Morgunblaðið - 11.10.1986, Síða 15
h
íGt JI3RÖTJ10 -ÍI Jtltf)A0J5ÁUUÁJ .CUQAJfllíUDJlÖM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1986
15
Halldór Blöndal
afborgunum af húsnæðislánum.
Þetta ættu þeir að skilja sem vilja
kenna sig til jafnaðar. Þá eru það
tíðindi; að Alþýðuflokkurinn hefur
snúist gegn verkamannabústaða-
kerfinu.
3. „Einn sameiginlegan lífeyrissjóð
fyrir alla landsmenn," segir for-
maður Alþýðuflokksins. Það
vekur athygli í þessu sambandi
að flórir þingmenn Alþýðuflokks-
ins fluttu tillögu til þingsályktunar
um þjóðaratkvæði um sameigin-
legan lífeyrissjóð allra lands-
manna á síðasta þingi. Þeir tveir,
sem kusu að standa utan við,
voru þeir Karl Steinar Guðnason
og Karvel Pálmason sem báðir
koma úr verkalýðshreyfíngunni.
Menn geta svo velt því fyrir sér
hvemig á því standi og hvort
líklegt sé að slík breyting nái fram
að ganga nema friður ríki um
hana innan verkalýðshreyfingar-
innar. Auðvitað hlýtur hugmyndin
um einn lífeyrissjoð fyrir alla
landsmenn að vera áfrarn til at-
hugunar, enda er hún hvorki
frumleg né ný. Og ég efast um
að það sé málinu til framdráttar
að fitja upp á því með þeim hætti
sem hér er gert, meira og minna
í andstöðu við forystumenn laun-
þega.
4. „Valdatilfærslurfráríkis-ogemb-
ættismannavaldi til sveitarstjóma
og landsbyggðar," segir formaður
Alþýðuflokksins. Um það er í
sjálfu sér ekki ágreiningur en hitt
hefur reynst mönnum torvelt að
ná samkomulagi um hvaða verk-
efhi það séu sem eðlilegast sé að
algjörlega séu á hendi sveitarfé-
laganna. Oft hefur verið talað um
grunnskólann í því sambandi svo
dæmi sé tekið. Þetta mál verður
auðvitað að ræða í tengslum við
breytta tekjuskiptingu ríkis og
sveitarfélaga en það torveldar
framgang þess hversu misjafn-
lega sveitarfélögin em í sveit sett,
sum fámenn og fátæk, önnur fjöl-
menn og rík. Eitt sveitarfélagið
þarf að standa undir dýrri hafriar-
framkvæmd en annað er svefn-
bær. Hvað orðið „valdatilfærslur"
og þriðja stjómsýslustigið þýðir
nákvæmlega í munni formanns
Alþýðuflokksins er mér ekki ljóst,
en gmnar, að það sé fremur hugs-
að til að auka kjörfylgi í einum
kosningum en að það eigi að hafa
að leiðarljósi til frambúðar.
5. „Nýja atvinnustefnu, bæði í land-
búnaði, sjávarútvegi og fisk-
vinnslu,“ segir formaður
Alþýðuflokksins. Slagorð af þessu
tagi láta kunnuglega í eyrum á
kosningaári.
6. „Samræmda launastefnu sem
tryggi minni launamun, jafnari
tekjuskiptingu og aukinn kaup-
mátt án verðbólgu," segir formað-
ur Alþýðuflokksins. Nú veit ég
ekki hvort beri að skilja þessi orð
svo að hann sé þeirrar skoðunar
að skipa eigi launum með lögum
frá Alþingi eða hinn frjálsi samn-
ingsréttur eigi áfram að standa.
Hitt er auðvitað ljóst að undir það
markmið geta allir stjómmála-
menn skrifað að þeir vilji betri
lífskjör án verðbólgu og minni
kjaramun. Spumingin er, og það
er mergurinn málsins, hvaða leið
menn eigi að fara til að ná því
markmiði. Um það emm við Jón
Hannibalsson ekki sammála. Þess
vegna er hann í Alþýðuflokknum
en ég í Sjálfstæðisflokknum.
Síðan segir formaður Alþýðu-
flokksins: „Þetta em stóm málin
sem hafa verið þungamiðjan í
málflutningi okkar jafnaðar-
manna sl. tvö ár.“ Ekki skal ég
þrefa við hann um það en hitt
lýsir málflutningnum að maður
skuli ekki hafa áttað sig á hvert
innihald hans sé í einstökum atrið-
um svo að hægt sé að greina
nákvæmlega hvað haft sé í huga.
Ég óska Jóni Hannibalssyni til
hamingju með afmælishátíðina.
Mér finnst líklegt að þeir Guð-
mundur Einarsson hafi skipst þar
á rósum, einni rauðri og annarri
hvítri og stigið blómavalsinn sam-
an á eftir. En ég verð um leið að
valda Jóni vonbrigðum með því
að segja að ég hef séð ályktanir
flokksþingsins og þær marka eng-
in tímamót né skýra í einstökum
atriðum hvað raunverulega vakir
fyrir honum ef honum tekst það
ætlunarverk sitt að komast til
valda í fslensku þjóðfélagi næstu
árin. Hann hefur mjög haldið því
á loft að hann vilji vinna með
okkur sjálfstæðismönnum. Víst
get ég undir það tekið að hann
er góður stjómmálamaður og
líklegur til góðrar samvinnu. En
í pólitík hljóta menn að líta á efni
máls og það er von mín að hann
gerist ekki slíkur offari í málflutn-
ingi að hann brjóti biýr að baki
sér í sigurvímunni nú, löngu áður
en kosið er.
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokks fyrir Noröurlands-
kjördæmi eystra.
Morgunblaðið/Gunnar
Karvel Pálmason, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Bolung-
arvíkur, afhendir Jóni Guðbjartssyni, formanni Björgunarsveitarinn-
ar, minningargjöfina um Guðlaugu Pálsdóttur.
minningu um, starfaði hér í Bolung- minningargjöf um Guðlaugu til
arvík að sjúkra og iðjuþjálfun um Björgunarsveitarinnar, sem eins og
nokkurt skeið. Hún vann starf sitt hún hefur forvamarstarfið að
af mikilli kostgæfni og áhuga fyrir markmiði, er mjög í þeim anda sem
því að kenna fólki að beita sér á starf Guðlaugar einkennsdist af.
réttan hátt við vinnu sína. Þessi - Gunnar.
Sjálfstæðisfólk
á Vestfjörðum
Styðjum dugandi baráttumann í höfuðat-
vinnuvegi Vestfirðinga.
Tryggjum Guðjóni A. Kristjánssyni
skipstjóra eitt af fjórum efstu sætum á
lista Sjálfstæðisflokksins í komandi al-
þingiskosningum.
Stuðningsmenn.
Haustlauka' _svalakassann
Vasáræss-
núumhelgina-
Er\Ka (Stofuiyng)
^Æ'góðu
taWegar Enkur ay
verði.
Magn
tilboð
1-
2-
3' '
4. ■ ■ ■ ■
kr.499’
kr.399-
kr.399-
kr.399-
bAófflÍÍ^
SbumtewvibSigwn