Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 Formaður í 40 ár af 50 til sjós „Menn verða að horfast í augu við staðreyndir(í — segir Þorvaldur Halldórsson skip- stjóri á GK Gunnari Hámundarsyni Suður í Garði á Reykjanesi býr Þorvaldur Halldórsson skipstjóri og útgerðarmaður á Gunnari Hámundarsyni GK 357, fimmtiu tonna bát sem Þorvaldur er bú- inn að eiga í 33 ár ásamt bróður sinum Þorsteini, sem sér um fisk- verkunina. Gunnar Hámundar- son var smíðaður 1954 og er þriðji mótorbáturinn með því nafni. „Pabbi byijaði með áttæring með þessu nafni í Garðinum um 1910,“ sagði Þorvaldur, „síðan kom 17 tonna motorbátur 1916, annar mót- orbáturinn var síðan byggður á Akranesi 1942, en hann var 27 tonn. Sá var keyrður niður af bresk- um togara og sökk á liðlega einni mínútu, en mannbjörg varð. Ég var með hann þegar þetta skeði. Við vorum staddir 20 mflur vestur af Garðsskaga og þeir voru nærri bún- ir að drepa mig. Við vorum sjö á og ég var í koju þegar þetta gerð- ist. Stefni Bretans kom inn í bátinn þar sem mín koja var og það mun- aði aðeins sentimetrum við höfða- gaflinn hjá mér að ég hefði fengið stóra höfuðhöggið þar sem ég lá með hausinn í koju. Jú, þetta er orðinn dágóður tími til sjós. Ég er búinn að vera sjómað- ur í hálfa öld og þar af stanzlaust formaður í 40 ár á næsta ári. Ég ætlaði mér nú ekki að verða sjómað- ur. Það stóð til að ég færi að læra jámsmíði, en svona fór það og ég hef alla tíð róið héðan úr Sandgerði og Keflavík. Þetta gekk sæmilega hjá okkur í vetur, við vorum með 330 tonn sem var heldur minna en í fyrra. Þorvaldur Halldórsson Annars háir kvótinn mér, ég varð að kaupa kvóta fyrir 2 milljónir króna í fyrra og stoppaði þó í 4 mánuði. Við verkum allt sjálfír, allt í salt og það hefur komið ágætlega út.Ég hef aðallega verið á þorskanetum seinni árin, áður var þetta lína og reknet, en við róum mikið núna norður í Bugt. Mér líst ekkert illa á stöðuna í sjávarútvegsmálum nú og það er síst verra að gera út hlutfallslega miðað við afla, en hitt er, að ef maður fengi að afla 500-600 tonn væri þetta í dágóðu lagi. Til þess að auka tekjumar erum við aðeins 5 á bátnum á netunum. Hljóðið í strákunum hjá mér er gott og sum- Gunnar Hámundarson í blíðviðri. Gunnar Hámundarson klýfur hafið með tilþrifum í ólgusjó. ir þeirra hafa verið hjá mér allt upp í 20 ár. Menn hafa alltaf verið lengi hjá mér til sjós og ég hef alltaf reynt að gera vel við mannskapinn. Það sem mér finnst þurfa að taka fastari tökum eru aðgerðir gegn smáfískadrápinu. Þetta er hreinlega ekki hægt lengur. í vetur vorum við með 90—120 físka í ton- nið í janúar og marz, en síðan fór þetta upp í rúmlega tvö hundruð físka í tonnið og okkur þótti þetta lélegur fískur. A togumnum veiða þeir svo smátt að það fara upp í 700 físka í tonnið, það er brjálæði, aldeilis galið með þessum togara- flota og frystitogaramir era alverst- ir af öllum. Þetta er slík heimska að það nær ekki nokkra tali. Það þarf vissulega að vera stjómun og það þarf að mínu mati að stækka friðunarsvæðin og fylgjast meira HÖRKUGÓÐUR HEMLABÚNAÐUR! Bremsuborðar, klossar og barkar. Daelur og dælusett. í flestar gerðir bifreiöa! Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26. Þar er úrvalið mest í bilinn. Láttu sjá þig sem fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af heimsókninni. BORGARTÚNI 26, SlMI 62 22 62

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.