Morgunblaðið - 01.03.1987, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
37
Morgunblaðið/Einar Falur
Byggðahraun 4 í Hafnarfirði þar
sem gistiheimili verður til húsa
á annarri hæð. Verslanir eru á
fyrstuhæð en á efstu hæðinni
verður rekin líkamsrækt.
Þegar hafa verið sett upp skil-
rúm í núja gistiheimilinu en
steftn er að opnun þess með vor-
inu.
Gistiheimili opnað í Hafnarfirði
TILLAGA um opnun gistiheimilis
í Hafnarfirði hefur verið lögð
fyrir byggingarnefnd, sem hefur
lýst sig samþykka henni með fyr-
irvara um smávægilegar lagfær-
ingar að sögn Óskars Valdimars-
sonar framkvæmdastjóra
Byggðaverks hf., en það fyrirtæki
á húsnæðið.
Gistiheimilið er á annarri hæð
hússins við Byggðahraun 4, og er
gert ráð fyrir 14 herbergjum sem
eru 15 til 30 fermetrar að stærð.
Verið er að innrétta hæðina og er
gert ráð fyrir sameiginlegu salemi
með 10 sturtum, eldhúsi og matsal.
Handlaugar verða á herbergjunum.
Óskar sagði að gistiheimilið yrði
leigt út til rekstrar og er steflit að
opnun þess með vorinu. Það væri
ætlað ferðamönnum og námsfólki
og benti hann á að ekkert húsnæði
væri í Hafnarfirði fyrir námsmenn
í Fiskvinnsluskólanum sem tekur til
starfa næsta haust. „Þetta er gisti-
heimili með aðstöðu sem er betri en
á farfuglaheimili en ekki eins góð
og á hótelum," sagði Óskar.
Sigurður Eyþórsson
sýnir í
Gallerí Gangskör
SÝNING á verkum Sigurðar
Eyþórssonar listmálara var
opnuð laugardaginn 28. febrú-
ar i Galleri Gangskör,
Amtmannsstíg 1. Er þetta
fimmta einkasýning Sigurðar.
Sýndar verða um 25 myndir,
olíumálverk, rauðkrítarmyndir,
eggtempera-olíumálverk, portret
og teikningar.
Sigurður Eyþórsson útskrifað-
ist frá Myndlista- og handíða-
skólanum árið 1971, stundaði
grafíknám og almennt myndlist-
arnám við Konunglegu Listaaka-
demíuna í Stokkhólmi
1974-1976 og nám í Austurríki
í framhaldi af því. Margar af
myndunum á sýningunni eru
málaðar með gömlum málunar-
aðferðum.
Sýningin er opin alla virka
daga frá kl. 12.00 til 18.00 og
um helgar frá kl. 14.00 til 18.00.
Sýningin stendur til 15. mars nk.
■ T 1 ® 1 / ® 1 ® P 1 margir stórir aðilar sem koma
Undirbumngfur kosnmgfautvarps
A J k- p JL varpsins fyrr en eftir að hafa haft
• f • -w . i • samráð við þá um kynningu. Við
og-sjonvarpsmislangtkominn
UNDIRBÚNINGUR kosningaútvarps og sjónvarps er mislangt kom-
inn samkvæmt þeim upplýsingum, sem forráðamenn útvarps- og
sjónvarpsstöðva sögðu í samtölum við Morgunblaðið á fimmtudag-
inn. í síðustu alþingiskosningum höfðu landsmenn um útvarp og
sjónvarp ríkisins að velja en nú hafa Bylgjan og Stöð 2 bæst í hópinn.
Kári Jónasson, fréttastjóri
ríkisútvarpsins, sagði að útvarpað
yrði beint frá öllum átta talninga-
stöðunum og yrðu reiknimeistarar
Reiknistofu Háskóla Islands í
hljóðstofu í Reykjavík ásamt
fréttamönnum útvarpsins. Þeir
munu spá í tölur og frambjóðend-
ur, bæði samkvæmt nýjum og
gömlum kosningalögum. Frétta-
menn útvarpsins verða einnig úti
á landi og sjá um dagskrár þaðan.
Verið er að undirbúa dagskrá fyrir
kosningar viðvíkjandi kynningu
stjómmálaflokkanna og stefnu-
skráa þeirra , meðal annars
umræðuþætti með þátttöku full-
trúa flokkanna. Lögð verður
áhersla á kynningu úr öllum kjör-
dæmum auk sérstakrar dagskrár
með formönnum flokkanna. Á
kosninganótt verða tíð viðtöl við
frambjóðendur og forsvarsmenn
flokkanna, sem við fáum í hljóð-
stofu eða hringjum í. Síðan verður
sérstök kosningadagskrá um
morguninn og aftur í hádegi, verði
talningu lokið og þá yrði hægt að
gera sér einhveija heildarmynd af
niðurstöðum kosninganna, að sögn
Kára. Allt tiltækt lið fréttastofu
útvarpsins verður kallað út og má
ætla að 24 fréttamenn verði að
störfum fyrir útvarpið auk sama
fjölda af tækniliði.
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri
ríkissjónvarpsins, sagði að ætlunin
væri að kosningasjónvarpið yrði
geysiöflugt og skemmtilegt í senn.
„Við erum að bíða eftir úttekt frá
Pósti og síma vegna beinnar út-
sendingar á kosninganótt frá
Akureyri, Sauðárkróki, Borgar-
nesi, Hvolsvelli, Hafnarfirði og
Reykjavík og auðvitað verður sjón-
varpsbíllinn á ferðinni á höfuð-
borgarsvæðinu þá um nottina.
Settir verða upp svokölluð tengi á
þessum stöðum svo hægt sé að
sjónvarpa beint nema hvað sent
verður í gegnum ljósleiðara frá
Hafnarfirði, Hvolsvelli og víðsveg-
ar í Reykjavík. Eg reikna með að
við byrjum með beinar útsendingar
kvöldið fyrir kosningadag og síðan
á kosningamorgun kl. 9.00 aftur.
Á sjálfan kosningadaginn ætlum
við að koma með fréttir á klukk-
utíma fresti og inn á milli stefnum
við að því að vera með myndarlega
dagskrá þess á milli. Ámi Scheving
ætlar að setja saman hljómsveit
sem verður í beinni útsendingu á
kosninganótt auk hinna ýmsu
skemmtikrafta sem munu koma
fram. Hópur sérfræðinga aðstoðar
okkur við að vinna úr tölum og spá
um útkomu. Hewlett Packard og
Verk- og kerfisfræðistofan er að
vinna með okkur þessa dagana í
tölvuforritum og hvernig best sé
að koma upplýsingum á framfæri
við kjósendur á sem bestan og
auðskyldastan hátt.“ Aðalumsjón-
armenn kosningasjónvarpsins
verða auk Ingva Hrafns, Helgi H.
Jónsson og Edda Andrésdóttir, en
Guðbergur Davíðsson mun stjóma
útsendingu.
Einar Sigurðsson, útvarpsstjóri
Bylgjunnar, sagðist ekki vera kom-
in með fastmótaðar hugmyndir um
hvernig skipulagning kosningaút-
varps skyldi háttað. Hinsvegar
gerði hann sér grein fyrir því að
sjónvarpsmiðillinn væri mun vin-
sælli þetta kvöld en útvarp. „Við
munum gera kosningaspár eins og
aðrir fjölmiðlar og munum nota til
þess það tölvukerfi, sem við höfum
yfir að ráða. Það er ýmislegt sem
við emm að velta fyrir okkur
viðvíkjandi kosningaútvarpi. Við
munum þurfa á öllum okkar vinnu-
krafti að halda og munum flytja
fréttir víðsvegar af að landinu til
að sinna þeim sem kjósa að hlusta
á útvarp þessa nótt.“
Páll Magnússon, fréttastjóri
Stöðvar 2, sagði að eftir væri að
ákveða fyrirkomulag kosninga-
sjónvarps á Stöð 2. „Það eru
GENGIS- SKRÁNING Nr. 40 - 27. febrúar 1987
Eíd.KI. 09.15 Kr. Kaup Kr. Sala ToU- gengi
Dollari 39,210 39,330 39,230
Stpund 60,513 60,698 60,552
Kan.dollari 29,436 29,526 29,295
Dönskkr. 5,6973 5,7147 5,3335 5,7840
Norskkr. 5,6163 5,6393
Sænskkr. 6,0654 6,0840 6,0911
Fi.mark 8,6585 8,6850 8,7236
Fr.franki 6,4522 6,4719 6,5547
Belg. franki 1,0376 1,0408 1,0566 26,1185
Sv.franki 25,5440 25,6222
HoU. gyUini 19,0109 19,0691 19,4303
V-þ. mark 21,4832 21,5489 21,9223
ít.Ura 0,03020 0,03030 0,03076
Austurr. sch. 3,0537 0,2777 3,0631 3,1141
Port escudo 0,2785 0,2820
Sp.pesetí 0,3052 0,3062 0,3086
Jap.yen 0,25602 0,25681 0,25972
Irsktpund 57,162 57,337 58,080
SDR(Sérst) 49,5867 49,7384 50,2120
ECU, Evrópum. 44,3661 44,5019 45,1263
Á síðasta ári náðu fjármunir á
fjárvörslusamningum Ávöxt-
unar sf. yfir 31 % ársávöxtun.
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKÍJLDABRÉF:
Ávöxt-
Tíma
lengd
Ár
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Nafn
vextir
4%
4%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
unar-
krafa
14.00
14.25
14.50
14.75
15.00
15.25
15.50
15.75
16.00
16.25
Gengi
93.4
89.2
86.7
83.2
79.9
76.7
73.7
70.9
68.2
65.6
ÁVÖXTUN sf jjj!
Fjármálaráðgjöf - Ávöxtunarþjónusta - Verðbréfamarkaður
LflUGAVEGI 97 - 101 REYKJAVÍK - SÍMI 621660
ÓVERÐTRYGGÐ V
SKÍILDABRÉF:
Mikil eftirspum eftir
verðtryggðum og óverðtryggðum
veðskuldabréfum.
Tíma-
lengd
Ár
1
2
3
4
5
Ákv.
umfr.
verðb.-
spá
7.00
8.00
9.00
10.00
11.00
GENGI
Hæstu Árs-
lögl.
vextir
84.3
77.6
71.6
66.3
61.7
vextir
20%
87.6
82.0
76.9
72.3
68.2
/\
ÁVÖXTUNARBRÉF
VERÐBRÉFASJÓÐS ÁVÖXTUNAR H
Áhyggjulaus og örugg (járfesting til lengri eða skemmri
.F.
tíma.
Við vekjum sérstaklega athygli á
eftirtöldum kostum bréfanna:
1) Þau bera hæstu ávöxtun hveiju sinni.
2) Enginn aukakostnaður er dreginn frá
andvirði við innlausn bréfanna.
3) Engin bíndiskylda er á bréfunum.
4) Áhyggjulaus ávöxtun á
óöruggum tíma.
5) Þægilegar stærðir á
verðgildum bréfanna.
Innleysum spariskírteini ríkissjóðs
fyrir viðskiptavini:
Innlausnar- Flokkur Vextirumfram
dagur sparískírteina verðtryggingu
10.01.87 1975/1 4,31%
25.01.87 1973/2 9,25%
25.01.87 1975/2 4,29%
25.01.87 1976/2 3,70%
25.01.87 1981/1 2,83%
1.02.87 1984/1A 5,08%
25.02.87 1979/1 3,70%
Við bendum á besta kostinn í dag, Ávöxtun-
arbréf verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf.