Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
SIMAR 21150-21370
SOLUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
LOGM JOH ÞORÐARSON HDL
Vorum að fá i sölu:
Raðhús — skipti æskileg
Á besta stað í Fellahverfi. Endaraðhús ein hæð 137 fm nettó. Mjög
góð innr. Bílsk. við húsið. Skipti æskileg á 4ra-5 herb. íb. td. í Árbæjar-
hverfi.
Glæsileg eign — laus strax.
Nýtt steinhús 142x2 fm á útsýnisstað i Selási. 6 herb. íb. á efri hæð,
3 aukaherb. með snyrtingu á neðri hæð ennfremur innb. bilsk. Lang-
tímalán fylgja. Eignaskipti möguleg.
Á útsýnisstað við Funafold
Glæsileg raöhús í byggingu. 4 rúmgóð svefnherb. íb.flöturinn um 170
fm nettó. Sólsvalir 24 fm. Tvöf. bílsk. Byggjandi er Húni sf.
Neðarlega í Seljahverfi
Nýtt steinhús ein hæð 158 fm með bílsk. 4 góö svefnherb. með innb.
skápum. Stór ræktuð lóð. Laust 1. sept. 1987.
Mjög sanngjarnt verð.
Timburhús í endurnýjun
Á rólegum stað i gamla Austurbænum. Hæö og ris á steyptum kj.
meö 4ra-5 herb íb. Endurnýjun er ekki lokiö. Sanngjarnt verð.
Unufell — Rjúpnafell — nágrenni
Þurfum að útvega fjársterkum kaupanda raðhús á einni hæð. Losun
1. júní 1987. Rétt eign verður borguð út.
Miðsvæðis gegn útbogun
Góð 3ja-4ra herb. ib. óskast miðsvæðis í borginni. Rétt eign verður
borguð út þar af 1-2 millj. við kaupsamning.
Opið í dag laugardag
kl. 11.00-15.00
Fjöldi tilboða um eignaskipti
AIMENNA
FASl EIGHASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
A'
Jean-Pierre Jacquillat Klauspeter Seibel Vovka Ashkenazy
Fyrstu áskriftartón-
leikar Sinfóníunnar
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Fyrstu áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands voru
haldnir í Háskólabíó við húsfylli.
Flutt voru verk eftir Mozart og
Brahms, undir stjóm Klauspeter
Seibel en einleikari í Krýningar-
konsertinum eftir Mozart var
Vovka Ashkenazy. Tónleikamir
hófust á forieiknum að Don Gio-
vanni eftir Mozart og var auð-
heyrt að hljómsveitin er nú í góðu
formi. Þá hefur það og einnig
áhrif að gerð hefur verið breyting
á leiksviðinu í Háskolabíó, þannig
að svo virðist sem samhljóman
fiðlusveitar og blásara verði jafn-
ari fremst í salnum, en í fyrri
skipan var hluti strengjanna eins
og í felum. Fyrirstaða hefur trú-
lega sams konar áhrif á hljóð-
streymi og þegar eitthvað skyggir
á órofna sjónlínu. Líklega þarf vel
hljómandi svið fyrir sinfóníu-
hljómsveit að var íhvolft gegnt
áheyrendum, bæði gólffplötur og
í lofti yfir. Krýningarkonsertinn
er enn erfíðasti konsertinn eftir
Mozart og víst er að hann ætlaði
sér stórt með þessu verki. Það er
eins og ávallt þegar verk manna
tengjast miklum væntingum em
vonbrigðin oftast mest. Vovka
Ashkenazy er ungur að ámm en
er þegar kominn í hóp alþjóðlegra
píanóleikara og hyggur nú á næs-
tunni m.a. til Astralíuferðar.
Vovka Ashkenazy lék konsertinn
af varfæmi og brá víða fyrir fal-
legum leik, einkum í hæga kafl-
anum. Síðasta verkið á tónleikun-
um var sú fyrsta eftir Brahms,
sem er stórbrotin tónlist og var í
heild mjög fallega Ieikin. Það var
eins og í píanókonsertinum, að
stjómandinn Klauspeter Seibel
hættir ekki á að raska jafnvægi
tónverkanna með því að sveigja
leikinn út fyrir viss hættumörk.
Fyrir bragðið var leikur hljóm-
sveitarinnar yfírvegaður, sérlega
skýr og á tíðum mjög fallegur,
einkum þar sem Brahms leikur
með nokkrar einleiksstófur í öðr-
um þættinum, til að nefna dæmi,
í fíðlunni og í óbó og nett röddun-
um.
I tónlist Brahms tvinnast sam-
an mikil tækni í gerð flókins
tónvefnaðar og þeirrar tegundar
lagsmíði, sem fær hlustendur til
að taka undir innra með sér, bók-
staflega talað, að syngja með „í
huganum". í síðasta þættinum er
eitt af þessum ste§um, sem á jafn-
vel margt sammerkt með „laginu"
í síðasta þætti þeirrar níundu eft-
ir Beethoven. í heild var sinfónían
mjög fallega en varfæmislega
leikin. Áður en auglýst dagskrá
hófst minntist Sigurður Bjöms-
son, framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, Jean-í’ierre
Jacquillat, en hann lést, eins og
kunnugt er, sl. sumar. Jacquillat
átti margar stundir góðar með
íslenskum tónlistarmönnum og
þeim er sóttu tónleika sinfóníunn-
ar.
Tónleikagestir vottuðu honum
virðingu sína með því að rísa úr
sætum og hljómsveitin lék Pavane
eftir Ravel.
ALNO
INNRÉTTINGAR í
GRAFARV0GNUM
Þið ættuð að líta við og sjá með
eigin augum, vandaða ALNO eld-
húsinnréttingu. ALNO baðinnrétt-
ingu. Einnig SOGAL fataskápa, í
glæsilegri íbúð að
LOGAFOLD 20.
SJÓN ER SÖGU RÍKARI
OPID ÞESSA HELGI HUID
FRÁ KL« 14 — 18 eldhús SlMAR 8444S - 84414
ALHO ENGU ÖÐRU
JE
ÁSKRIFENDUR
691140
691141
Með einu simtali er hægt ad breyta
innheimtuaðferðinni. Eftir það verða
askriftargjöldin skuldfærð a viðkom-
andi greiðslukortareikning manaðar-
lega._______________________________
VERIÐ VELKOMIN
í GREIÐSLUKORTA-
VIÐSKIPTI.