Morgunblaðið - 11.10.1986, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
49
Asgerður Ágústs-
dóttir - Minning
Fædd 31. ágúst 1901
Dáin 3. október 1986
í dag, laugardaginn 11. október,
er til moldar borin hún amma okk-
ar, frú Asgerður Agústa Agústs-
dóttir, fyrrum húsfreyja á bænum
Lýsudal í Staðasveit á Snæfells-
nesi. Ásgerður amma var fædd 31.
ágúst árið 1901 að Keisbakka í
Skógarstrandarhreppi á Snæfells-
nesi. Foreldrar hennar voru
sæmdarhjónin þau Kristín Jóhann-
esdóttir og Ágúst Ingimarsson
trésmiður. Eignuðust þau tíu böm,
níu dætur og einn son. í dag eru
§órar dætur þeirra á lífi. Ásgerður
giftist Jónasi Guðmundssyni frá
Kolviðamesi í Eyjahreppi í Hnappa-
dalssýslu 12. júní árið 1926. Amma
og afi hófu búskap sinn á fardögum
sama ár að bænum Lýsudal í Staða-
sveit á Snæfellsnesi. Þau eignuðust
átta böm, fjórar dætur og fjóra
syni, en amma átti fyrir einn son.
Böm þeirra sem á lífi eru: Harald-
ur, Sigríður, Kristján, Sigurborg,
Gunnar, Guðmundur og Inga
Fanny. Þau amma og afi sáu á eft-
ir tveimur bömum, sem þau misstu
í desember 1938. Sex ára gamalli
stúlku og andvana fæddum dreng.
Döpur hafa jólin verið þá í Lýsu-
dal. Amma og afi vom af þeirri
kynslóð sem borin var í þennan
heim um síðustu aldamót og upp-
lifði hún þær mestu breytingar sem
riðið hafa yfir íslenskt þjóðfélag
fyrr og síðar. Frá sjálfsþurftarbú-
skap bændasamfélagsins tii þess
tæknivædda þjóðfélags sem við
þekkjum í dag. Við, unga fólkið sem
lifum í dag við alsnægtir, getum
vart ímyndað okkur hvemig lifsskil-
yrðin vom í þá daga.
Uf ömmu var ekki átakalaust
því hún missti mann sinn af slys-
fömm árið 1964. Amma brá ekki
búi eftir lát afa því dyggan stuðn-
ing fékk hún frá Guðmundi syni
sínum sem var en í heimahúsum
og héldu þau bú saman allt til árs-
ins 1968. Þá fluttist amma með
syni sínum suður til Reykjavíkur
og bjó á heimili sonar síns og konu
hans Bergþóm eftir það. í dag er
bærinn Lýsudalur notaður sem
sumarhús fyrir afkomendur ömmu
og afa. Eftir að amma fluttist til
Reykjavíkur dvaldi hún oft á tíðum
í Lýsudal yfir sumartímann og hafði
mikla ánægju af. Á stundu sem
þessari koma margar minningar
upp í huga manns. Ef lýsa ætti
ömmu í örfáum orðum þá var amma
ákaflega félagslynd kona, prúð í
allri framkomu og ávallt fínlega
klædd. Hún var ósérhlífin og starf-
aði mikið fyrir kvenfélagið í
Staðasveit og var hún heiðursfélagi
þess er hún dó. Minningar um lífið
í sveitinni hjá afa og ömmu fyrir
vestan ylja manni um hjartarætum-
ar, því alltaf voru bamabömin
velkomin til þeirra. Mikið af bama-
bömunum dvöldu sumar eftir sumar
hjá afa og ömmu í góðu yfirlæti.
Eftir að amma fluttist hingað til
Reykjavíkur var hún tíður gestur á
heimilum okkar afkomendanna og
fylgdist hún með öllu sem var að
gerast af lífí og sál. í dag em af-
komendur ömmu og afa að nálgast
töluna eitt hundrað. Við biðjum al-
góðan Guð að blessa ömmu okkar,
minningin um hana mun lifa í hjört-
um okkar um ókomna tíð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
F.h. systkina minna,
Ásgerður J. Flosadóttir
Það mun hafa verið í apríl 1952
sem ég kom fyrst á heimili þeirra
hjóna Asgerðar og Jónasar í Lýsu-
dal og þá sem tilvonandi tengdason-
ur þeirra. Mér kom Ásgerður fyrir
sjónir sem hljóðlát og hógvær sóma-
kona, sem vann verk sín hávaða-
laust með festu og dugnaði og
þannig var hún í mínum huga alla
tíð og mun verða.
Vorið 1926 giftist Ásgerður
Ágústsdóttir Jónasi Guðmundssyni
og hófu þau búskap í Lýsudal.
Jónas var kunnur sem sómamað-
ur og þrekmenni mikið og dugnað-
arforkur til allrar vinnu, sem kom
sér vel fyrir einyrkjann í þá daga
til að sjá sér og sínum fyrir fram-
færslu og öryggi, sem þeim hjónum
tókst með mikilli prýði. Þau bjuggu
í Lýsudal þar til Jónas fórst af slys-
förum árið 1964 eða samfleytt í 38
ár. Eftir það er Ásgerður hjá böm-
um sínum, mest hjá Guðmundi.
Ásgerður hafði eignast son þegar
kynni þeirra Jónasar hófust, Harald
Breiðfyörð, sem ólst upp hjá móður
sinni og Jónasi eftir að þau hófu
búskap. Eftir það eignuðust þau
hjón 8 böm saman. Tvö dóu ung
en sex eru á lífi. Þau eru, talin eft-
ir aldri: Kristján Ágúst, Sigríður
Elín, Sigurborg Guðrún, Guðmund-
ur Haffyörð, Gunnar Fannberg,
Inga Fanney. Allt er þetta myndar-
og dugnaðarfólk, sem hefur hækk-
að niðjatölu þeirra hjóna mikið.
Ásgerður átti 69 afkomendur á lífi
þegar hún dó. Fæðingardag allra
þessara niðja sinna og tengdabama
mundi hún og gaf þeim afmælis-
ogjólagjafir eftir þvf sem hún hafði
efni til. Það sýnir best ást hennar
og umhyggju fyrir sínu fólki.
Nú er hún horfin augum okkar
en minning hennar mun lifa hjá
vinum og ættingjum, sem hin milda
góða móðir og amma.
Friðgeir Ágústsson
Elsku amma mín, Ásgerður
Ágústa Ágústsdóttir, var svo blíð,
róleg og góð. Það var friður og
ástúð sem frá henni streymdi alla
tíð. Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast henni. Blessuð
sé minning ömmu okkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Sigurveig og börn
HVAR ER V.P. ROZDESTVOV?
TAÍ HAXOAMTOJ B.TÍ.T03AECTB06?
Amnesty International, hópur 168, Sverige
STÆRSTA OG GLÆSILEGASTA TÖLVUSÝNING
SEM HALDIN HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI
opin daglega írá kl. 10,00 - 22.00
í fyrsta skipti á (slandi eru öll stærstu
tölvu- og hugbúnaðarfyrirtækin saman
komin á einum stað. Meira en 40
aðilar sýna, á u.þ.b. 1700 m2 sýningar-
svæði, allt það nýjasta sem tölvutækn-
in býður.
Sýningargestir fá tækifæri til að kynn-
ast tölvum og hugbúnaði af eigin raun
í „Skjáverinu". Þar gefst einnig tæki-
færi til að reyna hæfileika sína í
æsispennandi og skemmtilegum leik
sem nefnist „dulrænir hæfileikar".
Verðlaunin eru LASER PC tölva frá
Gunnari Ásgeirssyni og aukavinn-
ingar.
Pétur Hjaltested tónlistarmaður heldur
tónleika á u.þ.b. klukkustundar fresti
og leikur eingöngu á tölvur.
Sérfræðingar halda fyrirlestra um mál-
efni sem tengjast tölvum í íslensku
þjóðlífi.
Aðgöngumiðinn er jafnframt happ-
drættismiði.
Verðlaunin eru glæsileg: VISO PC
tölva, helgarferð fyrir tvo til Húsavíkur
með Flugleiðum, tölvunámskeið hjá
Stjórnunarfélaginu og Framsýn o.fl.
Missið ekki af einstæðri sýningu!
Fyrirlestrar dagsins:
Salvör Giccí' 1400
flylur ennTu^0^
1 ,ramhaillr?.ken"$l
tennart
u á tölvur
Stórkostleg sýníng - frœðandi og skemmtileg
□03
Tölvusýning í Borgarleikhúsinu
8.-12. október.
VERÐLAUNAGETRAUN
Á sýningunni „Tölvur og þjóölíf" gefst þér
tækifæri á að gerast þátttakandi í léttri og
skemmtilegri getraun. í sýningarbási Gísla
J. Johnsen sf. færðu afhentan Gátu-Pésa
með spurningunum þrem sem eru hér til
hliðar. Svörin færðu svo í Frétta-Pésa sem
einnig er afhentur í básnum.
Fyrstu verðlaun eru ERGO PC tölva frá
Gísla J. Johnsen, önnur verðlaun eru
WordPerfect ritvinnsluforrit ásamt nám-
skeiði í Tölvuskóla GJJ og þriðju verðlaun
eru grunn- og stýrikerfisnámskeið í Tölvu-
skóla GJJ.
1. Hvaö heitir mest selda tölvan hjá
Gísla J. Johnsen?
a. ERGO PC
b. GJJ PC
c. IBM PC
2. Hvaö heitir nýja tölvan frá
Gísla J. Johnsen?
a. ERGO PC/XT
b. Super PC
c. GJJ PC
3. í hvaöa landi eru höfuðstöðvar
Facit fyrirtækisins?
a. Noregi
b. Svíþjóö
c. Danmörku