Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 5
B 5 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987 í fótboltann í 1. deild beint af sjónum „Þetta erþess virði“ — segir Vilberg Jóhann Þorvaldsson í Garðinum Vilberg Jóhann Þorvaldsson er sonur Þorvalds á Gunnari Hámundarsyni í Garði. Vilberg Jóhann er vélstjóri, 24 ára gam- all, og byrjaði til sjós 17 ára gamall hjá pabba sínum. Siðan hefur hann verið með pabba sínum til sjós. „Mér líkar vel á sjónum," sagði hann, „þetta er spennandi starf og mér líkar einnig að róa á þess- ari stærð báta. Ég tók 1. stigið í Vilberg Jóhann Þorvaldsson vélskólanum og það má segja að þetta snúist allt um tvennt hjá manni, sjómennskuna og fótbolt- ann.“ Jóhann Vilberg leikur með 1. deildarliði Víðis í Garði og líklega er hann eini 1. deildar leikmaður- inn sem jafnframt er starfandi sjómaður. “Þeir sýna mér mikla lipurð í þessu sambandi pabbi og strák- arnir," sagði Vilberg Jóhann, „og þeir hafa reynt að hagræða róð- rum svolítið eftir æfmgum og stundum hefur manni verið skutl- að í land á Gerðabryggjuna þegar við höfum verið á innleið til Keflavíkur til löndunar. Það hefur stundum verið strembið að fara beint á æfingu eftir 18 tíma róð- ur, en það er þess virði, það er gaman að þessu. Það hefur hvatt mann að allir eru jákvæðir í að láta þetta ganga upp. Allir strák- amir um borð eru áhugamenn um knattspymu og taka þátt í þessu með mér að því leiti." — á.j. með smáfiskadrápinu. Það verður að taka á í þessum efnum, takast á við vandamáiið eins og menn og horfast í augu við staðreyndir." Ég vék talinu að sjómannadegin- um og spurði Þorvald hvort hann hefði alltaf haldið upp á hann? „Já, ég hef alltaf haldið upp á hann og á sjómannadaginn fer ég í kirkju. Ungur söng ég sjómanna- sálminn með kirkjukómum á kirkju- loftinu. Mér finnst alltaf hátíðlegt að fara í kirlq'u á sjómannadaginn og vissulega hefur maður ástæðu til að vera þakklátur, því á öllum þessum tíma hefur aldrei hent mig nokkurt alvarlegt slys. Það er mik- ið lán, því aðalatriðið er að sleppa við slysin. Oft hefur maður þó lent í vondum veðrum og eitt versta veðrið sem ég hef lent í var út af Eldeyjaboða. Það var snarvitlaust veður, vestan- rok. Við vorum á línu, en urðum að lensa í land,_ alla leið og gekk _þó 8—9 mílur. í þessu veðri fékk þýskur togari á sig brotsjó skammt frá okkur og það létust nokkrir menn í brú, klemmdust til bana þegar brúin lagðist saman." Ég spurði Þorvald að síðustu hvort hann ætti uppáhaldsslóð á miðunum? „Já, ég á uppáhaldsslóð, því ég er mikið norður í kanti seinni árin. Fyrst var ég mest á djúpslóðinni út af Sandgerði, en nú líkar mér best í kantinum, tveggja og hálfs tima stím frá Keflavík, þar er oft fiskur sem gengur með hraun- brúninni og þar hef ég oft fengið góða róðra þótt þetta sé náttúrulega að öllu jöfnu þeytingur til og frá.“ - á.j. fHttgmi' í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI RÚLLUREKKAR Til sölu gepnumstreymis rúllurekkar, taka 144 bretti. Ymsir möguleikar á uppsetningu. Smjörlíki Sól hf.v Þverholti 17-21, Rvk. Sími 26300. Þér er boðið að vera viðstaddur á kvikmyndasýningu og kynningu á Bandaríska framhaldsskólanum í London (The American College in London) og Bandaríska framhaldsskólanum í hagnýtum listum (The American College for the Applied Arts) í Atlanta og Los Angeles SKÓVERSLUN HELGA o Völvufelli 19, Fellagörðum. Simi 74566. Póstsendum. fímmtudaginn 18. júm 1987 kl.20 á Hótel Loftleiðum við Reykjavíkurflugvöll Bandariski framhaldsskólinn í London er alþjóðlegur framhaldsskóli sem býður uppá banda- ríska menntun og fer kennslan fram á ensku. Skólinn er viðurkenndur af „Association of Independent Colleges and Schools (AICS)“ í Washington, D.C. og starfar í samráði við háskólann í Wisconsin - Stout. Bandariski framhaldsskólinn í hagnýtum listum er viðurkenndur af „Commission on Occup- ational Education Institutions-Southem Association of Colleges and Schools (SACS)". Allir bjóð þeir upp á stúdentagarða fyrir erienda námsmenn. Skólamir 3 bjóða allir uppá háskólamenntun (Associate and Bachelor of Applied Arts) á sviði: Stjómunar fýrirtækja Tískuhönnunar Sölu á tískuvamingi Innanhúsarkrtektúr Augtýsingahönnun Annir byrja í október, janúar, mars, maí og júlí. Hægt er að sækja um styrki. Við hlökkum til að sjá þig á kynningunni. Nánari upplýsingarveittarhjá: The AmericanCollege in London 100 Marylebone Lane London W1M 5FR ENGLAND TEL. (01) 486-1772

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.