Morgunblaðið - 16.11.1986, Page 26
26 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986
IP fiEIMI rVirMyNDANN
og nýjasti
Svo Timothy Dalton, næstum
óþekktur breskur leikari, er nýjasti
Jarnes Bond-inn. Eftir margra mán-
aða þras og vangaveltur verður
hann stjarna nýjustu James Bond-
myndarinnar, The Living Daylights,
sem í leiðinni er sérstök afmæ'lis-
útgáfa því Albert Broccoli ætlar
að halda uppá 25 ára afmæli
Bond-myndanna með henni.
Margir aðrir en Dalton komu til
greina í hlutverk meistaranjósnara
bresku krúnunnar en það voru
ekki allir sem yfirhöfuð vildu leyfi
til að drepa. Ástralirnir tveir, Mel
Gibson og Bryan Brown, vildu að-
eins gera eina Bond-mynd og
hætta svo. Broccoli gat ekki samið
við slíka menn. Nýsjálendingurinn
David Warbeck (sem næstum þvi
fékk hlutverkið þegar Roger Moore
varð fyrir valinu) kom einnig til
greina ásamt Michael Praed. Og
svo var það auövitað Pierce Brosn-
an úr bandarísku sjónvarpsþáttun-
um Remington Steel. MGM-toppar
þinguðu í 11 stundir um hvort þeir
ættu að gefa Brosnan frí frá sjón-
varpsþáttunum en niðurstaðan
varð sú að hann varð nauöbeygður
til að gera sex nýja þætti einmitt
á því tímabili sem tökur Bond-
myndarinnar eiga að standa yfir.
Og loks var það Timothy Dalton.
Ólíkt Brosnan var hann á lausu.
Hann hafði nýlokið við að gera
mynd með Brooke Shields og ætl-
aði að gera aðra með Isabellu
Rosselini, en það varð að bíða.
Bond var fyrir hann.
En hver er þessi nýi Bond? Sean
Connery var skoskur. Roger
Moore enskur. Dalton er velskur,
fæddur í Colwyn Bay. Hann er 42
ára og því 10 árum eldri en þegar
Sean Connery byrjaði að leika
Bond í Dr. No, en yngri en Moore
þegar hann byrjaði. George Lazen-
by var yngsti Bond-inn. Hann var
þrítugur þegar hann lék í í þjón-
ustu hennar hátignar. Dalton kom
fyrst fram opinberlega árið 1964
og lék framan af í leikhúsum. Hann
færði sig hægt og rólega yfir í sjón-
varpsmyndir og svo komu bíó-
myndirnar. Sú fyrsta var The Lion
in Winter. Nýlegri myndir eru The
Doctor and the Devils með Jonath-
an Pryce og sjónvarpsþættirnir
Chanel Solitaire svo ekki sé minnst
á Mistral’s Daughter, sem sýndir
eru í ríkissjónvarpinu um þessar
mundir undir heitinu Dóttir málar-
ans.
Þar sem nýjar Bond-myndir
vekja alltaf athygli má Dalton bú-
ast við að fá um sig mikla umfjöllun
í blöðum. Eftir að hafa verið tiltölu-
lega óþekktur, hellist nú yfir hann
frægð og frami og búast má við
að almenningur verði að springa
úr forvitni um þennan nýja Bond.
En hann gerir sér annt um einkalíf
sitt og reynir að verja það af kost-
gæfni. Samband hans og Vanessu
Redgrave, sem hann lék með í
Mary, Queen of Scots og Agatha,
er enn t.d. hulið leyndardómi.
Timothy
Dalton
hlakkar
til að fást
við hlutverk
James
Bond
Sean Connery
I___________
Roger Moore
„Mér hefur alltaf fundist gaman
að heyra um stórstjörnurnar og
hitta þær og vinna með þeirn,"
segir Dalton, „en svo hugsa ég
hvað það sé hræðilegt að þær
skuli ekki eiga sér neitt einkalíf,
að hvert samband þeirra sé skoð-
að ofan í kjölinn og blásið upp úr
öllu valdi. Sjálfur hef ég leyst þetta
mál með því einfaldlega að tala
ekki um einkalíf mitt. Eftir því sem
ég verð frægari verður þrýstingur-
inn á að ég geri það meiri, en
hingaö til hef ég sloppið vel.“
Dalton segist helst vilja leika
margar ólíkar rullur. „Ég yrði fljót-
lega leiður á að leika sömu týpuna
aftur og aftur," segir hann, en er
fljótur að sjá að sér. „Ég reyni að
koma með eitthvað nýtt í Bond-
hlutverkiö svo mér leiðist ekki.“
Hann hlakkar til að fást við hlut-
verk hetjunnar frægu. „Við frá
Wales viljum gjarna líta á okkur
sem hetjur," bætir hann við.
Nokkrar myndir
á Lundúnahátíð
Kvikmyndahátíð Lundúnaborgar
hófst fyrir nokkrum dögum og
stendur til 30. nóvember. Á hátíð-
inni verða sýndar 150 myndir
hvaðanæva úr heiminum svo ef
einhverjir héðan af íslandi verða í
London næstu daga ættu þeir að
reyna að skella sér í bíó.
Alls verða sýndar 30 myndir frá
þriðja heims löndum en að líkind-
um munu það verða hinar ensku-
mælandi myndir, sem hvað mesta
athygli eiga eftir að vekja. Eða þá
hinar blönduðu myndir eins og tii
dæmis franska gamanmyndin sem
japanski leikstjórinn Oshima
(Merry Christmas, Mr. Lawrence)
leikstýrir með Anthony Higgins og
Charlotte Rampling í aðalhlutverk-
um. Rampling leikur konu sem
ástfangin verður af simpansa, en
myndin heitir Max, Mon Amour.
Annar blendingi er fyrsta myndin
sem Bertrand Tavernier (Diva) ger-
ir í Ameríku, en hún heitir Um
miðnætti (Round Midnight) og er
um aldinn, svartan blúsleikara. Þá
á ítölsk gamanmynd sjálfsagt eftir
að að vekja athygli, en í henni leika
Mastroianni og Jack Lemmon
John Voight og JoBeth Williams f Desert
Bloom.
Oliver Reed og Amanda Donohoe í nýjustu mynd Nich
olas Roges, Castaway.
George Lazenby
Timothy Dalton
Úr Völundarhúslnu (Labyrinth), einni af myndum Lund
únahátfðarinnar.
Bond-inn