Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
Morgunblaðið/Kr. Ben.
Mikil öryggisgæsla er nú á Keflavíkurflugvelli vegna leiðtogafundarins og þurfti Joan Baez að opna
gftartðskuna fyrir tollverði.
Joan Baez held-
ur tvenna tón-
leika á Islandi
Seinni tónleikunum sjónvarpað beint
ÞJÓÐLAGASÖNGKONAN Joan
Baez kom til landsins snemma í
gærmorgun. Hún er hér í boði
íslenskra friðarsamtaka og mun
halda tvenna tónleika á fslandi.
Verða þeir báðir í dag, laugar-
dag, í Islensku óperunni, kluk-
kann 14.00 og 21.00. Seinni
tónleikunum verður sjónvarpað
beint.
Joan var hress eftir ferðina og
greinilega ánægð yfír að vera kom-
in til landsins. Hún gerði að gamni
sínu við tollverðina, sem útskýrðu
fyrir henni að mikil öryggisvarsla
væri vegna leiðtogafundarins. Hún
þurfti því að ppna gítartöskuna og
taka spegilfagran dýrgripinn upp,
svo tollverðimir gætu gengið úr
skugga um, að hún bæri ekki vopn
eða annan tollskyldan vamingþar.
Joan Baez var einn af forystu-
mönnum þeirrar þjóðlagabylgju
sem gekk yfír Bandaríkin á sjötta
áratugnum. Hún sló fyrst í gegn á
fyrstu þjóðlagahátíðinni í Newport
árið 1959 og fyrsta breiðskífa henn-
ar kom út árið eftir. Nokkmm ámm
sfðar átti hún svo stóran þátt í því,
að Bob Dylan sló í gegn með þvf
að syngja lög hans og láta hann
koma fram á tónieikum sínum.
Joan Baez hefur ávallt verið mik-
iil friðarsinni og er nú forseti
friðarsamtakanna „Humanitas Int-
emational". Henni var kunnugt um
leiðtogafundinn á íslandi þegar
haft var samband við hana og tók
strax vel f að koma hingað, enda
Joan Baez MorgunblaM/Kr. Ben.
oft látið til sfn taka við tækifæri
sem þessi.
Joan Baez og aðstoðarkona
hennar Martha Henderson dveljast
á einkaheimilum meðan á dvöl
þeirra hér stendur. Þær fara utan
sfðdegis á sunnudag.
Nautakjötsfjallið hefur tvöfaldast
Sláturfélagið
boðar verðlækkun
til framleiðenda
í SS-póstinum, fréttabréfi
Sláturfélags Suðurlands, sem
nýlega er komið út segir að eink-
um sé vandamál með sölu á
ungneytakjöti. Siðan segir: „Nú
mun talsvert um það, að undirboð
séu viðhöfð á þessum afurðum á
markaðnum. Þetta gæti leitt til
þess að lækka þyrfd verð naut-
gripakjöts til framleiðenda á
Reglugerð um
framleiðslugjald
á umframmjólk
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
hefur gefið út reglugerð um fram-
leiðslugjald á mjólk sem framleidd
er umfram mjólkurkvóta. Tilgang-
urinn er að jafna niður tapinu af
vinnslu og útflutningi afurða úr
umframmjólkinni en rikið greiðir
ekki útflutningsbætur vegna henn-
ar, eins og kunnugt er.
í framhaldi af útgáfu reglugerðar-
innar hefur Framleiðsluráð landbún-
aðarins sent mjólkursamlögunum
reikninga vegna framleiðslugjaldsins,
sem samtals nema 91—92 milljónum
kr. Mesta umframmjólkin var á svæði
Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi og
hefur samlagið fengið reikning upp á
rúmlega 51 milljón kr. en samlagið á
hærri upphæð í ógreiddum útflutn-
ingsbótum vegna vinnslu úr umfram-
mjólkinni og því skuldajafnast þessar
upphæðir að verulegu leyti.
næstunni."
Út úr slátrun nautgripa á
síðasta verðlagsári komu 3.195
tonn af kjöti sem er 25% aukning
frá árinu á undan. Sala nauta-
kjöts jókst um rúm 7%, en það
dugði ekki til að halda í við fram-
leiðsluaukninguna svo að birgðir
nærri tvöfölduðust á verðlagsár-
inu. Birgðiraar samsvara nú 5—6
mánaða sölu.
Framleiðsluráð hefur tekið saman
bráðabirgðaskýrslu um framleiðslu
og sölu á nautgripakjöti fyrir verð-
lagsárið sem lauk þann 31. ágúst
síðastliðinn. Samkvæmt henni voru
birgðir í upphafí verðlagsársins 580
tonn. Út úr slátrun komu 3.195
tonn af nautgripakjöti, sem er 643
tonnum eða 25,2% meira en fram-
leitt var árið á undan. Seld voru
2.629 tonn, sem er 180 tonnum eða
7,4% meira en í fyrra. Munar litlu
að nautakjötafjallið hafí tvöfaldast
á árinu, það stækkaði úr 580 tonn-
um í 1.143 tonn, eða um 562 tonn,
sem er 96,9% aukning.
Inn á þessar skýrsiur kemur að
sjálfsögðu ekki það kjöt sem fram-
leitt er og selt „framhjá kerfínu"
en sumir halda því fram að stór
hluti nautakjötsneyslunnar fari þá
leiðina. Ekki kemur heldur fram
hvað mikil framleiðsla er væntanleg
á markaðinn á næstu tveimur árum,
en hún er áræðanlega veruleg, því
mikið hefur verið sett á af kálfum
undanfarin tvö ár.