Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 C 13 Armann Kr. Einarsson rithöf- undur og sjálfur hef ég haft mikla ánægju af að skrifa þær. - Hvað finnst þér um þær barnabækur sem komið hafa út síðasta áratuginn eða svo? Vandamála- bækur Það hefur allt of lítið komið út af góðum íslenskum bamabókum undanfarið. Þá finnst mér að alls konar vandamálabækur séu alltof mikið ríkjandi. Þessi stefna hef- ur verið sérstaklega áberandi í bambókum á Norðurlöndum og hefur farið út í öfgar. Ég var t.d. nýlega að lesa norska verð- launabamabók - hún íjallar um tíu ára strák og er hún full af yfirjiyrmandi vanda- málum og hugarkvöl. Eg tel að svona bækur hafi vond áhrif á böm - það á að leyfa bömunum að lifa glaða og áhyggju- litla bemsku. - Hvað um útgáfu barnabóka? Bamabækur em mjög dýrar í útgáfu vegna teikningana sem í þeim em. Svo verður að. halda verði þeirra langt fyrir neðan verð annarra bóka til þess að þær seljist eitthvað. Stjómvöld gera útgáfima enn erfiðari með því að taka söluskatt af bókunum og hefur ríkið þannig meiri hagnað af hverri seldri bók en höfundur- inn. Ég vil nota tækifærið hér og skora á stjómvöld að þessi söluskattur verði felld- ur niður. - Nú hefur framboð afþreygingarefnis fyrir böm og unglinga aukist mjög t.d. með tilkomu myndbanda og bamaefnis í tveim sjónvarpsstöðvum auk annars - em böm og unglingar minna spennt fyrir bók- um en áður? Bamabókin heldur furðanlega velli. Ég hef haft aðstöðu til að fylgjast með þessu þar sem ég er í hlutastarfí sem bókavörð- ur á skólabókasafni og þar hef ég orðið var við að krakkar lesa enn furðu mikið. Ef til vill er þetta vegna þess að bókin hefur þá sérstöðu að vera alltaf til staðar - það er alltaf hægt að grípa til hennar. V erðlaunasióður ísleuskra barna- bóka - Talið snýst að sjóð sem bókaforlagið Vaka stofnaði með fjölskyldu Ármans í tilefni af 70 ára afmæli hans í fyrra. Sjóð- ur þessi nefnist Verðlaunasjóð íslenskra bamabóka. Tilgangur þessa sjóðs er að örfa ungt fólk til að skrifa bam- og unglingabæk- ur, sagði Ármann. Sjóðurinn. virðist hafa náð tilgangi sínu því undirtektir rithöfunda hafa verið mjög góðar, í fyrra bámst 45 handrit. Verðlaunin 1985 hlaut Guðmund- ur Ólafsson fyrir bók sína Emil og Skundi. Nú er verið að auglýsa eftir handritum fyrir næsta ár með skilafrest til áramóta. Það er fimm manna dómnefnd sem fer yfir handritin og er það nýmæli hjá okkur að einn dómnefndarmanna er fulltrúi ungukynslóðarinnar. Var það síðast stúlka í efstabekk gmnnskóla hér í Reykjavík sem valin var í dómnefndina. Þetta hefur mælst vel fyrir - krakkamir em sjaldnast sjálf spurð um gæði barnabóka þó almenn- ir lesendur séu jafnan bestu gagnrýnend- umir. Næst höfum við I hyggju að velja dreng úr gmnnskólanum á Akureyri í þetta hlutverk. - Hvað er framundan hjá þér núna, Ármann? Ég er að vinna að nýrri bók sem senni- lega kemur út á næsta ári. Þetta er unglingasaga með töluvert öðm sniði en ég hef samið áður. Viðtal: Bragi Óskarsson ÁRMANN KK. E/NAPSSON Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Bamabókín heldur furðanlega velli Rætt við Ármann Kr. Einarsson rithöfund Bókin Hvalveiðimenn í bjamarklóm eftir hinn kunna bama- bókahöfund Ár- mann Kr. Einarsson kom út hjá bókafor- laginu Vöku- Helgafell í síðustu viku. Bókin, sem er í bókaflokknum Ævin- týraheimur Ármanns, fjallar um þá félagana Óla og Magga og er endurútgef- in með lítilsháttar breytingum, en alls komu út sjö bækur um þessar söguhetjur á ámnum 1960 - 1967. Er bókin prýdd nýjum teikningum eftir Aðalbjörgu Þórð- ardóttur. Ármann hefur verið afkastamik- ill rithöfundur - hann hefur skrifað um 40 bamabækur en einnig liggja eftir hann 3 skáldsögur auk smásagnasafna. Nokkr- ar bamabóka hans hafa komið út á erlendum tungumálum og hin síðari ár hafa margar þeirra verið gefnar út á ný. í upphafi samtals okkar spurði ég Ár- mann hvað hafi orðið til þess að hann lagði út á rithöfundabrautina. Byrjaði að skrif a um fermingu Mér þótti sjálfum mjög gaman að sögum og það heillaði mig þegar í æsku að setja saman sögur sjálfur, sagði Ármann. Eg byrjaði að skrifa um fermingu og varði til þess verulegum hluta tómstunda minna þegar á unglingsárum. Fyrstu smásögum- ar mínar birtust í tímariti sem þá var gefið út fyrir böm og unglinga, Unga ís- land, en fyrsta bókin sem kom út eftir mig var smásagnasafn fyrir fullorðna og hét Vonir. Fyrsta bamabókin sem kom á prent eftir mig var hins vegar Margt býr í fjöllunum og var henni vel tekið - það hvatti mig til að halda áfram. Það er erfítt að skrifa skáldsögur og ekki síður erfitt að skrifa fyrir böm og unglinga en fyrir fullorðna. En ég held hins vegar að það sé skemmtilegra að skrifa fyrir yngstu kynslóðina, böm em svo opin og segja manni bæði kost og löst á bókunum alveg hiklaust. Og ef krökkum fellur sagan vel geta þau lesið hana aftur og aftur, en því er ekki að heilsa með bækur fyrir fullorðna. - Hefurðu gert mikið af því að bera Kápumynd bókarinnar um félagana Óla og Magga sem nú kemur út í ann- að sinn efni bóka þinna undir bömin sjálf? Já, ég hef haft góða aðstöðu til þess þar sem ég hef verið kennari í 50 ár, ég útskrifaðist úr Kennaraskólanum 1937. Ég hef gjaman sagt bömunum úr sögum sem ég hef verið að skrifa, og þannig feng- ið ágæta gagnrýni um efni þeirra jafn óðum og ég hef samið þær. Þetta hefur verið mér mikil hjálp og mótað sögumar mínar töluvert. Ég hef einnig leitast við að hafa sögumar spennandi þannig að þær haldi fastri athygli lesandans og eitthvað knýi hann stöðugt til að fletta yfir á næstu blaðsíðu. - Hveijar af bókunum þínum eru þér hugstæðastar? Það em kannski tvær bækur sem ég skrifaði um barnabömin mín, strák og stelpu: bækurnar Afastrákur og Ömmu- stelpa. Þessum bókum var vel tekið og fékk Ömmustelpa verðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur 1977. I Árnabækurnar Svo er það auðvitað Árnabókaflokkur- inn, sem er átta bærkur gefnar út á tímabilinu 1952 - 1960. Þessar bækur vom á sínum tíma geysivinsælar og ég veit að þær em mikið lesnar ennþá. Það er svolítið skondið að oft hef ég talað við miðaldra fólk sem kann söguþráð þessara bóka betur en ég sjálfur. Ámabækumar hafa einnig gengið vel eriendis en þær hafa verið þýddar á öll norðurlandamálin nema fínnsku. Því hefúr verið hreyft við mig að undanfömu að verðugt væri að gera kvikmynd sem byggði á þessum bóka- flokki, mynd fyrir alla fjöskylduna, og hef ég að sjálfsögðu áhuga fyrir því. - Hvers vegna hættir þú að skrifa sögur um Áma og félaga? Það var komið svo mikið að ég ákvað að breyta til og fást við aðrar og feskari hugmyndir sem leituðu á mig. Þá fór ég að skrifa bókaflokkinn um félagana Óla og Magga og urðu þær bækur sjö alls. - Hefurðu orðið ríkur af þessum skrif- um? Ég hef óneitanlega haft töluverðar tekj- ur af þessum bókum en peningamir hafa aldrei verið aðalatriðið í mínum augum í sambandi við skriftimar. Mér fínnst meira um vert að bækumar mínar séu lesnar, fyrst að ég hef eytt öllum mínum frístund- um í þetta um æfina. Það hefur því glatt mig mikið að bækur sem ég skrifaði fyrir 40 - 50 áram era lesnar mikið ennþá, og tel mig ekki hafa til einskis barist. Börnin kunna jafn vel að meta þessar bækur og áður og virðist bókasmekkur þeirra lítið breyst mikið þó aldarandinn sé allur annar en var fyrir hálfri öld. - Er einhver sérstakur boðskapur í bamabókunum þínum? Ég hef alltaf forðast predikanir en hins vegar hef ég jafnan látið það góða fara með sigur af hólmi. Kannski verður það lesendum ósjálfrátt til eftirbreyttni og er þá vel. Ég held að lesefni krakka geti haft mótandi áhrif á þau og þess vegna sé ekki sama hvernig bamabækur era skrif- aðar. í þessu allsnægtaþjóðfélagi þurfa foreldrar að gera sér Ijóst að bömin þurfa meira en mat og fatnað - það er fyrst og fremst hið innra líf sem gerir fólk ham- ingjusamt, það getur verið óþijótandi uppspretta gleði og ánægju. Ég vona að bækur mínar hafi hjálpað lesendum mínum til að gera líf sitt fyllra og ánægjulegra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.