Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 11
C 11 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 Hluti hinna nýju íslensku skylmingamanna ... næstmest stundaða greinin, það er stunguíþrótt þar sem allur líkaminn er markið. Þriðrja stigið heitir „sabre", en þá eru notuð höggsverð og bæði notuð högg og stungur ofan mittis. Allar greinamar ganga út á að koma lagi á andstæðingin fimm sinnum og þegar það er búið er sigur í höfn. Það eru tímamörk í hverri keppni og ef fimm stungum er ekki náð þegar leik er lokið, sigr- ar sá sem oftast hefur stungið andstæðinginn. Rofinn í enda sverðsins kemur við sögu í ríkum mæli, því án hans væri ómögulegt að dæma í skylm- ingum. Keppendur eru í vírvestum Sonja Diðriksson skylmingakennari t.v. og Sigurður I. Bjömsson form aður Hins íslenska skylmingafólags. Sigurður sýnir nokkrum nemendum taktana með tilþrifum fer fram ár hvert, eins og um alla Evrópu, mikill §öldi móta þar sem minni klúbbar eigast við. Það væri áreiðanlega hægt að fá þátttöku- rétt í einhveiju slíku móti.“ Það er kannski tími til að lýsa íþróttagreininni eitthvað? „Fyrst er þess að geta, að „sverð- ið“ á lítið skylt við raunveruleg sverð sem notuð eru til mannvíga. íþróttasverðin eru einungis þunn blöð, sveigjanleg með gúmmíkúlu á endanum. I endanum er straumrofi sem fer með mikilsvert hlutverk í skylmingaríþróttinni. Og þá er best að ég lýsi þessu skipulega: Þetta er þrískipt íþróttagrein. Sú sem mest er stunduð heitir „foil“. Þessi grein gengur út á að stinga í efri hluta búksins. „Epee“ heitir og þegar rofinn í sverðinu nemur við vestið, lokast straumrás og þannig vita keppendur og dómari þegar stig er skorað." Er þetta ekki hættuleg íþrótt? „Slys hafa orðið í skylmingum, en þau heyra til algerra undantekn- inga, enda er þetta ekki íþrótt sem stofnar beinum, liðamótum eða vöðvum í hættu. Þá eru keppendur vel varðir og því fráleitt að þeir skaðist af sverðunum." Þetta eru þá allt aðrar skyhn- ingar heldur en til dæmis eru stundaðar i Þýskalandi þar sem ótrúlegustu menn eru með ör í andliti? „Það er allt annað fyrirbæri. Þær skylmingar eru aðallega stundaðar í lejmilegum stúdentafélögum og beitt er flugbeittum sverðum. Þessi keppni gengur út á að skera andlit andstæðingsins og fær hver kepp- andi 5 högg, en menn standa við afmarkaða línu. Keppendur eru með leðurgrímur sem verja augu og eyru, en að öðru leyti er andlitið nakið. Það er læknir á staðnum til að gera að meiðslum ef menn kæra sig um. Menn fá þvi ráðið hvort þeir vilja örin sem stofnað er til. Allir alvöru Þjóðveijar eru að minnsta kosti með eitt ör í andlit- inu, þ.á m. Helmut Kohl svo einhver sé nefndur. Nei, þetta fyrir- bæri er eitthvert afsprengi skylm- inga sem á ekkert skylt við íþróttina." Að lokum, hvaða framtíð held- ur þú að skylmingar eigi á íslandi? „Það er alltaf erfitt að koma nýrri grein að þar sem margar eru rótgrónar 'fyrir. Við vorum hins vegar afar ánægð með viðtökumar sem fyrrgreind auglýsing fékk og teljum við ef vel tekst til að halda mannskapnum saman næstu mán- uði þá séum við að minnsta kosti komin með efnivið til að byggja á. En þetta er í raun allt saman á frumstigi hjá okkur og ekki hægt að segja annað en að við vonum það besta og erum hóflega bjartsýn. Sonja sýnir upphitunaræfingu. Morgunblaðið/RAX - «« Suðurnes: Ritstjóra- skipti á vikublaðinu Reykjanesi Grindavík. RITSTJÓRASKITPI verða nú á næstunni við vikublaðið Reykja- nes, sem gefið er út í Keflavík af sjálfstæðismönnum á Suður- nesjum. Asmundur Einarsson, sem gengt hefur starfinu frá því í febrúar sl. hefur látið af störfum. „Til að byija með mun Halldór Leví Bjömsson ritstýra blaðinu þar til gengið hefur frá ráðningu framtíðarritstjóra," sagði Ragnar Öm Pétursson, form- aður útgáfustjómar, í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins og bætti því við að útgáfustjómin kæmi saman nú um helgina til að ganga frá ráðningu nýs ritstjóra. „Miklar breytingar eru fyrirhugað- ar á blaðinu í kjölfarið. Með nýjum manni breytist útlitið og þá á einn- ig að fjölga síðum, breyta dreifíng- unni og athuga breyttan útgáfu- dag,“ sagði Ragnar. Kr.Ben. Mývatnssveit: Vörubifreið brann austan Námaskarðs VÖRUFLUTNINGABIFREIÐ af gerðinni Bedford, árgerð 1978, brann sl. miðvikudagskvöld aust- an við Námaskarð i Mývatns- sveit. Talið er að um rafmagns- bilun hafi verið um að ræða. Ökumaður hafði verið að flytja hey frá Akureyri austur að Grímsstöðum á Fjöllum og var hann á heimleið er óhappið varð. Hann var búinn að aka u.þ.b. 25 km leið frá Grímsstöðum þegar upp kom eldur undir mælaborðinu og varð bíllinn alelda á svipstundu. Engin umferð var þarna þegar óhappið varð og þurfti ökumaður að ganga um 10 km leið í Kísiliðjuna til að gera viðvart. Bíllinn brann hinsveg- ar á augabragði og ekkert fékkst við ráðið, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík. Áhugahópur um bygg- ingu náttúrufræðihúss: Sýning í anddyri Háskóla- bíós SÝNING á lifandi fjörudýrum og fjöruplöntum verður í and- dyri Háskólabíós í dag, sunnu- dag, frá kl. 16.00-19.00. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis, segir í frétt frá áhuga- hópnum, sem stendur að sýning- unni. Hrefna Siguijónsdóttir líffræð- ingur verður „safnvörður" sýning- arinnar. Henni til aðstoðar er Jörundur Svavarsson og Erlingur Hauksson. Sýning þessi er sett upp í tilefni af nýútgefinni handbók um fjörulífverur. Bókin heitir „Fjörulíf og er eftir líffræðingana Agnar Ingólfsson, Hrafn Siguijónsson og Karl Gunnarsson. Eggert Pétursson teiknaði myndir í bókina. Bókin sem er í handhægri kilju verður kynnt á staðnum. í bókinni eru teikningar með ábendingum um ákveðin einkenni 143 algengra fjörudýra og fjöruplantna. Jafnhliða sýningunni verða sýnd- ar skuggamyndir af lífinu í fjörunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.