Morgunblaðið - 08.02.1987, Síða 36

Morgunblaðið - 08.02.1987, Síða 36
Tn<r» ry , ■''f-qnn '<rpT-/T--r. ^tr: > -rrry' r~<}. r 36 ______________________________________MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987 ítímaleik við gosbruuna Sæhestagosbrunnurinn Fasymi og Barbara á Páfuglastaðnum. í allri þessari sól Rhodos er gosbrunnar, gos- brunnar bernskunnar, sem eru furður hennar. Öll böm elska gos- brunna. Það rennur upp fyrir mér þegar ég kem til Rhodos. Gos- bmnnamir standa hvarvetna eins og vörður bernskuminninganna. Hver veit nema það sé sama vatnið sem pípir og seytlar úr þeim. Eg er ekki með það fullkomlega á hreinu hvernig gosbmnnar starfa. Það er sumt sem gleymist að spyija um. Rhodos er ávaxtalykt og blóð- lykt af markaðnum. Ég uppgötvaði að minningar em ekki aðeins slitr- óttar myndir en einnig lyktir. Lykt af gróðri, sól og sjó, sem birta myndir af landslagi í huganum. Myndir sem vom gleymdar fyrr en allt í einu þegar þú kemur á sama staðinn. Tuttugu ámm seinna. Og þá gerist allt í senn: Fortíðin líður í gegnum nútíðina og þú upplifir þig á tveim tímum í einu. Allt verð- ur eðlileg mótsögn. Þér verður enn Ijósara hvað hefur gerst þessi ár og þú leiðir hugann að því hvort það muni líða önnur tuttugu ár. Þó að þú efíst um það í allri þess- ari sól. Og á þessum dularfullu landamæmm gerirðu þér betur en ella grein fyrir því að framtíðin var einu sinni fortíð ... ísbjörn undir rúmi Fyrir tuttugu ámm lögðum við af stað: Jökull og Jóhanna, Ella Stína, Illugi og Hrafn. Til Grikk- lands þar sem fjölskyldan bjó í eitt ár. Það ár var ævintýri fyrir okkur krakkana. Það var árið 1966—7. En árið 1967 var konungsveldinu steypt af stóli, og herforingjastjóm tók völdin. Það vom fyrstu kynni okkar af alþjóðapólitík. Útgöngu- bann var sett í Aþenu: Sá sem væri á ferli eftir klukkan átta, yrði skotinn umsvifalaust. Eitt kvöldið fóm foreldrar okkar í kvöldgöngu og vom ókomin á tilsettum tíma. Þá vomm við sannfærð um að þau lægju skotin á ókunnu götuhomi. Við vomm meira að segja farin að velta því fyrir okkur, hvemig við kæmumst heim . . . Aður en við fómm til þess ófræga þorps, Diafani (sem varð að vísu eilíft með Dagbók frá Diafani), og síðan til Aþenu, vomm við fjórar vikur á Rhodos. Það er þess vegna sem þar er Hótel Victoria, þar sem fyrir tuttugu ámm lá ísbjöm undir rúmi á hótelherbergi; myrkfælnin gerði engan greinarmun á loftslags- breytingum. Fyrir framan hótelið standa tvö afkáraleg pálmatré sem minna á þmmur og eldingar. Fyrsta þmmu- veðrið í lífi mínu. Einhverra hluta vegna er gott að þau skuli vera þar. Ég held að sumum hafi þótt það full drama- tískt hér heima, að mig langaði svona mikið til Grikklands. Ekki aðeins sem venjulegur ferðamaður, en líka af því að ég var þar átta ára. Grikkir skildu það hins vegar og fannst ekkert eðlilegra. Þeim fannst það ægilega „sentimental“ og sögðu: „So you have come back, to see the memories." Það hefur þótt varhugavert stundum; minn- ingamar breytast í lögun, rétt eins og umhverfí þeirra og sá sem sæk- ist eftir þeim. Heimili sólgnðsins Rhodos, sem er ein mesta ferða- mannaparadís Grikklands, og ekki að ófyrirsynju, þýðir Rósaeyjan á íslensku, er fjórða stærsta eyjan í frægum eyjaklasa landsins. Aðeins Krít, Euboa, og Lesbos eru stærri. Rhodos hefur löngum verið kölluð Perla Tylftaeyjanna, vegna ein- stakrar gróðursældar og mildrar veðráttu. Rhodos er þekkt í grískri goðafræði sem heimili sólguðsins, Helios. Nærri má geta að sá guð hafi ekki valið sér nema sólríka forsælu. Til að geta verið guð. Þó Rhodos sé nú mest þekkt sem ferðamannastaður og eftirsótt sem slík, þá á eyjan sér gagnmerka sögu, eins og margir staðir á Grikk- landi. Telkínar, sem voru þekktir fyrir málmsmíði, settust þar að á 3. öld f.K. 1400 f.K. settust Krítveijar að í Lindos, Kameiros og Ialysos, en það eru allt merkileg- ar borgir. Góðæri á 6. og 7. öld f.K. leiddu til þess að Rhodos-búar stofuðu nýlendur vítt og breitt um Miðjarðarhaf og komu „sexborga- sambandinu" á laggimar. Höfuðborg Rhodos, Rhodos, var stofnuð 479 á norðausturströnd eyjunnar. Hippodamus frá Miletus átti hugmyndina og skyldi borgin byggð fyrir 100.000 manns. Þar var neðanjarðarvatnsveita og hol- ræsakerfi. Eftir það rann upp tími mikillar velsældar og höfnin í Rho- dos, sem er mjög sérstök, gegndi mikilvægu hlutverki. Höfnin er fal- lega hlaðin og styttur af dádýrum, turnar og myllur gefa henni svip. Hin fræga bronsstytta, Colossuss Rhodos, sem hefur verið nefnd eitt af sjö undrum veraldar, var reist 305 f.K. Styttan eyðilagðist í jarð- skjálfta aðeins áttatíu árum seinna og einnig stór hluti borgarinnar. Sagan segir að leifar styttunnar hafi verið seldar gyðingakaup- manni. Styttan er enn seld grimmt sem minjagripur. Og fyrst var ég alltaf að svipast um eftir þessari styttu. A annarri öld f.K. háðu Rhodos-búar hatramma baráttu við Rómveija um yfirráð hafnarinnar, og í kjölfar þess hertók Cassius, einnig þekktur sem morðingi Ceas- ars, borgina og flutti með sér margar dýrmætar styttur til Róm- ar. Frá þeim tíma gegndi Rhodos engu sérstöku efnahagshlutverki í ríkinu en var frægari fyrir skóla sína, sem lögðu mesta áherslu á lögfræði, heimspeki og höggmynda- list. Cicero, Cato, Pompey og Caesar voru meðal þeirra sem mældu götur borgarinnar. Gotar, Persar og Arabar fóru nokkrum sinnum ránshendi um borgina, 500 til 1000 e.k. Feneyingar fengu yfirráð yfir eyjunni 1002 og Genúa var gefínn sami réttur frá 1243. Þá var eyjan hertekin og hersetin af riddurum Sánkti Jóns-reglunnar, 1309, sem höfðu verið reknir frá Jerúsalem. Þeir gerðu bastillu í borginni, sem notuð var í stríðunum gegn múhameðstrúarmönnum. Eftir að krossfaramir vom neyddir til að yfirgefa eyjuna, var Rhodos undir stjóm tyrkneska keis- araveldisins, í 400 ár. Þangað til Italir hertóku Rhodos og fleiri ná- lægar eyjar 1912. Grikkir fengu eyjarnar aftur 1948. Eins og að líkum lætur býr eyjan fyrir merkum fornminjum, sem em vel þess virði að skoða. Gamla borgin stendur enn, umkringd háum virkisveggjum og í næsta nágrenni hennar em enn aðalhafnimar. Gamla borgin er nú um einn fjórði hluti borgarinnar. í draumkenndu hvít- kölkuðu umhverfi Rhodos er hungraðir kettir með Biafrabamaglampa í augum, sem sæta færis að næla sér í bita af borðum gesta á matsölustöðum. Enda er sagt að Grikkland séu kett- ir og Grikkir selja listræn póstkort og dagatöl með kattamyndum, en þar em kettimir ekki eins svangir, heldur yfírmáta stóískir, í draum: kenndu hvítköikuðu umhverfí. í haksýn er sjórinn. Blár. Það vom þessir sömu kettir sem áttu hug okkar krakkanna allan. Þegar við bjuggum í Aþenu þóttumst við vera eigendur þijátíu katta, sem höfðu tekið sér bólstað í garði gamla húss- ins í Faleron. Rhodos er gamla borgin og nýja borgin. Iðandi af túrisma, þannig að helst minnir á stóra fabrikku, þar sem sölu- mennskan ræður öllu. Allt er selt. Brosin líka. Því meira þjórfé sem þú gefur, því stærra bros færðu. Og þannig er að náttúmlega alls staðar. Þær þjóðir sem hafa túrisma að atvinnu, vita að ferðamennimir vilja bros. Bros og söng og sól og sjó. Og þó túrisminn sé við fyrstu sýn svolítið yfirþyrmandi, ferðu fljótlega að kunna vel við þig. Þeg- ar þú ert búin að læra leikreglumar, geturðu farið að taka þátt í sjónar- spilinu. Það er nauðsynlegt fyrir Norður-Evrópubúa að kynnast suð- rænum frændum sínum. Miðjarðar- hafsþjóðimar em þannig gerðar að fólkið lifir og hrærist meira utan dyra. Söngur og dans em sjálfsagð- ur hluti af daglegu lífí. Meira að segja táningamir kjósa frekar þjóð- lagatónlist en ameríska diskómúsík: „Við spilum hana bara fyrir túrist- ana á diskótekunum." Annar staðar en á diskótekunum taka ferðamenn yfirleitt grísku tónlistina fram yfír. Tónlistin færir þig nær Grikklandi. Í höfuðborginni, Rhodos, búa um 30 þúsund manns, mest Grikkir. En borgin hefur á sér alþjóðlegt yfírbragð. Þangað sækir fólk frá eyjunum í kring, býr þar í nokkur ár, vinnur á diskótekum og hótelum og safnar fé, en snýr svo jafnan til síns heima. Það em margir útlend- ingar, sem geta ekki hugsað sér að fara aftur heim, en setjast að, til lengri eða skemmri tíma. Sumir fá vinnu á svörtum markaði, þá á stöðugum flótta undan vökulu auga útlendingaeftirlitsins, ellegar vinn- ur heiðarlega vinnu eins og Bar- bara, sem kenndi þýsku, eflaust upprennandi túristafrömuðum. Hingað koma ferðamenn frá öllum heimshomum. Flestir frá Norður- löndunum, Englandi og Þýskalandi, og talsvert er um fólk frá Mið- Evrópu, Ítalíu og Ameríku, þó Gaddafi-hræðslan hafi helst skotið Amerikönum skelk í bringu, þetta ár. Þannig geturðu safnað ólíkustu heimilisföngum, því það er eins og fólk kynnist skjótar og oft nánar á ferðalögum. Elskendur á göngu og börn að leik Ég leigði mér herbergi á ódýru pensjónaði í gömlu borginni, Pensi- on Appollon, og var boðin velkomin aftur að ári. Það væri samt vissara fyrir mig að hringja áður. Þar voru samankomnir ferðamenn frá ólíkum löndum. Ég hitti enska stúlku, sem var nýkomin frá ísrael, sem ætlaði að vera viku á Rhodos, áður en hún færi til Júgóslavíu að hitta ástralsk- an kærasta sinn í einn dag, svo ætlaði hún til Noregs að vinna fyr- ir næstu ferð. Hún ferðaðist um með pjönkur sínar í bakpoka, með þykka útskrifaða dagbók og snjáð- an stóreflis tuskubangsa. Út um gluggann á herberginu mínu hafði ég útsýni yfír gömlu borgina. Efst tróndi Meistarakast- alinn, sem Mússólíni gerði að sínum, þegar ítalir sáu ástæðu til að her- taka Rhodos. Gamla borgin er heillandi. Það er eins og sé verið að gera þar kvikmynd um líf í kastalaborg. Þar sem áður krossfarar sánkti Jóns- reglunnar skiptust á riddarasögum og formæltu Múhameð í hverri skál, eru nú matsölustaðir, krár og lítil hótel. Einhver himinlifandi sagðist hafa fundið þar tyrkneskt bað. Þeg- ar maður gerði sér að leik að reika um forn hellulögð strætin og leyfa sér að villast um stundarsakir, þá var upplagt að ímynda sér að mað- ur væri komin sexhundruð ár, tólfhundruð eða tvöþúsund ár aftur í tímann. Umhverfíð er það sama, það lá við að kastalaveggimir önd- uðu frá sér gamla tímanum og hvísluðu að þér lítilli sögu, sem þeir myndu varðveita allan tímann. Sólin er hin sama. Eina sem þú þarft að gera þér í hugarlund, er fólkið, klæðaburður þess og atferli. Eða var atferlið nokkuð svo ólíkt; át og drykkja, verslun, prútt, smygl og dans. Elskendur á göngu og böm að leik. Og þar sem maður leyfði sér að vera í svona prívat- tímavélarleik, gekk maður hjá venjulegum grískum heimilum. Heitt í veðri og opið út. Alveg óvart sást hvar fjölskyldan var saman- komin í einu herbergi inn af dyrunum. Oft hamagangur í öskj- unni og verið að koma yngstu bömunum í háttinn og elda matinn. Samt voru allir að horfa á sjón- varpið. Á sínum stað sat hin ódauðlega gríska amma, rúnum ■■ I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.