Morgunblaðið - 29.03.1987, Qupperneq 64
STERKTKORT
Ferðaslysa
trygging
SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Deila heilbrigðis-
stétta og ríkisins:
Fundum
frestað til
mánudags
ÖLLUM samningafundum í
kjaradeilu heilbrigðisstétta
við ríkið var frestað fram yfir
aðalfund Launaráðs Banda-
lags háskólamanna sem var í
gær. í gær var búist við samn-
ingafundum á mánudag.
Að sögn Birgis Björns Sigur-
jónssonar hagfræðings BHM,
-i^íáti á aðalfundinum að ræða
stöðu þá sem komin er upp í
kjaramálunum, og venjuleg aðal-
fundarstörf þá væntanlega látin
víkja og þeim frestað.
Mjög þunglega virðist horfa
til lausnar í kjaradeilum háskóla-
menntuðu heilbrigðisstéttanna
og ríksins, bæði hvað varðar
verkföll og uppsagnir sem koma
til framkvæmda 1. apríl. Þá
mun, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, geta brugðið til
beggja vona um að samningur
Hjúkrunarfélags íslands og
ríksins verði samþykktur, en
verið er að greiða atkvæði um
samninginn í félögum út um
landið og verða atkvæðin talin á
þriðjudag.
Morgunblaðið/Bjami
FYRSTU FERMINGARNAR
ALLS ganga 1.500 til 1.600
börn um land allt til ferminga
i ár og eru það börn sem fædd
eru árið 1973. „Börnin hafa
gengið til spurninga í allan
vetur einu sinni í viku, en
síðustu vikuna fyrir fermingu
hittumst við _ nær daglega,"
sagði séra Ólafur Skúlason
dómprófastur í samtali við
Morgunblaðið.
Aðalfermingardagamir í þéttbýli
eru 5. apríl, pálmasunnudagur 12.
apríl og annar í páskum 20. apríl.
í dag verður fermt í þremur
stærstu prestaköllunum, Selja-
prestakalli, Fella- og Hólapresta-
kalli og Digranesprestakalli.
Ólafur sagði að árgangarnir
færu minnkandi ár frá ári, en flest
hefðu fermingarbömin verið yfir
2.000 talsins.
Kennaradeilan:
Samningsgnmd-
völlur staðfestur
Rúðubrot í miðbænum
í Austurstræti var ófagurt um að litast í gærmorgun því
margar rúður höfðu verið brotnar í verslunum þar nóttina áður
líkt og margar fyrri helgar.
Lögreglan stóð í ströngu í miðbænum aðfaranótt laugardagsins
vegna drykkjuláta fólks. Þó ekki hafi verið íjölmennt í miðbænum
voru óvenju margar rúður brotnar og þurfa verslunareigendur marg-
ir hveijir að byija enn eina vikuna á því að fá nýtt gler í glugga sína.
SAMNINGANEFNDIR Hins
íslenska kennaraféiags og
ríkisins staðfestu hjá ríkis-
sáttasemjara ákveðinn samn-
ingsgrundvöll, áður en
samningafundi nefndanna var
frestað klukkan 5 aðfaranótt
laugardags. Samningafundur
hófst aftur klukkan 13.00 á
laugardag og í samtölum við
Alirefir eru vaxandi #
vandamál í náttúrunni
MEÐ fjölgun refabúa eru alirefir
sem sleppa úr haldi vaxandi
vandamál. Blárefirnir eru fijó-
samari en íslenska tófan og eru
auk þess stærri og sterkari og
geta því valdið meira tjóni á búfé.
I*á óttast náttúruverndarmenn
blöndun þeirra við íslenska ref-
inn.
Páll Hersteinsson veiðistjóri
sagði að eitthvað væri um að aliref-
ir gengju lausir og nokkrir hefðu
náðst. Búast mætti við fjölgun á
þessu eftir því sem búrin og búin
gvngju úr sér og þyrfti því að veita
gott aðhald. Veiðistjóraembættið
gæti lítið annað gert en að tala við
bændur og biðja þá um að bæta
úr vömum, ef þær væru ekki í lagi,
og lagt síðan til að loðdýrarleyfið
sé tekið af viðkomandi, ef fortölur
dygðu ekki. Páll sagði að þeir þyrftu
að hafa heimild til að láta gera lag-
færingar á búunum, á kostnað
viðkomandi bónda, ef þörf væri á
slíku.
Páll sagði að ekki væri vitað til
að silfurrefur hefði sloppið úr haldi,
en einn blendingur silfurrefs og
blárefs (blue-frost) hefði verið drep-
inn af hundi heima við bæ. En eftir
því sem fleiri bú tækju inn silfur-
refi ykist hættan á því að þeir
slyppu. Þeir væru enn erfiðari við-
fangs en blárefurinn.
Veiðistjóri sagði að loðdýrabænd-
ur ættu að tilkynna strax þegar dýr
slyppu af búunum, en það væri aldr-
ei gert. Sagði hann að ef það væri
gert væri oft hægt að ná dýrunum
strax. Nefndi hann að nú væru
nokkrir blárefir lausir í Vestur-
Landeyjum. Þeir hefðu sennilega
sloppið i desember og ef þá hefði
verið tilkynnt um atburðinn hefðu
þeir sjálfsagt náðst strax. Nú hefðu
þeir aðlagast betur breyttum að-
stæðum og orðnir styggir vegna
þess að óvaningar hefðu verið að
eltast við þá.
Páll Hersteinsson sagði að
íslensku tófunni hefði fjölgað tölu-
vert á Suð-Austurlandi, en hafði
ekki skýringar á því. Sagði hann
að á þessu svæði hefðu fáir refir
verið og ef til vill óeðlilega fáir
miðað við aðra landshluta. Á und-
anfömum ámm hefði ref fjölgað á
Vesturlandi og Vestfjörðum en þar
virtist stofninn nú vera kominn í
jafnvægi. Þá virtist refum fara
fækkandi á Norð-Austurlandi.
Morgunblaðið fyrir þann fund
lýstu báðir aðilar yfir von um
að endanlegir samningar tak-
ist um helgina.
Kristján Thorlacius formaður
HIK sagði í samtali við Morgun-
blaðið að samninganefndirnar
hefðu færst nær settu marki á
fundinum á föstudagsnóttiria.
Hann sagðist vona að samningar
næðust nú yfir helgina þótt hann
þyrði ekki að fullyrða neitt þar
um.
Indriði H. Þorláksson formað-
ur samninganefndar ríkisins
sagðist fremur eiga von á að
samningar tækjust um helgina
og staðan nú væri að minnsta
kosti mun betri en áður.
Fulltrúaráð HÍK fundaði lengi
um þau samningsdrög sem lágu
fyrir samningafundinum á föstu-
dagskvöldið. Kristján Thorlacius
sagði um fulltrúaráðsfundinn að
þar hefðu komið fram skiptar
skoðanir um ýmsar áherslur
enda væru samningar kennara
talsvert mikið mál og flókið. Þó
hefðu menn orðið sammála um
að taka upp viðræðurnar aftur.