Morgunblaðið - 29.03.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1987
55
raðauglýsingar
raðauglýsingar
raðauglýsingar
Áskorun til greiðenda
fasteignagjalda íKópavogi
Hér með er skorað á alla þá sem eigi hafa
greitt gjaldfallin fasteignagjöld ársins 1987
að gera skil innan 30 daga frá birtingu áskor-
unnar þessarar.
Hinn 30 apríl nk. verður krafist nauðungar-
uppboðs samkvæmt lögum nr. 49 1951 á
fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar.
Kaupmenn
— Verslunareigendur
Leysum vörur úr banka og tolli. Kaupum einn-
ig vöruvíxla. Tilboð sendist auglýsingadeild
Mbl. merkt: „Beggja hagur“.
Iðnfyrirtæki óskast
Lítið iðnfyrirtæki í sælgætisframleiðslu eða
annarri léttri iðnframleiðslu óskast til kaups
ef um semst.
Þeir, sem áhuga hefðu á sölu slíkra fyrir-
tækja, vinsamlegast leggið nafn, símanúmer,
verðhugmynd og stutta lýsingu á fyrirtækinu
inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Fyrirtæki
— 5240“ fyrir 10. apríl nk.
Fullum trúnaði heitið og haft verður samband
við alla aðila er áhuga sýna.
Ferðastyrkur til rithöf-
undar
Ráðgert er að af fjárveitingu til norræns sam-
starfs í fjárlögum 1987 verði varið 50 þús.
krónum til að styrkja rithöfund til dvalar á
Norðurlöndum.
Umsóknir um styrk þennan skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík, fyrir 1. maí nk.
Umsóknum skal fylgja greinargerð um hvern-
ig umsækjandi hyggst verja styrknum.
Menntamálaráðuneytið,
26. mars 1987.
1*1 Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 simi 25500
Fósturheimili
Fósturheimili óskast í Reykjavík eða ná-
grenni fyrir 11 ára gamla stúlku.
Upplýsingar veitir Áslaug Ólafsdóttir, fé-
lagsráðgjafi, í síma 685911 milli kl. 9.00-
16.00 alla virka daga.
Hvammar, B-reitur,
kynningarfundur
í samræmi við skipulag er nú til sýnis á
bæjarskrifstofum Hafnarfjarðar tillaga að
skipulagi nýrrar íbúðabyggðar við Fagra-
hvamm/Suðurhvamm.
Lýst er eftir skriflegum athugasemdum fyrir
7. maí 1987.
Kynningarfundur verður haldinn í félags-
heimili íþróttahússins þriðjudaginn 31. mars
kl. 20.30.
Úthlutun úr Sáttmálasjóði | húsnæði i boöi
Umsókmr um utanfararstyrki og verkefna-
styrki úr Sáttmálasjóði Háskóla íslands,
stílaðar til til háskólaráðs, skulu hafa borist
skrifstofu rektors í síðasta lagi 30. apríl 1987.
Tilgangi sjóðsins er lýst í 2. gr. skipulags-
skrár frá 29. júní 1919, sem birt er í Árbók
Háskóla íslands 1918-1919, bls. 52.
Umsóknareyðublöð og nánari úthlutunar-
reglur, samþykktar af háskólaráði, liggja
frammi á skrifstofu Háskóla íslands hjá rit-
ara rektors.
Viðgerðir og málun
utanhúss
Húsfélagið Engihjalla 1, Kópavogi, óskar eft-
ir tilboðum í steypuviðgerðir, endurísetningu
glers og ýmsa aðra viðhaldsþætti s.s. málun
steins og tréverks.
Útboðsgögn eru afhent hjá verkfræðistof-
unni Línuhönnun hf., Ármúla 11 og verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 7. apríl
1987 kl. 11.00.
Auglýsing um deili-
skipulag í Haf narfirði
Samkvæmt ákvörðun skipulagsstjórnar með
vísan til 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964
er lýst eftir athugasemdum við tillögu að
deiliskipulagi (Reykjanesbraut ofan Háa-
hvamms). Tillaga er gerð að veitinga- og
gistihúsi með aðkomu frá Reykjanesbraut.
Tillagan liggurframmi á skrifstofu bæjarverk-
fræðings á Strandgötu 6, Hafnarfirði, frá 31.
mars til 15. maí 1987.
Athugasemdum við tillöguna skal skila til
bæjarstjórans í Hafnarfirði fyrir 30. maí og
skulu þær vera skriflegar. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunni.
Hafnarfirði, 26. mars 1987.
Skipulagsstjóri ríkisins,
bæjarstjórinn / Hafnarfirði.
Útboð — Bílastæði
Húsfélagið Sundaborg 1-15 óskar eftir til-
boðum í gerð bílastæða og lóðarfrágang við
Sundaborg.
Helstu magntölur ca.:
Uppúrtekt 10.000 m3
Fylling 10.000 m3
Malbik 8.000 m2 .
Snjóbræðslulögn 3.500 m2
Gróðurbeð 800 m2
Útboðsgögn verða seld á Almennu verk-
fræðistofunni hf., Fellsmúla 26, Reykjavík, frá
og með miðvikudeginum 1. apríl 1987.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.
14.00 þriðjudaginn 7. apríl nk., þar sem þau
verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðend-
um sem þess óska.
Verkinu á að verða lokið 6. júní nk.
Bæjarstjórinn i Hafnarfirði.
Utboð
Bæjarsjóður Siglufjarðar óskar eftir tilboðum
í gatnagerð á Siglufirði. Um er að ræða jarð-
vegsskipti og malbikun á 7 götum, alls um
3 km.
Útboðsgögn fást afhent á bæjarskrifstofun-
um Siglufirði gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð mánudaginn 13. maí
1987 kl. 14.00.
Bæjartæknifræöingurinn,
Siglufirði.
Skrifstofur með
sameiginlegri þjónustu
Ertu með eins eða tveggja manna fyrirtæki
sem þarfnast skrifstofuhúsnæðis með eftir-
farandi þjónustu:
★ Móttöku viðskiptavina.
★ Aðgang að fundaherbergi.
★ Aðgang að kaffistofu og eldhúsi.
★ Símaþjónustu. I1
★ Ljósritun.
Húsnæðið er nýlega innréttað á mjög smekk-
legan hátt. Nú þegar hafa tvö fyrirtæki komið
sér fyrir í húsnæðinu og gert er ráð fyrir að
þar verði eitt eða tvö fyrirtæki til viðbótar.
Skrifstofurnar eru fullkláraðar, teppalagðar
með síma tengdum skiptiborði.
Upplýsingar veitir Jón Orn í síma 41144.
850 fm atvinnuhúsnæði
Höfum til leigu vel staðsett húsnæði á Sel-
tjarnarnesi. Um er að ræða 850 fm á 2.
hæð, sem nýta má undir margs konar starf-
semi: Lager, léttan iðnað, skrifstofur o.fl.
Vörulyfta. Sér inngangur. Möguleiki á versl-
unarplássi á 1. hæð í tengslum við 2. hæð.
EIGNAMIÐUMN i
2 77 11 I
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 *
Sverrir Kristinsson, sölustjóri - Þorleifur Guðmundsson, sölum.
Þórólfur Halldórsson, lögfr.-Unnsteinn Beck, hrl„ sími 12320
Til leigu í Kópavogi
Til leigu allt að 1100 fm atvinnuhúsnæði í
húsi KRON við Skemmuveg 4a, Kópavogi.
Teikningar og nánari upplýsingar á skrifstofu
minni.
Lögmannsstofa Ólafs Ragnarssonar,
Laugavegi 18.
Til leigu atvinnuhúsnæði
★ 222 fm verslunarhúsnæði við Lyngháls.
★ 444 fm skrifstofuhúsnæði við Lyngháls.
★ 435 fm húsnæði með mikilli lofthæð á
Ártúnshöfða. Afgirt útisvæði.
★ 250 fm glæsilegt atvinnuhúsnæði er
hentar vel heildsölum. Góðar skrifstofur.
Mikil lofthæð. Afgirt vörupprt.
★ 400 fm verslunarhúsnæði í Ármúla. Hægt
að leigja í tvennu lági.
★ 400 fm iðnaðarhúsnæði á jarðhæð í
Múlahverfi. Mikil lofthæð.
★ 137 fm skrifstofuhæð í Múlahverfi.
★ Réttingaverkstæði í fullum rekstri. Eitt
fullkomnasta verkstæði á landinu. Að-
staða fyrir ca 20 bíla.
<i 0%n nn^ ^”**4™"*
26600 b
Augtuntrmtí 17, a. 28900
Þorsteinn Steingrimsson
lögg tasteignasali
| fundir — mannfagnaðir
ððÖð SJÓEFNAVINNSLAN HE
Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf. verður
haldinn laugardaginn 11. apríl nk. á Glóðinni
í Keflavík og hefst kl. 15.00.