Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.11.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 C 19 Chanel fer hér „ný-klassíska“ leið með pilsaþyt. Ber er hver aðbakí lutverk tískufatnaðar er að gera eigandann meira aðlaðandi, sérstaklega í augum gagnstæða kynsins. Lengi vel hefur það þótt snjallt að hafa kvenkjóla flegna til þess að gera barminn augljósari, en nú kann svo að fara að sú regla reynist ekki lengur örugg. Nýjasta nýtt er að sýna bakið og fatahönnuður um allan heim keppast nú við að upplýsa bakhlið- ina á konunni. „Barmurinn er fyrirbæri frá sjötta áratugnum", segir Marc Boham, hjá Dior. „Nú er það afturhliðin, sem fær að njóta sín.“ Fatahönnuðurinn franski, Louis Feraud spyr: „Hversvegna ættum við að sýna bakhlið muster- is minni virðingu en framhlið?" Og hversvegna? Christian La- croix, hjá Patou-tískuhúsinu, gekk skrefi lengra í vor þegar hann kynnti alls kyns slaufur og skraut annað til þess að bera á afturhlut- anum. Menn áttuðu sig á því að jafnmikilvægt var að fara og að koma. Flestir hönnuðir telja að ekki hafi verið nóg fyrir bakið gert. „Það er ekkert meira kynæsandi en kjóll, sem hylur ffamhlutann algerlega en skilur bakhlutann eftir óvarinn", segir Bob Mackie. Hins vegar er hætt við að sumir karlmenn hafi þó eitthvað við þessa tísku að athuga, þar sem að nú þurfa þeir að beina sjónum sínum annað. Karl K. Berndsen ásamt sýningarstúlku með hárgreiðsluna. V erðlaunahárgr eiðsla Fyrir nokkru efndi tímaritið Hárogfegurð til keppni meðal hár- greiðslumeistara um glæsilegustu hárgreiðsluna á forsíðu tímaritsins. Sigurvegari var Karl K. Bemdsen og hlaut hann að verðlaunum ferð til Lundúna á World Hairdress Congress, sem er ein umfangsmesta hárgreiðslusýning veraldar. Mikil er snilli mannanna! Þessir stæðilegu Stórdanir eru óneitanlega reisnarlegir þar sem þeir gægjast yfir garðhlið eigenda sinna í Richmond í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum. Ox, til vinstri er með torkennilegan eymabúnað, en þetta em umbúðir eftir aðgerð, sem gerð var á Ox, svo eyru hans standi upp- rétt eins og á tvíburabróður hans Antemusi. Þetta em hvolpar, ekki nema 10 mánaða gamlir, en samt á stærð við meðalkálfa. COSPER — Er þetta heimatilbúið rauðvín? Ég hélt að þetta værí heima- bruggað hvítöl. ÚRVALS vörur ÚRVALS verð SALERNI. Við bjóðum þér vönduð salerni af ýmsum gerðum. Ásamt ýmsum áhöidum á baðherbergið. Sérlega hagstætt verð. BAÐMOTTUR. Mikið úrval af baðmottum og ýmsum gerðum af bað- hengjum. Svo og öðrum smáhlutum á baðherberg- ið. STÁLVASKAR? Vandaðir stálvaskar í ýms- um stærðum og gerðum. í GUFUBÖÐ. Bjóðum nú gufu og sauna- böð, er henta hvaða heimili sem er. Allt í einum pakka. BLÖNDUNARTÆKI. Ótrúlegt úrval af blöndun- artækjum. Stílhrein/faileg. STURTUKLEFAR. t Sturtuklefar er ganga hvar sem er. Af öllum stærðum og gerðum. LÍTIÐ VIÐ - VANDIÐ VALIÐ. VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966 mrdas

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.