Morgunblaðið - 01.03.1987, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
47
I-
afsaka það að þurfa að segja nokk-
ur orð. Mér fínnst að þess geti ekki
verið langt að bíða að Bandaríkja-
menn verði búnir að gleyma hvemig
hægt er að nota útvarp, upp á hvaða
möguleika það býður. Þetta er ein
allshetjar flatneskja og ég held að
við verðum að passa okkur á að
falla ekki í sömu gröf. Ef við miss-
um út úr höndum okkar það sem
við höfum haft, gæti reynst erfítt
að byggja aftur upp ábyrga íslenska
dagskrárgerð.
Sú var tíðin að ég var stolt af
okkar dagskrá í útvarpi og sjón-
varpi fyrir menningarlega viðleitni
en ég er það ekki lengur þegar
sumar nýju stöðvanna láta ljós sitt
skína. Mér fínnst þetta vera litlar
amerískar stöðvar í lélegri stæl-
ingu.“
Skólasj ónvarp mikilvægt
kennslutæki
Sigrún.þú ert að vinna að dokt-
orsverkefhi um skólasjónvarp, sem
notað er í kennslu víðast hvar í
Evrópu. Nýleg OECD skýrsla sýnir
að víða er pottur brotinn í íslensku
skólakerfí, er sjónvarp tæki sem
að einhverju leyti gæti bætt úr því
ástandi?
„Já, tvímælalaust og ísland og
Luxemburg eru einu löndin í Evrópu
sem ekki em með skólaútvarp og
skólasjónvarp.
Ég hef verið að kynna mér skipu-
lag á skólasjónvarpi, annars vegar
í Danmörku og hins vegar^ í
Kentucky J Bandaríkjunum. Ég
valdi Kentucky vegna þess að það
er tiltölulega fátækt fylki sem hefur
ekki úr of miklu að moða og hefur
átt við alls konar vandamál að etja
varðandi menntunarmál. En þar var
ákveðið að reyna að gera átak í
skólamálum og m.a. að byggja upp
skólasjónvarp og nýta það sem vopn
í baráttunni gegn fáfræði og áhuga-
leysi. Það hefur reynst algert
töfratæki og það er alveg ótrúlegt
hvað hægt er að gera ef vel er að
verki staðið. Nú er skólasjónvarp
mikilvægt kennslutæki á öllum
námsstigum í Kentucky og skóla-
menn þar segja mér að það fé sem
farið hefur í að byggja upp þessa
þjónustu við skólana hafí þegar
skilað sér margfaldlega.
Það hefur hins vegar ekki gengið
eins vel í Danmörku þar sem skóla-
sjónvarpið var illa skipulagt frá
upphafi. Auk þess má segja að það
hafí lent í pólitískum hrakningum
og orðið að hálfgerðu olnboga-
bami. Við sækjum einmitt oft til
frænda okkar á Norðurlöndum hvað
fyrirmjmd varðar, en í þessu tilfelli
er danska kerfíð kannski besta
dæmið um það hvemig ekki á að
reka skólasjónvarp.
Ég er sannfærð um að við gætum
bætt kennslu á tiltölulega mjög
hagkvæman hátt í okkar dreifbýla
landi með aðstoð útvarps og sjón-
varps. Það er bæði ódýr leið og
fljótvirk og nýtist öllum aldurs-
hópum, alls staðar á landinu og
yrði til þess að draga úr þeim mikla
aðstöðumun sem nú er milli dreif-
býlisins og þéttbýlissvæðanna.
Gott skipulag og náin samvinna
við skólafólk í landinu em auðvitað
gmndvallarforsendur þess að þetta
hjálpartæki nýttist, en ég hef engar
áhyggjur af þvi að skólamenn væra
ekki fáanlegir til slíkrar samvinnu.
Hins vegar hef ég meiri áhyggjur
af þeim sem virðast ráða ferðinni
í fjölmiðlaheiminum um þessar
mundir. Ef útvarp og sjónvarp eiga
að vera „bisness" og ekkert annað
þá verður skólasjónvarp og skólaút-
varp aldrei til á íslandi. Skólasjón-
varp skilar ekki af sér auglýsinga-
telgum, en hins vegar getur það
skilað inn annars konar arði sem
skiptir okkur meira máli en pening-
ar í pyngju. _
Ég vona að íslendingar verði
fljótlega leiðir á amerískri popptón-
list og „froðuprógrömmum" og þá
verður kennski lag sem mætti nýta
til að koma upp skólaútvarpi og
skólasjónvarpi fýrir bömin okkar."
Viðtal/Kristín A. Árnadóttir
Opið í kvöld
til kl. 00.30.
UFANDI
TÓNLIST
Kaskó
skemmtir.
MEÐBNU
SÍMTALI
■ II'IJI.tW.IMI.II.II'IIII.M
færðá viðkomandi
greiðslukortareikning
SÍMINNER
691140-
691141
simanörn*'6
t&Tl
»
Du/ux
NÝ MÁLNING SEM KEMUR JAFNVEL
FÆRUSTU MÁLURUM Á ÓVART
FLJÓTLEGRI, HREINLEGRI,
AUÐVELDARI!
Dulux innanhússmálning frá ICI er
nýjung á íslandi. Hún hefur ýmsa
kosti umfram aðra málningu.
TILBÚIN í BÖKKUM
Dulux málningu færðu tilbúna í
bökkum. Þú þarft hvorki að hræra
hana upp né þynna.
SLETTIST EKKI
Minni undirbúning þarf t.d. við að
breiða yfir húsgögn og gólf.
LYKTARLAUS
Dulux er lyktarlaus vatnsmálning.
Dulux fæst í 5 litum. Einnig er hægt
að fá sýnishorn af litunum, það
auðveldar þér valið.
ÞEKUR VEL
Dulux þekur sérlega vel og er
snertiþurr á 30 mínútum.
Skúlagötu 42,125 Reykjavík
PÓSthólf 5056, S (91) 11547
HARPA gefur lífinu lit!