Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
C 25
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Bréfritari segir Sea Shepherdmenn hafa gengið of langt þegar þeir réðust á eigur Hvals hf.. Það
ekki aðeins eitt fyrirtæki sem vegið hafi verið að heldur eigi öll þjóðin hlut að máli.
Islenska þjóðin særð djúpu sári
Kæri Velvakandi
Mig langar að nota þetta tæki-
færi til að taka undir leiðara
Morgunblaðsins frá því á þriðjudag-
inn ll. þessa mánaðar. Nú hefur það
gerst að erlend öfl hafa ráðist á
Island, nánar tiltekið eigur Hvals
h.f.. Þessi glæpamaður, Paul Wat-
son, hampar sér og mönnum sínum
yfir því að enginn Islendingur skuli
hafa særst. Islenska þjóðin hefur
særst mjög djúpu sári. Sea Shep-
herd hafa nú gengið of langt eins
og atburðarásin mun væntanlega
sýna.
Dr. Jakob Jakobsson sagði ný-
lega að fleiri og fleiri erlendir
vísindamenn væru að uppgötva að
hvalveiði í vísindaskyni á rétt á
sér. Ætli þetta sé það sem Watson
og hans menn eru hræddir við?
Á sínum tíma setti Guð hvali í
sjóinn til þess að við á norðurslóðum
gætum lifað á þeim. Við höfum
hans umboð til þess að stjóma þess-
um miklu dýrum. Það er ekki ágóði
í því fyrir íslensku þjóðina ef þessi
dýr deyja út.
Að lokum vil ég beina orðum
mínum til þeirra Islendinga sem
þykjast styðja Watson: Forðist land-
ráðsaðgerðir.
Virðingarfyllst
Vilhjálmur Alfreðsson
Troða tann-
læknar eitri
í tennur
okkar?
Kæri Velvakandi.
Ég rakst á grein í helgarblaði
Tímans þann 21. sept. með fyrir-
sögninni: „Gull- og silfurfyllingar í
tönnum valdar að alvarlegu heilsu-
leysi?“ Greinin er eftir Ævar
Jóhannesson og hafði hún, eftir því
sem segir í blaðinu, birst áður í
tímaritinu Heilbrigði og heilsu-
gæsla. í áðurnefndri grein er talað
um að „silfur Amalgam" sem fyll-
ingar í tönnum geti valdið alvarlegu
heilsutjóni. Eftir því sem mér skilst,
er þetta blanda af kvikasilfri (sem
er baneitraður málmur) og öðrum
málmum, svo sem silfri, tini og jafn-
vel gulli. Blöndu þessari er troðið
með ærnum kostnaði í tennur fólks,
sem síðan á það á hættu að verða
sjúklingar vegna þessa. Væri ekki
nær að nota annað efni, sem sam-
kvæmt greininni er þegar komið á
markaðinn? Þegar ég var búinn að
lesa þessa grein gat ég ekki á mér
setið að senda þér nokkrar línur í
þeirri von að einhver sérfræðingur
geti frætt almenning um þessi mál.
Þar sem ég er bara leikmaður um
þessi mál en verð að þola kvalir,
bæði andlegar og líkamlegar, út af
blessuðum tönnunum, svo ég tali
nú ekki um hvað buddan mín tekur
út, þá væri fróðlegt að fá álit fleiri
kunnáttumanna um þessi mál.
Kær kveðja,
Anti Amalgam
Þessir hringdu . . .
*
Isinn
þreng’ir um
of að fugl-
unumí
frostum
Fuglavinur hringdi:
Eg vil beina athygli borgaryfir-
valda að fuglunum á Tjörninni
okkar hér í Reykjavík. Mér sýnist
það auðsætt, að þegar gerir mikil
frost, þá verður vökin alltof lítil
fyrir allan þann fjölda fugla er
heldur þar til. Væri nú ekki hægt
að auka eitthvað heitavatns-
streymiið í tjarnarkrikann svo
ísinn hopaði í frostum og meira
rými skapaðist fyrir fuglana?
Tapaði leð-
urhúfu
ysvæ stat t Móðir hringdi:
Það var í seinasta mánuði að
dóttir mín tapaði brúnni leðurhúr-
húfu með loðkannti við Háaleytis-
braut 14. Finnandi hringi í s.
36106. Fundarlaun.
Þurf ið þið
endilesra
að
rugla?
Magnús Jörundsson hringdi:
Ég vil spyija þá hjá Stöð 2 af
hveiju þeir eru að rugla þessar
útsendingar sínar?
Týndi
kvenhand-
tösku við
Hótel Sögu
Kona hringdi og sagðist hafa týnt
lítilli svartri kvenhandtösku fyrir
utan Hótel Sögu á laugardags-
kvöldið 8. nóvember. Finnandi
hringi í s. 26452. Fundarlaun.
Er Guð-
mundarson
Guðmundur Guðmundarson
hringdi og vildi undirstrika að
hann er Guðmundarson en ekki
Guðmundsson eins og sagði í
Velvakanda á fostudaginn var.
Hjartanlegar þakkir til allra minna góÖu vina
og vandamanna sem gerðu mér afmœlisdaginn
ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
Jóna G. Kjeld,
Arnarhrauni 31,
Hafnarfirði.
Innilegar þakkir fceri ég öllum börnum mínum,
skyldmennum, tengdafólki og vinum, sem
glöddu mig og konu mína á sjötíu ára afmceli
minu, meÖ heimsóknum, gjöfum og kveÖjum.
Þetta verður mér minnisstœÖur hátíðisdagur.
GuÖ blessi ykkur öll.
Indriði Einarsson,
Melum, Kjalarnesi.
Til sölu björgunar-
sveitarbifreið
Til sölu Chevrolet Suburban árg. '80. Ekinn
19.000 mílur. Mjög góður bfll. Tilboð óskast.
Skipti/skuldabréf. Upplýsingar í síma 50328
og 54100.
Hjálparsv. skáta, Hafnarfirði.
hitamælarþrýstimælar
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
i