Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 Bjamfríður tók þátt i starf- semi Leikfélags Akraness í 15 ár. Hér er hún í hlutverki Snæfríðar, í ísiandskluk- kunni, ásamt Ólafi Bjarnasyni sem lék Eydalín lögmann. að hafa verið einn af forystu- mönnum „órólegu deildarinnar" sem lét mikið að sér kveða á ASÍ-þingi 1976. Hér er gripið niður í kafla um Verkamanna- sambandið og baráttu kvenna innan þess. Oft urðu heitar umræður á þing- unum þegar skarst í odda, en það kom oft fyrir. Þessi hópur var mörg- um skrefum á undan heildinni í áherslum og viljayfirlýsingum. Við bárum alltaf fram ályktun um brott- för hersins, gegn harðri andstöðu varaformanns Verkamannasam- bandsins, Karl Steinars Guðnason- ar, sem hefur verið varaformaður frá 1975, jafn lengi og Guðmundur J. formaður. Hann er einnig for- maður Verkalýðsfélags Keflavíkur og nágrennis og á mikilla hagsmuna að gæta, því margt af félagsfólki hans vinnur hjá Bandaríkjamönnum á Keflavíkurflugvelli. Ég hef aldrei treyst Karli Stein- ari til starfa fyrir verkafólk, og vann að því að hann yrði ekki endur- kjörinn á Verkamannasmbands- þinginu á Akureyri 1979. Okkur fannst að konur ættu að hafa meiri áhrif í sambandsstjóminni, því þær I eru fjölmennari en karlar í sam- bandinu, og staða þeirra á vinnu- markaði alltof slök, þrátt fyrir lög um launajafnrétti. í Verkamanna- sambandinu verður að gæta póli- tískra valdahlutfalla, eins og annars staðar, og þar sem Guðmundur J. er alþýðubandalagsmaður, verður varaformaðurinn að vera úr öðrum flokki og þá helst alþýðuflokksmað- ur. Við reyndum mikið að fá konu úr þeirra röðum til að taka að sér varaformennsku; Rögnu Berg- mann. Guðríði Elíasdóttur eða Guðrúnu Ólafsdóttur úr Keflavík. En það gekk ekki. Á endanum fengum við Þórð Ólafsson, verkalýðsformann í Þor- lákshöfn, til að bjóða sig fram á móti Karli Steinari. Þórður er fram- sóknarmaður svo það átti að vera í lagi, en lengi tókst að halda sjálf- stæðismönnum frá sambandsstjórn VMSÍ. Það hefði þótt hreinn yfir- gangur að bjóða alþýðubandalags- mann fram í þetta embætti, jafnvel þó það væri hæfasti maðurinn. Pólitíkin lifir góðu lífi þama, þótt forystumenn séu að reyna að bera það af sér. Rétt áður en kom að kosningum til varaformanns, kvað Guðmundur J. sér hljóðs og hélt þá mestu áróð- ursræðu sem ég hef heyrt. Það telst almennt siðgæði að halda ekki fram ágæti þess sem í kjöri er, rétt áður en kosið er um hann. En Guðmund- ur studdi Karl Steinar af miklum ákafa, og var púaður niður og fund- arstjóri víttur fyrir að leyfa honum að halda þessa ræðu óáreittur. Samt sem áður var Karl Steinar endurkjörinn og þeir vinimir sitja enn í embættunum. Þessi íhlutun Guðmundar sýnir hver siðgæðisvit- und hans er. Vakti framkoma hans lengi mikla reiði og almenna óánægju. Næsta þing var á Hótel Loftleið- um 1981. Allir samningar voru lausir og mótuðum við í kvenna- deildinni kröfu í sex liðum og sendum til sambandsins. Einn liður- inn var, að yfirvinna yrði felld niður í áföngum með óskertu kaupi, þ.e. að sama kaup fengist fyrir átta tíma og var fyrir tíu tíma. Eftir klukkan fímm síðdegis tæki síðan við yfirtíð, sem væri 100% álag á dagvinnu- kaup. Þannig er yfírvinna reiknuð hjá félögum BSRB. Fyrir þingið boðuðu konur í sam- bandinu til fundar í Ölfusborgum til að ræða áhrifaleysi sitt í sam- bandsstjóminni og almennt um stöðu kvenna í launamálum. Góð samstaða náðist um þennan fund, því miklar umræður höfðu átt sér stað um karlveldið í verkalýðs- hreyfingunni, og gerði ég mér vonir um nokkurn árangur. Við konur myndum nú sýna hvers við værum megnugar ef við stæðum saman. En ég fór of geyst að mati sumra kvennanna. Fyrir fundinn birtist viðtal við mig í Tímanum, þar sem ég var spurð hvort konur ætluðu að kljúfa verkalýðshreyfinguna. Ég sagði ómögulegt að vita hvað úr samvinnu okkar kæmi. Við ætluð- um okkur eitthvað með fundinum, og gætum vel ógnað karlveldinu ef við vildum. En þetta mátti ég víst ekki segja, það gat sært einhvem. Að minnsta kosti sá Guðríður Elíasdóttir ástæðu til að skamma mig fyrir þessi um- mæli í upphafí fundarins. Ég sá þá, að ekki borgaði sig að vera of bjart- sýn á að konur væru tilbúnar að hrista af sér ok karlanna. Viðbrögð Guðríðar sýndu mér að sumar kon- ur voru hræddar við að styggja þá, og vildu fara leynt með þennan fund. Þær treystu ekki kynsystrum sínum til ábyrgðarstarfa. Bjöm Bjömsson hagfræðingur ASÍ og Jón Sigurðsson frá Þjóð- hagsstofnun héldu erindi á fundin- um. Bjöm rakti sögu kjaramála kvenna og benti meðal annars á að tímalaun í físki þyrftu að vera 10% hærri að meðaltali á mánuði, til að ná kaupmætti ársins 1977. I kjarasamningum, fyrr á árinu 1981, hækkaði fískvinnslutaxtinn 2,4% minna en aðrir taxtar. Það var upphaf þeirrar stefnu að halda tímakaupi í fiskvinnu niðri vegna bónussins. Þessir samningar ollu mikilli óánægju hjá konum á Akra- nesi eins og annars staðar. Ríkis- stjóm Gunnars Thoroddsen og félaga sat við völd, svo það var erfitt að vera alþýðubandalagsmað- ur og sjá hvemig verkalýðsforystan kiknaði í hnjáliðunum. Á Ölfusborgafundinum var mikið rætt og kom fram vilji hjá konum til að auka verulega áhrif sín í sam- bandsstjórninni, en ekki náðist samstaða um að hrófla við for- mannssætunum. Hópnum, sem þingaði þarna, var gefíð nafnið „Systrafélagið" og hafði þau áhrif, að á þinginu var mun fleiri konum stillt upp í sambandsstjóm en áður. Um leið var fjölgað í stjóminni, eins og oft vill verða þegar koma þarf konum að; annars hefðu einhverjir karlar þurft að víkja. í fyrri sam- bandsstjóm vom þijár konur af nítján, en fjölgaði í tíu af tuttugu og fimm. Framkvæmdastjóm er kosin úr sambandsstjóm og var^ skipuð sjö mönnum. Þar sat ein kona áður. Þórunn Valdimarsdóttir í Framsókn, og var tveim konum bætt við, en jafnframt fjölgaði í framkvæmdastjóm um tvö, þannig að enginn karlmaður þurfti að víkja fyrir konu. í framkvæmdastjóm fóm auk Þómnnar Jóhanna Frið- riksdóttir úr Vestmannaeyjum og Guðríður Elíasdóttir, Hafnarfírði. Ég var ein þeirra kvenna sem hlaut kosríingu í sambandsstjóm samkvæmt uppstillingu kjömefnd- ar, en það var að venju gert nákvæmlega eftir pólitískum hlut- föllum. Óflokksbundnum róttækl- ingum, sem á þinginu sátu, fannst nóg um flokkadrættina og hugðust koma með mótframboð. Þegar það var í bígerð fengu þeir hins vegar að vita, að ef af mótframboði yrði, myndi ég ekki verða kosin í stjóm- ina. Var því ákveðið að taka ekki þá áhættu að eyðileggja áfangasig- urinn sem náðist með uppstillingu svo margra kvenna á lista kjör- nefndar. c 5 SAUNA BOÐ GUFUBÖÐ ALLTÍ EINUM PAKKA KLEFAR / öllum stærðum og gerðum OFNAR ásamt öllum hugsanlegum aukahlutum LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL OG LÍTTU VIÐ VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966 SNIGILDÆLUR OG KVARNIR og hægt að fá með stuttum afgreiðslufresti. Kynntu þér Seepex, áður en þú velur annað. Þekking Reynsla Þjónusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.