Morgunblaðið - 08.02.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1987
41
Afmæliskveðja;
Björn Guðbrands-
son barnalæknir
Þegar ég var ung og pabbi varð
fimmtugur, 9. febrúar 1967, fannst
mér þetta voðalegur aldur. Hann
htyti að hafa lifað voðalega lengi.
En nú, þegar mig vantar ekki mjög
mikið upp á það, þá, nei, við skulum
ekki tala um það.
Þó hefur mikið vatn runnið til
sjávar síðan Friðfínnur Ólafsson,
Erlendur Sigmundsson og fleiri
kjamakarakterar fóru á kostum í
skemmtilegasta afmæli sem ég man
eftir. Sumir hafa kvatt þessa veröld
saddir lífdaga, en aðrir eru á meðal
vor án þess að láta deigan síga.
Það er eins og mörgum þeirra hafi.
tekist að leika á ungfrú klukku.
Þannig virðist því vera háttað
með afmælisbam dagsins. Hann
virðist oft hugsa og hreyfa sig á
hraða ljóssins, því stundum er erf-
itt fyrir venjulegt fólk að fylgja
honum eftir er hann færir sig úr
einni víddinni í aðra, rétt á meðan
aðriur basla við næstu hugsun á
eftir hinni er síðast var talað um.
Þannig sver hann sig oft í ætt
við vini sína, fugla himins, sem
berast langar leiðir um himinhvolfin
rétt á meðan við hin snúum höfðinu.
Það má koma ýmsu í verk á tutt-
ugu og fimm þúsund fimm hundruð
sextíu og sjö dögum. Enda hefur
hann nýtt tímann vel eins og sjá
má í nýlegu viðtali í Helgarpóstin-
um. Sá ferill lýsir margslunginni
reynslu, þó miklu af lífshlaupinu sé
sleppt.
Sú grein undirstrikar sameigin-
lega eiginleika hans og fuglanna,
sem hann á sínum tíma átti frum-
kvæði að stoftiun að félagi um —
Fuglavemdunarfélag íslands.
Eðlið að þurfa stöðugt að víkka
sjóndeildarhringinn. Honum er jafti
eðlilegt að setjast upp í farartæki
og láta berast á nýjar slóðir og
farfuglunum sem fljúga milli heims-
álfa eftir árstíðum.
Þeim fækkar óðum löndunum
sem hann hefur ekki komið til til
að drekka í sig nýja strauma. Mér
segir svo hugur að enn eigi þeim
eftir að fækka og hann eigi eftir
að kanna fleiri lönd og fjarlægar
slóðir.
Þannig er Bjöm Guðbrandsson
og hans eðli. Þannig man ég eftir
mörgum samverustundum, þegar
hann um hvítasunnu pakkaði fögg-
um sínum og okkar systra í bílinn
og hélt á vit æskustöðva, í Skaga-
Qörðinn. Söng, „Skartar mörgu
Skagafjörður" og splæsti á okkur
dömumar. Sem hann sagðist alltaf
gera fyrir dömur. Það var ekkert
verið að slóra á leiðinni. En stundum
átti hann til að stöðva bílinn, jafti-
vel á miðri Holtavörðuheiði og segja
„fugl". Við systumar, blindar á
fugla, litum í kring um okkur og
sáum engan. Hann tók upp sjónauk-
ann og brá fyrir auga. Jú, mikið
rétt þama langt uppi á heiði í mörg
hundmð metra fjarlægð var „fugl“
himbrimi, lómur eða einhver önnur
tegund. Það er eins og hann sé
ALLARÁL-
OG STÁLVÖRUR
SKIPAPLOTUR,
sandblásnarog grunnaðar
frá4-20m/m.
Til afgreiðslu í Reykjavík.
ISVOR
Smiöshöföa 6.110 Reykjavík.
P.O.Box 10201. S: 685955.
stilltur inn á bylgjusvið fugla. Aldr-
ei gat ég skilið hvemig hann vissi
um þessa fugla.
I Hóladómkirkju sátum við síðan
langa, hátíðlega fermingu. Látið var
inn til ættingja, en þess gætt að
sóa ekki tíma bænda. Veitingar
vom aðeins þáðar í kofanum við
Héraðsvötnin, þar sem Þorsteinn
föðurbróðir hans gætti hliðs sauð-
fjárveikivama. Margrét kona hans
galdraði veislu upp úr kistu og
kræsinga var notið við glampa frá
olíulampa.
Þannig er honum farið eins og
fuglinum sem alltaf leitar heim
þangað sem hreiðrið hans var, þó
hann fljúgi vítt um heim. Og líkt
þessum vemm, sem sjá veröldina
úr annarri vídd, upphefja þyngdar-
lögmálið og sriúa á aðdráttarafl
jarðar í sínu sérhannaða gervi, er
eins og hann búi yfir eiginleikum
til að sjá úr annarri vídd hvað hrær-
ist með náunganum og hvemig
honum líði.
í blíðu og stríðu bemskuára fann
ég að hann stóð með mér þó fátt
væri sagt.
Sagt er að sannur heimsborgari
sé sá sem falli inn í hvaða um-
hverfi sem er, hvort sem er í
afdölum fjalla eða hringiðu stór-
borga.
Þannig birtist hann mér. Og eins
og hinir vængjuðu vinir hans, sem
aldrei dvelja lengi á sama punkti
nema eitthvað mjög áhugavert sé
á boðstólum, hefur maður aldrei
athygli hans nema stutta stund í
einu nema ef um hans hjartans eða
andans málefni sé að ræða.
Ef ekkert kallar er hann óðum
floginn á vit tónlistargyðjunnar.
Það hljóta að vera þessir andans
flughæfileikar sem hafa gert hon-
um fært að snúa á ungfrú klukku.
Matthildur Björnsdóttir
AFBURDA XÆKNI SEM SPARAR
ÞÉR TÍMA, FÉ OG FYRIRHÖFN
Undanlarin ár hafa VICTOR tölvumar skapað sér virðingarsess
á íslenskum markaði. Þær eru hraðvirkar, öruggar og tæknilega
fullkomnar. Reynslan hefur sýnt að þær em vandaðar, sterk-
byggðar og hala lága bilanatíðni.
Mikið framboð er af tölvum á markaðinum sem virðast líkar við
fyrstu sýn. Gjarnan eru gylliboð auglýst sem auðvelt er að láta
ginnast af. Við ráðleggjum viðskiptavinum að kynna sér vandlega
VICTOR VPC II
hvað á boðstólum er, til að kaupa ekki köttinn í sekknum.
Reynslan sýnir að ódýmstu tölvumar em yfirleitt ekki ódýrastar
þegar upp er staðið.
Einar J. Skúlason er gamalgróið fyrirtæki sem starfað hefur í
hartnær hálfa öld. Fyrirtækið hefur á að skipa reyndu og vel
menntuðu starfsfófki, sem kappkostar að veita viðskiptavinum
trausta og góða þjónustu.
VICTOR V286
Síðastliðið vor kom á markað-
inn ný og endurbætt tegund
einmenningstölva frá Victor,
VPC II. Fyrirtæki, skólar og
einstaklingar tóku Victor VPC
II opnum örmum og hafa á
þessum stutta tíma u.þ.b. 500
tölvur verið teknar í notkun
hérlendis. Victor VPC II ein-
menningstölvan er mjög vel
útbúin, hún hefur vinnsluminni
í fullri stærð, þ.e. 640 kb, og er
hraðvirkari. Victor VPC II er
IBM PC samhæfð, sem þýðir að
úrval staðlaðra forrita er
mikið.
Hún er með tveimur lágum
disklingadrifum, 14" skjá, graf-
ísku skjákorti, raunverulegum
16 bita örgjörva (Intel 8086,
sem gerir vélina hraðvirkari),
MS-DOS 3.1. stýrikerfi, GW-
BASIC, 3 vönduðum handbók-
um, endurstillingarhnappi og
innbyggðum rað- og hliðar-
tengjum. Victor VPC II tekur
lítið pláss á skrifstofunni en er
gffurlega öflug.
Victor V286 er öflug einkatölva
með mikið geymslurými. For-
senda þess er 16 bita örgjörvi
af gerðinni Intel 80286 og
Winchester diskur sem er ým-
ist 20 eða 40 MB. intel 80286
hefur tiftíðnina 6 eða 8 MHz
sem gerir Victor V286 jafn af-
kastamikla og raun ber vitni.
Victor V286 er búin endurstill-
ingarhnappi til að tryggja ör-
yggi gagna á diskum. Victor
V286 hentar mjög vel sem
móðurtölva í tölvuneti. I Victor
V286 er það innbyggt sem í
öðrum tölvum telst aukabún-
aður. Victor V286 hentar vel
þar sem gögn eru fyrirferðar-
mikil. Val á Victor V286, af-
burðatölvu, leiðir til aukinna
afkasta og hagkvæmni á skrif-
stofunni.
Hringið eða komið á Grensásveg 10 og við veitum góðfúslega allar nánari upplýsingar.
VICTOR
Einar J. Skúlason hf.
Grensásvegi 10, sími 68-69-33
augljós