Morgunblaðið - 01.03.1987, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. MARZ 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Tækifæri fyrir
auglýsingateiknara
Ef þú ert auglýsingateiknari og getur vel
hugsað þér að starfa með samstilltum hópi
í Grjótagötunni þá viljum við gjarnan fá að
heyra í þér.
Við leynum því ekki að auglýsingamenntun og
starfsreynsla er mjög æskileg en hæfileiki og
metnaður til góðra verka vega líka þungt.
Fyrir liggja mörg spennandi verkefni fyrir
trausta viðskiptavini okkar.
Við getum boðið þér góð laun og afbragðs
vinnuaðstöðu í nýju húsnæði á besta stað í
bænum.
Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað strax
en við erum líka reiðubúin til að bíða í 1-3
mánuði ef svo ber undir.
Þú getur treyst því að með allar fyrirspurnir
og umsóknir verður farið sem trúnaðarmál.
Taktu af skarið og hafðu samband sem allra
fyrst við Hall A. Baldursson framkvæmda-
stjóra YDDU hf.
YIDID/A
AUGLÝSINGASTOFA
Grjótagötu 7
sími 622992.
Tónlistarskólinn í
Færeyjum
óskar eftir tónlistarkennurum frá og með 1.
ágúst 1987 á eftirfarandi hljóðfæri:
píanó og orgel
strengjahljóðfæri
tréblásturshljóðfæri
auk slagverkshljóðfæra og gítars.
Umsækjendur sem geta kennt á aukahljóð-
færi (auk aðalhljóðfæris) og/eða hafa reynslu
í stjórnun (kór, lúðra- og hljómsveit) hafa
forgang.
Árslaunin eru í byrjun ísl. kr. 1.000.000.-
(84.600.- á mán.) en geta hækkað um allt
að 10.000.- kr. á mán.
Kennslutíminn er 20 tímar á viku (60 mín.).
Kennarar fá borgað far auk flutningskostnað-
ar með því skilyrði að þeir kenni að minnsta
kosti eitt ár. Umsækjendur verða að hafa
lokið námi frá tónlistarháskóla eða sambæri-
legu námi og auk þess helst kennslu- og
uppeldisfræði.
Umsóknir með prófskírteinum og meðmæl-
um verða að hafa borist fyrir 15. apríl nk. til:
FÖROYA MUSIKKSKÚLI
Pósthólf 379
FR-110 Tórshavn.
Nánari upplýsingar fást hjá tónlistarstjórn,
Ólav Hátún tónlistarstjóra, sími 90298-
15555 (kl. 10-12) eða í síma 15811 (heima).
Afgreiðslumaður
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki óskar
að ráða mann til afgreiðslu og lagerstarfa.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á
vélbúnaði.
Við leitum að frískum manni á góðum aldri.
Framtíðarstarf.
Umsóknir óskast sendar á auglýsingadeild
Mbl. merktar: „P-1801“.
Bílstjórar
Viljum ráða vana meiraprófsbílstjóra til
starfa. Upplýsingar í síma 622700.
ístakhf., Skúlatúni4.
Ritari -
hlutastarf
Fyrirtækið er í miðbæ Reykjavíkur
Starfið felst í toll- og verðútreikningum, vél-
ritun, telexþjónustu og öðrum almennum
skrifstofustörfum.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
verslunar- eða stúdentspróf og hafi reynslu
af skrifstofustörfum. Viðkomandi þarf að
geta byrjað sem allra fyrst.
Vinnutími er frá kl. 9.00-13.00.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 1987.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skobvordustig la - Wi Reyk/avik - Simi 621355
Laus staða
Staða lögregluþjóns á Fáskrúðsfirði er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Umsóknir um stöðuna sendist undirrituðum
fyrir 18. mars 1987.
Sýslumaðurinn í Suður-Múlasýslu,
bæjarfógetinn á Eskifirði,
25. febrúar 1987,
Sigurður Eiríksson.
Skíðasvæði
- Skálafelli
Óskum að ráða starfsmann á skíðasvæðið í
um mánaðartíma frá miðjum mars.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
5. mars merktar: „S — 5885“.
Afgreiðslugjaldkeri
Óskum að ráða starfskraft í stöðu afgreiðslu-
gjaldkera á bæjarskrifstofu Ólafsvíkurkaup-
staðar.
Um er að ræða heils dags stöðu og eru laun
samkv. kjarasamningi BSRB.
Við leitum að duglegum starfskrafti með við-
skiptamenntun og reynslu í skrifstofustörfum.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í
síma 93-6153.
Járniðnaðarmenn
— trésmiðir
Bátalón hf óskar að ráða plötusmiði, vél-
virkja, rafsuðumenn og trésmiði til starfa nú
þegar. Mikil vinna.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Bátalón hf.,
Hafnarfirði,
sími50520 og 50168.
Heimilistækjaversl-
un/sölustarf
Óskum að ráða konu til sölustarfa í nýrri og
glæsilegri verslun okkar sem verður opnuð
í næsta mánuði.
Tilboð sendist í pósthólf 991,121 Reykjavík.
Einar Farestveit & Co., hf.
Störf á aðalskrif-
stofu Kópavogs-
kaupstaðar
Auglýst er eftir móttökugjaldkera í fullt starf
(til eins árs). Jafnframt er auglýst eftir starfs-
manni í hálft starf í innheimtu (eftir hádegi).
Launakjör samkvæmt kjarasamningi starfs-
mannafélags Kópavogskaupstaðar.
Upplýsingar gefur undirritaður.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Kópa-
vogskaupstaðar. Þess er vænst að væntan-
legir starfsmenn geti hafið störf sem allra
fyrst.
Bæjarritarinn í Kópavogi.
Forstöðumaður
sölusviðs
Stórt fyrirtæki sem starfar á sviði innflutn-
ings og framleiðslu á neytendavörum óskar
eftir að ráða duglegan starfsmann til að veita
sölumálum fyrirtækisins forstöðu.
I boði er:
— Skemmtilegt en krefjandi stjórnunar-
starf á sviði sölumála,
— góð laun og miklir framtíðarmöguleikar
fyrir réttan aðila.
Við leitum að duglegum starfsmanni á aldr-
inum 30-35 ára.
Þarf að hafa:
— Frumkvæði til verka,
— viðskiptamenntun eða sambærileg
menntun,
— stjórnunarreynslu,
— góða enskukunnáttu ,
— reynsla í notkun tölva er æskileg.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Sala — 5479“ fyrir 7. mars 1987.
Gjaldkeri
Fyrirtækið er ein stærsta byggingavöruversl-
un landsins.
Starfið felst í móttöku greiðslna, tölvuinn-
slætti, umsjón með útfyllingu víxla og
vaxtaútreikningum ásamt öðrum almennum
gjaldkerastörfum og aðstoð við bókhald.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur hafi góða
bókhaldsþekkingu og hafi unnið við tölvu.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Vinnutími er frá kl. 9.00-17.00.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 1987.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9.00-15.00.
Skólavördustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355