Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 24
ÍT
24 B
r TT/r-rjr » »• <T» 1 n t /TT Tt^t/TT ^TTH A T<TTiT f T ^QO' F
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
Ostur með kjöti
Ostur á alls staðar vel við.
Hann eykur næringargildi rétt-
anna og bragð hans á mjög vel
við aðrar fæðutegundir, ekki
sízt kjöt. Þetta er auðvelt fyrir
ykkur að reyna í eftirfarandi
réttum:
Svissneskar
kálfasnittur:
8 þunnar kálfakjötssneiðar,
8 þunnar flesk- eða skinku-
ræmur,
8 þykkar ostsneiðar, eftir
smekk,
1-2 msk. sinnep,
2 msk. hveiti,
1 tsk. salt, pipar,
1 egg,
1 dl brauðmylsna,
smjör.
Smyrjið kjötsneiðamar með
sinnepi og leggið síðan skinku og
ostsneið á helming sneiðarinnar.
Leggið sneiðina saman og festið
með tannstöngli. Veltið snittunum
fyrst upp úr hveiti, síðan úr eggi
og loks brauðmylsnu. Steikið við
vægan hita í um 5 mínútur á
hvorri hlið. Berið réttinn fram vel
heitan með soðnum eða steiktum
kartöflum, soðnu grænmeti eða
hrásalati.
Lambakj ötspott-
ur:
2 stórir bollar brytjað lamba-
kjöt (hrátt),
2 bollar brytjaðar kartöflur
(hráar),
'/< bolli saxaður laukur,
1 gulrót,
1 epli,
150 gr rifínn ostur 45% (t.d.
sterkur Gouda),
2 msk. mjólk,
3 tsk. Worcestersósa,
hvítlauksduft, salt og pipar.
Steikið kartöflur og kjöt vel á
pönnu. Rífið gulrót og epli og
blandið saman við ásamt lauk.
Hrærið mjólk og Worcestersósu
saman við. Setjið réttinn í eldfast
fat, stráið rifna ostinum yfír og
bakið í 225 gráðu heitum ofni í
10-15 mínútur. Gott er að bera
kúmenbollur eða snittubrauð með.
Kjúklingar með
osti
1 kg kjúklingar,
4 msk. hveiti,
D/2 tsk. salt,
Vt tsk. pipar,
1 egg,
V* dl vatn,
2 dl rifínn ostur.
Hreinsið kjúklinginn og hlutið
hann sundur. Blandið saman
hveiti, salti og pipar. Þeytið eggið
og blandið saman við það vatni
og osti. Veltið kjúklingnum úr
hveiti, síðan eggjablöndunni.
Raðið kjúklingabitunum í eld-
fast fat og steikið í ofni við 200
gráðu hita í 30 mínútur. Berið
fram með kartöflum og soðnum
spergli (aspargus).
Italskur réttur
300 gr nautahakk, 2 laukar, 3
msk. smjör, 1 dl tómatsósa, 1
súputeningur, ‘Msk. salt, pipar,
hvítlauksduft og 1 tsk. basilikum.
Vk msk. smjör, 3 msk. hveiti,
4 dl mjólk, salt og pipar, 1 dl rif-
inn F 45 Gouda.
200 gr makkarónur, 1 dl rifínn
Gouda 45%.
Sjóðið makkarónumar í létt-
söltu vatni.
Saxið laukinn og brúnið lauk
og kjöthakk í smjöri á pönnu.
Blandið tómatsósu saman við og
kryddið. Sjóðið í 10-15 mínútur.
Jafningur: Bræðið smjörið,
hrærið hveitið saman við og þyn-
nið með mjólkinni. Sjóðið í 5
mínútur og kryddið. Blandið ostin-
um saman við.
Leggið helminginn af makkar-
ónunum í smurt eldfast mót, síðan
kjötsósu og hvíta sósu (jafning),
síðan aftur makkarónur, kjötsósu
og hvíta sósu. Stráið rifnum osti
yfir. Bakið við 225-250 gráðu hita
í 15 mínútur. Berið tómatsalat
með.
Birt með góðfúslegu leyfi
Osta-og smjörsölunnar hf.
ELDHÚSKRÓKURINN
Nýir og yfirbyggðir skotbakkar.
Kiwanisklúbbur Hveragerðis með hlutaveltu.
Frábær fjölskylduskemmtun.
Opið frá kl. 10-22.
ODYRAR
GÆÐASKRÖFUR
Eigum fyrirliggjandi mikið úrval af galvaniseruð-
um skrúfum, ryðfríum skrúfum og álskrúfum
í öllum stærðum. Einnig sjálfborandi skrúfur og
plasthettur i\mörgum litum.
Þetta eru viðurkenndar vestur-þýskar þakskrúfur.
Afgreiðum sérpantanir með stuttum fyrirvara.
Mega hf., Hafnarhúsinu,
Tryggvagötu 17
Sími 622434.
Fertug
filmu-
hátíð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Fertugasta Cannes-hátíðin þótti
heldur sviplaus. Variety tekur til
þess hversu lítið hafi verið um „stór-
myndir" í ár, miðað við fyrri, ef
undan er skilið brot úr The Last
Emperor e. Bertolucci. Fjarri góðu
gamni voru svipmiklir fastagestir á
borð við Salkind-feðga (Superman-
myndimar o.fl. o.fl.), en því meira
bar á „smáfuglunum", litlum fram-
leiðendum með ódýrar myndir í
farangrinum. Að vísu voru Cann-
on-toppamir til staðar að venju en
öllu ábúðarminni en áður. Ertda
hriktir nú í undirstöðum fyrirtækis-
ins, sem á síðasta ári kynnti yfír
40 myndir í framleiðslu. Að auki
var svalt í veðri svo minna bar á
btjóstgóðum smástimum en oftast
áður.
A þessari frægustu kvikmynda-
hátíð samtímans bar meira á trosi
en endranær. Mangað með myndir
sem báru nöfn eins og Assault of
the Killer Bimbos, Space Sluts in
the Slammer og Surf Nazis Must
Die (sic). Viðbrögðin við Tough
Guys Don’t Dance, sem rithöfund-
urinn Norman Mailer leikstýrði eftir
handriti eigin metsölubókar, voru
hálfkæfðir hæðnishlátrar. Aðrar
myhdir sem miklar vonir höfðu ver-
ið bundnar við en bmgðust vom
t.d. A Man in Love e. Diane Kury
og nýjasta mynd Konchalovskys,
Shy People. Hún skartaði þó frá-
bærri kvikmyndatöku Chris Menges
(Mission) og leik sem færði Barböm
Hershey leiklistarverðlaunin. Þá
vom menn vonsviknir yfír hinni
ítölsk-bandarísku mynd Taviani-
bræðra, Good Moming, Babylon.
Hershey og Konchalovsky hin
glaðbeittustu.
Bjartara var yfir öðmm, einkum
Wish You Were Here, eftir Bretann
David Leland. Glerdýrin hans Paul
Newmans með eiginkonunni, Jo-
anne Woodward, Karen Allen og
James Naughton í aðalhlutverkum,
hlaut náð fyrir augum hátíðargesta.
Sömu sögu var að segja um Barfly
Barbets Schroeders, sem byggð er
á brennivínsævi skáldsins Charles
Bukowsky, með Mickey Rourke og
Fay Dunaway í aðalhlutverkum (og
mögulegt „kassastykki" fyrir illa á
sig komið Cannon-fyrirtækið); það
geislaði af Mastroianni í mynd Fell-
inis, Interview, þó enn frekar í
Dark Eyes, sem færði honum meg-
in leiklistarverðlaun hátíðarinnar.
Myndinni, sem byggð er á nokkram
smásögum eftir Chekhov, leikstýrir
sá sovéski Nikita Mikhalkov, bróðir
Konchalovskys. Þeir geta vel við
unað, með báða bestu leikara hátíð-
arinnar innanborðs.
En Sovétmenn áttu eftir að koma
meira við sögu. Repentance — Eftir-
sjá, þriggja ára gömul mynd eftir
Tengiz Abuladze, upprifjun frá