Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 20
20 C '\r>')+ f-Trjcr*r'-T-'Tf\T t -V- rr .r, » rTTTTíVTTO 'TTn I TCrjST T'AOO'* MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 KROSSGATUBLAÐIÐ • VEGLEG VERÐLAUN • AFÞREYING FYRIRALLA 13.750 kr. verðlaun Gátur • Þrautir Krossgátur Skop • Leikir Frá mormónum við Saltavatn í Bandaríkjunum Við bjóðum vandaða, trausta og ódýra snjóbíla og snjótroðara frá LOGAN verksmiðjunum sem hafa smíðað slík tæki í 25 ár og eru í dag stærstir í Bandaríkjunum. Einnig getum við boðið notuð tæki frá kr. 400.000,- frá verksmiðju. GÍSLIJÓNSSON & CO. HF. SUNDABORG 11. SÍMI 686644. Stykkishólmur: Útf ör Gunnars B. Guðmunds- sonar, Stykkis- hólmi Stykkishólmi. LAUGARDAGINN 8. nóvember sl. var til moldar borinn frá Stykkis- hólmskirkju Gunnar B. Gunnars- son, verkamaður í Stykkishólmi, 88 ára að aldri, en hann lést í Landspít- alanum í Reykjavík 28. október sl. Gunnar var fæddur í Stykkis- hólmi 6. október 1898 og átti þar alltaf heima. Snemma fór hann að vinna fyrir sér. Var meðal annars til sjós og stundaði handfæraveiðar á skútum, sem voru þegar hann byrjaði aðalkostur sjósóknara þeirra tíma. Einnig fékkst hann við öll algeng störf. Var lagtækur og vel virkur að hveiju sem hann gekk. Hann átti alltaf kindur og annaðist þær vel, því dýravinur var hann. Hann var kvæntur Kristensu Val- dísi Jónsdóttur ættaðri úr Eyrar- sveit. Þau eignuðust 14 börn og 12 komust til fullorðinsára og eru nýtir þegnar þjóðfélagsins. Eins og gefur að skilja var lífsbarátta þeirra hjóna hörð. Sein- ustu bömin eignaðist Kristensa um það bil sem ég kom til Stykkishólms og var því nóg að gera á hennar heimili. Var mér það oft undrunar- efni hversu dugnaður hennar var mikill að annast þennan hóp og enginn sá annað en að það væri gert til fyrirmyndar, því böm þeirra hjóna voru alltaf vel upp færð og báru góðu heimili vitni. Eg átti því láni að fagna að kynnast þeim ná- ið. Þau unnu bæði úti um langt skeið til að drýgja heimilistekjumar. Gunnar var lengi hreinsunarmað- ur hér í bæ. Hann var fróðleiksfús og eyddi stundum sínum sem af- gangs voru í lestur góðra bóka. Ferðasögur voru honum hugstæðar. Kristensa er látin fyrir nokkmm áram. Seinustu árin dvaldi Gunnar á dvalarheimilinu hér og þar leið hon- um vel og vistina kunni hann vel að meta. Arni. MBÐEINU SÍMTALI er hægt að breyta innheimtu- aðferðinni. Eftir það verða gTa-niíTTnwftimiTTiriifTn.ra viðkomandi greiftslukorta reikning mánadarlega. SÍMINN ER 691140 691141 Umboðsmaðurinn Nicky Vaughan er á landinu ásamt 2 drottn- ingum úr næturlífi heimsborganna. Kimberly Joan og Jilly Laine verða hjá okkur í kvöld og næstu kvöld. Og auðvitað verður svo- lítið íslenskt Pan. Pan klúbburuinn — Upp og Niður klúbbur. Bjartmar Guðlaugsson og Pétur Kristjánsson Syngja öll sín bestu lög hjá okkur í kvöld og annað kvöld. Meðlimir Blásarakvintetts Reykjavíkur eru, talið frá vinstri: Bern- harður Wilkinson, flauta, Daði Kolbeinsson, óbó, Hafsteinn Guð- mundsson, básúna, Einar Jóhannesson, klarinett, og Joseph Ognibene, horn. York Winds spila með Blásarakvintettnum Sameiginlegir tónleikar kanadíska blásarakvintettsins York Winds og Blaáarakvintetts Reykjavíkur verða haldnir á Kjarvalsstöðum mánudaginn 17. nóvember og hefjast klukkan 20.30. York Winds er einn fremsti blás- arakvintett heims og hefur haldið tónleika víða um heim. Kvintettinn kom hingað á leið sinni úr tónlistar- ferð um Evrópu og hefur verið hér undanfarið með námskeið í Tónlist- arskólanum í Reykjavík og haldið tónleika fyrir Tónlistarfélagið. A efnissskrá tónleikanna er Rondino eftir Beethoven, Serenade í Es-dúr eftir Mozart og Petite Suite eftir Gounod. Miðar á tónleikana verða við sölu við innganginn. mm York Winds er þannig skipaður: Doglas Stewart, flauta, Gwillym Williams, klarinett, Cynthia Steljes, óbó, Harcus Hennigar, horn, og Gerald Robinson, fagott. Sigmundur Guðbjamason, rektor HÍ, veitir bókagjöfinni viðtöku úr höndum sendiherra Indlands á íslandi. Auk þeirra eru á myndinni sendiherrafrúin og Þóra Einarsdóttir, fyrrverandi formaður Indland- svinafélagsins Háskóli Islands fær bókagjöf frá Indlandi HÁSKÓLA íslands barst bóka- gjöf frá Indlandi í síðustu viku og hafði Indlandsvinafélagið hér á landi milligöngu um gjöfina. Um var að ræða 39 bækur á Hindi og 38 á Sanskrít. Bókagjöfin var ákveðin af Indira Gandhi, en hún hafði mikinn áhuga á að efla menningarsamskipti Islands og Ind- lands og hafði lýst áhuga sínum á að heimsækja fsland. Þessi ákvörð- un var tekin á fundi, sem Þóra Einarsdóttir, fyrrverandi formaður Indlandsvinafélagsins, átti með Ind- ira Gandhi. Sendiherra Indlands á íslandi, Anand, sem aðsetur hefur í Osló afhenti gjöfina og hefur sendiherrann látið í ljós að ind- verska ríkið sé á næstu áram reiðubúið að gefa HÍ fleiri ritverk um menningu og sögu Indlands og þá einnig á ensku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.