Morgunblaðið - 01.03.1987, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
9
HUGVEKJA
Upphaf
nýrratíma
- eftir séra JÓN RAGNARSSON
Jóhannes skírari stóð við
Jórdan og boðaði tímamót í sögu
mannkyns.
Honum var mikið niðri fyrir
og margir komu til að heyra
mál hans. Þar kvað við tón, sem
ekki hafði lengi heyrst, en átti
sér hljómgrunn í lífsmáta og
hugsunarhætti samtíðarinnar.
Jóhannes hrópaði út í tómið, og
fékk endurróm. Hann náði eyr-
um fólks, sem ekki fann lengur
ferskleika í trúarhefð sinni og
vænti sín einskis af pólitískum
öflum landsins.
Jóhannes boðaði upphaf nýrra
tíma. Aheyrendur hans þráðu
nýja tíma — en vissu ekki, hvem-
ig þeir mættu verða.
Jóhannes boðaði iðrun; —
stefnubreytingu — sinnaskipti —
raunverulega, ósvikna nýsköpun
mannlegrar tilvistar. Eggjaði
menn til að meta líf sitt — vega
það og gegnumlýsa. Líta yfir
farinn veg og spyija: Hvar hef
ég verið? Hvað hef ég gert? Hef
ég gengið til góðs? Er þetta það
líf, sem ég vil lifa þá daga, sem
mér gefast?
Iðrun sú, sem Jóhannes talar
um, er slíkt endurmat. Hún er
uppgjör við trú og lífsmáta.
Hann kenndi hart. Hann gaf
engan kost á undanbrögðum eða
hálfvelgju, heldur krafðist þess,
að hver og einn færi yfir allan
spumingalistann og glúpnaði
ekki gagnvart óþægilegum
sannleika um sjálfan sig.
Skímin, sem Jóhannes bauð,
var tákn um ákvörðun. Sá mað-
ur, sem hann skírði, var ákveð-
inn í að breyta lífi sínu. Kveðja
lífshætti, sem voru honum fjand-
samlegir. Andstæðir menns-
kunni og manninum sköpuðum
í Guðs mynd.
Skímin var áhrifamikill þvott-
ur. Gagnger hreingeming
líkama og sálar. Hún var útför
hins fyrra lífs. Hinn skírði var
reiðubúinn fyrir nýja tímann,
sem Jóhannes sá bjarma fyrir.
Tímann, þegar stjómarvald
Guðs yrði staðfest meðal dauð-
legra og syndugra manna.
Jóhannes boðaði ekki fyrir-
gefningu syndanna. Þeir, sem
hann hafði skírt, voru ekki synd-
lausir. Meðal þeirra var svo
margt sinnið sem skinnið. —
Líka eftir að þeir komu upp úr
gámm Jórdanar. Þetta fólk var
samt breytt, að því leyti að það
var reiðubúið að taka á móti
náðargjöf fyrirgefningarinnar í
nýjum tíma Guðsríkis.
Það er í þessum klíðum miðj-
um, að Jesús kemur. Hann
birtist einn daginn í hópi þessa
fólks af öllum stigum og skap-
gerðum. Fólks með misjafnlega
flekkótta fortíð og hlykkjóttan
ævistig að baki.
Það er með þessu fólki, sem
hann gengur til móts við nýtt
upphaf. Hann tekur sér stöðu
með því mannkyni, sem væntir
sér nýrrar lífsfyllingar í vist sinni
á jörð.
Koma andans við skím Jesú
er yfírlýsing Guðs föður og skap-
ara um stofnun Guðsríkis meðal
manna.
Eilífðin er ekki bara einhvers
staðar handan við gröf og dauða.
Guð er ekki átthagafjötraður
í dýrð himnanna.
Hann er hér. Hann er í — og
með — þessum þrítuga smið,
sem Jóhannes styður til lands
úr ánni.
Orðin: „Þessi er minn elskaði
sonur, sem ég hefí velþóknun
á,“ taka af öll tvímæli.
Guð tekur afstöðu með þess-
um manni. — Guð ábyrgist hann.
Allt sem hann talar og gerir er
milliliðalaust orð og verk Guðs.
Guðsríki er hér.
FJÁRFESTINGARFÉIACIÐ
VEI RÐB IR IE F A IV m IRI KA iÐI Jl Rl n\ n\
Gengiðídaq 1 marsi987 Markaðsfréttir
Kjarabréf
Gengi pr. 27/2 1987 = 1,931
500 = 966
5.000 = 9.655
50.000 = 96.550
Tekjubréf
Gengi pr. 27/2 1987 = 1,122
100.000 = 112.200
500.000 = 561.000
fjármál þín - sérgrein okkar
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7,101 Reykjavík. ® (91) 28566, ® (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn
Innlausnarhæf
spariskírteini
Innlausnar- dagur Flokkur Nafn- vextir
10. jan. '87 1975-1 4,3%
25. jan. '87 1973-2 9,2%
25. jan. '87 1975-2 4,3%
25. jan. '87 1976-2 3,7%
25. jan. '87 1981-1 2,8%
1. feb. '87 1984-1A 5,1%
25. feb. '87 1979-1 3,7%
Nú geta allir verið með!
Kjarabréfm fást nú í 500 kr,
að nafhverðL