Morgunblaðið - 08.02.1987, Page 26

Morgunblaðið - 08.02.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 Svipmynd á sunnudegi/Oskar Lafontaine Væntanlegur leiðtogi v-þýzkra jafnaðarmanna RÁÐAMENN í flokki jafnaðarmanna í Vestur Þýzkalandi, SPD, verða nú að fara að gera upp hug sinn um það hvort ráðlegt sé að taka upp harðari vinstristefnu til að freista þess að ná til baka fylgi þeirra fjölmörgu kjósenda sem yfirgáfu flokkinn í kosningunum nú í janúar og gengu til liðs við flokk græningja. Ekki er gert ráð fyrir að Willy Brandt núverandi flokksformaður láti af því embætti fyrr an á næsta ári. En baráttan um flokks- forustuna en þegar hafin, og virðist Oskar Lafontaine forsætisráð- herra héraðsstjórnarinnar í Saarlandi nú einna líklegastur arftaki Brandts. Oskar Lafontaine Þótt skiptar skoðanir hafi ríkt innan SPD um það hvort flokkn- um beri að halda áfram að sækjast eftir fylgi kjósenda við einskonar miðflokkastefnu eða hvort taka beri upp ákveðnari vinstri stefnu, tókst að ná góðri samstöðu jafn- aðarmanna um kanslaraefni flokksins í kosningunum 25. jan- úar, Johannes Rau, sem er miðjumaður. En úrslit kosning- anna urðu þau að ríkisstjóm mið- og hægri flokka undir forustu Helmuts Kohls kanslara hélt velli. Þar sem nú eru framundan ijögur ár til viðbótar á bekkjum stjómarandstöðunnar á þingi em jafnaðarmenn famir að velta fyrir sér þeirri erfíðu spumingu hvort ekki sé rétt að stefna meira til vinstri og reyna að ná einhvers- konar samkomulagi um samvinnu við umhverfisvemdarmenn í flokki græningja. Það er sú stefna sem Oskar Lafontaine vil taka upp. I kosningunum í janúar hlutu jafnaðarmenn 37% atkvæða, sem er litlu minna en í kosningunum 1983. En í þeirri hlutfallstölu kemur ekki fram að flokkurinn tapaði um 650.000 atkvæðum til græningja, sem fengu alls 8,3%. Stjómmálafræðingar telja að margir þeirra sem sögðu nú skilið við SPD hafi verið yngri kjósend- ur sem voru fylgjandi kröfum græningja um strangar aðgerðir í umhverfismálum og tafarlausa lokun kjamorkuvera landsins. Lafontaine hefur enn ekki formlega tilkynnt framboð sitt til embættis flokksformanns, en hann er talinn líklegastur til sig- urs þar sem enginn gagnfram- bjóðandi er í sjónmáli úr hægri armi flokksins. Þegar kosningaúrslitin voru ljós lýsti Johannes Rau því yfir að hann yrði ekki í framboði við næsta formannskjör, og er þá aðeins um einn hugsanlegan frambjóðanda að ræða úr röðum hægfara jafnaðarmanna, Hans- Joehen Vogel formann þing- flokksins. Vogel, sem er lögfræðingur frá Miinchen, var kanslaraefni flokksins við þing- kosningarnar 1983 þegar sam- steypustjórn kristilegra- og fijálsra demókrata fór með sigur af hólmi. Hann hefur til þessa ekkert látið uppi um það hvort hann hyggst gefa kost á sér við næsta formannskjör og segir að ákvörðun um það megi bíða til næsta árs. Lafontaine hefur hinsvegar gefið í skyn að hann væri reiðubú- inn að taka að sér embættið og sagði jafnframt að flokkurinn ætti ekki að útiloka „rauð-græna“ stjómarsamvinnu. Fari Lafonta- ine með sigur af hólmi við formannskjörið á næsta ári, tákn- ar það verulega vinstri sveiflu í stefnu SPD. Lafontaine er eðlisfræðingur að mennt og varð landsþekktur í upphafi þessa áratugar er hann gerðist einn helzti andmælandi þess að bandarískum kjamorku- flaugum yrði komið fyrir í Vestur Þýzkalandi. Pólitískir andstæðingar hans hafa gefið honum viðumefnið “Ayatollah Saarlands", en La- fontaine varð forsætisráðherra iðnhéraðsins Saar fyrir tæpum tveimur ámm eftir að honum tókst að leiða SPD til sigurs þar í fyrsta sinn. Hann berst fyrir því að Vestur Þjóðveijar hætti aðild að sameig- inlegum hervömum NATO, og að tekin verði upp einskonar „um- hverfís-sósíalismi" er spomi við iðnvexti og leggi áherzlu á vemd- un umhverfisins. Hann er mál- snjall og hefur sagt að í raun sé sá sósíalismi sem hann fylgi eins- konar „íhaldsstefna". „íhaldsmenn eru skaðvaldur- inn, við draumóramennimir erum einu sönnu íhaldsmennirnir," sagði hann nýlega í viðtali. „Við viljum vemda heiminn." Sumir flokksmenn úr hægri armi SPD höfðu vonazt til þess að efnahagsvandi Saarlands, þar sem iðnaðurinn á í vök að veij- ast, hefði mildandi áhrif á stefnu Lafontaines. En þegar hann sagði eftir kosningamar í janúarlok að Rau hefði ekki átt að útiloka sam- vinnu við græningja, benti það til þess að verði Lafontaine kjörinn formaður flokksins muni hann beina SPD nær stefnu umhverfis- vemdarmanna og fjær miðju stjómmálanna, sem venjulega hafa ráðið úrslitum kosninga í Vestur Þýzkalandi. Græningjar hafa til þessa látið lítið yfir þessum yfirlýsingum Lafontaines. í janúarlok áttu helztu talsmenn græningja á þingi, þau Otto Schily og Antje Vollmer, fund með fréttamönnum. Tóku þau þar fram að SPD bæri fyrst og fremst að endurskoða eigin stefnu til að komast að því hvort flokkurinn eigi samleið með umhverfisvemdarmönnum sem vilji algjöra úrsögn úr NATO. Schily er leiðandi afl í þeim armi flokks græningja sem kennd- ur er við „realpolitik", eða hagsýnisstefnu, og vill að tekin verði upp einhverskonar samvinna við SPD, en sú stefna hefur vald- ið talsverðum ágreiningi í flokkn- um. Margir yngri flokksmenn halda því fram að öll samvinna við hefðbundinn stjómmálaflokk á borð við SPD geti skaðað græn- ingja. Antje Vollmer var tortryggin á ummæli Lafontaines og sagði að svo virtist sem hann vildi gera græningja „sögulega óþarfa". Og áður en lengra yrði haldið þyrfti hann fyrst að beita sér gegn hægri armi SPD, sagði hún. Stefna Lafontaines í umhverfis- málum tryggði honum ekki aðeins hreinan meirihluta á þingi Saar- lands, heldur er einnig talið að hún hafi laðað að flokknum fjölda ungmenna, sem ella hefðu kosið græningja. En flokkur græningja fékk innan við 3% atkvæða þegar kosið var í Saar og ekkert sæti á þingi Saarlands. Heimild: Reuter gluggar Við sérsmíðum glugga eftir þínum óskum. Hér eru aðeins smásýnisiiorn af gluggunum okkar. Við gerum föst verðtillDoð í alla sérsmíði. Vönduð íslensk framleiðsla. Góðir greiðsluskilmálar — Sendum í póstkröfu. AUK hf. 10.64/SlA TRESMIDJA BJÖRNS ÓLAFSSONAR hf. V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI, SlMAR: 54444, 54495 ÁRATUGA REYNSLAIGLUGGASMÍÐI SNYRTISTOFAN SXndlitsböd 0 US Jíandsnyrting SXuqnmeðferðir JíúMreinsun ‘Tótsnyrting 'Vax Jiiiun Malie-up /hótel esju ‘Tímapantanir í síma Við byggjum sumarhús Nú er rétti tíminn að panta hús fyrir sumarið. Afhendum húsin á því byggingarstigi sem kaupandi óskar Jóhannes H. Jóhannesson húsasmiður, Kaplahrauni 9, Hafnarfirði, sími 52815, heima 72539.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.