Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
21
Fjöldafundur í Paris, haldinn til að minnast hinna fjölmörgu pólitisku fanga, sem á hveiju ári hverfa
sporlaust. Þátttakendur bera hvítar grimur til að minna á umkomuleysi hvers þess manns, sem ofsóttur
er af pólitískum sökum.
Lettlendingar settir um borð i gripavagna jámbrautalestar. Sjá má
hveraig mennirair þyrpast í gættina á vagninum til að lita föðurl-
andið hinsta sinni áður en ferðin hefst i þrælkunarbúðirnar. (Myndin
er að minnsta kosti 25 ára gömul)
hefur einnig verið hleypt úr landi.
Hann var dæmdur í þriggja ára
fangelsi fyrir „illkynjaðar óspektir",
sem líkast til færi betur að kalla
friðarfundi.
Vafasöm siðfræði
Shcharansky og Orlov voru báðir
látnir lausir eftir baktjaldamakk
stórveldanna. Orlov var hluti af við-
leitni stórveldanna til að koma á
pólitísku jafnvægi fyrir Reykjavík-
urfundinn, segir í leiðara breska
dagblaðsins The Times á þriðjudag
og telur höfundur slíka viðskipta-
hætti bjóða gagmýni heim.
í ieiðaranum segir að það sé
vafasöm siðfræði að skiptast á fólki
fyrir pólitískan ávinning eins og
tíðkast í auknum mæli í samskipt-
um austurs og vesturs.
„í raun virðist stjóm Sovétríkj-
anna hagnast á stefnu, sem er
ósamræmanleg okkar hugsunar-
hætti. Ráðamenn í Moskvu geta
vegið upp á móti gagnrýni og ámæli
fyrir að fangelsa og ofsækja andófs-
menn með því að láta þá lausa.
Þeir fáu, sem látnir em lausir,
skyggja á hina, sem í haldi eru,
vegna þess að fjölmiðlar kjósa frem-
ur að greina frá undantekningunni
en reglunni, sigrum fremur en ósig-
rum,“ segir í leiðaranum og bætt
er við að nú þurfi að efla baráttuna
fyrir Andrei Sakharov og Yelenu
Bonner, sem sitja í útlegð í Gorkí.
Klykkt er út með því að nú verði
menn að gera sér grein fyrir því
að nú séu aðstæður að breytast og
baráttan fyrir mannréttindum í
Sovétríkjunum verði þess vegna að
beinast að því að allir Sovétmenn
fái að búa, þar sem þeir vilja, og
andmæla viðhorfí stjómvalda á frið-
samlegan hátt án þess að eiga á
hættu fangelsisvist.
Minnihlutahópur
í eig'in landi
Örlög gyðinga eru ekki einsdæmi
í Sovétríkjunum. Lettar hafa átt
undir högg að sækja síðan Sovét-
menn hemamu Eystrasaltsríkin
Eistland, Lettland og Litháen öðm
sinni 1945. Sovétmenn sóm reyndar
í friðarsamningunum 1920 að þeir
myndu aldrei sölsa undir sig þessi
ríki.
Sovétmenn hafa ítrekað gert til-
raunir til að fremja þjóðarmorð í
Lettlandi og Lettlendingar em nú
í þeirri sérkennilegu aðstöðu að
vera minnihlutahópur í eigin landi.
Þeir taka við skipunum og fyrir-
mælum frá Rússum og eiga stöðugt
á hættu að vera sendir í rússneskar
þrælkunarbúðir og fangelsi.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sem á fímmtudag
lenti á Keflavíkurflugvelli ásamt
Ronald Reagan, flutti fyrr í vikunni
ræðu á samkomu með þrjú hundrað
leiðtogum bandarískra gyðinga.
Hann hét því að málefni gyðinga í
Sovétríkjunum yrðu ofarlega á
baugi á fundi leiðtoganna í
Reykjavík.
„Það þarf að færa Sovétmönnum
heim sanninn um að þeir verði að
taka sig á í mannréttindamálum -
og á ég þar einnig við réttindi til
að flytjast af landi brott - ef þeir
vilji bæta samskiptin við Banda-
ríkjamenn," sagði Shultz.
Þess er aftur á móti ekki að
vænta að Reagan reyni að draga
mannréttindamál inn í samninga
um fækkun meðaldrægra eldflauga,
svo að dæmi sé tekið. Bandarískur
embættismaður sagði á frétta-
mannafundi fyrr í vikunni að
afopnunarmálum yrði haldið að-
skildum frá mannréttindamálum á
Reykjavíkur fundinum: „A síðasta
áratug virtist fólk vera farið að trúa
því að hegðun Sovétmanna mjmdi
breytast á einu sviði ef hægt væri
að knýja þá til samkomulags á öðm
sviði.
Aftur á móti er víst að Sovét-
menn skirrist frekar við að fremja
mannréttindabrot ef þau em dregin
fram í sviðsljósið. Sovéskum yfír-
völdum er annt um mannorð sitt á
alþjóðlegum vettvangi og þeim
stendur ekki á sama um almenning-
sálit í vestrænum ríkjum.
Hjartans þakkir til allra þeirra er sýndu mér
hlýhug og xináttu á 90 ára afmceli mínu þann
6. október. Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Kristjánsdóttirfrá Hjalteyri.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem glöddu
mig með gjöfum og kxeðjum á áttrœðisafmceli
minu 26. september sl.
Valgarður Sigurðsson,
frá Hjalteyri.
frumsýnir vinsælustu fjölskyldumynd seinni
ára, teiknimyndina:
Þessi spennandi og gullfallega kvikmynd var
sýnd viö alveg ótrúlegar vinsældir í Banda-
ríkjunum, Englandi og víðar sl. ár.
Nú geta börnin, pabbinn og mamman, afinn
og amman notið góðrar skemmtunar.
Aukamynd:
JARÐARBERJATERTAN
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
Miðaverð 130.00 krónur
SJÁLFSTÆÐISMENN í REYKJAVÍK
PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS.
MARIA E. INGVADÖITIR
KOSNINGASKRIFSTOFA í NÝJABÍÓHÚSINU, LÆKJARGÖTU.
SÍMAR: 12540,14494,14558. OPIÐ FRÁ 14.00-22.00.