Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
43
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Vinnudýr og
félagsmálatröll
Ég ætla í dag að fjalla um
samskipti Vogar (23.
sept.—22. okt.) og Steingeitar
(22. des.—20. jan.). Einungis
er fjallað um hið dæmigerða
fyrir merkin og lesendur
minntir á að hver maður á
sér nokkur stjömumerki.
Spenna
Á milli Vogar og Steingeitar
er 90 gráðu hom. Það táknar
að spenna er milli merkjanna
og þau að mörgu leyti ólík.
Vog er frumkvætt, jákvætt
loftsmerki og Steingeit
frumkvætt, neikvætt jarðar-
merki.
Vogin
Vogin er félagslynd og lætur
stjómast af hugsun, skyn-
semi og fagurfræðilegum
sjónarmiðum. Jafnvægi á öll-
um sviðum skiptir hana
miklu, s.s. rétt samsetning
lita í klæðnaði og það að frið-
ur, samvinna og réttlæti ríki
í umhverfi hennar. Vogin er
oft á harðahlaupum milli
manna og málefna, til að ná
sáttum, greiða úr ágreinings-
efnum og sjá til þess að allir
njóti sín. Hún er hinn fæddi
sáttasemjari. Því mótast
framkoma hennar yfírleitt af
tillitssemi, er vingjamleg,
þægileg og opin. Það að allir
fá sitt tækifæri og bros er
aðlaðandi eiginleiki í fari
Vogarinnar.
Steingeitin
Steingeitin er ólík Voginni í
skapferli. Hún er iðulega
heldur þurr á manninn og
lokuð gagnvart öðru fólki.
Einstöku sinnum virkar hún
beinlínis köld og stíf. Hún er
ekki jafn félagslynd og Vog-
in, er hlédrægari og varkár-
ari. Steingeitin er jarðbundin
skynsemisvera, ákaflega
skipulögð og yfírveguð. Hún
er gjöm á að leggja öðrum
línuna, annað hvort með því
að skipa fyrir og ráðskast
með umhverfið eða með því
að benda fólki á það skyn-
samlega í stöðunni. Þar sem
hún veit að aðrir em ekki
jafn hagsýnir, skipulagðir og
skynsamir og hún, axlar hún
oft ábyrgð annarra.
Heima og úti
Mögulegir árekstrar milli
þessara merkja í samskiptum
em fólgnir í félagslífí og
vinnu. Steingeitin er ábyrgð-
armikið vinnudýr en Vogin
skemmtanaglaður fagurkeri.
Það þýðir að Steingeitur
mega oft ekki vera að því að
fást við annað en vinnu, það
að fullnægja metnaði sínum
og takast á við sífellt þyngri
ábyrgð. Þetta á við hvort sem
Steingeitin er stjóri einhvers
staðar eða mamma. Mamma
Steingeit gleymir iðulega að
lifa vegna ábyrgðar á heimili
og bömum. Vog sem vill
gjaman fara í bíó, í leikhús,
í heimsókn, á ball, í ferðalag
eða taka þátt í annarri félags-
legri uppákomu gæti átt erfítt
með að þola vinnuástríðu
Steingeitarinnar til lengdar
og þörf hennar til að sitja
síðan heima og slappa af,
loksins þegar vinnudegi er
lokið.
Þroskandi
andstυur
Ef félagslegar móttökur em
hluti af vinnu Steingeitarinn-
ar á samband þeirra strax
betri möguleika. Hætt er þó
við að hvort fínni sitt og þau
fjarlægist síðan smátt og
smátt. Það sem endanlega
skiptir þó máli er hvar önnur
merki lenda hjá viðkomandi.
Ef þau em lfk geta þau átt
ágætlega saman. Eða og þar
segir, samband ólíkra ein-
staklinga er lærdómsríkt og
þroskandi.
TOMMI OG JENNI
T!L HAMIUGJU
<)££> AFM/EUe?,
( FtZh 0/dOJS\
\ l!ka ! I
( 6,N£/, þ!E> tSEeiÐ þAE> EKKI1 É(5
\gEK<l SPREHGWKdKURHAK. Wft
IX
UOSKA
SMÁFÓLK
NO ONE KN0W5 LOHERE
THE FLU EFIPEMIC OF
1918 5TARTER 5UT IT
5PREAP ALL AROUNP
THE WORLP.
8EF0RE IT ENPEP IN
1919, TUJENTV MILLION
PEOPLE MAP PIEP...
Enginn veit um upptök
inflúensufaraldursins
1918, en hann breiddist
út um allan heim ...
Áður en honum lauk
1919 höfðu 20 milljónir
manna látist...
Spyijið flugkappann úr
fyrra stríði, hann var
þar...
Ég veiti ekki viðtöl!
Bridshöfundurinn Martin
Hoffman frá Bretlandi, sem
sumir muna kannski eftir frá
Bridshátíð 1984, hrósaði ind-
verskum andstæðingi sínum Roftt
Robi, fyrir að vinna fjögur hjörtu
í eftirfarandi spili. Spilið kom
upp á HM á Miami.
Norður
♦ ÁKG
♦ 985
♦ K9763
+ 86
Vestur
♦ D9763
+ K
♦ D10854
♦ D5
Austur
+ 5
VG732
♦ G2
♦ Á97432
Suður
♦ 10843
VÁD1064
♦ Á
♦ KG10
Hoffman hélt á spilum vesturs
og hitti á gott útspil, lítinn
spaða.
Robi drap fyrsta slaginn á ás
blinds og rúllaði hjartaníunni
yfír á kóng Hoffmans. Hoffman
ætlaði nú að vera geysisnjall og
fæla Robi frá spaðasvíningunni
með því að spila spaðaníunni.
En Robi svínaði og austur
trompaði.
Austur hélt auðvitað að
spaðanían væri hliðarkall, sem
vísaði á túgul, og spilaði þar til
baka. En sagnhafí átti slaginn
á tígulás og tók trompin í botp^
Hoffman varð að halda í tvo
spaða og þijá tígla, svo hann
neyddist til að henda lauffim-
munni.
Þá fór Robi inn á blindan á
spaðakóng, henti spaða niður í
tígulkóng, spilaði laufí og fór
upp með kónginn þegar austur
setti lítið! Drottningin kom undir
og sagnhafí gat sótt tíunda slag-
inn á lauf.
Vel spilað. Hins vegar má
vinna samninginn þótt austur
spili litlu laufi en ekki tígli efti*F*
að hafa fengið stunguna. Þá er
auðvitað nauðsynlegt að fara
upp með laufkóng, en síðan er
hægt að vinna spilið á kast-
þröng, sem byggist á stíflunni í
lauflitnum. Áhugasamir lesend-
ur geta reynt að leysa úr því
dæmi.
A
Við skulum líta á það nýjasta
í Najdorf-afbrigðinu, uppáhaldi
Bobby Fischers: Hvitt: Lobron,
Svart: Chandler, v-þý2ku deild:^1'
keppninni í ár. 1. e4 — c5, 2.
Rf3 - d6, 3. d4 - cxd4, 4.
Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 - a6, 6.
Bg5 - e6, 7. f4 - Be7, 8. Df3
- Dc7, 9. 0-0-0 - Rbd7, 10.
g4 - b5, 11. Bxf6 - Rxf6, 12.
g5 - Rd7, 13. f5 - Rc5, 14.
f6 - gxf6, 15. gxf6 - Bf8, 16.
Hgl!? (Yfírleitt er hér leikið 16.
Dh5) - Bd7, 17. Hg7! - Bxg7,
18. fxg7 - Hg8, 19. e5 - d5?
(Browne lék hér 19. — 0-0-0
gegn Ungveijanum Perenyi á
New York Open og hékk á jafn-
tefli.) 20. Df6! — b4 og nú
fléttaði Lobron laglega:
21. Rf5! (Ég sé ekki betur en
21. Rdb5! vinni einnig, sbr. 21.
— axb5, 22. Rxb5—- Bxb5, 23.
Bxb5+ - Rd7, 24. Hfl og 22^
— Rb3+ er svarað með 23. Kbl) '
21. - exf5, 22. Rxd5 - Dd8,
23. Dd6 - f6, 24. Bc4 - Be6,
25. Rc7+ - Kf7, 26. Bxe6+
og Chandler gafst upp.
Najdorf-afbrigðið á í nokkurri
vök að veijast um þessar mund-
ir, ekki sízt vegna þess að
Fischer er hættur taflmennsku.