Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 64
SIERKTKDRT
LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
Leiðtogafundurinn:
Hryðjuverkamenn
á leið til íslands?
„ÉG hvorki játa þvi né neita að
við höfum fengið ábendingar um
hryðjuverkamenn, en við höfum
kannað nokkra aðila, aðallega
útlendinga, sem hafa kannski
ætlað sér að koma hingað og
talist óæskUegir gestir", sagði
Böðvar Bragason, lögregiustjóri
i Reykjavík í gær.
Sá orðrómur komst á kreik í gær
að hryðjuverkamenn frá Líbýu væru
á leið til íslands vegna leiðtogafund-
arins. Böðvar sagði að öryggisverðir
frá Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um, auk íslendinga sem störfuðu
að öryggismálum, hefðu komið sér
í T^aman um að skiptast á upplýsing-
um um alla þá sem kynnu að vera
ógnun við leiðtogana. „Öryggis-
verðimir erlendu hafa að sjálfsögðu
upplýsingar um slfka aðila og
fslenska lögregian hefur leitað til
erlendra aðila, t.d. á Norðurlönd-
Lögregla og
^júkralið í
óhöppum
um“, sagði Böðvar. „Það er ekkert
hættuástand f landinu, svo mikið
er víst.“
Þorgeir Þorsteinsson, lögreglu-
syóri á Keflavíkurflugvelli, sagði
að lögreglan fengi iðulega upplýs-
ingar um hættulega menn, sem
þeir reyndu að koma í veg fyrir að
kæmust inn í landið. „Ég vil ekki
staðfesta eitt né neitt um það hvers
eðlis þessar upplýsingar eru“, sagði
Þorgeir. „Okkur berast alltaf upp-
lýsingar um menn M Interpol og
sérstaklega ef ástæða er til að ætla
að þeir ætli sér að koma hingað.
Öryggisráðstafanir á Keflavíkur-
flugvelli verða áfram með sama
sniði og verið hefur M því að Mtt-
in um fundinn barst.“
Hjá Flugleiðum gaf Sæmundur
Guðvinsson þær upplýsingar að það
mætti búast við að enn strangar
yrði fylgst með þeim sem koma til
Islands vegna þess að nú væru leið-
togamir báðir komnir til landsins.
„Slík öiyggisgæsla er þó meira bak
við tjöldin en að hún snerti far-
þegana beint“, sagði Sæmundur.
„Þeir sem að þessum málum starfa
fá upplýsingar um nöfn þeirra sem
skráðir eru sem farþegar og mesta
öryggisgæslan fer því í raun Mm
fyrir utan flugvellina sjálfa."
Eftir fund forseta íslands og Bandaríkjanna sýndi Vigdfs Finn-
bogadóttir Ronald Reagan umhverfi Bessastaða. Morgunbia«ð/RAX
Viðræðum um
síldarkaup
Sovétríkj-
anna frestað
SAMKOMULAG í viðræðum ís-
lendinga og Sovétmanna um
kaup þeirra síðamefndu á
saltsíld héðan hefur ekki náðst
og hefur viðræðum verið frestað
eftir þriggja daga samningaum-
leitanir. I viðskiptasamningi
íslands og Sovétríkjanna er gert
ráð fyrir árlegri sölu á 200.000
til 250.000 tunnum af saltaðri
sQd tQ Sovétrikjanna, en sovézku
samningamennirnir hafa nú til-
kynnt, að þeir hafi aðeins heimild
tU að ræða um kaup á 40.000
tunnum.
í frétt frá Síldarútvegsnefnd seg-
ir að sovézku samningamennimir
hafí gefíð þá skýringu, að ákvörðun
um fjárveitingar vegna innfiutnings
á árinu 1987 séu ekki teknar fyrr
en í byijun nóvember, en unnið sé
áfram að því að ákvörðun um und-
anþágu varðandi frekari saltsfldar-
kaup frá Islandi verði hraðað.
„Ekkert samkomulag hefur
tekizt um söluverð og vísa sovézku
samningamennimir til þess, að þeir
hafí þegar gengið frá samningum
við Kanadamenn um kaup á salt-
aðri sfld á langtum lægra verði en
samið var um við íslendinga á
síðastiiðnu ári.
Heimsókn leiðtoganna til Bessastaða:
Reagan og Gorbachev sögð-
ust vongóðir um árangur
LÖGREGLA og sjúkralið lentu í
óhöppum í umferðinni i gær og
slasaðist lögregluþjónn nokkuð á
höfði er bifhjól hans skall á fólks-
bifreið.
Óhappið varð í Tryggvagötu við
enda Pósthússtrætis skömmu eftir
hádegið í gær. Þá varð árekstur á
mótum Kringlumýrarbrautar og
Laugavegs um þrjúleytið og skullu
þar saman sjúkrabifreið og fólks-
bifreið. Sjúkrabifreiðin gat haldið
áfram á ætlunarstað og engin
^ppiðsli urðu, utan það að farþegi
í fólksbifreiðinni kvartaði undan
eymslum í fæti. Fólksbifreiðin eyði-
lagðist við áreksturinn.
LEIÐTOGAR stórveldanna heim-
sóttu Vigdfsi Finnbogadóttur,
forseta íslands, á Bessastöðum í
gær. Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, og Matthías Á.
Mathiesen, utanríkisráðherra, sátu
einnig fundina. Á fundunum kvað
forseti íslands íslendinga binda
miklar vonir við þær umræður sem
leiðtogar stórveldanna hefðu valið
stað hér á landi. Eftir fundina
sagði forsætisráðherra: „Leið-
togarnir voru vongóðir um
árangur og afstaða þeirra jákvæð,
þó áherslumar væm nokkuð mis-
munandi." Forsætisráðherra sagði
að Reagan hefði lagt áherslu á
mannréttindamálin. A hinn bóginn
hefði Gorbachev einkum rætt af-
vopnun og fækkun kjaraorku-
vopna.
Matthías Á. Mathiesen, utanríkis-
ráðherra, sagði að hér hefði verið um
kurteisisheimsókn til forseta íslands
að ræða og íslenzkir ráðamenn hefðu
ekki minnst á sérmál íslendinga að
fyrra bragði. Gorbachev hefði rætt
almennt um samskipti og viðskipti
þjóðanna. Á hinn bóginn hefði Reag-
an vikið að einstökum málum, sem
hafa verið til umfjöllunar og úrlausn-
ar, s.s. Rainbow-málinu, og umsókn
um lendingarheimild fyrir Flugleiðir
í Boston, sem forsetinn sagðist vona
að senn yrði veitt.
„Leiðtogamir Qölluðu almennt um
þá þýðingu, sem fundur þeirra hefði
og kom fram hjá báðum viss eftir-
vænting um að héðan væri tíðinda
að vænta," sagði utanríkisráðherra.
Forsætisráðherra sagði einnig:
„Gorbachev tók mjög sterkt undir
það, þegar ég lýsti þeirri von okkar
að nokkur árangur næðist á þessum
fundi í afvopnunarmálum. Hann
sagði það vera vilja sinn og kvaðst
sannfærður um að Reagan vildi það
einnig; samkomulag byggðist á
sveigjanleika. Það kom skýrt fram
að leiðtogamir voru jákvæðir í garð
hvors annars og það þótti mér at-
hyglisvert."
Steingrímur sagði að komið hefði
fram í ummælum leiðtoganna að þeim
litist vel á land og þjóð. Þeir hefðu
báðir lýst yfir ánægju sinni með það
að tekist hefði að skipuleggja fundinn
með svona stuttum fyrirvara.
Reagan var í tæpar 40 mínútur á
Bessastöðum og færði Vigdísi Finn-
bogadóttur uglustyttu að gjöf við
komuna. Gorbachev staldraði við í
rúma þijá stundarfjórðunga og var
kona hans Raisa í för með honum.
Slæmar fréttir frá Moskvu:
Meinað að bjarga dauðvona bróður
Hvítblæðisjúklingur á líf sitt undir beinmergsaðgerð
GYÐINGNUM MikhaU Shirman,
sem fyrir sex árum fékk brott-
fararleyfi frá SovétrQyunum,
. barst óvænt símtal frá systur
sinni, Inessu Fleurov, í Moskvu
þegar hann kom fram á blaða-
mannafundi í Reykjavík i gær.
Shirman er með hvítblæði og
þarf að fá beinmerg frá systur
sinni tU þess að eiga lífs auðið.
„Ég vU hitta manninn, sem er
að myrða mig,“ sagði Shirman
m.a. á fundinum og átti þar við
MikhaU Gorbachev, leiðtoga
Sovétríkjanna.
Systir hans var sett í tveggja
kiukkustunda gæsluvarðhald á
miðvikudag og í gær fór hún á
fund sovéskra yfírvalda vegna yfir-
lýsinga sovésks blaðamanns og
embættismanna um að hún geti
farið af landi brott hvenær sem
er. í símtalinu, sem var mjög stutt,
kom í ljós að engin breyting hefur
orðið á afstöðu sovéskra yfirvalda.
Málið er þannig vaxið að Inessa
Fleurov hefur fengið leyfí til að
f lok blaðamannafundar með Mikhail Shirman og fleiri gyðing-
um, sem berjast fyrir tílvera bræðra sinna í Sovétríkjunum,
hringdi síminn og var systir hans f Moskvu á línunni.
fara frá Sovétríkjunum, en hún
verður þá að kveðja §ölskyldu sína
hinsta sinni, því hún fær ekki að
snúa aftur til fæðingarlands síns.
Nikolas Sislin, félagi miðstjóm-
ar sovéska kommúnistaflokksins,
sagði á blaðamannafundi á mið-
vikudag að sovésk yfírvöld af-
greiddu mál þeirra, sem á
læknishjálp þyrftu að halda með
mannúðlegu hugarfari.
Viktor Fleurov, maður Inessu,
fær ekki að fara frá Sovétríkjunum
nema faðir hans gefí til þess leyfi.
Faðirinn er hræddur um að sovésk
yfírvöld hefji ofsóknir á hendur sér
ef hann samþykki brottflutning
sonarins.
Shirman heldur fram að Sovét-
menn hafí fundið upp hjá sér að
faðirinn þurfi að koma nálægt
máli sonarins, sem er 38 ára, til
þess að setja Inessu afarkosti.
Hann vill ekki að systir sín fómi
flölskyldu sinni fyrir aðgerð, sem
brugðist gæti til beggja vona. Ef
Shirman fær ekki beinmerg frá
systur sinni á hann skammt eftir
ólifað, í mesta lagi tvö ár.