádegi í dag og hins
vegar að hún kæmi um
kvöldmatarleytið. Sovét-
menn höfðu hvorugan
möguleikan staðfest.
Talsmenn Sovétstjómarinnar
sögðu á blaðamannafundi á Hótel
Sögu um sexieytið í gær, að
Gorbachev væri væntanlegur til
íslands um nónbil í dag.
„Ef flugvél Gorbachevs lendir
í Keflavík á sama tíma og verið
er að setja Alþingi þá getur Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands því
"Ifniður ekki tekið á móti honum á
flugvellinum. Hún verður að sinna
þeirri embættisskyldu sinni að
setja Alþingi," sagði Halldór
Reynisson, forsetaritari, í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi. Af
sömu ástæðu gæti Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
ekki tekið á móti Gorbachev og
kæmi það í hlut Matthíasar Á.
Mathisesen utanríkisráðherra að
taka á móti leiðtoganum. Alþingi
verður settí dag kl.l4:00 að lok-
inni guðsþjónustu í Dómkirkj-
unni, sem hefst kl. 13:30.
Forsetaritain sagði, að Sovét-
mönnum hefði verið bent á það,
hvenær forseti íslands myndi setja
Alþingi.
Síðustu fréttir sem Morgun-
blaðið hafði seint í gærkvöldi voru
þess efnis að Gorbachev myndi
koma á sama tíma og Reagan,
eða klukkan 19. Var þetta haft
eftir yfírmanni útvarps- og sjón-
varps í Sovétríkjunum.
Sama óvissa ríkir um dvalar-
stað Gorbachev-hjónanna hér.
Þrír staðir koma til greina, Hótel
Saga, soveska sendiráðið og sov-
éska skipið George Ots. Ekki
verður tilkynnt um dvalarstað fyrr
en hjónin koma til landsins.
109. löggjafar-
þingið:
Alþingi
sett í dag
Alþingi íslendinga, 109.
löggjafarþing, verður sett
með hefðbundum hætti í dag.
Þingmenn sitja guðsþjónustu
i Dómkirkjunni klukkan
13,15. Séra Þorleifur Kjartan
Kristmundsson, Kolfreyju-
stað, predikar. Forseti ís-
iands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, setur síðan Alþingi í
þinghúsinu klukkan, 14,00.
Hér er um hefðbundna þing-
setningu að ræða að öðru leyti
en því að erlendar sjónvarps-
stöðvar, sem hér hafa úthald
vegna leiðtogafundar stórveld-
anna í Reykjavik, hafa komið
sér fyrir á Austurvelli og munu
fylgjast með göngu þingheims
frá dómkirkju til þinghúss.
Þingstörf hefjast síðan eftir
helgina, væntanlega með fram-
lagningu Ijárlagafrumvarps
fyrir komandi ár, eins og hefð
stendur til.
Þing það sem hefst í dag er
síðasta þing líðandi kjörtímabils.
Nýtt þing verður kjörið að vori
og þá samkvæmt breyttum
stjómskipunar- og kosningalög-
Frú Gorbachev heimsækir Búrfell:
„Ætli ég spili ekki
eitt lítið lag fyrir
Raisu í kirkjunni“
Selfossi.
Frú Raisa Gorbaehev heimsæk-
ir Búrfell í Grímsnesi á sunnu-
dag ásamt fylgdarliði.
Gestgjafar frú Raisu á Búrfelli
verða ábúendurnir þar Böðvar
Pálsson og Lísa Thomsen.
Böðvar sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann myndi fyrst fara með
gestina inn í kirkjuna á staðn-
um, en hún var byggð árið
1845. „Ætli ég spili ekki eitt
lítið lag fyrir Raisu I kirkj-
unni,“ sagði Böðvar í samtali
við Morgunblaðið. Hann var
áður organisti kirkjunnar, en
er nú meðhjálpari.
Þau Böðvar og Lísa eiga 5 böm
og em tvö þau yngstu heima, en
hin við nám í Reykjavík og á
Laugarvatni. „Þetta kom nú
sennilega til vegna þess að Búr-
fell er í leiðinni ofan frá Þingvöll-
um, nú og svo þekkir Edda
Guðmundsdóttir, forsætisráð-
herrafrú, til okkar, en við erum
systkinaböm", sagði Böðvar um
ástæðuna fyrir því að Búrfell varð
fyrir yalinu. Frú Raisa hafði og
óskað eftir að heimsækja venju-
legan bóndabæ þar sem böm
væm í heimili og Búrfell passar
Böðvar Pálsson við orgelið sem hann ætlar að spila á fyrir frú
Raisu. Dæturaar Anna Ýr og Lára fylgjast með.
vei inn í þá mynd.
„Mér líst vel á þessa konu og
þykir hún með þeim giæsilegustu
rússnesku konum sem ég hef
séð“, sagði Böðvar. „Eftir að þetta
kom til hrökk ég upp við það að
það var margt sem ég ætlaði að
gera í sumar en kom ekki í verk
og væri betur að lokið væri núna.
Það kemur vonandi ekki að sök
og við vonum að konan verði
ánægð anð komuna hingað".
Ein varúðarráðstöfun verður
gerð á þessum friðsæla stað þegar
gestimir koma, sem er að hund-
amir verða lokaðir inni svo þeir
valdi ekki óþarfa tmflun.
Sig. Jóns.