Morgunblaðið - 01.03.1987, Qupperneq 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
50. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eldur í hjólhýsi:
Móðir og
átta börn
biðu bana
Bourges, AP.
KONA og átta börn hennar biðu
bana þegar kviknaði í hjólhýsi
þeirra árla i gær. Mun hafa kvikn-
að í gluggatjöldum út frá kerta-
loga og varð hjólhýsið alelda á
augabragði.
Atvikið átti sér stað við þorpið
Concressault, sem er 60 km norður
af borginni Bourges í Mið-Frakk-
landi. Konan, sem hét Catherine
Miiller, var 36 ára gömul og börnin
átta á aldrinum eins til 11 ára.
Heimilisfaðirinn, Mario Muller,
var sofandi ásamt fjögurra ára syni
þeirra hjóna, í öðru hjólhýsi, sem
stóð við hliðina á því sem brann.
Vaknaði hann við bninann en tókst
aðeins að bjarga einu barni, átta ára
gamatli telpu, úr eldhafinu.
Israel;
Peres samdi
án umboðs
stjómarmnar
Tel Aviv, Reuter.
BÚIST er við hörðum deilum á
fundi ríkisstjórnar ísraels i dag
vegna samkomulags Peresar ut-
anríkisráðherra landsins og
Hosnis Mubarak, forseta Egypta-
lands, um alþjóðlega ráðstefnu á
þessu ári til að fjalla um ágrein-
ingsmál araba og Israelsmanna í
Miðausturlöndum.
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
Ísraels, hefur lýst yfir andstöðu við
slíka ráðstefnu og sagt að utanríkis-
ráðherrann hafi ekki haft umboð
ríkisstjórnarinnar til að gera þetta
samkomulag. Ríkisstjórn Verka-
mannaflokksins og Likud-banda-
lagsins hefur setið að völdum í 29
mánuði og hefur gengið á ýmsu í
stjórnarsamstarfinu. Telja sumir að
þreyta sé komin í samstarfið og að
líklegt sé að boðað verði til kosninga
seint á þessu ári.
Reykjavík að nóttu
Morgunblaðið/Bára
Útnefning Bakers sögð
styrkja stöðu Reagans
Donald Regan rauk í fússi út úr Hvíta húsinu
Washington, AP.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, er sagður hafa styrkt
stöðu sína með því að fela How-
ard Baker embætti starfsmanna-
stjóra Hvíta hússins. Akvörðunin
hefur mælzt vel fyrir í Banda-
Frakkland:
Hry ðj uverkamaður
í lífstíðarfangelsi
París AP.
GEORGES Ibrahim Abdallah,
hryðjuverkamaður frá Líbanon,
var í gær dæmdur í lífstíðarfang-
elsi í París, fyrir aðild að
morðum á tveimur sendiráðs-
starfsmönnum og morðtilræði
við þann þriðja. Sérstakur dóm-
stóll skipaður 7 dómurum kvað
upp dóminn og hafði þar með
að engu tilmæli saksóknarans um
að Abdallah yrði ekki dæmdur
til lengri fangelsisvistar en 10
ára, til þess að koma í veg fyrir
frekari hryðjuverk í Frakklandi.
Abdallah, sem talinn er leiðtogi
hryðjuverkasamtaka er kalla sig
„Vopnaða líbanska byltingahópinn"
var ekki í réttarsalnum er dómurinn
Abdallah (t.h.) og lögfræðingur
hans, Jacques Verges.
var kveðinn upp. Hann hafði neitað
að mæta þar eftir fyrsta dag réttar-
haldanna þar sem hann sagðist
ekki viðurkenna réttmæti þeirra.
Jacques Verges, lögfræðingur
Abdallah, sagði er dómurinn hafði
verið kveðinn upp að hann vissi
ekki hvort koma myndi til hryðju-
verka í Frakklandi, en bætti við:
„Eg held að það hljóti að skipta
stuðningsmenn Georges Ibrahim
Abdallah verulegu máli að honum
er haldið í fangelsi." í september
sl. dóu 11 manns og 150 særðust
í sprengjutilræðum í París. Hópur
sem sagðist standa að baki spreng-
ingunum krafðist þess að Abdallah
og tveir aðrir fangar yrðu látnir
lausir úr fangelsi.
ríkjaþingi, bæði hjá andstæðing-
um forsetans og stuðningsmönn-
um. „Þetta er góð byrjun á
vandasömu verki," sagði Alan
Cranston, öldungadeildarmaður,
einn helzti andstæðingur forset-
ans í þinginu.
„Howard Baker nýtur mikils
stuðnings meðal þingmanna. Hann
þekkir vinnubrögð í þinginu og hef-
ur starfað mikið með fulltrúum
beggja flokka. Hann kann einnig á
„gangverkið" í Hvíta húsinu því
sem fyrrum leiðtogi meirihlutans í
öldungadeildinni átti hann mikil
samskipti við forsetann og hans
menn,“ sagði Bob Dole, leiðtogi
repúblikana í öldungadeildinni.
„Howard Baker hefði ekki hugs-
að sig um tvisvar í vopnasölumál-
inu. Hann hefði umsvifalaust lagzt
gegn vopnasölu til Irans,“ sagði
Edward Kennedy, öldungadeildar-
maður og demókrati, er hann
gagnrýndi frammistöðu Donalds
Regan, sem sagði af sér sem starfs-
mannastjóri í fyrrakvöld. Tower-
nefndin sagði Regan hafa borið
ábyrgð á „stórkostlegu klúðri“ í
Hvíta húsinu í sambandi við vopna-
sölumálið.
Regan sagði ekki af sér fyrr en
hann hafði heyrt um ráðningu
Bakers í sjónvarpsfréttum. Varð
hann þá bálreiður, skrifaði upp-
Howard Baker
Reuter
sagnarbréf í snatri og rauk á dyr,
að sögn embættismanns. Forsetinn
hefur verið undir miklum þrýstingi
frá konu sinni, Nancy, að láta Reg-
an fara. Áreiðanlegar heimildir
hermdu að forsetafrúin hefði séð
til þess að fréttinni um ráðningu
Bakers var lekið til fjölmiðla. Henni
var í nöp við starfsmannastjórann
og sá Regan sig t.d. knúinn til þess
að kvarta undan henni við forsetann
á ráðherrafundi 20. febrúar sl. Er
sagt að forsetanum hafi þá fundizt
nóg komið og ákveðið að láta Reg-
an fara.
Howard Baker sagði í gær að
með því að taka við embættinu úti-
lokaði hann sig frá framboði við
forsetakosningarnar 1988.