Morgunblaðið - 14.06.1987, Blaðsíða 20
2'<f I?
rpor ttattt ttt-tnArnttamttrnfTA TfTWTTrmrw
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1987
SigluQörður
„Frídagarnir
mættu vera fleiri“
- segir Finnur Kjartansson
1. vélstjóri á Súlunni
„Það er rækjan núna, úthafsrækjan. Við vorum á loðnunni á vertí-
ðinni, en fórum á rækjima 12. marz,“ sagði Finnur Kjartansson 1.
vélstjóri á Súlunni frá Akureyri, en við brugðum okkur um borð í
Súluna þar sem hún var að ianda á Siglufirði. „Við erum aðallega
á svæðinu frá Kolbeinsey að Langanesi, en við Ieggjum upp á Siglu-
firði hjá Sigló. Þetta hefur gengið þolanlega, eru þetta í kring um
20 tonnin í túr og það gefur ágætis tekjur í túrum sem eru venjulega
6 sólarhringar.
Ég er búinn að vera til sjós í 20
ár, fæddur 1944, er Reykvíkingur,
en bý á Akureyri. Jú, hljóðið í mann-
skapnum er gott, enda þokkalegar
tekjur ( heild. Það er auðvitað ýmis-
legt sem brennur á eins og venju-
lega vill verða og til dæmis mættu
fríin vera lengri hjá okkur, menn
þyrftu að hafa meiri möguleika á
því að taka frí reglulegar eða hafa
skiptilið til þess að sinna því. A
rækjunni erum við 8 um borð, en
þrír eru alltaf í landi. Á loðnunni
erum við hins vegar langtímum
saman í burtu.
Jú, ég held að megintónninn í
fiskveiðistefnunni sé eins og köstur
er, ég sé ekki neina sérstaka ann-
marka á því er að okkur snýr á
loðnunni og rækjunni.
í öryggismálunum hefur átt sér
stað mjög jákvæð þróun og það
verður mikill plús að því síðasta í
þeim efnum, öryggisgöllunum.
Átakið í öryggismálum undanfarin
ár hefur verið stórkostlegt þótt allt-
af megi bæta í þeim efnum og
auðvitað eiga menn að vera sífellt
vakandi gagnvart öllu sem má bet-
ur fara til að auka öryggi.
Framundan? Við verðum á rækj-
unni fram í endaðan júlí, en við
eigum eftir um 300 tonn af þcrski
og síðan bíður trollið, en næst má
segja að það liggi fyrir að halda
upp á sjómannadaginn. Ég held
alltaf upp á hann, fer í kirkju og
er með fjölskyldunni og við tökum
þátt í hátíðarhöldunum. Það má
svona í heildina segja að við séum
frekar brattir á bárunni, komnir
með um 200 tonn af rækju svo
þetta lofar allt góðu.“
- á.j.
Morgunblaðiað/RAX
Hinir galvösku skipveijar á frystibátnum Þóri frá Hornafirði. Frið-
rik er fremst til hægri.
Sjóveikurfyrstu
sex tímana
Rætt við unga sjómenn á Þóri
frá Hornafirði
Það voru snaggaralegir strákar að gera klárt um borð í Horna-
fjarðarbátnum Þóri SF 77,125 tonna frystibát sem lá við bryggju í
Siglufirði þegar okkur bar að. Við tókum tali yngsta skipveijann,
Friðrik Ingvaldsson knappt 16 ára, vildi heldur láta það heita að
hann væri 17 og sagðist segja stelpunum að hann væri 18 ára.
“Nei, ég var ekki sjóveikur lengi,
fyrstu sex tímana og síðan var það
í lagi. Mér líkar vel á sjónum, verst
að það eru búin að vera trollvand-
ræði hjá okkur. Jú, ég ætla að halda
áfram til sjós og stefni að því að
fara í stýrimannaskólann þar næsta
haust. Það er góður andi hér um
borð og ágætis tekjur, að minnsta
kosti fyrir ungling.“
Annar á sama ári kom nú inn í
brúnna, Kári Sölmundarson og sá
þriðji 17 ára gamall, Bjarni Har-
aldsson sem var í sínum fyrsta túr
ásamt Snæbimi Jónssyni frískleg-
um strák úr Austur-Barðastranda-
sýslu sem ég var að hitta í þriðja
sinn tilfallandi á stuttum tíma, fyrst
á skrifstofu Húsnæðismálastofnun-
ar fyrir nokkrum vikum, síðan í
Orlando á Florida og svo á Siglu-
firði.
“Það er góður andi um borð hjá
okkur, létt yfír þessu og samtaka
lið,“ sagði Bjami Haraldsson. “Ég
kem beint úr skóla og held áfram
námi í haust, fer í Fjölbraut heima
á Homafirði í náttúrufræðibraut."
Friðrik sagði að þeir myndu allir
fara heim til Hornafjarðar á Sjó-
mannadaginn, því það stæði mikið
til.Áhöfnin á Þóri hefur tvívegis í
röð unnið kappróðurinn á Sjó-
mannadaginn og nú er ætlunin að
vinna róðurinn í þriðja sinn. Friðrik
sagðist alltaf hafa unnið hingað til
í landi á sumrin, tvö sumur í veiðar-
færagerð, en einnig í frystihúsinu.
það eru góðir strákar hér um borð,
“ sagði hann og þar með héldu
þeir áfram að gera klárt, því það
átti að ná einum túr fyrir Sjómanna-
Morgunblaðið/RAX
Þessir þrír krakkar fóru í róður með Súiunni, þann síðasta fyrir sjómannadaginn. Frá vinstri:
Heba Finnsdóttir 12 ára, Hafdís Bjarnadóttir 11 ára og Helgi Jóhannsson 8 ára.
Lúkarsspjall. Frá vinstri: Bjarni, Helgi, Þórður, Hermann, Finnur, Gunnar og Armann.
„Hættulegt effiskimiðin
okkar verða
að erfðagóssi“
- segir Bjami Bjarnason skipstjóri á Súlunni frá Akureyri
Við hittum Bjarna Bjarnason
skipstjóra á Súlunni frá Akur-
eyri um það leiti sem rækjul-
öndun var að ljúka á skipi hans
á Siglufirði. Bjarni hefur verið
skipstjóri á Súlunni siðastliðin
9 ár, en hann byijaði á Súlunni
fyrir tæpum 20 árum og á 20
ára starfsafmæli á þessu róm-
aða skipi 17. marz næsta vetur.
Ég spurði hann um fiskveiði-
stefnuna.
“ Mér finnst fiskveiðistefnan
að mörgu leiti rétt, stærsti löstur-
inn er hringlið með kvótann, salan
á óveiddum fiski hjá bátum sem
geta þó róið. Það finnst mér þó
vera dekkst að á meðan þessi
stefna er ríkjandi getur ekki orðið
nýliðun í útgerðinni og það er
hættulegt ef fiskimiðin okkar
verða að erfðagóssi. Ég vil að
menn séu sífellt vakandi yfir því
að fínna leið út úr þessum kvóta
og það er grundvallaratriði að
lagfæra það sem er augljósar veil-
ur I kerfinu.
Ég hef í sjálfu sér ekki áhyggj-
ur af árferðinu eða slíku.því ég
tel að við séum miklir krunkarar
í þessu miðað við móðir náttúru,
sem ég tel að ráði þessu alfarið.
Það er eins og menn geri sér ekki
alltaf grein fyrir því að þessi kvi-
kyndi öll eru með sporð og hala
og fiskurinn færist til, miðin fær-
ast til og jafnvel hrygningarsvæð-
in. Fyrst og fremst eru þessi
kvikyndi ekki alltaf á sömu slóð-
um og menn verða að taka tillit
til þess þótt það sé lenska að
kortleggja eða tölvusetja alla hluti
nú til dags.
Hluti af skipshöfninni á Súlunni.
Frá vinstri: Hermann B. Haralds-
son 1. stýrimaður, Gunnar
Jónsson, Helgi Ásmundsson,
Finnur Kjartansson, Bjarni
Bjarnason, Armann Jónsson, Jón
kokkur og Þórður Jóhannsson
2. vélstjóri.
Bjarni Bjarnason skipstjóri.
Jú, ég held upp á Sjómannadag-
inn með öllum sortum, alveg frá
kirkju í ballið. Ég hef lent í því
að lesa ritningargrein í kirkjunni
og endað með því að vera orðinn
öskufullur um kvöldið á ballinu,
svo ekki hefur það verið björgu-
legt. En það er nú svona, það er
ágætt að hver st.aður eigi sína
stund og það er alltaf fullt að
gera hjá okkur á þessu skipi, við
höfum aldrei lagt því eina viku
þegar það hefur verið klárt til að
róa. Það er engin ástæða til ann-
ars en að gera gott úr hlutunum.
Ég er ekki svartsýnn, en hæfilega
bjartsýnn, þoli illa mikla svart-
sýni. Ég held að almennt gangi
menn ekki illa um miðin.en það
eru auðvitað til menn sem geta
ekki gengið um nokkra hluti á
mannsæmandi hátt og af skyn-
semi.“ - á.j.