Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 1
'
Op
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
BLAÐ
V estmannaeyj ar
Éger hræddur við
smáfiskadrápið
— segir Sigurjón á Þórunni Sveinsdóttur aflakóngur yfir
landið, en þetta er í 10. sinn sem hann er aflakóngur
u
GREIN: ARNIJOHNSEN
Sigurjón Óskarsson
aflakóngur í tiunda sinn
Sigurjón Óskarsson skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur frá Vestmannaeyjum var aflakóngur Vestmanna-
eyja í tiunda skipti á siðustu vetrarvertíð og jafnframt var hann aflakóngur enn eina vertíðina yfir
allt landið. Enginn skipstjóri hefur orðið aflakóngur eins oft og Siguijón og sjálf aflaklóin Rinni í
Gröf varð 7 sinnum aflakóngur Vestmannaeyja. Næsthæstur í Vestmannaeyjum á vetrarvertíðinni var
Sigurður Georgsson á Suðurey. Engir aðrir bátar á landinu fóru yfir 1.000 tonnin en það gerðu þessar
tvær aflaklær rösklega. Siguijón fékk 1.478 tonn á vetrarvertíðinni, en hæst komst hann í 1.739 tonn
árið 1981. Hvaða álit skyldi þessi slungni aflamaður hafa á þróuninni í fiskveiðimálum okkar.
g er hræddur við þróunina
í sambandi við smáfíska-
I drápið, það er það sem
I vekur mestan ugg í huga
mínum hve lítið magn af físki kem-
ur orðið til hrygningar. Um leið og
góðir stofnar koma er ágengnin svo
mikil, sóknin svo gifurleg, að menn
hljóta að spyija hvort við séum á
réttri leið. Tækjabúnaður skipanna
er orðinn slíkur að afkastagetan
hefur stóraukist þótt skipin hafí
ekki stækkað. Nefna má aflanem-
togurunum þar sem menn
geta séð það í brúnni hvort eitt,
tvö, þrjú eða tíu tonn eru komin í
veiðarfærið og menn geta séð ná-
kvæmlega í hvaða hæð höfuðlínan
er, þeir sjá ef þeir slíta legg eða
granda og þá er híft strax í stað
þess að áður toguðu menn að sjálf-
sögðu út tímann en höfðu ekki upp
úr krafsinu það sem efni stóðu ann-
ars til. Alt þýðir þetta aukna sókn.
Ég held að við höngum of mikið í
sama farinu. Með frystitogurunum
til dæmis mætti beina fískveiðum
inn á aðrar tegundir. Þróunin í
heild er í rétta átt hjá okkur og
ég tel að þær breytingar sem
hafa orðið með ýmsum nýjungum
í veiðum og vinnslu sýni að það
eigi að vera hægt að reka frysti-
húsin betur en gert hefur verið.
Ég tel að gámamir eigi rétt á sér
að vissu marki, þeir hafa skap-
að okkur hærra fiskverð og
þegar deilt hefur verið á gá-
maútflutninginn hefur ekki
verið minnst á það sem var
áður sett í gúanó af veiddum
Sjá bls. 10B.
Morgunblaðið/Sigurgeir