Morgunblaðið - 29.03.1987, Síða 32

Morgunblaðið - 29.03.1987, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987 plnrgmi Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Augiýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö. Nýjar kröfur Iþeim miklu sviptingum, sem orðið hafa undanfama daga milli forystumanna Sjálfstæðis- flokksins og Alberts Guðmunds- sonar og leitt hafa til stofnunar nýrra stjórnmálasamtaka á hans vegum, er hætt við að kjarni málsins hafí stundum gleymzt. Hann er sá, að upplýst var, að Albert Guðmundsson hefði á þeim tíma er hann var fjármálaráð- herra tekið við afsláttargreiðslu frá Hafskip hf., sem ekki hefði verið talin fram til skatts. Af þeim sökum taldi Þorsteinn Páls- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, óhjákvæmilegt, að Albert segði af sér ráðherradómi. Skoðanir hafa verið mjög skipt- ar hjá almenningi um þetta mál. Sumir hafa talið kröfu formanns Sjálfstæðisflokksins um afsögn Alberts sjálfsagða, aðrir, að mis- tök hans varðandi skattaframtal hafí ekki verið nægilega mikil til þess að réttlæta kröfu um af- sögn. Þorsteinn Pálsson hefur lýst þeirri skoðun sinni, að málið snúist um siðferði Sjálfstæðis- flokksins, aðrir hafa talið, að hér sé um að tefla nýja siðferðispóli- tík hjá Sjálfstæðisflokknum, sem felist í því, að refsa einum fyrir það, sem margir geri sig seka um. Þegar tilfínningahita og deilum um einstaklinga hefur verið vikið til hliðar kemur í ljós, að hér eru á ferðinni stórathyglisverðar um- ræður, sem full ástæða er til að staldra við. íslenzkt þjóðfélag hefur löngum einkennzt af aga- leysi. Þetta samfélag kunnings- skaparins hefur ekki verið ýkja kröfuhart um hegðan, framkomu og vinnubrögð, svo að nokkuð sé nefnt. Að mörgu leyti má segja, að umburðarljmdi, sem stundum hefur farið út yfír skynsamleg mörk, hafi einkennt þetta þjóð- félag. Hin seinni ár hafa menn talið sig sjá merki þess að breyting væri að verða á. Smátt og smátt hefur kröfuharka aukizt. Um all- langt árabil heyrði það t.d. til undantekninga í mörgum at- vinnufyrirtækjum að starfs- manni, sem ekki stóð sig sem skyldi, væri sagt upp. Nú er það að verða almenn regla. Þeir, sem fylgjast á annað borð eitthvað með vinnumarkaðnum hafa orðið þess varir, að svo virðist sem ungt fólk sætti sig við þessa nýju kröfugerð og telji hana raunar sjálfsagða. Eftir því, sem nýjar kynslóðir setja meira mark sitt á samfélag okkar er alls ekki óhugsandi að meiri kröfuhörku gæti á öllum sviðum. Hið athyglisverða við deilumál Sjálfstæðisflokksins og Alberts Guðmundssonar er kannski ein- mitt það, að fulltrúi nýrrar kynslóðar í formannssæti Sjálf- stæðisflokksins gerir allt í einu nýjar kröfur. Með þessum rökum má segja, að Þorsteinn Pálsson sé að draga nýjar markalínur, sem skilji á milli þess, sem leyfilegt teljist í opinberu lífi og hins, sem ekki þykir við hæfí. Er skoðana- munur tveggja kynslóða í þessu efni ef til vill kjarninn í deilum Þorsteins og Alberts? Ef svo er vaknar önnur og áleit- in spurning og hún er þessi: Er þjóðfélag okkar reiðubúið til að setja sér nýjar reglur um háttsemi í skiptum milli manna? Hvað vinn- um við og hverju töpum við? Það fer vart á milli mála, að það yrði þjóðarbúinu til farsældar, ef tak- ast mætti að auka aga á Islandi á öllum sviðum. En samfélagi umburðarlyndis fylgja margir kostir, m.a. þeir, að auðveldara er að koma í veg fyrir, að hörð átök eitri andrúm og umhverfí okkar og dagleg samskipti fólks í þessu fámenna landi. Nú er auðvitað ljóst, að Sjálf- stæðisflokkurinn er ekki að boða einhverja allsheijar siðvæðingu. Hitt fer ekki á milli mála, að flokkurinn er að draga nýjar markalínur. Er hljórngrunnur fyr- ir því hjá almenningi? Kannski er það ein þeirra spurninga, sem verður svarað í þingkosningun- um, sem fram fara síðari hluta aprflmánaðar. Það getur verið býsna vara- samt að efna til umræðna um pólitískt siðgæði, einfaldlega vegna þess, að víða er pottur brot- inn og svo verður alltaf. A hinn bóginn má færa sterk rök fyrir því, að „umburðarlyndið" í sam- félagi okkar eigi ekkert skylt við umburðarlyndi, heldur nálgist einfaldlega það, sem í daglegu tali er nefnt „spilling". Jafnvel þótt teygjanleg afstaða eigi upp á pallborðið hjá mörgum er engin spurning um það, að sá stjóm- málaflokkur, sem í alvöru vill berjast gegn spillingu kunnings- skapar og persónutengsla mun fínna verulegan hljómgrunn fyrir málflutning sinn. Þorsteinn Pálsson hefur því vakið máls á þáttum í þjóðfélags- kerfí okkar, sem margir hafa lengi talað um, en enginn viljað ráðast að fram til þessa. Hvaða skoðun, sem menn kunna að hafa á deilumálum Alberts og Þor- steins, geta væntanlega flestir verið sammála um, að umræður um þessi málefni eru af hinu góða. Og víst er að eftir atburði síðustu daga hljóta þeir, sem þátt taka í opinberu lífi, að gera sér grein fyrir, að hér eftir ve-ða gerðar meiri kröfur til þeina en áður. Það á ekki aðeins við um embættismennina, sem hafa fengið viss viðvörunarmerki með athöfnum Sverris Hermannsson- ar í ráðherraembætti, heldur og stjómmálamennina sjálfa. Hið pólitíska landslag tók skyndilegum breytingum á fimmtu- daginn, þegar það fréttist, að Albert Guð- mundsson hefði beðist undan því að vera á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Verður nú erfíðara fyrir frambjóðendur allra flokka að rata hina réttu leið að kjósendum í hinni stuttu en vafalaust snörpu kosningabar- áttu, sem fyrir dyrum stendur. Albert Guðmundsson hefur oft áður verið orðaður við sérframboð. Hann hefur síður en svo setið á friðarstóli innan Sjálf- stæðisflokksins. Voru vafalaust margir flokksbræður hans þar orðnir langþreyttir á þeim óróa, sem hann olli. Á hinn bóginn mátu menn stöðuna jafnan þannig, að ekki bæri að stugga við honum. Hann höfðaði til ákveðins hóps kjósenda, sem treysti honum og styddi í gegnum þykkt og þunnt. Þetta hefur sannast síðustu daga. Ótrúlega margir hafa orðið til þess að lýsa yfir því, að þeim þætti ástæðu- laust að hafa í frammi nokkrar pólitískar aðgerðir, eftir að ljóst var, að skattrann- sóknarstjóri teldi ekki rétt að málum staðið á skattframtali Alberts vegna peninga, sem hann fékk frá Hafskip hf., á meðan hann gegndi embætti fjármálaráðherra. Eftir að Albert Guðmundsson hafði sjálfur lýst því yfir, að hann hefði gert mistök eða þau hefðu verið gerð í hans nafni, ákvað hann að segja af sér emb- ætti iðnaðarráðherra. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mælti á hinn bóginn með því, að Albert sæti áfram' í efsta sæti á lista flokksins í Reykjavík í samræmi við niðurstöður prófkjörsins. Talið var, að með þessu yrði unnt að halda jafnvægi innan Sjálfstæðisflokksins og komast hjá sérframboði. „Síendurteknar hótanir“ Á þriðjudagskvöldið sátu þeir fyrir svör- um í sjónvarpsstöðvunum Þorsteinn á Stöð 2 og Albert í ríkissjónvarpinu. Þorsteinn komst þannig að orði, þegar hann var spurður um það, hvort Albert yrði aftur ráðherra. „Það liggur í augum uppi að það getur ekki orðið.“ í samtalinu við Albert, sem margir telja einstætt vegna framgöngu spyrjendanna, brást hann illa við, þegar vik- ið var að þessum ummælum Þorsteins. í bréfinu, sem Albert skrifaði Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna, vísar hann óbeint til þessara orða Þorsteins, sem hann kallar „síendurteknar hótanir". Almenningur hefur getað fylgst svo náið með orðaskiptum þeirra Alberts Guð- mundssonar og Þorsteins Pálssonar undanfama sólarhringa, að það hlýtur að koma öllum á óvart, þegar Þorsteinn er borinn þeim sökum að hafa haft í frammi „síendurteknar hótanir" við Albert. Eðli- legt er, að menn séu ekki á einu máli um það, hvort Þorsteinn Pálsson hafí átt að slá nokkru föstu um ráðherraembætti fyr- ir Albert Guðmundsson að loknum kosn- ingum. Albert sjálfur benti á, hve slíkar yfírlýsingar um framtíðina geta verið hald- litlar þegar hann sagði í ríkissjónvarpinu: „Við megum ekki gera ráð fyrir því að allt sé óbreytanlegt. Það má ekki gera ráð fyrir því. I pólitík er allt breytilegt frá degi til dags, frá einum degi til annars. Þú getur haft þessa skoðun núna, svo hitt- ir þú einhvem andstæðing og hann talar við þig í tvær, þrjár mínútur og þá ert þú kominn með allt aðra skoðun. Þetta er svo breytilegt." Þegar þessi orð Alberts, sem hann mælti þegar hann var spurður um ráðherraembætti að kosningum loknum, eru skoðuð og borin saman við bréf hans sjálfs og brotthvarf af lista Sjálfstæðis- flokksins, hlýtur það að vekja nokkra undrun, að hann velji þetta sem ástæðu fyrir brotthvarfí sínu. „Fj ölmiðlaveisla“ Sviptingamar vegna afsagnar Alberts Guðmundssonar og framboðs hans hafa eðlilega sett svip sinn á fjölmiðla. Mörgum er að vísu nóg boðið vegna þess, hve mik- ið hefur verið gert úr málinu á öldum ljósvakans. Sérstaklega verður vart við gagnrýni á ríkismiðlana og þá helst frétta- stofu sjónvarpsins fyrir of tilfínningalega meðferð á málinu. Með rökum benda menn á, að fréttamenn ríkisins sýnist leggja meira upp úr því að ræða persónulega hlið þessa máls en efnislega, ef svo má að orði kveða. Ólafur M. Jóhannesson, sem skrifar reglu- lega þætti um efni útvarps og sjónvarps hér í blaðið, kveður svo fast að orði í dálki sínum á föstudag, að orðið hafí „trúnaðarbrestur" milli fréttastofu ríkissjónvarpsins og áhorf- enda í þessu máli. Ólafur rökstyður skoðun sína meðal annars með þessum orðum: „Kjarni málsins er sá að fréttamenn eru ekki þátttakendur í leiknum heldur eiga þeir fyrst og fremst að vísa áhorfendum inná leiksviðið og kynna þar aðalleikar- ana. Það er svo áhorfendanna að draga ályktanir af frammistöðu aðalleikaranna en ekki fréttamannanna, sem í raun eiga að halda sig hæfílega í skugganum." í hinum sjónvarps- og útvarpsvæddu þjóðfélögum eins og Bandaríkjunum hefur það löngum verið gagnrýnt, að fréttamenn taka sér fyrir hendur að hafa uppi skyndi- söguskýringar; draga ályktanir af ræðum stjómmálamanna eða framgöngu á svip- stundu og reka þær ofan í áhorfendur strax að atburðum loknum. Á fréttastofum ríkis- Qölmiðlanna virðast vinnubrögð af þessu tagi njóta vaxandi vinsælda; jafnvel sömu menn, sem lesa okkur fréttir, flytja strax útleggingu á staðreyndum, er bera augljós merki fljótaskriftar ef ekki beinnar vanr þekkingar. Veruleg hætta er á því, að þessir starfshættir eigi eftir að rýra al- mennt traust manna á fréttum þessara miðla, ef svo fer fram sem horfír. Mörgum fínnst nóg um „ijölmiðlaveisl- una“, sem hlýtur að taka enda núna, þegar ljóst er, að Borgaraflokkurinn með Álbert í broddi fylkingar er kominn á laggirnar. Þá er ekki lengur unnt að halda áfram að höfða til tilfinninga eða þeirrar spennu, sem fylgir uppgjöri af þessu tagi. Nú taka við hversdagslegir hlutir eins og það, hvemig landinu skuli stjómað á sem far- sælastan hátt. Vonandi gleyma þeir hjá Borgaraflokknum því ekki, að stjómmál snúast um þetta. Kjarnorkuvopna- laust svæði Vegna fundar utanríkisráðherra Norð- urlandanna hér í Reykjavík á miðvikudag og fímmtudag hefur töluverð athygli beinst að kjamorkuvopnalausu svæði á Norður- löndunum. Fyrir ráðherrafundinn var ljóst, að íslenska ríkisstjómin hafði aðra skoðun á hugmyndinni um að skipuð yrði sérstök embættismannanefnd til að ræða málið en ríkisstjóriiir hinna landanna. Að vísu var jafn erfítt að henda reiður á því, hvað fyrir mönnum vakti með þessari nefnd og flestu öðru varðandi þetta margþvælda mál. í stuttu máli er það blekking að halda því fram, að yfírlýsingum kjamorkuvopna- leysi á Norðurlöndunum, þar sem engin kjamorkuvopn eru, skipti sköpum fyrir heimsfriðinn. Niðurstaða utanríkisráðherranna á fundinum hér í Reykjavík gefur til kynna, hve mörg mál koma til álita, þegar reynt er að bijóta þetta viðfangsefni til mergj- ar. í tilkynningu um fundinn segir: „Ráðherramir ákváðu að fela forstöðu- mönnum stjómmáladeilda ráðuneytanna, eða jafnsettum embættismönnum í ráðu- neytum þeirra að kanna forsendur fyrir kjamavopnalausu svæði á norðurslóðum er væri liður í viðleitni til að draga úr spennu og vígbúnaði í Evrópu. Vinnuhópurinn skal í störfum sínum leggja til grundvallar skuldbindingar þeirra ríkja, sem eru í vamarbandalagi, og stefnu hinna, sem hlutlaus eru. Þá skal taka mið af samþykktum norrænu MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987 33 REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 28. marz Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon I ~ Jl, w - I þjóðþinganna varðandi stefnu í öryggis- og afvopnunarmálum svo og skýrslum og greinargerðum ríkjanna í því efni. Niðurstöður af þessari könnun skal leggja fyrir utanríkisráðherra Norðurlanda til að auðvelda þeim frekara pólitískt mat í þessum málaflokki." Hugmyndin um kjamorkuvopnalaust svæði hefur verið á dagskrá á fundum utanríkisráðherra Norðurlanda í nokkur ár. í fyrsta sinn var hún rædd á þessum sameiginlega vettvangi á fundi í Kaup- mannahöfn í september 1981. í tilkynn- ingu að þeim fundi loknum segir, að ráðherramir hafí frætt hver annan um afstöðu ríkisstjóma sinna til þessa máls og hvemig það tengist öryggishagsmunum landa þeirra, svo og forsendur þess að slíku svæði verði komið á fót. Síðan hefur mál- ið verið fastur liður á fundum ráðherranna. Á danska þinginu var svo samþykkt fyrir rúmu ári, að komið skyldi á fót nefnd embættismanna til að Qalla um málið. Uffe-Elleman Jensen, utanríkisráðherra Dana, átti ekki annarra kosta völ en leggja þessa tillögu fyrir starfsbræður sína. í utanríkis- og öryggismálum hefur sú ein- kennilega staða myndast á danska þinginu, að nkisstjómin hefur hvað eftir annað orðið undir í atkvæðagreiðslum og utanrík- isráðherrann hefur orðið að bera upp erindi og taka afstöðu á alþjóðlegum fundum, sem hann er í raun ósammála. Dönsku borgaraflokkamir hafa talið svo mikið í húfí í efnahags- og atvinnumálum heima fyrir, að þeir hafa ekki viljað sleppa stjóm- artaumunum vegna deilna um utanríkis- og vamarmál. Signr íslendinga Matthías Á. Mathiesen, utanríkisráð- herra, hefur verið sjálfum sér samkvæmur í afstöðunni til hinnar dönsku tillögu. Hann var upphaflega á móti því, að emb- ættismannanefndin yrði skipuð, og stóð þar við hlið norska utanríkisráðherrans í borgaralegu stjóminni, Svenn Stray. Eftir að Verkamannaflokkurinn tók við völdum í Noregi féllu Norðmenn frá andstöðu sinni við embættismannanefndina. í Kaup- mannahöfn síðastliðið haust var íslenski utanríkisráðherrann einn á móti skipun nefndarinnar. Þá var forstöðumönnum stjómmáladeilda utanríkisráðuneytanna falið að athuga málið fyrir fundinn hér í Reykjavík. Það starf leiddi síðan til þeirrar niðurstöðu, sem kynnt var að loknum fund- inum hér. í stuttu máli má túlka niðurstöðuna hér, sem sigur fyrir íslendinga. Það er ekki skipuð embættismannanefnd til að leggja á ráðin um kjamorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndunum. Á hinn bóginn er settur á laggimar vinnuhópur, þar sem forstöðumenn stjómmáladeilda utanríkis- ráðuneytanna (hér á landi skrifstofustjóri utanrikisráðuneytisins) eða jafnsettir menn eiga að „kanna forsendur fyrir kjam- orkuvopnalausu svæði á norðurslóðum er væri liður í viðleitni til að draga úr spennu og vígbúnaði í Evrópu". í viðræðum ráð- herranna veltu menn sérstaklega vöngum yfír orðinu „norðurslóðir" eða „nordisk omráde“. Niðurstaða þeirra umræðna var sú, að ráðherramir bundu sig ekki við nokkra fasta landfræðilega skilgreiningu. Ráðherramir fímm em samt sammála um, að athugunin geti náð til landsvæða hinna fímm landa, þar með talið Grænlands, aðliggjandi hafsvæða og landsvæða, til dæmis Kóla-skagans, þar sem er eitthvert mesta víghreiður Sovétmanna og mikil- vægar kjamorkuvopnastöðvar þeirra. Þessi landfræðilega skilgreining gengur því ekki þvert á ályktun Alþingis, sem túlkuð er á þann veg, að hið kjamorku- vopnalausa svæði eigi að ná frá Grænlandi til Úralfjalla. í erindisbréfí vinnuhópsins er honum ekki settur neinn frestur til að skila skýrslu sinni. Hann á að leggja til grundvallar þær skuldbindingar, sem ríkin hafa tekið á sig, svo sem með aðild þriggja þeirra að Atl- antshafsbandalaginu. Þá ber honum að virða hlutleysi Finna og Svía. Sú spuming hlýtur að vakna, hve langt fulltrúar hinna hlutlausu ríkja geta gengið í viðræðum við NATO-ríki um jafn viðkvæm öryggismál og þessi. Þá eiga embættismennimir að taka mið af samþykktum þinga sinna; íslenski fulltrúinn er þannig bundinn af hinni umdeildu ályktun Alþingis um af- vopnunarmál frá vorinu 1985. Loks er það tekið fram, að skýrsla embættismannanna á að auðveída utanríkisráðheminum „frek- ara pólitískt mat“, hún á ekki að geyma tillögur um ákveðnar aðgerðir. Af þessu öllu má ráða, að samstaða hafí verið um það meðal norrænu utanrík- isráðherranna að ýta þessu máli af hinum pólitíska vettvangi yfír til embættismanna án þess að óska eftir skjótri eða mark- vissri niðurstöðu. Má raunar líta þannig á, að embættismennimir eigi að geyma málið hjá sér, þangað til eftir því er kallað. Af hálfu Matthíasar Á. Mathiesen og utanríkismálanefndar Alþingis undir for- mennsku Eyjólfs Konráðs Jónssonar hefur verið haldið skynsamlega á þessu máli. Það var með öllu ástæðulaust að láta ekki á það reyna, hvort unnt væri að laga hina upphaflegu og óljósu dönsku tillögu á þann veg, að Islendingar gætu haldið áfram að vera þátttakendur í umræðum um málið á vettvangi norrænu ríkisstjómanna. Þetta tókst á ráðherrafundinum. Góð afkoma Eimskips Aðalfundur Eimskipafélags íslands hf., sem haldinn var á miðvikudaginn, ein- kenndist af bjartsýni. Á síðasta ári urðu umskipti í afkomu félagsins, eftir taprekst- ur á árunum 1984 og 1985 skilaði rekstur- inn 239 milljón króna hagnaði á síðasta ári. Heildarflutningar félagsins 1986 voru 792 þúsund tonn, sem er það mesta í sögu félagsins og 13% aukning frá síðasta ári. Halldór H. Jónsson, stjómarformaður, vísaði til þess góðæris, sem hér hefði ríkt, og þeirrar staðreyndar, að Eimskip hefði fengið 55-60% af flutningum Hafskips, þegar hann skýrði hin auknu umsvif. Segja má, að skipafélögin séu eins og æðar efnahags- og atvinnustarfseminnar, svo mikið eigum við undir flutningum á sjó. Fáar þjóðir heims em jafn háðar út- flutningi og innflutningi og við íslendingar. Gróskan í starfsemi Eimskips endurspegl- ar að öðrum þræði þá uppsveiflu, sem hefur verið í íslensku efnahagslífi undan- farin misseri. Enn eiga flutningar félagsins eftir að aukast, eftir að það fékk 65% af vamarliðsflutningunum í sinn hlut á grundvelli þess samnings, sem gerður var milli ríkisstjóma íslands og Bandaríkjanna síðastliðið haust. Eimskip náði þessum hluta flutninganna til sín með því að gera svo lágt tilboð, að enginn stóðst félaginu snúning. Segir Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskips, að félagið muni ekki tapa á þessum flutningum. Mark Young, for- stjóri Rainbow Navigation, sem hefur annast vamarliðsflutningana undanfarin misseri í skjóli bandarískra einokunarlaga, sagði í samtali við Morgunblaðið, þegar hann hafði kynnt sér farmgjöld Eimskips: „Raunar þýðir tilboðið að mínu mati að Eimskip sé best rekna skipafélag í heimi, það væri gaman að kunna þeirra rekstrar- aðferðir." Bandaríski kaupskipaflotinn þykir ekki vel rekinn og gerir kröfu til þess að njóta ríkisvemdar til að halda lífi. Víða um heim er illa komið fyrir útgerðarfyrirtækjum og samkeppni í flutningum á sjó er mikil og hörð. Ekki síst með hliðsjón af því er ástæða til að fagna því, hve Eimskipafélag íslands stendur á traustum grunni. Stjóm- endur þess eru teknir til við að færa sig inn á nýjar brautir í atvinnulífínu. Félagið ætlar greinilega ekki að vera áhorfandi að þeim breytingum, sem em að verða á íslenskum fjármagns- og fyrirtækjamark- aði. Nýtist reynslan af skiparekstrinum og því alþjóðlega umhverfi, sem þar ríkir, annars staðar í þjóðlífínu fyrir tilstilli Eim- skips á það vafalaust eftir að verða til góðs. í hinum sjón- varps- og- útvarps- væddu þjóðfélög- um eins og Bandaríkjunum hefur það löngum verið gagnrýnt, að fréttamenn taka sér fyrir hendur að hafa uppi skyndi-sögu- skýringar; draga ályktanir af ræð- um stjórnmála- manna eða framgöngu á svipstundu og reka þær ofan í áhorfendur strax að atburðum loknum. A frétta- stofum ríkisfjöl- miðlanna virðast vinnubrögð af þessu tagi njóta vaxandi vinsælda; jafnvel sömu menn, sem lesa okkur fréttir, flytja strax út- leggingu á stað- reyndum, er bera augljós merki fljótaskriftar ef ekki beinnar van- þekkingar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.