Morgunblaðið - 01.02.1987, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. FEBRÚAR 1987
Sovéskur verðlaunahafi
leikur með Sinfómunni
Merkasti fulltrúi kynslóðarinnar innan
fertugs, segirgagnrýnandi „ The Arts “
Frægur sovéskur
píanisti, Dmitri
Alexeev, er
væntanlegur til
Islands nú um
helgina og mun
leika einleik með
Sinfóníuhljómsveit
íslands x vikunni.
Alexeev, sem er fæddur
í Moskvu 1947, gat sér
frægðar og varð á
hvers manns vörum er
hann sigraði á árinu
1975 1 einni þekktustu
tónlistarkeppni í heimi fyrir
listamenn undir þrítugu,
Leeds-keppninni. Síðan heftir hann
hvarvetna hlotið frábæra dóma,
hvort sem er fyrir flutning sinn á
hljómplötum eða einleik með
þekktum hljómsveitum. Hefur hann
eignast ákafa aðdáendur, jafnvel
svo að frá London hefur verið
pantaður miði á tónleika hans með
Sinfóníuhljómsveit Islands. Það
mun vera einsdæmi að menn sæki
tónleika um svo langan veg.
Dmitri Alexeev á langan og
glæstan tónlistarferil að baki þótt
ekki hafi hann náð fertugu. Fimm
ára gamall bytjaði hann að leika á
píanó og hóf nám í Tónlistarskóla
Moskvuborgar sex ára gamall, þar
sem tónlistarhæfileikar hans þrosk-
uðust mjög hratt. Eftir að skóla-
göngu lauk varð hann nemandi hins
virta píanóleikara Dmitri Bashkirov
og útskrifaðist úr framhaldsnámi
1973. Samtímis tók Alexeev þátt í
nokkrum alþjóðlegum samkeppn-
um, þar sem hann hlaut jafnan
fyrstu verðlaun. Má þar nefna
Margueritu-Long-samkeppnina í
París 1969, George-Enescu-sam-
keppnina í Búkarest 1970 og
Alþjóðlegu Tjækovsky-samkeppn-
ina í Moskvu 1974. I september-
mánuði árið eftir sigraði hann svo
í alþjóðlegu píanósamkeppninni í
Leeds á Englandi, fyrstur Sovét-
manna og sá eini sem það hefur
gert. Hún er haldin á þriggja ára
fresti, er mjög viðamikil og verður
næst í september í ár.
Hlómleikferðir í
Evrópu og Ameríku
Síðan hefur Dmitri Alexeev leik-
ið á hundruðum tónleika í Bretlandi
og er gífurlega vinsæll þar. M.a.
hefur hann leikið einleik með Lund-
únahljómsveitunum fjórum, flestum
sinfóníuhljómsveitum úti á landi,
hjá meiri háttar tónlistarfélögum
og á tónlistarhátíðunum í Alde-
burgh og Edinborg. Þá leikur hann
reglulega með öllum helstu hljóm-
sveitum Sovétríkjanna, m.a. með
sinfóníuhljómsveitunum í Moskvu
og Leningrad og hefur farið tón-
leikaferðir um Norðurlönd, Japan
og flest Vestur-Evrópulöndin og þá
leikið í stórborgunum París, Múnc-
hen, Vínarborg, Brussel og Amst-
erdam. Á árinu 1983 fór hann til
dæmis í mikla Evrópureisu með
sópransöngkonunni Barböru
Hendricks með tónleikum í London,
Stokkhólmi og Frankfurt. Til
Bandaríkjanna fór hann fyrst 1976
og lék einleik með Chicago-sin-
fóníuhljómsveitinni og tveimur
árum síðar hélt hann tónleika í
Carnegie Hall í New York.
Á öllum þessum stöðum hefur
hann fengið frábæra dóma fyrir
ieik sinn og túlkun á þeim verkum
sem hann flytur. Dominic Gill orð-
aði það m.a. svo í Financial Times
að flutningur hans á píanókonsert
Griegs hefði einkum vakið aðdáun
fyrir kraft og vald píanóleikarans á
verkefninu en einkum þó frumleika
í flutningi. Ekki hefðu áheyrendur
endilega þurft að vera honum í einu
og öllu sammála um túlkun eða
jafnvel líkað hver einasta nóta, til
þess að flutningur hans reyndist
þeim ómótstæðilegur. Sama er upp
á teningnum í umsögnum sem bor-
ist hafa hingað um flutning hans á
verkum Beethovens, Rachman-
inovs, Prokofievs og Ravels. Segir
Robert Henderson í „The Arts“ að
hann sé merkasti fulltrúi þeirrar
kynsloðar tónlistarmanna sem enn
sé innan fertúgs.
Stórverk á
hljómplötum
Dmitri Alexeev hefur leikið mörg
þekkt verk inn á hlómplötur. Hann
hefur t.d. leikið inn á tvær plötur
hjá EMI píanóverk Brahms og Pro-
kofievs og konserta Rachmaninovs,
og gefið út margar hljómplötur í
Sovétríkjunum. Auk þess hefur
hann leikið í sjónvarp BBC. 1983
lék hann fyrir EMI píanókonsert
Sjostakovits og flutti með Barböru
Hendricks negrasálma fyrjr EMI í
Frakklandi, en haustið 1984 skrif-
aði hann undir langtímasamning
við EMI um leik á völsum Chopins
inn á hlómplötur. Einnig hefur
píanóleikur hans á hljómplötum hlo-
tið svipað lof gagnrýnenda, skv.
úrklippum sem hingað hafa borist.
Undanfarin tvö ár hafa verið við-
burðarík á ferli Alexeevs. Þá lék
hann í fyrsta sinn með útvarps-
hljómsveitinni í Stuttgart, NDR í
Hamborg, Fílharmóníunni í Monte
Carlo, Kammerhljómsveit Zúrich-
borgar, Fílharmóníu BBC og
Konunglegu fílharmóníuhljómsveit-
inni, en í fyrra lék hann í fyrsta
sinn með Berlínarfílharmóníunni og
Frönsku þjóðarhljómsveitinni.
Tilboð óskast
í Isuzu Trooper UBS522 Turbo diesel 4x4 dls. árgerð 1986, ekinn 10 þús.
km, ásamt öðrum bifreiðum er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudag-
inn 3. febrúar kl. 12.—15. Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
unuF-f
oiMni öor\no
Glæsibæ, sími 82922.