Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 1
96 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 74. tbl. 75. árg. SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Beirút: Átta fórust í sprengingu þegar Beirút, Reuter. ÁTTA menn fórust bílsprengja sprakk í vesturhluta Beirút í gær. Fjöldi manna særðist í spreng- ingunni rétt hjá höfuðstöðvum sýrlenska hersins í múhameðstrúar- hluta borgarinnar, að því er lög- regla sagði'. Þetta er öflugasta sprenging í Beirút síðan sjö þúsund sýrlenskir hermenn voru sendir til borgarinnar 22. febrúar. Kommúnistar á Ítalíu: Kona reynir að mynda stjórn Róm, Reuter. FRANCESCO Cossiga, forseti ítaliu, fól Nilde Iotti, talsmanni kommúnista á þinginu, að reyna að mynda stjórn í landinu og afstýra kosningum. Iotti er fyrsta konan, sem falin hefur verið stjórnarmyndun á Italíu. Hún hefur það hlutverk að reyna að koma á sáttum milli kristilegra demókrata og sósíalista. Thatcher í Moskvu London, AP. MARGARET Thatcher, forsætis- ráðherra Bretlands, hélt í gær til Sovétríkjanna til viðræðna við Mikhail Gorbachev, Sovétleið- toga, og gyðinginn og andófs- manninn Josef Begun. Thatcher sagði í ræðu, sem hún hélt í neðri málstofu breska þings- ins í vikunni, að hún ætlaði ekki að gefa eftir í mannréttindamálum. Sovéska fréttastofan TASS gagnrýndi Thatcher fyrir að hylma yfir mannréttindabrot á Bretlandi. Má því búast við snörpum orða- skiptum milli leiðtoganna um mannréttindamál. Tyrkir reyna að draga úr spennu á Eyjahafi Ankara, Aþenu, AP, Reuter. NOKKUÐ dró úr hættunni á hernaðarátökum milli Grikkja og Tyrkja vegna deilna um hafsvæði í Eyjahafi í gær. Tyrkneska rannsóknarskipið Sismik 1 sigldi inn á Eyjahaf í gær í olíuleit og í fylgd herskipa. Tyrkir sögðu að skipið myndi þó ekki fara inn á hafsvæðið, sem þessi aðild- arríki Atlantshafsbandalagsins deila um, nema grísk skip gerðu slíkt hið sama. Japanskir vísindamenn: Einföld og skjótvirk að- ferð við krabbameinsleit Tókýó. AP. FIMM japanskir vísindamenn skýrðu frá því í gær, að þeir hefðu fundið upp nýja aðferð til að leita uppi krabbameinsfrumur og tæki leitin ekki nema 20 sekúndur. Uppfinningamennimir, sem starfa á efnafræðideild rafeinda- rannsóknastofu Tsukuba-vísinda- miðstöðvarinnar fyrir utan Tókýó, segja í skýrslu, að við þessa nýju aðferð sé beitt vökum til að kalla fram myndun mótefna, og geri það mögulegt að greina sérstök eggjahvítuefni, sem eru fylgifisk- ar krabbameins. Hefðbundnar leitaraðferðir eins og röntgenmyndataka, frumu- skoðun og speglun taka frá þremur upp í tuttugu klukku- stundir. Með nýju aðferðinni, sem Hiro- take Kamei, forstöðumaður efnafræðideildarinnar, og íjórir starfsfélagar hans fundu upp, er tilvist krabbameinsins uppgötvuð með blóðrannsókn, að því er segir í skýrslunni. Vísindamennirnir koma krabbameinsmótefnum fyrir í agnarsmárri fitufrumu, sem sett er út í blóðvatn. Síðan er kannað, hvort sams konar mótefnavið- brögð eiga sér stað og líkaminn kallar fram í blóðinu, þegar hann bregst við framandi eggjahvítu- efnum. Það er einfalt að koma mótefn- unum fyrir í fitufrumum, og til þess að finna krabbameinið þarf aðeins örlitinn skammt af blóð- vatni, segir ennfremur í skýrsl- unni. Nýja aðferðin er enn á tilrauna- stigi og hefur, sem komið er, ekki verið notuð á spítölum. Vísinda- mennirnir munu halda áfram frekari prófunum og kanna meðal annars, hvort unnt er að beita þessari nýju aðferð við greiningu á veirusjúkdómum, að þvi er tals- maður þeirra sagði. Þeir telja, að nýja aðferðin muni verða hagnýt við eftirlit með krabbameinssjúklingum — þegar meta þarf árangur meðferðar — og við að greina krabbamein á byrjunarstigi. Embættismaður tyrkneska ut- anríkisráðuneytisins sagði að þessi afstaða væri í samræmi við yfirlýs- ingu Turguts Ozal forsætisráðherra í London á föstudagskvöld: „Við bíðum átekta. Þeir [Grikkir] eiga fyrsta leikinn." Embættismaðurinn sagði að á meðan Grikkir leituðu aðeins að olíu í sex sjómílna fjarlægð frá hinu umdeilda hafsvæði, myndu Tyrkir gera slíkt hið sama. Aðdragandi málsins var sá að á fimmtudag veittu Tyrkir olíufélagi sínu leyfi til olíuleitar á alþjóðlega hafsvæðinu, sem deilt er um, og leyfðu að rannsóknarskip yrði sent inn á Eyjahaf. Grikkir svöruðu með því að setja sjóher sinn í viðbragðs- stöðu og lýstu yfir því að komið yrði í veg fyrir að tyrkneskt skip gerði rannsóknir á hafsvæðinu. Tyrkir sögðu að ráðist yrði til at- lögu gegn grískum herskipum, ef reynt yrði að hefta för rannsóknar- skipsins Sismik 1. Grikkir kenndu Bandaríkjamönn- um um hvernig komið væri og Andreas Papandreou, forsætisráð- herra, fór fram á það við Banda- ríkjamenn að öll starfsemi í fjarskiptastöð bandaríska sjóhers- ins á Grikklandi yrði lögð niður. I gær drógu Grikkir síðan beiðni sína um að herstöðinni yrði lokað til baka. Nakasone sáttfús í tölvukubbadeilunni Tókýó. AP. Reuter. YASUHIRO Nakasone, forsætis- ráðherra Japans, sagði í gær, að stjórn hans vildi ná samkomulagi við Bandaríkjastjórn í tölvukubbadeilu landanna. Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti sagði á föstudag, þegar hann tilkynnti ákvörðun stjórnar sinnar um tollaálagningu á japanskar raf- eindavörur — sem taka á gildi 17. april nk. — að Japanir hefðu brotið sex mánaða gamalt samkomulag, sem bannaði þeim að umiubjóða hálfleiðara á heimsmarkaði og skyldaði þá jafnframt til að opna japanska markaðinn fyrir banda- rískum tölvukubbum. Kyodo-fréttastofan hafði eftir Nakasone forsætisráðherra, að hann væri fús að senda háttsetta embættismenn til Washington til viðræðna um deiluefnin. Japanir myndu þar útskýra sjónarmið sín og leiðrétta það, sem leiðrétta þyrfti.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.