Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 53
/ Nt/
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
53
s
E
Ennum
blómlauka
(inniræktun)
í síðustu þáttum höfum við
gert blómlauka að umtalsefni, en
vart verður skilist svo við það
efni að ekki sé minnst á innirækt-
un þeirra svo ánægjuleg sem hún
er og auðveld, enda færist hún
jafnt og þétt í vöxt.
A'.lir þekkja jóla-hyacintur,
enda hafa þær verið ræktaðar hér
um áratuga skeið og tii er að fólki
finnist jólin vart gengin í garð
fyrr en að sætan ilm þeirra bland-
aðan greniilminum leggi um
húsið. Framanaf voru hyacintur
nær eingöngu ræktaðar í vatni í
þar til gerðum glösum en nú er
lang algengast að rækta þær í
mold og má nota til þess hvaða
ílát sem er. Ýmsa aðra blómiauka
má hafa til inniræktunar svo sem
páskaliljur, túlípana, krókusa og
vel flestar tegundir af smálauk-
um. Hve margir eru settir í sama
flát fer að sjálfsögðu eftir hversu
stórt það er. í meðalstóran blóma-
pott er t.d. hæfilegt að setja 3—7
túlípanalauka, en 10—15 stk. sé
um smálauka að ræða.
Gott er að nota gróðurmold
blandaða sandi, til öryggis má
setja samanvið örlítið af efninu
BLÓM
VIKUNNAR
Nr. 24
Umsjón:
Agústa Björnsdóttir
euparen til þess að veija laukana
fyrir sveppum og öðrum óþrifum.
Ekki má kúffylla flátið sem lauk-
amir eru lagðir í, heldur skal
hafa í því nokkurt borð. Moldin
þarf að vera vel mulin, laus og
létt og varast skal að þjappa henni
saman. Til þess að bæta frárennsl-
ið má setja lag af smá steinum
Jóla-hyacintur.
eða litlum vikurmolum i botn fláts-
ins. Laukana skal að jafnaði setja
þannig að um það bil helmingur
þeirra standi upp úr moldinni.
Um leið og laukamir era komn-
ir í moldina hefst rótarmyndunin
en hún tekur jafnan 8—12 vikur
og þann tíma þurfa þeir að vera
á svölum, helst dimmum stað.
Breiða má svart plast yfir sé stað-
urinn sem þeim er valinn of
bjartur. Moldinni þarf að halda
lítið eitt rakri og gæta þess að
hún ofþomi ekki. Þegar spíramar
era komnar vel upp (3—5 sm) og
finna má fyrir bióminu er kominn
tími til þess að taka pottana inn
í stofu. Best er að venja laukana
við stofuhita og birtu smátt og
smátt svo viðbrigðin verði ekki
of snögg.
Algengustu jóla-laukamir era
hyacintur eins og áður var getið,
og túlípanamir Brilliant Star
(rauður) og Joffre (gulur), enda
á blómgun þeirra um jólaleytið
ekki að bregðast séu þeir lagðir
á réttum tíma. Auk þessara teg-
unda bjóða blómaverslanir nú
flölbreytt úrval af laukum sem
heppilegir era til inniræktunar,
m.a. Amaryllis sem telja má ný-
lundu á markaði á þessum
árstíma.
ÁBj.
Orðsending frá GÍ: Þeir félagar
sem hafa ekki enn sótt lauka-
pantanir sínar á skrifstofuna
eru minntir á að gera það sem
allra fyrst.
Skóla-
bókasafn-
ið Stykk-
ishólmi
Stykkishólmi
BÓKASAFN grunnskólans i
Stykkishólmi hefir fengið ágæt-
an samastað og er þegar byrjað
að vinna að þvi að koma því fyr-
ir, en allt tekur sinn tima.
Laugardaginn 20. september sl.
komu hingað 4 bókasafnsfræðingar
af höfuðborgarsvæðinu og héldu
námskeið með kennuram og skóla-
stjóra í bókasafnsfræðum og
vinnslu og uppsetningu. Þar vora
allir þættir teknir í gegn og einnig
mætti þama bókavörður bókasafns-
ins hér. Stóð námskeið þetta allan
daginn og var að dómi þeirra sem
það sóttu mjög gagnlegt og er ekki
vafi á að þetta safn býður upp á
góða kosti í framtíðinni og á eftir
að verða skólanum að góðu liði.
Aðalstofn _ skólabókasaftisins er
bókasafn Ásgerðar Amfínnsdóttur
og Ágústar Þórarinssonar en þau
gáfu skólanum á sínum tíma hið
veglega og góða bókasafn sitt.
Hótel Selfoss:
Listsýning
í anddyri
Hótel Selfoss
ELÍSABET H. Harðardóttir sýn-
ir mynd vefnað og vatnslitamynd-
ir í anddyri Hótel Selfoss við
Ölfusárbrú.
Sýningin stendur í þijár vikur.
Verkin era 20 og era þau öll til
sölu. Þetta er fimmta einkasýning
Elísabetar en hún hefur tekið þátt
í þremur samsýningum, þar af einni
í Safnahúsi Selfoss í júní 1984.
Pétur Halldórs-
son með sýninjafu í
Listasafni ASI
MÁLVERKASÝNING Péturs
Halldórssonar verður opnuð í
dag, laugardag, í Listasafni ASÍ.
Á sýningunni era 26 verk, máluð
á undanfömum þremur áram, aðal-
lega olíu og akrýlmálverk.
Pétur Halldórsson stundaði nám
við Myndlista- og Handíðaskóla ís-
lands árin 1969-1974 og fram-
haldnám við Middlesex Polytec-
hnics, Graphichs Design í London
1975-1976. Pétur hefur á undanf-
ömum áram unnið sér gott orð sem
útlitshönnuður og teiknari og liggja
eftir hann fjölmörg verk á þeim
vettvangi.
Sýningin stendur tii 26. október
nk.. Hún er opin alla virka daga
kl. 16-20.00 og um helgar kl.
14-22.00
«
ÞARFTO FLEIRI SKJÁIVIB TÖLVU FV'RIRTÆKTRÍNR?
LOKSINS FJOLNOTENDABOKHALD
FYRIR PC-TOLVDR!
ðfl || C vinsælasti bókhaldshugbúnaður á íslandi
■ U U - er kominn út í fjölnotendaútgáfn. Nú geturðu
látið sölumennina skrlfa nótur á meðan innheimtudeildin færir
innborganír og/eða bókhaldarinn vinnur í (járhagsbókhaldinu.
Allt sem þú þarft er einn eða fleiri aukaskjáir, ÓPU8/FX
hugbúnaður og XEHIX stýrikerfi. Ódýrari lansn hefur ekki boðist
fyrr á tölvumarkaðnum!
ÓPUS-hugbúnaðurinn er þanlreyndor af nærri 400 fyrirtæK)um
á íslandi og XENIX-stýrikerfið er eítt útbreiddasta Qölnotendakerfi
heims. Meðal þeirra fyrirtækja sem standa að baki XENIX-stýrikerfinu
eru IBM, Wang, Digital, HP og Microsoft.
Frekarl upplýaingar veita:
fslensk forritaþróun sf.
Höfðabakka 9,
112 Reykjavík,
síml 67 16 11.
og yfir 80 sölnaðilar ÓFUS hngbnnaðar nm Iand allt.
OPXJS/FX
XENIX:
íslensk
forritaþróun sf