Morgunblaðið - 29.03.1987, Side 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
74. tbl. 75. árg.
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Beirút:
Átta fórust
í sprengingu
þegar
Beirút, Reuter.
ÁTTA menn fórust
bílsprengja sprakk í vesturhluta
Beirút í gær.
Fjöldi manna særðist í spreng-
ingunni rétt hjá höfuðstöðvum
sýrlenska hersins í múhameðstrúar-
hluta borgarinnar, að því er lög-
regla sagði'. Þetta er öflugasta
sprenging í Beirút síðan sjö þúsund
sýrlenskir hermenn voru sendir til
borgarinnar 22. febrúar.
Kommúnistar á Ítalíu:
Kona reynir að
mynda stjórn
Róm, Reuter.
FRANCESCO Cossiga, forseti
ítaliu, fól Nilde Iotti, talsmanni
kommúnista á þinginu, að reyna
að mynda stjórn í landinu og
afstýra kosningum.
Iotti er fyrsta konan, sem falin
hefur verið stjórnarmyndun á Italíu.
Hún hefur það hlutverk að reyna
að koma á sáttum milli kristilegra
demókrata og sósíalista.
Thatcher
í Moskvu
London, AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, hélt í gær
til Sovétríkjanna til viðræðna við
Mikhail Gorbachev, Sovétleið-
toga, og gyðinginn og andófs-
manninn Josef Begun.
Thatcher sagði í ræðu, sem hún
hélt í neðri málstofu breska þings-
ins í vikunni, að hún ætlaði ekki
að gefa eftir í mannréttindamálum.
Sovéska fréttastofan TASS
gagnrýndi Thatcher fyrir að hylma
yfir mannréttindabrot á Bretlandi.
Má því búast við snörpum orða-
skiptum milli leiðtoganna um
mannréttindamál.
Tyrkir reyna að draga
úr spennu á Eyjahafi
Ankara, Aþenu, AP, Reuter.
NOKKUÐ dró úr hættunni á
hernaðarátökum milli Grikkja og
Tyrkja vegna deilna um hafsvæði
í Eyjahafi í gær. Tyrkneska
rannsóknarskipið Sismik 1 sigldi
inn á Eyjahaf í gær í olíuleit og
í fylgd herskipa. Tyrkir sögðu
að skipið myndi þó ekki fara inn
á hafsvæðið, sem þessi aðild-
arríki Atlantshafsbandalagsins
deila um, nema grísk skip gerðu
slíkt hið sama.
Japanskir vísindamenn:
Einföld og skjótvirk að-
ferð við krabbameinsleit
Tókýó. AP.
FIMM japanskir vísindamenn skýrðu frá því í gær, að þeir hefðu
fundið upp nýja aðferð til að leita uppi krabbameinsfrumur og
tæki leitin ekki nema 20 sekúndur.
Uppfinningamennimir, sem
starfa á efnafræðideild rafeinda-
rannsóknastofu Tsukuba-vísinda-
miðstöðvarinnar fyrir utan Tókýó,
segja í skýrslu, að við þessa nýju
aðferð sé beitt vökum til að kalla
fram myndun mótefna, og geri
það mögulegt að greina sérstök
eggjahvítuefni, sem eru fylgifisk-
ar krabbameins.
Hefðbundnar leitaraðferðir eins
og röntgenmyndataka, frumu-
skoðun og speglun taka frá
þremur upp í tuttugu klukku-
stundir.
Með nýju aðferðinni, sem Hiro-
take Kamei, forstöðumaður
efnafræðideildarinnar, og íjórir
starfsfélagar hans fundu upp, er
tilvist krabbameinsins uppgötvuð
með blóðrannsókn, að því er segir
í skýrslunni.
Vísindamennirnir koma
krabbameinsmótefnum fyrir í
agnarsmárri fitufrumu, sem sett
er út í blóðvatn. Síðan er kannað,
hvort sams konar mótefnavið-
brögð eiga sér stað og líkaminn
kallar fram í blóðinu, þegar hann
bregst við framandi eggjahvítu-
efnum.
Það er einfalt að koma mótefn-
unum fyrir í fitufrumum, og til
þess að finna krabbameinið þarf
aðeins örlitinn skammt af blóð-
vatni, segir ennfremur í skýrsl-
unni.
Nýja aðferðin er enn á tilrauna-
stigi og hefur, sem komið er, ekki
verið notuð á spítölum. Vísinda-
mennirnir munu halda áfram
frekari prófunum og kanna meðal
annars, hvort unnt er að beita
þessari nýju aðferð við greiningu
á veirusjúkdómum, að þvi er tals-
maður þeirra sagði.
Þeir telja, að nýja aðferðin
muni verða hagnýt við eftirlit með
krabbameinssjúklingum — þegar
meta þarf árangur meðferðar —
og við að greina krabbamein á
byrjunarstigi.
Embættismaður tyrkneska ut-
anríkisráðuneytisins sagði að þessi
afstaða væri í samræmi við yfirlýs-
ingu Turguts Ozal forsætisráðherra
í London á föstudagskvöld: „Við
bíðum átekta. Þeir [Grikkir] eiga
fyrsta leikinn."
Embættismaðurinn sagði að á
meðan Grikkir leituðu aðeins að
olíu í sex sjómílna fjarlægð frá hinu
umdeilda hafsvæði, myndu Tyrkir
gera slíkt hið sama.
Aðdragandi málsins var sá að á
fimmtudag veittu Tyrkir olíufélagi
sínu leyfi til olíuleitar á alþjóðlega
hafsvæðinu, sem deilt er um, og
leyfðu að rannsóknarskip yrði sent
inn á Eyjahaf. Grikkir svöruðu með
því að setja sjóher sinn í viðbragðs-
stöðu og lýstu yfir því að komið
yrði í veg fyrir að tyrkneskt skip
gerði rannsóknir á hafsvæðinu.
Tyrkir sögðu að ráðist yrði til at-
lögu gegn grískum herskipum, ef
reynt yrði að hefta för rannsóknar-
skipsins Sismik 1.
Grikkir kenndu Bandaríkjamönn-
um um hvernig komið væri og
Andreas Papandreou, forsætisráð-
herra, fór fram á það við Banda-
ríkjamenn að öll starfsemi í
fjarskiptastöð bandaríska sjóhers-
ins á Grikklandi yrði lögð niður. I
gær drógu Grikkir síðan beiðni sína
um að herstöðinni yrði lokað til
baka.
Nakasone sáttfús í
tölvukubbadeilunni
Tókýó. AP. Reuter.
YASUHIRO Nakasone, forsætis-
ráðherra Japans, sagði í gær, að
stjórn hans vildi ná samkomulagi
við Bandaríkjastjórn í
tölvukubbadeilu landanna.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti sagði á föstudag, þegar hann
tilkynnti ákvörðun stjórnar sinnar
um tollaálagningu á japanskar raf-
eindavörur — sem taka á gildi 17.
april nk. — að Japanir hefðu brotið
sex mánaða gamalt samkomulag,
sem bannaði þeim að umiubjóða
hálfleiðara á heimsmarkaði og
skyldaði þá jafnframt til að opna
japanska markaðinn fyrir banda-
rískum tölvukubbum.
Kyodo-fréttastofan hafði eftir
Nakasone forsætisráðherra, að
hann væri fús að senda háttsetta
embættismenn til Washington til
viðræðna um deiluefnin. Japanir
myndu þar útskýra sjónarmið sín
og leiðrétta það, sem leiðrétta
þyrfti.