Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.06.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987 B 11 George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna: Lifandi og þróttmikið afl í þágu fríðar Frá því að ég varð utanríkisráð- herra 1982 hefur mér sífellt orðið betur ljóst, hve mikið hefur áunn- ist með Atlantshafsbandalaginu og starfi þess. Innan vébanda bandalagsins starfa sextán þjóðir frá þremur heimsálfum saman, sérhver þeirra heldur sérkennum sínum, sögu og hagsmunum, en á grundvelli sameiginlegra verð- mæta leggja þær sig fram um að tryggja frið og öryggi í Evrópu. Þetta starf hefur nú borið góðan árangur í tæp fjörutíu ár og hef- ur gert Atlantshafsbandalagið (NATO) að þvi bandalagi, sem kannski hefur best heppnast í mannkynssögunni. Enn í dag er það lifandi og þróttmikið afl í þágu friðar. Því aðeins næst raunverulegur árangur í samskiptum austurs og vesturs, að Vesturlönd séu öflug, setji sér skýr markmið og séu staðráðin að ná þeim. Besta leiðin til að við- halda samstöðu innan Atlantshafs- bandalagsins er að leggja mikla rækt við samráð háttsettra embættis- manna og stjómmálamanna. Banda- ríkin eru eindregið fylgjandi því, að þannig sé að málum staðið. Fundur utanríkisráðherranna, sem að þessu sinni er haldinn hér í Reykjavík, er prýðilegt dæmi um það, hvemig að þessu samráði er staðið. Á síðustu 18 mánuðum höfum við efnt til meira en 30 samráðsfunda háttsettra manna á vettvangi Atlantshafs- bandalagsins, þar hafa þjóðarleið- togar komið saman, ráðherrar og George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. embættismenn frá höfuðborgum bandalagsríkjanna. Með þessum hætti hefur okkur tekist að stuðla að víðtækri samstöðu um afstöðuna til samskipta austurs og vesturs, hvort heldur afvopnunarmál eða mannréttindi. Ásetningur bandalagsins og ein- beittur vilji að baki tvíþættu ákvörð- uninni 1979 um meðaldrægu kjamorkueldflaugamar (INF) og markvissir samráðsfundir á síðustu vikum hafa leitt til þess, að nú emm við rétt að því komnir að gera sam- komulag, sem í fyrsta sinn í heims- sögunni mælir fyrir um fækkun kjamorkuvopna, en miðast ekki að- eins við það eitt að setja reglur um framtíðarvöxt þeirra. Á Stokkhólmsr- áðstefnunni um leiðir til að efla.traust milli þjóða og auka öryggi stóðu bandalagsríkin föst fyrir í tvö ár með þeim árangri að erfíðar samningavið- ræður leiddu til fyrsta samkomulags milli austurs og vesturs um öryggis- mál síðan 1979. Þar er meðal annars gert ráð fyrir að unnt sé að halda uppi eftirliti með framkvæmd sam- komulagsins með athugunum á sovésku landsvæði. Af því, sem hefur verið að gerast í þessum efnum, getum við lært, að eina leiðin til að ná árangri við samn- ingaborðið er að sýna í verki, að við munum vemda öryggi okkar, hvort heldur við náum samkomulagi um takmörkun vígbúnaðar eða ekki. Inn- an bandalagsins er sú skoðun almennt ríkjandi, að með takmörkun- um á vígbúnaði séum við að ýta frekari stoðum undir öryggi okkar en ekki gera eitthvað, sem getur komið í staðinn fyrir hæfílegar örygg- isráðstafanir. Þess vegna er okkur ljóst, að NATO stendur áfram frammi fyrir ógn af kjamorkuvopnum, þótt Bandaríkjamenn og Sovétmenn fjar- lægi meðaldrægar eldflaugar sínar frá Evrópu og dragi þannig úr þeim hættum, sem að bandalagsþjóðunum steðja. Oryggi bandalagsins þarf að tryggja áfram með fælingarmætti kjamorkuvopna og því aðeins verður unnt að viðhalda honum, að okkur takist að endumýja kjamorkuvopnin samkvæmt áætlunum okkar um það efni. Hitt er jafnframt ljóst, að um leið og kjamorkuvopnum fækkar í Evrópu verður brýnna en áður að huga að jafnvæginu í hefðbundnum vopnabúnaði, en þar hafa Varsjár- bandalagslöndin greinilegt forskot gagnvart NATO í öllum tegundum vopna. í Brussel-yfírlýsingunni svonefndu hvatti Atlantshafsbandalagið til þess að stigið yrði djarft, nýtt skref f við- ræðum austurs og vesturs í þvf-skyni, að stöðugleiki skapist f hefðbundnum vfgbúnaði með færri vopnum og her- mönnum en nú. í Vínarborg hafa fulltrúar Atlantshafsbandalagsins og Varsjárbandalagsins þegar hafíð við- ræður um erindisbréf fulltrúa á fundum um þetta efni, og hefur nokk- uð miðað í samkomulagsátt. Banda- ríkjastjóm er þó þeirrar skoðunar að herða þurfí á undirbúningi undir sam- ræmdar aðgerðir til að takmarka hefðbundinn vígbúnað. Bandalagsþjóðunum er að sjálf- sögðu ljóst, að ekkert verður til þess að hvetja ríki Varsjárbandalagsins til að semja um skynsamlega fækkun hefðbundinna vopna, ef NATO lætur fælingarmátt sinn á því sviði drab- bast niður. Þess vegna verða ríkis- stjómir aðildarlanda NATO að veita vamarmálum þann forgang sem þeim ber, hvort heldur um er að ræða venjuleg vopn eða kjamorkuvopn. Síðan 1984 hafa NATO-ríkin unnið að því að bæta hefðbundinn herafla sinn með markvissum aðgerðum og aukinni samvinnu í því skyni að nýta efnahagslega getu sína til hins ýtr- asta. Við hefðum kosið að þetta starf bæri skjótari árangur, en á sumum sviðum hefur. nokkuð miðað. Við munum hvetja til þess að í þessu efni verði gert frekara átak og fjármunir okkar nýttir með sem skynsamlegust- um hætti. Ég er sannfærður um, að almennt sé staða Atlantshafsbandalagsins prýðileg, en þar með er ekki sagt, að engin vandamál beri við himin. Það er óhjákvæmilegt, að í lýðræðis- legu bandalagi, þar sem mörg ólík sjónarmið koma fram, hlaupi stund- um snurða á þráðinn. Fjölbreytni af þessu tagi er fremur til góðs en ills. Mestu skiptir, að við höfum samráðs- vettvang, þar sem við getum viðrað skoðanir okkar og leyst úr ágrein- ingi. Ég er sannfærður um að til lengri tíma litið styrkir þetta niður- stöður innan bandalagsins og eykur gildi þeirra. í þessu efni höfíim við mikið forskot fram yfír Varsjár- bandalagið, þar sem Sovétstjómin segir fyrir verkum og ákveður niður- stöðuna. Enn er þess að minnast, að ekki er unnt að einangra NATO frá þeim vandamálum, sem bandalagsþjóðim- ar glíma við á öðrum vettvangi. Þar hefur vemdarstefnu og viðskiptahalla borið hátt, ráðstafanir gegn hryðju- verkamönnum og málefni annarra heimshluta. Atlantshafsbandalagið þarf að halda hiklaust áfram a'þeirri braut sem við höfum markað og sigr- ast á þeim vandamálum, sem óhjá- kvæmileg eru. Við erum fullvissir um að bandalagið er og verður fært um að sinna mikilvægu hlutverki sínu og geti með góðum árangri tekið á^ margvíslegum málum; öflugt og sam- einað Atlantshafsbandalag mun áfram ttyggja frið. Fyrir Bandaríkin eru samskipti okkar við Evrópu fyrir tilstilli NATO þungamiðjan í alþjóð- legri öiyggisstefnu okkar og þau munu halda áfram að vera það. Francisco Fernández Ordónez, utanríkisráðherra Spánar: Hernaðaríegt öryggi forsenda slökunarstefnu Fastafloti NATO á Atlantshafi. Spánn er yngsta aðildarland Atl- antshafsbandalagsins og þess vegna ekki best til þess fallið að leggja sögulegt mat á stöðu þess nú á timum. Reynsla okkar af starfi innan bandalagsins er stutt en hún einkennist af tvennu: annars vegar hefur orðið mikil- væg breyting á samskiptum austurs og vesturs á þessum árum og hins vegar erum við enn að skilgreina stöðu okkar og laga okkur að starfi aðildarlandanna. Á þessum árum hafa samskipti austurs og vesturs tekið mikil- vægum breytingum. Ef þannig er litið á málið kann sjónarhorn okkar að þykja forvitnilegt. Fyrir nokkrum árum voru að- stæður þannig að Atlantshafs- bandalagið tók mikilvæga ákvörðun um að efla varnir að- ildarríkjanna. Nú beinist athygli manna í bandalaginu að samnin- gaumleitunum sem hafa fækkun vopna að leiðarþ’ósi. Þessi þróun kemur ekki á óvart. Hún staðfestir þá skoðun manna að hemaðarlegt öryggi sé forsenda slökunarstefnu. Þessi skoðun sem kom fyrst fram í Harmel-skýrslunni fyrir tuttugu árum hefur alltaf not- ið stuðnings Spánar alveg eins og hugmyndin um að friður og öryggi í Evrópu verði helst tiyggt með því að Atlantshafsbandalagið beiti sér fyrir slökunarstefnu. Okkur sýnist þess vegna framtíð- in vera björt. Skyldur bandalagsins Francisco Fernandóz Ordonéz, utanríkisráðherra Spánar. hafa þó ekki minnkað og þær ákvarðanir sem verður að taka eru ekkert auðveldari en áður. Það er jafn erfítt viðfangs að fækka vopn- um eins og að fjölga þeim. Það leikur þó enginn vafí á því að leyfi aðstæður þá er fækkunin vænlegri kostur. Okkur er fullljóst af reynslu okk- ar, að nauðsynlegt er fyrir aðild- arríki Atlantshafsbandalagsins að ráðfæra sig meira hvert við annað. Samhæfa verður öryggishagsmuni allra bandalagsríkjanna til þess að fá sem skýrasta mynd af hagsmun- um Atlantshafsbandalagsins í heild. Það er okkar álit að í þessu efni stefni í rétta átt og við hvetjum til að haldið sé áfram á sömu braut. Eins og alkunna er, fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla á Spáni um aðild landsins að Atlantshafsbanda- laginu. Það var gert á þeirri for- sendu að framkvæmd öryggismála verði að njóta skilnings og stuðn- ings meðal þjóðarinnar. Þessi stuðningur veldur þvf að við getum lagt meira af mörkum til sameigin- legra vama. Framlag okkar er þó bundið þeim skilyrðum sem sam- þykkt voru í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni. Atlantshafsbandalagið er samtök 16 fullvalda ríkja sem öll eru jafn- rétthá. Það var stofnað í þeim tilgangi að tryggja frið. Það er eina takmark þess og öll aðildarríkin leggja sig fram um að ná því. Lönd nyrst og syðst í Evrópu, eins og Spánn og ísland, geta unnið að þessu sameiginlega takmarki hvort á sinn hátt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.