Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 59
V MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
59
Hrognamál
Heill og sæll Velvakandi
Leyfíst mér að leggja fáein orð
í belg um eitt eða tvö margra orðs-
krípa sem illu heilli slæðast inn í
tungu vora um þessar mundir? -
Sumir menn segjast þurfa að tékka
á hinu eða þessu, þegar átt er við
að þurfí að kanna það.
Þetta er hvimleitt orðfæri og auk
þess algerlega óþarft, sem og vænta
má að flestir viti.
En orðskrípið er einnig notað í
annarri merkingu. Ég átti erindi á
flugvöllinn nýlega. Þegar éggreiddi
farmiða minn sagði stúlkan í miða-
sölunni: Þú lætur svo tékka þig inn
í annarri deild. - Ég spurði hvort
hún ætti við að ég léti skrá mig
þar. Stúlkan hikaði lítið eitt, en
sagði síðan með nokkrum þjósti:
Við höfum reynt að segja fólki að
skrá sig, en það skilur ekki hvað
við erátt, - og trúi nú hver sem vill!
Unga fólkið segir stundum: Ég
er bara að djóka, þegar það á við
að gera að gamni sínu eða spauga;
síðast nefnt orð er reyndar þýskætt-
að, en ég tel ekki ástæðu til að
amast við því, enda er það löngu
fast í sessi, og auk þess er urmull
þýskættaðra orða í daglegu máli
voru, hingað komin með dönskum
kauphöndlurum og öðrum danskrar
ættar.
Skylt er að geta þess að margar
erlendar slettur eru horfnar úr
málinu, sem voru á hvers manns
vörum þegar ég var að alast upp
fyrir rúmri hálfri öld, t.d. galosíur,
bolsíur og fortó, svo fátt eitt 'sé
nefnt. - Ætli ungt fólk nú á dögum
skilji merkingu þess háttar mál-
blóma?
Bestu kveðjur
Kjartan Ragnars (eldri)
Þessir hringdu .. Svart peninga-
veski er týnt
Móðir hringdi:
Það var á föstudagseftirmið-
daginn síðasta að sonur minn
ætlaði í Hagkaup í Skeifunni að
kaupa föt og bækur fyrir skólann.
Hann varð þá fyrir því óláni að
tapa veskinu sínu, sem er svart á
lit. í því voru engin skilríki en
hins vegar umtalsverðir fjármun-
ir. Ég vil nú beina þeim tilmælum
til finnanda veskisins að hann
hringi í síma 11036. Fundarlaun
eru í boði.
Týndi rauðri
tösku og bláum
jakka fyrir utan
Evrópu
Lolla hringdi:
Pjórða október síðastliðinn
glataði ég rauðri tösku með tveim-
ur veskjum í og bláum jakka. Mér
þætti afskaplega vænt um það ef
fínnandi þessara hluta léti mig
vita í síma 666583 (Lolla).
Ósáttur við
fréttatíma
sjónvarps
Björn Indriðason hringdi:
Mér finnst það misráðið af for-
ráðamönnum ríkissjónvarpsins að
færa til fréttatímann. Ýmsir góðir
þættir í útvarpinu hljóta að líða
fyrir þetta, t.d. þátturinn um dag-
inn og veginn. Einnig kemur þessi
breyting fólki í sveitum landsins
illa. Þá fínnst mér óþarfí að gera
morgunútvarpinu það að láta dag-
skrána byija kl. 6.45 í staðinn
fyrir 7.00 eins og verið hefur í
mörg ár.
Handvirki
bílasíminn og
póstur og sími
Magnús G. Jensson hringdi:
Ég tók eftir því að í afmælis-
mynd símans, sem sýnd var í
sjónvarpinu, var hvergi minnst á
fyrstu bílasímana.^ Ég keypti
slíkan síma fyrir tveimur og hálfu
ári síðan, hann er handvirkur sem
þýðir að ég þarf ávallt að panta
númerin í gegnum miðstöð og það
gengur misjafnlega illa. Þegar ég
keypti símann var mér sagt að
hann myndi gagnast mér í sjálf-
virka kerfínu þegar það yrði að
veruleika. Þetta hefur þó ekki
orðið og nú vil ég fá að vita hvað
póstur og sími hyggst gera í mál-
inu. Á að hjálpa okkur, þessum
sem eigum handvirka bílasíma,
að komast inn í sjálfvirka kerfíð
eða þurfum við á nýjan leik að
kaupa rándýr símatæki í bflana
okkar til að geta notfært okkur
farsímakerfið? Og af hveiju var
ekki minnst á handvirku bflasím-
ana í afmælismyndinni um starf-
semi pósts og síma?
Gestrisni í Blá lóninu
Fyrir nokkru síðan fóru nokkrir
kennarar Iðnskólans í Reylqavík og
makar þeirra í Blá lónið. Þar var
meðal annars farið í mat á hóteli
Bláa lónsins þar sem ljúffengir físk-
réttir voru bomir fram.
Þaðan fór tæplega helmingur
fólksins í bað í lóninu. Forstjóri
hótelsins, Þórður Stefánsson, bauð
okkur strax við komuna herbergi
með sturtu til afnota og hvíta sloppa
til að klæðast við vatnið. En þar
sem við vorum svo mörg þáðum við
aðeins herbergið (undir dótið okk-
ar) en ekki sloppana. Þá var okkur
boðinn lykill að sturtu og búnings-
herbergi úti við vatnið, sem við
þáðum með þökkum, og ljósaluktir,
þar sem farið var að skyggja.
Eftir baðið í lóninu var aftur far-
ið á hótelið. Þar beið Qkkárhlaðborð
með kaffí og glæsilegum tertum.
Þeir sem ekki vildu kaffíð fengu
frítt gos.
Starfsfólkið aflt á bestu þakkir
skilið fyrir sérlega lipra og góða
Við hjónin komum að Geysi
fímmtudaginrv 11. september s.l..
Þar er nýreist glæsilegt hótel og
er það vel.
Við fengum okkur þama að
borða. Það var djúpsteiktur fiskur,
en þannig var hann matreiddur, að
þjónustu og elskulegheit. Fyrir
þetta allt vil ég þakka fyrir hönd
okkar allra, við eigum áreiðanlega
eftir að koma aftur að Blá lóninu.
Að lokum var allur hópurinn leystur
út með smá minjagrip.
K.G.
hann var gegnharður orðinn og al-
gerlega óætur. Ekki gerðum við
neina kvörtun vegna þessa. Gestir
kvarta sjaldnar en skyldi.
Ég vil spyija: Hversvegna reyna
veitingamenn ekki, hver og einn án
undantekninga, frekar að bjóða
gestum góðan mat og vel til búinn,
heldur en óætan?
Ég hefði nú haldið að betra og
ábatasamara, væri fyrir þá, að geta
frekar átt von á að gestir kæmu
aftur, heldur en hið gagnstæða.
Ég hygg að veitingamenn mis-
skilji oft hlutverk sitt. Þeir þyrftu
helst að vita að fínheitin ein og sér
duga ekki til að laða að gesti. Við-
mót starfsfólks og ósvikin vara er
þar efst á lista.
Gestur
Þakkir
Ég vil koma á framfæri þökkum
til Margrétar Þorvaldsdóttur fyrir
greinar hennar um mat og lands-
mál. Mætti hún skrifa meira um
landsmálin.
Með kveðju,
Þ.J.
VISA VIKUNNAR
LEIÐTOGAFUNDURINN í REYKJAVÍK I
öfði - leiðtogafundur
►jóðsög^ulegu umhverfi
■ HMte. m rah var fyHr fraraka
I^Cnlr krrrai. mA Imua. fyfcál HJJdi Beordikl-ymi. fcifi
hi I U4aa Ht.Uk nr á (faraa tiw mi bmki
Gnran, k.fM knTal þr. mð UUði yrM
SmrnðL
Vísu vikunnar:
As they came to Iceland, most
of the panic Reagan,
if they would agree, the gost
-Gorbachev and Reagan
Hákur
Góður matur - eða óætur
SJÁLFSTÆÐISMENN REYKJAVlK!
RÚNAR Á ÞING
Kosningaskrifstofa, Klapparstíg 26e.h. s. 28843.
Heiðruðu leikhús- og
óperugestir
Okkur er það einstök
ánægja að geta boðið ykk-
ur að lengja leikhús- eða
óperuferðina
Opnum kl. 5.30. Maturfyrirog
eftirsýningu
Matseðill:
Léttreyktur áll
Villigæs með blóðbergssósu
Bláberjasorbet
ARNARHÓLL
Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu.
Boröapantanir í síma 18833.
*
DRAUM AFERÐ ÆVINNAR
ÍSRAEL - EGYPTALAND
27. október tii 19. nóvember.
Söguslóðir biblíunnar —
MASADA — pýramídarnir.
Innifalið: Flugferðir, flutningur til og
frá flugvöllum erlendis, 2 nætur í London,
valin hótel eða kibbuz, gisting með hálfu
fæði allan tímann. Allar skoðunarferðir
og aðgangseyrir. Myndskreytt prentuð
ferðalýsing fyrir þátttakendur.
Með öðrum orðum 24 daga
draumaferð á hreint ótrúlegu
verði kr. 64.790,-
Fararstjóri hefur
kvöldstund með
skráðum þátttak-
endum fimmtudag-
inn 16. október.
Bæklingur, mynd-
band og nánari
upplýsingar á skrif-
stofu Faranda í
síma 622420.
Ferðaskriímtofan
IFarandi
Vesturgötu 5
í Grófinni.
h'
co
in
co
Blaðid sem þú vakrnr við!