Morgunblaðið - 08.02.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 08.02.1987, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 60 Riley „Blues Boy“ King með Lucille. Albert King með Lucy í fanginu. Albert King — Riley „Blues Boy“ King Tveir blúskóngar Blús Árni Matthíasson Kóngamir í blúsnum eru taldir fjórir, Albert, B.B., Earl og Freddy, allir með eftirnafnið.King. Skyldleiki er enginn þeirra á milli, þó að stundum hafí plötuútgef- endur og umboðsmenn séð sér hag í að ýja að því. Ég ætla að láta mér nægja að ræða um tvo þeirra að sinni, tvo þá merkari (a.m.k. frægari), þá Albert og B.B. King. B.B. King Riley B. King, sem síðar fékk viðumefnið „Blues Boy“, eða bara B.B. sem flestir þekkja hann und- ir í dag, fædaÍSÍ í l&SSPPÍ 1925- Hann hóf snemma að leika á hljóð- færi. Að hans sögn urðu þáttaskil í afstöðu hans til gítarleiks þegar hann heyrði fyrst leikið á raf- magnsgítar um 1940, er hann heyrði í T-Bone Walker. Hann náði þegar vinsældum með fyrstu upptökum sínum, og varð eftirsóttur á tónleikum. Til gamans má geta þess að 1956 lék hann á 342 tónleikum. Það hefur líka loðað við hann að hans aðal em tónleikar og hans bestu plötur eru tónleikaplötur. Til eru frá- sagnir af fólki sem liðið hefur ýíír á tÚn'e’kum' svo 5elur t)a5 lifað sig inn í það sem fram ior. Sú hljómplata B.B. sem telja verður hans fremstu er Live at the Regal, sem tekin er upp 1964. Á henni er að finna lög sem marg- ir kannast við, lög eins og Every Day (I Have the Blues), How Blue Can You Get, You Upset Me Baby og Woke Up This Momin’. Hljóð- færaleikur er aliur fyrsta flokks, enda eru gítarleikarar í blúsnum yfirleitt bornir við B.B. til að meta þá. Það sem þó gerir plöt- una hvað merkilegasta er stemmningin sem glöggt má greina. Það fer nefnilega ekki á milli mála að B.B. á áheyrendur með húð og hári. Seint á síðasta ári gaf Charly út tvær af Blueswayplötum B.B., Live and Well og Completely Well. Á Live and Well er önnur plötu- hliðin tekin á tónleikum í New York 1969, en hin hliðin í hljóð- veri. Completely Well er aftur á móti öll tekin upp í hljóðveri. Þeir hjá Charlie hafa ákveðið að setja þessar tvær plötur saman í pakka og gefa þær út undir nafninu Completely Live and Well. Það er vel til fundið því þessar tvær plötur eiga einna mestan þátt í því að gera B.B. að þeirri stjömu sem hann er í Bandaríkjunum, og þar með að eina milljónungnum í blúsnum. Þetta er góður pakki þó hljóm- leikahliðin nái ekki upp í Live at the Regal, en þó er þar afbragðs útgáfa af My Mood. Hljóðversupptökumar eru aftur á móti með því besta sem heyrst hefur frá kappanum, enda með- spilaramir ekki af verri endanum. Þar sýnir hann hvað hægt er að gera innan ramma blúsins, t.d. í laginu The Thrill Is Gone, sem fór reyndar inn á topp tuttugu þeirra Bandaríkjamanna, og sam- spil hans og gítarleikarans Hugh McCracklin í laginu You’re Mean Albert King Albert King, f. 1923 í Miss- isippi, hefur löngum staðið í skugga B.B. King og af mörgum er hann talinn skuggi B.B. Kemur þar margt til, þar á meðal eflaust að hann hefur gefið sínum gitar gælunafnið Lucy, en frægt er ein- mitt að gítar B.B. ber heitið Lucille. Þekktastur er Albert fyrir tón- list þá er hann tók upp hjá Stax á árunum frá 1966 til þess að Stax fór á hausinn skömmu eftir 1970. Þar naut hann aðstoðar Booker T. Jones og sveitar hans, en Booker T. og The MGs voru einskonar húshljómsveit hjá Stax. Með þeirra aðstoð tók Albert upp mikið af efni, og þar á meðal sitt frægasta lag, Bom Under a Bad Sign, sem er reyndar samið af Booker T. Jones og William Bell. Mikið af því efni er svo endurút- gefið á Edsel plötunni Laundro- mat Blues. Þar er einnig að finna lög eins og I Love Lucy (þ.e. gítarinn), Laundromat Blues og Kansas City. Tónlistin er þéttur rokkaður blús, með áberandi góðum ein- leiksköflum Alberts. Eftir að Stax rúllaði yfir, fór Albert á samning hjá Tomato og á vegum þess fyrirtækis fór hann til New Orleans og tók upp efni undir stjórn hins fræga Allen Toussaint. Það efni er gefið út á plötunni New Orleans Heat. Allen setur sinn svip á tónlist- ina, hún hefur meira soul yfir- bragð og meira ber á bakröddum og homablæstri. Ekki er það þó til vansa, Albert skín í gegn og sýnir af sér meistaratakta á gítar- inn og í blúsuðum söng. Ef eitthvað þá hefur hann meira svigrúm til að sýna fæmi á gítar- inn, t.d. í laginu I Got the Blues og I Get Evil. Lögin á plötunni eru ýmíst “ÖIRU! eða samin fyrir þessa plötu. Á meðal laganna er ný útgáfa af Born Under a Bad Sign, og er gaman að bera saman útgáfurnar tvær, sem tíu ár em á milli, annars vegar af Laundro- mat Blues, og hins vegar af New Orleans Heat. Ferðasögur mínar hafa batnað til muna eftir að ég hóf að ferðast með SAS’ * Hannes Guðmundsson framkvæmdastjóri. g er einn af þeim sem ferðast mikið starfs míns vegna. Ég verð að geta treyst einum aðila fyrir ferðaáætlun minni. Ég vil ferðast þægilega og láta hlutina ganga snurðulaust fyrir sig. Hratt og örugglega. Þegar ég kem því við þá flýg ég með SAS flug- félaginu. Þjónusta SAS er frábær. Fyrir venju- legt fargjald flýg ég á Euro Class og nýt margs konar fyrirgreiðslu á jörðu niðri. Ég hef aðgang að Scanorama þjónustustöðvum á flugvellinum. Þar býðst mér fyrsta flokks hvíldaraðstaða og ég hef einnig aðgang að góðri skrifstofuaðstöðu þar sem ég get haldið litla og stóra fundi. SAS tryggir mér þægilegt ferðalag og styttir ferðalagið með þjón- ustu og fyrirgreiðslum á áfangastöðum, þannig að þegar öllu er á botninn hvolft er ódýrara að fljúga með SAS á Euro Class heldur en að reyna að brjótast í gegn- um fargjaldafrumskóginn á eigin spýtur“. Þú getur hagnast á því að vera SAS farþegi. Leitaðu upplýsinga um það hjá ferðaskrifstofunni þinni eða hjá SAS skrifstofunni. Efþú ferðast mikið starfs þíns vegna. MÍS4S Laugavegi 3 101 Reykjavík Símar 21199 og 22299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.