Morgunblaðið - 01.03.1987, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ1987
Séra Svavar A. Jónsson
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar:
Við erum eitt í Kristí
I dag er æskulýðsdagur Þjóð-
kirkjunnar og mikið um að vera
i söfnuðunum. Æskulýðsstarfið
hefur gefið út ágætt rit í til-
efni dagsins. Það ber yfirskrift
dagsins. VIÐ ERUM EITT í
KRISTI. Fyrsti hluti ritsins er
um altarisgönguna og heitir:
Að gera lífið að hátíð. Séra
Guðni Þór Ólafsson á Melstað
hefur þýtt þetta efni, sem kom-
ið er frá kirkjunni í Vestur-
Þýzkalandi. Þessum fyrsta
kafla fylgja greinargóðar leið-
beiningar fyrir fræðarana.
Þá er kafli um guðsþjónustuna
og helgihaldið. Þar er fjallað um
svo nefnda smiðjumessu, messu,
þar sem lögð er áherzla á að þátt-
takendur taki raunverulega þátt
í messunni. Líka er tillaga að fjöl-
skylduguðsþjónustu fyrir æsku-
lýðsdaginn.
Þriðji kaflinn heitir: Málið snýst
um mig. Það eru átta biblíulestrar
með líflegum myndum, spurning-
um og umhugsunarefni sem er
sett fram á hátt, sem auðvelt og
hressandi er að vinna eftir.
Síðasti kaflinn er fundaefni,
vangaveltur og leikir, krossgáta,
söngur og annað efni til helgi-
halds.
Þetta hefti er sem hin fyrri
hefti, sem æskulýðsstarfið hefur
sent frá sér, afar gott og mun
nýtast vel í æskulýðsfélögum og
fermingarstarfí safnaðanna. Það
er fáanlegt á skrifstofu æskulýðs-
Herra Pétur Sigurgeirsson
biskup.
starfsins í Kirkjuhúsinu, Suður-
götu 22. Æskulýðsfulltrúi er
Guðmundur Guðmundsson guð-
fræðingur.
Ávarp biskups, herra
Péturs Sigurgeirsson-
ar, í upphafi ritsins
Að vera eitt í Kristi, hvað er
það?
Mér kemur í hug atvik frá
prestskaparárum. Það var þjóð-
hátíð, 17. júní, á Akureyri.
Knattspymulið var að búa sig til
leiks í búningsklefa íþróttahússins
við völlinn. Af tilviljun var ég
nærstaddur og gat hlustað á ráð-
leggingar þjálfarans. Aður en liðið
tók til fótanna út á völlinn, sagði
þjálfarinn: „Þið munið að gera það
sem þið getið félaginu til góðs.
Nú er enginn að leika fyrir sjálfan
sig.“
Jesús Kristur sameinar okkur
öll til liðs við sig, sem erum í fé-
lagi hans, kirkjunni. Hann er þar
ekki aðeins „þjálfari" okkar, held-
ur leiðtogi í daganna þraut, og
frelsari frá illu. Hann hvetur okk-
ur til að gera allt, sem við getum,
fyrir kirkjuna. í lífínu eigum við
ekki að „leika“ fyrir okkur sjálf
og vera eigingjöm, heldur hugsa
um náunga okkar, hvað honum
er fyrir bestu, starfa í kirkjunni
okkar, sækja guðsþjónustur, vera
í sunnudagaskóla og æskulýðs-
félagi. Við þurfum að læra að
þekkja Jesú til þess að líkjast
honum, trúa á hann og biðja
bænir okkar. Það gerir okkur eitt
í Kristi og þjálfar okkur í að fara
eftir kenningu hans.
Ég á enga aðra heitari ósk þér
til handa, ungi vinur, en að þú
lítir ávallt til Jesú í lífí þínu, leik
og starfí. Spyrðu hann ráða, halt
þér fast í hann. Hann reisir þig á
fætur aftur er þú hrasar. Hann
hefur alltaf besta ráðið og for-
dæmið að gefa þér á leikvelli
lífsins.
„Vertu trúr allt til dauða og
Guð mun gefa þér lífsins kórónu."
Mikil aðsóknað leik-
ritinu um Kaj Munk
Leikhúsið í kirkjunni hefur nú
sýnt leikritið um Kaj Munk í næst-
um tvo mánuði. Það hefur hlotið
afar góða aðsókn, lof og þakkir
margra. Ég hafði tal af Þorbjörgu
Daníelsdóttur framkvæmdastjóra
sýningarinnar. Hún sagði:
„Þessi nýi vaxtarbroddur í
kirkjustarfi hefur tekizt vel. Fólk
hefur fagnað honum. Mörgum
hefur komið sýningin á óvart.
Meira að segja fólki, sem var til-
búið að taka við trúarlegum
boðskap, kom það á óvart hvað
sýningin hafí sterk áhrif á það.
En sýningin er líka gamansöm,
fólk má skella upp úr og hlæja
af hjartans lyst um leið og það
tekur á móti þessum sterka trúar-
boðskap.
Samvinna leikaranna og kynni
þeirra af leikritinu og höfundin-
um, Guðrúnu Ásmundsdóttur,
hefur haft mikil áhrif á þá. Ég
held að ekkert okkar, sem störfum
við sýninguna, hafi sömu afstöðu
til trúarinnar og til sjálfra okkar
eftir að hafa tekið þátt í þessu.
Það er kannski djarft að segja
þetta fyrir hönd annarra en ég
held að það sé óhætt. Það hefur
verið óskað eftir því að fá að þýða
leikritið á dönsku og sýna það í
Danmörku.
Aðsóknin hefur verið góð. Hóp-
ar hafa komið úr Reykjavík og
grenndinni og það er upplagt fyr-
ir fólk að taka sig saman um að
Messan þarf að
skírskota til
kvenna og karla
Ein samtaka anglikanskra
safnaða í Bandaríkjunum fjalla
um guðsþjópustu og útbreiðslu
trúarinnar. Á ráðstefnu, sem þau
héldu í apríl sl., fjölluðu þau um
orðalag í guðsþjónustunni með
tilliti til þess hvemig það mismun-
ar konum og körlum. Þau álykt-
uðu að nauðsynlegt væri að nota
jafnt kvenímyndir og karlímyndir
um Guð í stað þess að nota alltaf
karlkynsímynd Guðs eða komast
hjá því með því að gera Guð óper-
sónulegan. Þá skyldi líka
skírskota til manneskjunnar,
hvort sem hún er kona eða karl,
í messunni, í stað þess að ávarpa
annað hvort karla eða konur. Þá
þyrfti að rannsaka orðalag biblíu-
texta, sem oftast ávörpuðu karla
en útilokuðu konur, og bera ensku
þýðinguna saman við frumtext-
ana, hebresku og grísku. Auka
þyrfti í upplestri messunnar ritn-
ingarkafla, sem töluðu um kven-
ímynd Guðs og segðu frá konum
í Ritningunni. Kollektur, altaris-
göngubænir og fleiri messuliðir
skyldu endurritaðir svo að ekki
væri aðeins skírskotað þar til
karla heldur beggja kynja.
Alþjóðlegur
bænadagur
kvenna 100 ára
Á föstudaginn kemur, 6. marz,
verður Alþjóðlegur bænadagur
kvenna haldinn í 100. skipti. Um
víða veröld munu konur safnast
saman til bæna, biðja hver fyrir
annarri og fyrir heiminum öllum
með áhyggjum hans og gleði.
Dagurinn á upphaf sitt í Norður-
Ameríku meðal landnámskvenn-
anna á 17. og 18. öld sem bjuggu
við undur hörð kjör. Þær bjuggu
of langt hver frá annarri til að
geta haft stöðugt samband en
þurftu hins vegar á styrk hver
annarrar að halda til að sigrast á
daglegum erfíðleikum. Þá ákváðu
þær að biðja reglulega hver fyrir
annarri. 0g þær fundu hvað það
Þorbjörg Danielsdóttir fram-
kvæmdastjóri sýningarinnar: —
Sýningin hefur komið mörgum
á óvart vegna þess hvað hún
hefur sterk trúarleg áhrif —
og svo er hún lika gamansöm.
koma því það þarf ekki stærri hóp
en 8 til að fá afslátt. Það var
höfð aukasýning fyrir aldraða
borgara í Reykjavík og önnur
stendur fyrir dyrum. Það var upp-
selt á fyrstu sýningamar og við
urðum vör við að fólk veigraði sér
við að hringja og spyrja um miða
af því að það hélt að alltaf væri
uppselt. Það. er athyglisvert að
fólki hefur þótt óþægilegt að nota
símsvarann okkar. Því finnst það
vera að tala við vél og óttast að
pantanimar komist ekki til skila
af því að enginn svarar þegar það
talar. En nú er auðveldara að ná
í miða. Þeir eru nú seldir í Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar
og líka í Hallgrímskirkju á laugar-
dögum, sunnudögum og mánu-
dögum. Og svo er alltaf hægt að
hringja í símsvarann.
var gott að leggja hver aðra, fjöl-
skyldumar og lífsbaráttuna alla í
hendi Drottins.
Þegar auðveldara varð að hitt-
ast fóru bænahópar að koma
saman og þegar árin liðu fóru
þessar konur líka að biðja fyrir
konum í öðrum löndum. Um miðja
19. öld hafði myndazt vísir að
bænahring. Og þegar konur fóru
að koma saman í kirkjuráðstefn-
um og þingum og ráða þar málum
sínum saman var þessi bænadag-
ur ákveðinn, Alþjóðlegur bæna-
dagur kvenna.
Enn sem fyrr er það mikil bless-
un að biðja hver fyrir annarri,
hittast til bæna og taka þátt í
bænadeginum í einrúmi. Það er
stórfenglegt að vita af konum um
heiminn allan, sem helga þennan
dag bæninni. Frá sólarupprás við
Kyrrahafseyjar til sólarlags á ísi-
þöktum ströndum Alaska eru
konur að biðja. Eftir því sem dag-
urinn vekur konur í fleiri og fleiri
löndum bætast þær í bænahópinn.
Og þegar þær, sem vöknuðu fyrst-
ar, eru gengnar til náða, halda
bænimar enn áfram að stíga upp
til Drottins unz deginum er hvar-
vetna lokið.
íslenzkar konur hafa tekið þátt
í Alþjóðlegum bænadegi kvenna
um áraraðir. Árið 1964 var mynd-
að samkirkjustarf um bænadag-
inn en enn fyrr höfðu konur úr
ýmsum kirkjuhópum og kirlqu-
deildum haldið hann saman.
Þegar við komum saman á bæna-
daginn emm við bæði að taka
þátt í öflugu dagsverki og starfi,
sem stendur yfír allan ársins
hring. Bæði er að bænir kvenna
stíga stöðugt upp til Drottins árið
um kring og líka hitt, að af þessu
bænastarfí hefur sprottið mikið
starf til hjálpar og réttindabar-
áttu. Aðalstöðvar bænadagsins
em í New York. Á þessum bæna-
degi em 100 ár frá því að hann
var fyrst haldinn og yfirskriftin,
sem valin hefur verið í ár, er í
samræmi við það: Komið, fögnum
fyrir Drottni. Samkomur verða
haldnar víða um landið og við
skulum fylgjast með auglýsing-
um.